Morgunblaðið - 26.07.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 26.07.1966, Blaðsíða 5
f»riðjudagur 2G. júTf 1966 MORGUNBLAÐIÐ 5 ÚR ÖLLUM ÁTTUM „I>AÐ var eins og skotið væri úr byssu, þegar skriðuhlaup- ið geystist fram úr Þverár- gljúfrL Við héldum að það væri komið þrumuveður. Xignarlegt var að sjá allan þennan móbrúna vatnsflaum geysast þarna fram, sjálfsagt 15 metra háan og fyllti í allt gljúfrið, sem vafalaust er 5A metra breitt þarna. Og auð- vitað vissum við, að svona skriðuhlaup myndi valda miklu tjóni, sem og líka raun in varð.“ Gunnar bóndi Einarsson á Morastöðum í Kjós mælti þannig við blaðamann Mbl. í gær, þegar við spurðum hann um hamfarirnar, sem áttu sér stað norðan í Esju síðastliðinn fimmtudag, þegar hið mikla úrfelli varð hér sunnanlands, og olli mikum vegarskemmdum víða, og skriðphlaupum sumsstaðar, en þó víst hvergi meiri og stór- hættulegri en einmitt þarna. Morastaðir standa Kjósar- megin við Kiðafellsá, en beint á móti standa bæirnir Ytri- og Innri Tindastaðir, en þeir voru í mestri hættu í skriðuhlaupi þessu. Blaðamaður Mbl. gekk um svæði þetta á sunnudaginn og var þar ófagurt um að iít ast. Skriðuhlaupin, sem mest bar á byrjuðu í Dýjadals- hnjúki, en hann gnæfir yfir dalnum og er 720 metrar yfir sjávarmál að hæð. Rétt nærri upp undir brún, byrjuðu skriðuhlaupin, og lausleg ágizkun er, að þarna hafi losn Uppi undir Dýjadalstindi sjást skriðuföllin tvö eins og 2 dökkir þríhyrningar, gljúfrið til vinstri er Þverá, og síðan sjást aurskriðurnar alla leið niður að Kiðafellsá. Nýja gljúfrið sem myndaðist er töluvert langt til vinstri við Þverá. Störfelld skríðuhlaup valda tjöni á Kjalarnesi og í Kjös Kindur farast, ný gljúfur myndast Skriðuhlaupin úr Dýjadalstindi falla úr 700 m hœð til sjávar, 10 km leið aðalánni, runnu þar auðvitað með Þveránni, en að auki hafa þau nokkru innan með Kiðafellsá grafið sér ný gljúf ur 5—6 metra há og 3 metra breið alveg niður á berg. — og alla leið til sjávar eftir Kiðafellsá Síðan berst flaumurinn með Kiðíafallsá, breiðir úr sér yfir litla dalkvos, Kvía- hvamm, sem margir vegfar- endur kannast við, rutt burtu öllum steinum, sem fyrir voru, en flutt til nýja, og runnið síðan undir brúna á Kiðafellsá, niður fossana, og síðan allar götur eftir áreyr- : ■ ■ fjallinu fyrir ofan Ytri-Tinda staði, sitthvorum megin við bæinn, og rétt á eftir heyrðu þau skruðninginn í þeim Ekkert nema urð og grjót. Dauð kind finnst í aurskriðunni. margar leynzt enn í leðjunni, og svo er líklegt, að eitthvað hafi kunnað að berast alveg til sjávar. Einnig má telja líklegt, að allar eða flestar hafi verið þarna með lömto- um. Ekki er npkkur vafi á, að kindurnar hafa leitað skjóls í gljúfrinu, enda skýli þar og grösugt, en þennan dag var mikið úrfelli og rok. í samtali okkar við Gunnar á Morastöðum kom fram, að rétt um 4 leytið á fimmtu- daginn féllu tvær skriður úr stærri upp undir tindi, og skömmu síðar sáu þau aur- og vatnsflóðið, sem áður um getur geysast fram úr Þver- árgljúfrum. Tvær skriður nær lentar á Tindastaðabæ Vð náðum tal af Gunnari Leó, bónda og málarameist- ara á Ytri-Tindastöðum í gær. Hann