Morgunblaðið - 12.08.1966, Side 8
8
MORCUNBLAÐIÐ
r
Föstudagur 12. ágúst 1966
Áheyrendur hlýða á Mossige verkíræðing, yzt til liægri er Gunnnr Bjarnason skólstj.
Mannlaus vélariím í skipum
innan fárra ára
— segir norski verkfræðingur-
inn Mossige
NORSKI verkfræðingurinn Moss
ige hélt fyrstu tvo fyrirlestrana
um sjálfvirkni í véiarúmi skipa
í hátíðasal Sjómannask ólans í
gær. Fjallaði hann um máiið með
tilliti tii útgerðarinnar. Áheyr-
endur voru margir og meðal
þeirra þekktir útgerðarmenn og
framámenn vélstjórastéttarinnar.
Gunnar Bjarnason skólastjóri
Vélskóla íslands bauð Mossige
velkominn og kvað það fagnaðar-
efni að fá slíkan mann til fyrir-
lestrahaids á þessu sviði.
Mossige hóf mál sitt með því
að segja að hann hefði nýlega
rekizt á það í norsku dagblaði
að 9 íslenzkir togarar væru til
sölu, en Norðmenn gera ekki út
stóra togara og ekki er líklegt
að þeir geri það fjrrst um sinn
nema hægt sé að hægræna rekst-
urinn. Mossige sagði að fyrsti
togaraskipstjóri Norðmanna
hefði verið íslendingur Finnur
Þórðarson að nafni.
Mossige sagði að Norðmenn
ættu nú þriðja stærsta kaup-
skipaflotann í heimi og því eðli-
legt að norskir útgerðarmenn
leggi mikla áherzlu á hagrænan
Mossige llytur ræðu sína
rekstur og sjálfvirkni um borð
í skipum er ein af leiðunum til
hagrænni reksturs.
SFI (Skipfartens Forskings-
Institut) er rannsóknarstofnun
skipareksturs í Noregi. Stofnun-
in hefur rannsakað sjálfvirkni í
vélarúmi skipa og þær leiðir sem
hugsanlegar eru í því máli. Til
þessara rannsókna hafa þeir skip
sem heitir Brattvág sem þeir búa
út með þeim tækjum sem til
rannsóknar eru hverju sinni.
Tækin eru síðan prófuð þarna og
endurbætt ef rneð þarf. Með
þessu móti fást vísindalegar nið-
urstöður um eiginleika slíkra
tækja. Þá má einnig geta þess að
við vélskólann í Ósló (Oslo
Maskinist skole) er haldið nám-
skeið fyrir vélstjóra og skipa-
rafvirkja þar sem kennd er með-
ferð og notkun sjálfvirkra tækja.
Námskeiðum þessum var komið
á fyrir tilstilli „Norsk Skipfart-
ens Arbeidsgiver Forening", sem
einnig greiddi kostnaðinn. Þetta
er þeim mun nauðsynlegra sem
sjálfvirkni er þegar komin í all-
mörg norsk skip. Að því er Nor-
eg viðvíkur þá er mikill skortur
á þjálfuðum mönnum eins og er
til að stjórna útbúnaði sjálf-
virkra skipa. Vélarúmin líkjast
meira rafeindamiðstöðvum. í
vélarúminu verða æ færri menn
og þetta atriði hefur verið mjög
til umræðu meðal þeirra manna
sem þetta snertir, þ.e.a.s. vél-
stjóranna. En nú er svo, að skip-
unum fjölgar svo ört að ekki er
nein hætta á atvinnuleysi vél-
stjóra vegna sjálfvirkninnar.
Þvert á móti.
Meðal allra siglingarþjóða ei
verið að taka upp nýjar leiðii
í menntun vélstjóra, og það lanc
sem sennilega er lengst komif
á þessu sviði er Japan. Til þesí
Enn um Möðruvelli — Andsvar
í MORGUNBLAÐINU 6. ágúst
*L birtist grein um Möðruvalla-
mál hin nýju, sem flestir fara nú
að kannast við. Grein þessi er
undirrituð af tveim mönnum —
Eggert Daviðssyni og Steini
Snorrasyni — sem fáir kunnugir
trúa þó, að séu höfundar henn-
ar.
All-langan tíma hefir tekið
að sjóða saman þessa ritsmíð,
sem aðallega á að vera svar við
grein Bernharðs Stefánssonar,
fyrrum alþingismanns, sem fyrst
birtist í „Degi“ fyrir tæpum
mánuði og síðan í „Tímanum"
aokkru síðar. Er það ekki ætl-
un mín að svara fyrir hann. Til
þess er hann einfær, finnist hon-
um umrædd grein svaraverð.
