Morgunblaðið - 12.08.1966, Qupperneq 16
16
MORGU N BLAÐIÐ
Föstudagur 12. ágúst 1966
Jlfattgmtfrlftfrffr
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Rits t j ðrnarf ulltr úi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 105.00
1 lausasöiu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigúr
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti S. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
MENNINGARB YL TING
ÞURSANNA
TTin svonefnda „menningar-
bylting“, sem nú stendur
yfir í Kommúnista-Kína,
hefur vakið mikla athygli um
heim allan, ekki sízt hjá
menntamönnum. Hún fer
fram samtímis víðtækri
hreinsun, en svo fallegu orði
kalla kommúnistar það, þeg-
ar menn eru reknir úr em-
bættum, sviptir starfi, reknir
í útlegð eða dæmdir til
þrælkunar í fangabúðum. —
Þeir, sem verða fyrir barðinu
á menningarbyltingunni og
hreinsuninni, eru menn, sem
hin háaldraða valdaklíka
Maós óttast, að vilji slaka á
hörkunni í innan- og utanrík
ismálum og séu orðnir óþol-
inmóðir eftir að komast sjálf-
ir til valda, áður en þeir náig-
ast sjötugsaldur.
Maó hefur komizt að því,
að hinn strangi byltingarandi
gömlu kommúnistaforsprakk
anna á sér ekki nægilegan
hljómgrunn meðal yngri
manna. Alllangt er síðan far-
ið var að bera æskumönnum
það á brýn, að þeir væru syfj
aðir á byltingarverðinum. í
nóvember síðastliðnum hófst
hreinsunin með því að farið
var að „útrýma flokksfjanda-
skrímslunum“, og var byrjað
á háttsettum embættismönn-
um, stúdentaleiðtogum, blaða
mönnum og listamönnum. —
Síðan hvarf Maó í sex mán-
uði samfleytt.
Mörgum geturn var leitt að
hinu dularfulla hvarfi eins
valdamesta manns á jarðríki.
Þegar hann birtist dauðleg-
um mönnum að nýju, var eng
in skýring gefin á hvarfi
hans. Það var ekki fyrr en í
síðustu viku, að Alþýðudag-
blaðið í Peking skýrði frá
því, að „leiðtogi lýðsins, son-
ur sólarinnar og ástmögur
alls mannkyns“ hefði legið
undir feldi heilt misseri „til
þess að finna vísindalegt svar
við spurningunni um það,
hvernig koma ætti í veg fyr-
ir, að kapítalisma yrði aftur
komið á í Kínaveldi".
Fróðlegt er að frétta, að
kapítalisminn skuli enn vera
svo sterkt afl í Kommúnista-
Kína, að sjálfur Maó þurfi að
engjast af áhyggjum þess
vegna í sex mánuði. Svarið
fann sá vísi maður, og það er
,(skv. frásögn Alþýðudag-
blaðsins): „Gerið alla menn
að hermönnum“. Gera á al'lt
landið að allsherjar „bylting-
ar- og hermennskuskóla", og
til þess að menn meðtaki boð
skapinn enn betur, eru þeir
hvattir til þess að borða a.m.
k. eina „byltingarmáltíð“ á
degi hverjum. Sú tegund af
máltíð er gerð úr Óhýddum
hrísgrjónum, villtum græn-
metisjurtum og laufblöðum.
í ljós kemur, að Maó og fé-
lagar hans neyddust stundum
til þess að lifa á þess konar
fæði, þegar þeir voru að hefja
blytinguna fyrir mörgum ára
tugum, og þá er það nógu
gott handa lýðnum nú, eink-
um ef það getur minnkað
korninnflutninginn frá -vest
rænum ríkjum, sem hefur
haldið sárasta sultinum niðri
hjá Kínverjum undanfarin
ár.