sagði okkur, að enginn hefði verið heima um það leyti, sem skriðurnar féllu að bænum, en þær væru ekki lengra í burtu beggja vegna hans en 20—30 metra. Hafi sú vestari tekið af veg inn heim að bænum á löng- um kafla, tekið af rétt og ný- legt gerði og girðingu, sem hann hefði notað til að reka inn í réttina. Hann hefði ekki enn feng- ið veginn lagaðan, en bygg- ist við að vegagerðin myndi hjálpa til þess, og eins þyrftí hann að reyna að ýta þeirri skriðunni, sem gekk yfir nokkuð af túni hans, á burt. Varðandi kindurnar, sem fundust í skriðunni, kvaðst hann búast við að eiga þær flestar, því að þetta væri ein mitt á þeim stað, sem fé hans gengi. Nokkru innar í dalnum er bærinn Miðdalur. Þar hafði skriðan úr eystri tindinum valdið nokkrum spjöllum. Davíð bóndi þar Guðmunds- son, sagði, að tvær skriður hefðu skemmt fyrir sér tún. Myndi önnur, sú stærri, hafa runnið fram úr KerlingagilL en það er gríðarstórt og hrika legt gil, sem skerst þarna inn í Esjuna norðanverða. Sjálf- sagt hefur gilið bjargað því, að skriðan var ekki stærri, þegar niður kom. Ekki síðan 1880 Slík stórfelld skriðuhlaup munu ekki hafa átt sér stað þarna síðan 1880, en þá hljóp skriða úr Eyrarfjalli, sem er norðan dalsins, frá bænum Morastöðum og þvert yfir dal inn að Tindastöðum. Nú var hins vegar miklu minni úr- koma í Eyrarfjalli en í Esj- unni. Augljóst er, að mikið tjón hefur þarna orðið, bæði á landi og búsmala, og sjálfsagt tekur það tugi ára, að græða upp land það, sem þessi miklu skriðuhlaup hafa lagzt undir aur og grjót, og víst er, að þeir sem land þetta þekkja náið, munu telja, að það hafi illilega skipt um fall egan svip til hins verri og ljótari. — Fr. S. að jarðvegur í þeim tveim, sem byrjuðu vestanmegin í Tindadal, sem svarar 4—5 hekturum lands. Skirðurnar renna eftir Þverá Skriðurnar hafa runnið nið ur að daldragi Þverár, og skollið þar á af miklu afli, sveigt til vesturs með ánni, steypst niður Þverárfoss efri, svo að hann er nú óþekkjan- legur, niður gljúfrin framhjá Melaseljadal, og þar í norð- ur í átt að Kiðafellsá, en í hana fellur Þverá, fyllt gljúfr in, sem þarna eru um 50 metra breið, og bullað fram yfir klettaása við hlið þeirra, þegar þau gátu ekki lengur tekið við rennslinu, en síðan breytt úr sér fyrir neðan á mela og gras þar til þau náðu unum til sjávar, og valdið þar margvíslegu tjóni. Mun öll þessi langa leið vera um 10 km, og gizkar Gunnar á Morastöðum á, að hraði hlaupsins, þegar það steyptist fram úr Þverár- gljúfri, . hafi í það minnsta verið 10—12 km á klst. Ófögur sjón blasti viS Þegar við gengum upp með Þveránni og hinu nýja gljúfri þar austan við, blasti við okk ur hryggileg sjón. Fundum við þar fljótlega á litlum bletti 6 kindur, sumar lim- lestar, allar dauðar og hálf- grafnar í hlaupinu. Síðar fundust svo tvær enn ofar en við fórum, og enn seinna ein niður á áreyrunum, svo að alls hafa 9 kindur fundizt dauðar, en auðvitað geta Bærinn á Ytri- Tindastöðum uinluktur skriðum á báðar hendur. Stóru skriðurnar sjást hátt upp í fjaili til vinstri. (Myndirnar tók blaðam. Mbl. Fr. S.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.