Tilgangurinn með þessum fáu
orðum mínum er að mótmæla
enn á ný þeim móðgandi og
mannskemmandi ummælum, sem
eru endurtekin í umræddi grein
úr hinu alræmda kæruskjali,
sem þessir tveir menn hafa nú
með undirskrift sinni játað opin-
berlega, að þeir eru frumkvöðl-
ar að.
Undirskriftarmenn kæruskjals
Ins hafa raunar margir borið af
«ér þessi ummæli, en þá hefir
þeim verið bent á, að annað
hvort hafi þeir ekki lesið kær-
una eða verið sagt annað en þar
stendur. Fær rannsóknardómari
að sjálfsögðu úr því 9korið.
Að hinu leytinu er þakkarverð
umhyggja þeirra Eggerts og
Steins fyrir heilsu minni, þar sem
segir, að ég sé „farinn að heilsu“.
Hitt vil ég þó taka fram, að ég
er ennþá allvel ferðafær og hefi
raunar verið viðstaddur flestar
helgiathafnir hér í prestakallinu
fram að þessu og jafnvel unnið
prestverk nú í. sumar. Annars
virðast þessir menn og aðrir
kærendur ekki hafa haft miklar
áhyggjur af heilsufari mínu að
undanförnu. Þá hefðu þeir tæp-
lega stefnt slíku að mér og mínu
heimili, sem þeir hafa gert.
Og svo að lokum: Finnst ekki
mönnum nóg komið af svo góðu?
Blöskrar ekki fleirum en yfir-
gnæfandi meirihluta fyrrverandi
sóknarbarna minna- þessar að-
farir og ofsóknir? Sjálfan tekur
mig það sárast, hve hlífðarlaust
er hér vegið að syni mínum, sem
fullur áhuga og af einstakri kost-
gæfni hefur rækt embætti sitt
og við almennar vinsældir er
mér óhætt að segja. En honum
eru vonandi allir vegir færir, þó
að hann hefði helzt kosið sér
verksvið þar, sem hann hefur
unnið með mér undanfarin ár,
fyrst við predikanastörf, með-
an hann var enn í skóla, og síð-
an sem settur prestur. Er mér
það að vonum ekki sársauka-
laust, að nú skuli brugðið fæti
fyrir hann svo eftirminnilega af
fáum mönnum. Og er mér það
raunar undrunarefni, hve fálát
prestastéttin er í þessu máli, og
væri það sannarlega verkefni fyr
ír stjórn Prestafélags íslands að
láta hér til sín taka, því eitthvað
var til hér á árunum, sem hét
Codex ethicus. En ef til vill er
svo ekki lengur.
Læt ég svo útrætt um þetta
mál, sem ég hefði að vísu kosiö
á annan veg nú, er ég kveð
Möðruvelli eftir 38 ár. En þakkir
og einlægar kveðjur til allra
minna, og okkar, fjölmörgu og
góðu vina.
Möðruvöllum í Hörgárdal,
8. ágúst 1966,
Sigurður Stefánssou.
PRAG — Sovétríkin, A-Þýzka-
land, Ungverjaland og Tékkó-
slíkavía munu taka þátt í her-
æfingum á vegum Varsjárbanda-
lagsins í næsta mánuði, áð því er
tilkynnt hefur verið í Prag. Æf-
ingarnar fara fram i Tékkósló-
vakíu.
að öðlast yfirvélstjóramenntun
þurfa menn að vera stúdentar.
En í Japan er þetta ekkeft vanda
mál, því að ekkert land í heim-
inum útskrifar jafnmarga stúd-
enta og Japan.
Þýzkaland er í öðru sæti en
iþar heita yfirvélstjórar See-
Ingenieur. 1 Svíþjóð eru þeir
nefndir Sjöingniör og í Noregi
er yfirvegað að taka svipað nafn.
í Japan er nú meðal áhöfn á
10000—12000 lesta skipum 32. Til
eru athyglisverðar upplýsingar
um mannahald á japönskum skip
um. Á 10000 lesta skipi án sjálf-
virkni voru árið 1961 samtals 50
menn. Árið 1965 41 maður og
með sjálfvirkni árið 1965 36
menn. Á 60000 smálesta olíuflutn
ingaskipi voru 1961 52 menn, ár-
ið 1965 39 menn og með sjálf-
virkni árið 1965 33 menn. Menn
gera sér þegar í hugarlund að
60000 smálesta olíuflutningaskip
geti hæglega siglt með 20 manna
áhöfn. Sagðist Mossige nýlega
hafa siglt með japönsku skipi,
70000 smálestir, sem hafði sam-
tals 36 manna áhöfn, en gat hæg-
lega siglt með 22 manna áhöfn.
Mossige sagði því næst að þar
sem allar hjálparvélar um borð í
slíku skipi væru alveg sjálfvirk-
ar ssei hann ekkert til fyrirstöðu
að hægt væri að nota þennan
Sama útbúnað um borð í smærri
skipum t. d. togurum og flutn-
ingaskipum. Hann sagði það aug-
ljóst mál að eftir nokkur ár
myndu skip sigla með mannlaus
vélarúm. Lauk árdegisfyrirlestr-
inum með Iþví að sýnd var
mjög athyglisverð kvikmynd frá
Burmeister & Wein um starfs-
hætti dieselvéla.