Mönnum finnst menning-
arbyltingin mikla að ýmsu
leyti skopleg. Rithöfundar á
borð við Dante, Shakespeare,
Goethe, Balzac, Victor Hugo,
Túrgenéff og Tolstoj eru tald
ir hættulegir og tónskáld
eins og Mozart, Beethoven og
Bizet stórhættuleg andlegri
heilsu manna. í rauninni eru
það engin gamanmál, að í
fjölmennasta ríki veraldar
skuli þeir þursar sitja að völd
um, sem vilja drepa niður
alla menningu, er ekki hæf-
ir andlegum búrahætti þeirra
sjálfra. En þannig er eðli
kommúnismans. Öll list og
öll menning skal steypt í mót
hans. Menn skyldu aðgæta
það, að andleg kúgun í
kommúnistaríkjum er aldrei
staðbundið eða tímabundið
fyrirbæri, heldur eðlisbund-
inn eiginleiki og óhjákvæmi-
legur förunautur kommún-
ismans.
Hitt er líka alvarlegt um-
hugsunarefni, að kínverskir
kommúnistar hafa nú ófeimn
ir tekið upp argvítugt kyn-
þáttahatur á stefnuskrá sína.
Guli kynstofninn er talinn
æðstur meðal ættkvísla
mannkyns, en hinn hvíti lak-
astur. Þess vegna geti ekki
verið neitt gott að sækja til
andlegrar menningar hvítra
manna, (nema líklega komm-
únismann, sem þýzkur sér-
vitringur „fann upp“ sem alls
herjarlausn á vandamálum
jarðarbúa fyrir hundrað ár-
um). Pekingstjórnin telur, að
gulir menn geti verið sjálfum
sér nægir um alla hluti
(nema kannski kornmat?),
og því eigi þeir hvorki að
hlýða á vestræn tónskáld né
lesa skáldrit hvítra manna.
Þursinn vill vera sjálfum
sér nægur.
BREYTINGAR
í BRETLANDI
TTarold Wilson hefur nú til-
kynnt breytingar á ríkis-
stjórn Bretlands, sem vafa-
laust er ætlað að styrkja
stjórnina sérstaklega fyrir
Hóf rannsóknir sínar
í kjaflarageymslu
Lise Meitner, Otto Hahn og Fritz Strassmann deila
með sér Enrico Fermi verðlaununum fyrir afrek
á sviði kjarnorkuvisinda
> NÝLEGA voru þrír heims-
kunnir vísindamenn sæmdir
bandarísku Enrico- Fermi
verSlaununum fyrir afrek á
sviði kjarnorkuvísinda. Hlutu
þau að þessu sinni prófess
orarnir Otto Hahn frá Gött-
ingen Fritz Strassmann frá
Mainz og Lise Meitner frá
Vínarborg. Vekur verðlauna-
veitingin til handa Lisu Meit-
ner hvað mesta athygli —
hún er nú 88 ára að aldri
og mikilsmetin kjarnorku-
vísindamaður en átti í upp-
hafi starfsferils síns við ramm
preip að draga sökum þess
ems, að hún var kona. Varð
hún að hefja rannsóknir sínar
í kjallarageymslu, þar sem
hreinasta goðgá þótti að
leyfa konu að stunda til-
raunastarfsemi í rannsóknar-
stofu.
Lise Meitner er Gyðingur
fædd í Vínarborg, árið 1878
'Hún stundaði nám í stærð-
fræði, og heimspeki og sýndi
brátt að hún var gædd ó-
venjulegum hæfileikum. Fyrr
en varði fór af henni slíkt
orð, að hinn frægi eðlis-
fræðingur, Max Planck í Ber
lín kallaði hana til sín til
starfa. Þar fékk hún gull-
væg tækifæri til náms og
starfa — en átti þó lengi
framan í örðugleikum með
að fá aðstöðu til tilrauna í
rannsóknarstofum.
En árin liðu og vegur Lisu
Meitner fór vaxandi. Henni
Lise Mleitner
opnuðust möguleikar til rann
sókna á áður óþekktum svið
um eðlisfræðinnar, sem tók
ógnar framförum á þessu
timabili. En jafnframt urðu
aðrar breytingar, ekki eins
heppilegar — Þýzkaland
reyndist Lisu Meitner og
hennar kynstofni varasamur
lífs- og starfsvettvangur og
fór svo, að hún gerði sér
ljóst, að hún yrði að komast
burt. Hún komst til Holl-
ands með ólöglegum hætti og
þaðan til Kaupmannahafnar,
þar sem hún starfaði um
hríð hjá Niels Bohr. Þar var
hún stödd þegar Þjóðverjar
hertóku Danmörku en þrem
vikum síðar tókst að útvega
henni ferðaleyfi þaðan og
hélt hún þá til Svíþjóðar.
