Morgunblaðið - 12.08.1966, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 12. ágúst 1966
Emar B. Kristjánsson bygg-
ingameistari — Minning
F. 22. feb?. 1802 D. 2 ágúst 1966.
NÚ heíur só' brugðið sumri,
ógleyman’egur vinur og frændi
er skynddega burtkallaður —
horfinn at' s.iónarsviðinu. Mér
verður hugsað tiJ svo margra
ánægju- og gleðistunda með
þessum vini mínum og hans
ágætu konu og börnum. Ég
minnist h arts og sólríks júní-
dags 1919 er Jeiðir okkar Einars
lágu fvrst saman, og við eldri
systkinin iögðum í ferðalag með
foreldrum okkar og Einari
frænda okkar- leiðin lá yfir
erfiðan fja'Jveg og var ferðinni
heitið að Stað í Steingrímsfirði,
þar sem biúðkaup þeirra Einars
og Guðrúnar dóttur síra Guð-
laugs Guömundssonar og Mar-
grétar móðursystur minnar
skyldi haldið.
Mér er enn í fersku minni
glæsileiki ungu brúðhjónanna
fyrir altarinu í Staðarkirkju,
þar sem þau bond voru bundin
er aldrei l:om snurða á eða rofn
uðu.
Þegar t bvrjun var merkið
sett hátt hiá þessum samstilltu
ungu hjónurn, þó torfærur og
erfiðleikar yrbu á veginum
skyldi allt sl'kt yfirvinnast, það
var vor og hJýja í lofti.
Heimili v?r stofnað þar sem
æskuástin friður 'og glaðværð
entust til æfiioka.
A skólaárum mínum var ég
langdvölum á heimili þessara
frændsystkina minna og síðar
oft komið þar, hefi ég þaðan
aðeins husljúfar endurminn-
ingar um ögleymanlegar ánægju
stundir, þar naut sín hin ein-
læga gestrisni glaðværð og góð-
vildarhugur húsbændanna.
Það kom snemma í ljós hjá
Einari hve óvenjuJegt manns-
efni var hér á ferð. Hann byrjar
á því að vinna algeng störf til
sveitar og sjévar.
Hann fór. að fást við smíðar
því allt lék í höndum hans,
unnið var af kappi og dags-
verkið var langt, og eftir stutt-
an tíma hpfðí hann áunnið sér
án undar.gonginnar skólamennt-
unar slíka þekkingu í allskon-
ar smíðurn og byggingarlist, að
hann fór að taka að sér hinar
margbrotnustu byggingarfram-
kvæmdir, y firsmiður eða fram-
kvæmdastjéri við fjölmargar
byggingar bæði fyrir einstakl-
inga og hið npinbera, t. d. bygg-
ingu sjúkrahússins í Stykkis-
hólmi, Laxárvirkjunina í Þing-
eyjarsýslu Háskóla íslands, Iðn-
skólann í Reykjavík og fl. Hann
naut mikils trausts stéttar-
bræðra sinna o,g fólu þeir hon-
um ýmis í.törf íyrir stéttina —
■ sömuleiðis gegndi hann ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir Reykja-
víkurborg, veliast að jafnaði
ekki nema góðir og gegnir menn
í slíkar stöður. Það bar margt
til þess að E.nar naut þessa
mikla trausts. Hann hafði fast-
mótaða skapgerð, var skarpgáf-
aður, glaðlyndur, gamansamur,
góðgjarn og drenglunda ar og
átti því hægt með að fá sam-
starfsmenn sem nú á dögum
reynist morgum svo erfitt Hann
var hjápfús og studdi margan
sem hann vissi afskiptan í lífs-
baráttunni
Það var fyrir Einari eins og
mörgum fleirum að heimilið var
honum alJt. Hjónabandið var
farsælt og ástúðlegt, og bar þar
aldrei skugga á. Þó frú Guðrún
gegndi margvíslegum trúnaðar-
störfum fyrir Reykjavíkurborg,
í bæjarsfjórn i barnaverndar-
nefnd o. fl o fl. var heimilið
ekki vanrækt, hún var manni
sínum stoð og stytta í blíðu og
stríðu, enda mat hann hennar
miklu hæfiieika, ástúð og um-
hyggju að verðleikum.