Klukkan 14.00 lýsti Mossige
nánar hvaða atriði í vélarúmi
væru með sjálfvirkni og hvemíg
þau störfuðu.
Að lokum svaraði hann nokkr-
um fyrirspurnum. Var gerður
mjög góður rómur að máli hans
og voru áheyrendur margs vísari.
í dag föstudag flytur Mossige
aftur tvo fyrirlestra kl. 10.00 ár-
degis og kl. 14.00 og verður þá
fjallað um málið frá tæknilegu
sjónarmiði. Búast má við að allir
vélstjórar og tæknimenntaðir
menn sæki þá fyrirlestra.
VED LILLEB/tLTSBROEN
Sex mánaða vetrarskóli fyrir
konur og karla. Veittar frek-
ari upplýsingar, ef óskað er.
Heimilisfang:
Poul Engberg.
Fredericia, Damark.
Sími: ERRITS0 219.
APV-
SNOGH0J
Hofum
góðan kaupanda
að húseign með 2—3 íbúð-
um. Ennfremur kaupendur
að 2ja til 3ja herb. íbúðum.
7/7 sölu
4ra herb. nýleg efri hæð á
fögrum stað í Kópavogi. —
Svalir, gólfteppi tvöfalt
gler. Ennfremur er til sölu
2ja herb. góð kjallaraíbúð í
sama húsi.
4ra herb. hæð 100 ferm. á
Teigunum, ásamt 2ja herb.
risíbúð. Góð kjör.
2ja herb. íbúð við Skipasund,
með sérhitaveitu.
2ja herb. nýleg kjallaraibúð
í Austurborginni. Teppalögð
með sérinngangi og sérhita-
veitu.
2ja herb. kjallaraíbúð 70 ferm.
við Laugateig, með sérhita
veitu.
3ja herb. hæð í litlu steinhúsi
í Vesturborginni. Góð kjör.
3ja herb. hæð í timburhúsi í
gamla Austurbænum. Teppa
lögð með sérhitaveitu. Góð
kjör.
4ra herb. ný og glæsileg íbúð
í Vesturborginni. Teppalögð
með vönduðum innrétting-
um.
4ra herb. hæð með nýjum inn
réttingum og sér hitaveitu
í Vesturborginni.
Einbýlishús, nýlegt 115 ferm.
í Kópavogi, ásamt 40 ferm.
bílskúr, sem nú er verk-
stæði
/ smíbum
3ja herb. glæsilegar íbúðir í
smíðum í Árbæjarhverfi.
Ennfremur lítil 2ja herb. íbúð.
AIMENNA
f ASTEI6HASAHN
IIHDARGATA 9 SlMI 2115»
Sparifjáreigendur
Avaxta sparifé á vinsælan og
öruggan hátt. UppL kL 11—
í. h. og 8—9 e. h.
Margeir J. Magnússon
Miðstræti 3 A.
Sími 15306 Og 23714.
Til sölu
2ja herb. íbúð við Ljósheima.
2ja herb. góð risibúð við
Nökkvavog. íbúðin er öll
ný máluð.
3ja herb. kjallaraibúð við
Bugðulæk.
3ja herb. kjallaraibúð við
Sörlaskjól.
Tvær 3ja herb. ibúðir við Soga
veg (hæð og ris). Væg út-
borgun.
5—6 herb. íbúð (142 ferm.),
ásamt herb. í kjallara, við
Hvassaleiti. íbúðin er nú
þrjú svefnherb. og mjög
stór stofa, sem má skipta.
*
I smiðum
Mikið úrval af 3ja, 4ra, 5 og
6 herb. íbúðum við Hraun-
bæ. íbúðirnar seljast tilbún
ar undir tréverk. Meðal
þessara íbúða eru nokkrar
endaíbúðir.
4ra herb. fokheld 1. hæð,
ásamt bílskúr, við Sæviðar-
sund (í fjórbýlishúsi).
3ja herb. íbúð í smíðum við
Reynimel.
3ja herb. íbúð á 2. hæð við
Hraunbæ. íbúðin er með
harðviðarinnréttingum. Til-
búin til innfl.
Fasteignasala
Sigurðar Pálssonar
byggingameistara og
Gunnars Jónssonar
lögmanns.
Kambsvegi 32.
Símar 34472 og 38414.
12.
til sölu
4 og 5 herb.
ibúdir i smiöum
við Hraunbæ
ólafui*
l»opgrfmsson
MÆSTAH ÉTTAR LÖGMAOlm
Fasie'gna- og veróbréiaviðskiffi
Austurstrs&ti 14. Sími 21785