Þar starfaði hún um hríð
hjá sænska eðlisfræðingnum
Manne Siegbahn.
Undir stríðslokin hélt Lisa
Meitner til Bandaríkjanna og
hóf störf við kaþólska há-
skólann í Washington. Var
hún kjörin „kona ársins“
1846 í Bandaríkjunum og
næstu árin rigndi yfir hana
viðurkenningum, — sumum,
sem hún kærði sig ekkert um
því að nafn hennar var tíð-
um tengt tilkomu kjarnorku-
sprengjunnar. Hún neitaði
jafnan afdráttarlaust að hafa
átt þátt í smiði hennar, enda
þótt hún hefði ásamt Otto
Hahn orðið fyrst til þess að
kljúfa uraniumkjarnann. Lise
Meitner er nú búsett í Eng-
landi.
flokksþing Verkamanna-
flokksins sem haldið verður í
október-mánuði, en talið er
að ýmsir ráðherrar Wilsons
hafi aflað sér mikilla óvin-
sælda, og er búist við hörð-
um árásum á þá á flokksþing
inu.
Brown, efnahagsmálaráð-
herra, tekur nú við starfi ut-
anríkisráðherra Bretlands,
en Michael Stewart, utanrík-
isráðherra, tekur við embætti
Brown. Miohael Stewart hef-
ur verið ákveðinn talsmaðuf
þeirra afla í Bretlandi, sem
veita vilja Bandaríkjamönn-
um fu'llan stuðning í Víet-
nam, en af þeim sökum hefur
hann aflað sér mikilla óvin-
sælda í vinstri armi Verka-
mannaflokksins. Með þessari
breytingu mun Wilson vafa-
laust ætla að draga nokkuð
úr óánægju flokksmanna
sinna með þann stuðning,
sem brezka ríkisstjórnin hef-
ur veitt Bandaríkjamönnum
í Víetnam.
Verulegur skoðanaágréin-
ingur hefur verið milli Call-
eghans, fjármálaráðherra og
Browns um stefnuna í efna-
hagsmálum og er þessari
breytingu vafalaust ætlað að
bæta samvinnu þessara
tveggja ráðuneyta.
Eftir er að sjá hvort þessar
breytingar verða stjórninni
til styrktar, en augljóst er að
Verkamannaflokksstjórnin í
Bretlandi á nú við mikla og
vaxandi erfiðleika að etja, og
skrif áhrifamikilla blaða um
heim allan benda mjög ein-
dregið til þess að menn hafi
takmarkaða trú á því að efna
hagsaðgerðir Wilsons muni
verða pundinu til bjargar.
LEGGJA Á NIÐUR
OPINBERAN
BÚREKSTUR
i aðalfundi Stéttarsam-
bands bænda var sam-
þykkt tillaga þess efnis að
lögð Verði niður ríkisbú og
bú bæjarfélaga, sem ekki
þjóni sérstöku tilraunahlut-
verki í þágu landbúnaðarins.
Hér er um að ræða sjálfsagða
tillögu, þar sem engin ástæða
virðist til að ríki og sveitar-
félög reki búskap, ef ekki er
um þýðingarmikla tilrauna-
starfsemi að ræða.
Tilhneiging er líka til þess
að þau bú, sem þannig eru
rekin af opinberum aðilum
séu rekin með nokkrum
halla, og er ástæðulaust, þeg-
ar um allmikla umframfram-
leiðslu á landbúnaðarvörum
er að ræða, að skattgreiðend-
ur greiði halla af rekstri
slíkra búa. Þess er því að
vænta að hlutaðeigandi aðil-
ar fagni þessari til'lögu Stétt-
arsambandsfundarins og að
hið allra fyrsta verði dregið
úr búskaparstarfsemi hins op
inbera, sem ekki hefur sér-
siöku hlutverki að gegna.