; í lífinu skiptast venjulega á
skin og skúrir. Það var þungt
áfall fyrir Einar er kona hans
missti heilsuna fyrir 2—3 árum
og sýndi sig þá eins og
endranær hvíiíkur ágætismaður
að Einar var. hann hjúkraði
henni og hjálpaði á allan hátt
meðan mcgulegt var fyrir hana
að vera 1 heimahúsum.
Við slík. áföll verður maður
einmana og hálf rótarslitinn,
þó börnin og aðrir ástvinir leggi
sig alla íram til hjálpar og að-
stoðar.
Eftir að konan lagðist á sjúkra
hús dvaldi hann síðustu márfuði
á heimili yngsta sonarins, Krist-
ins og konu hans. Þar naut hann
ástúðar og umhyggju svo á betra
var ekki kosið.
Nú, þegar bú vinur minn og
frændi ert hcrfinn flyt ég þér
hjartans þakkir fyrir allt, sem
þú gerðir fvrir mig og mína —
og fyrir allar ánægjustundir á
heimili ykkar.
Guð einn getur sefað sorg og
trega, og ég bið alföður að
styðja og hugga konu þína og
börn í þúrra þungu sorg og
söknuði og leiða þig á eilífðar-
brautinni.
Kristján Sveinsson.
t
VINTR berast burtu á tímans
straumi. Hjá því verður ekki
komizt, hversu sárt sem okkur
þykir að sjá þeim á bak.
Samferðamaður er horfinn úr
hópnum, Einar B. Kristjánsson,
húsasmíðameistari, Freyjugötu
37 hér i borg, en hann lézt
skyndilega 2. ágúst s.l., 74 ára
að aldri. Tæpri viku áður höfð-
um við starfað saman og var
hann þá hr-ess í anda sem hann
átti vanda til.
Langt er liðið frá því að ég
heyrði Einars fvrst getið sem
mikils athafnamanns á sviði
húsabygginga og mannvirkja-
gerðar, eri aðeins rúm fjögur ár.
eru nú liðin frá því að ég kynnt-
ist honum persónulega, en það
var um bað bil, er ég réðist til
starfa við borgardómaraembætt-
ið í Reykjavík. Strax við fyrstu
kynni varð Einar mér óvenju
hugþekkur vegna aðlaðandi
framkomu og fjölþættra mann-
kosta, en þeim mun meir mat
ég hann hó eftir þv: sem kynni
okkar urðu nánari Það fylgdi
honum alhaf einhver hressandi
hlýja, hvar sem hann fór. Ég
segi hressandi af því, að deyfð
og drungi átti ekki griðland þar
sem hann var, heldur ávallt líf,
starf og gleði.
Auk fjölmargra annarra
starfa, sem Einar sinnti, var
hann um árabil tíður gestur við
borgardómaraembættið sem með
dómsmaður í ýmsum þeim mál-
um, sem sérþekkingar í iðn-
grein hans þurfti við, og hann
var alltaf aufúsugestur. Réttar
væri bó ef til vill að telja hann
til heimamanna við embættið,
því að svo oft þurftum við að
leita til hans. Það var alltaf gott
að starfa með Emari. Réttlætis-
kennd hans var rík, dómgreind-
in örugg og samvizkusemin
óbrigðul. Auk þess hafði hann
sérstakt Jag á að gera miður
skemmtileg viðfangsefni viðun-
anleg með glaðværð sinni og hóf
legri kímni, sem hann kunni að
beita, þegar við átti Hann horfði
jafnan í sólarátt og kunni að
hrífa aðra með sér til fagnaðar
og dáða. Slíkum mönnum er
gott að kynnast, og minningin
um þá „lýsir sem leiftur um
nótt“, þá að þeir séu sjálfir
horfnir sjéimm okkar um sinn.
Það er góður skóli yngri mönn
um að kynnast jafn lifsreyndum
og þroskuðum manni sem Einar
var. Lífshamingian streymir til
okkar eftir ýmsum leiðum og
ekki hvað sizt í kynnum okkar
af góðum mörjium. Það er mér
mikið þalrkarefni að hafa átt
þess kost að kynnast Einari B.
Kristjánssyni, og þessi fáu og
fátæklegu orða eiga fyrst og
fremst að tjá þakklæti mitt til
hans fyrir traust og góð kynni
á þeim stutta áfanga, sem við
höfum átt samsn á lífsleiðinni,
jafnframt því sem ég bið hon-
um blessunar Guðs í nýjum
heimkynnum.
Eftirlifsjidi eiginkonu Einars,
frú Guðrónu Guðlaugsdóttur,
börnum hans og ættingjum,
sendi ég innilegar samúðar-
kveðjur.
Valgarður Kristjánsson.
t
— „Kallar mig
og
kallar þig“ — J.H.
KALL þetta lætur misjafnlega í
eyrum, hvert sinn. Þessi daglegi
boðskapur, hins stundvísa, skyldu
rækna þjóns allífsins, sem ekki
þekkir það, sem kallað er „mann-
greinarmáiið", á skilyrðislaust
erindi til eins og sérhvers. Það
er ófrávíkjanlegt lögmál í þró-
unarferli mannssálarinnar. Þann-
ig gefast tækifæri til æðri
þroska, stig af stigi, eftir því,
sem ástundun og eðliskostir
reynast. Slíkum breytingum fylg-
ir ævinlega eðlilegur söknuður,
hver einstaklingur hefir bundizt
samferðamanni sínum.
Ég átti því láni að fagna að
njóta vináttu Einars Kristjáns-
sonar rúmlega 20 ára skeið. Er
mér þakklæti ríkt í huga, er ég
minnist þeirra samverustunda, er
ævinlega voru tilhlökkunarefni,
ekki hvað sízt, er við spilafélag-
ar hittumst, hver á annars heim-
ili vikulega, vetrarlángt.
Var Einar þungamiðja og jafn-
framt burðarás þessara sam-
funda, sökum glaðværðrar, góð-
vildar og allrar hófsemi. Hann
kunni manna bezt að gleðjast án
þess að missa sjónar af allri
Prúðmennsku og grandvarleik.
Hann var ó ádeilinn um annarra
hagi, orðvar með afbrigðum.
Færði allt til betra vegar, er
flestum öðrum varð á að telja til
ávirðinga. Einar var bjargtraust-
ur maður. Tel ég hann hiklaust
í fremstu röðum þeirra úrvals-
manna, er ég hefi átt því láni að
fagna að fá að umgangast á lífs-
leiðinni Við spilafélagar minn-
umst hans með þakklæti og virð-
ingu.
Við þessi þáttaskil er lokið
slíkum heimsóknum að Freyju-
götu 37, þar sem okkur mætti
hið vinsamlega ávarp húsmóður-
innar, hinnar eðlisglöðu sóma-
konu, „og verið þið velkomin".
Hún hefir um árabil borið
þungan kross þjáninga með
hetjulegu þolgæði og trúar-1 við djúpa samúð.
trausti. I Svo skaL þola og þreyja.
Henni ásamt skyiduliði vottum | Helgi Ásgeirsson.
Starfsstúlkur
óskast
á nýjan veitingastað að Súðavogi 50.
Upplýsingar í síma 3-77-37.
Múlakaffi
Fóslra og mntróðskona
óskast til starfa við dagheirpilið í Kópavogi frá
1. sept. nk. Uppl. um störfin og launakjör veitir for-
stöðukona dagheimilisins alla virka daga nema
laugardaga frá kl. 10—12 fyrir hádegi.
Kópavogi 10. ágúst 1966
BÆJARSTJÓRI.
Framkvæmdamenn -
verktakar
Lipur bílkrani til leigu í hvers konar verk.
Mokstur, hífingar, skotbvrgíngar.
Vanur maður.
GUNNAR MARINÓSSON
Hjallavegi 5 — Sími 41498.
Saga þessi kom úr árið 1950 og seldist upp á svip-
stundu. Vegna sífelldrar eftirspurnar er hún komin
út í nýrri útgáfu. Og viðtökurnar þarf ekki að efa,
þar sem upplagið er á þrotum hjá útgefanda.
Tryggið yður eintak í tíma.
Verð kr. 97.00 með söluskatti.
SÖGUSAFN IIEIMILANNA.
Hestamannafélagið
Andvari
Laugardaginn 13. þ.m. kl. 2 e h. verður farið í sam-
eiginlegan útreiðartúr á vegum félagsins.
Riðið verður í Kaldársel og verða seldar veitingar
þar. — Farið verður frá hestarettinni.
Hægt verður að fá leigða hesta í ferðina gegn
vægu gjaldi.
Skemmtinefndin. |