Morgunblaðið - 24.01.1967, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JANUAR 1967.
19
Áhrif EFTA á
norrænan iðnað
— Nidurfelling tollanna hefur leitt
til stóraukinna viðskipta
ingu, sem útlit er fyrir, og þá
söluerfiðleika, sem tvískipting
Evrópu leiðir af sér. Ekki aðeins
landbúnaðurinn, heldur líka iðn-
aðurinn munu á næstu árum í
sívaxandi mæli eiga að mæta
þeim hindrunum, sem segja
munu til sín eftir því sem tolla-
og efnahagsbandalagi sex-veld-
anna þokar áfram. Á þessum
stóru mörkuðum mun iðnaður-
inn eiga við vaxandi erfiðleika
að etja — og jafnvel er hætta á,
að eitthvað af þeim árangri, sem
við hér höfum náð, muni fara
forgörðum á ný, ef of lengi
dregst að markaðsaðstæðurnar
batni.
UM SÍÐUSTU áramót var merk-
um áfanga náð í fríverzlunar-
samstarfi EFTA-ríkjanna. Þá
voru felld niður síðustu 20%
tolla af iðnaðarvörum í viðskipt-
l»m milli landanna. Var þessu
marki náð þrem árum fyrr en
áætlað var, þegar fríverzlunar-
bandalagið var stofnað árið 1959.
Margir voru þó í byrjun van-
trúaðir á, að áætlun sú um nið-
urfellingu tollanna stig af stigi,
eem sett var með Stokkhólms-
sáttmálanum, mundi reynast
framkvæmanleg. Og enn fleiri
áttu bágt með að ímynda sér, að
markinu yrði náð án þess að
jafnframt yrðu sköpuð stórvaxin
vandamál fyrir fjölda iðngreina.
Margir efuðust því um, að hér
Væri hyggilega af stað farið.
Með þetta í huga er ekki ófróð
legt að kanna, hver dómur
reynslunnar er, nú þegar hann
liggur fyrir. Hvernig hefur t. d.
iðnaðinum reitt af á hinum
Norðurlöndunum, sem öll eiga
aðild, Finnland þó aukaaðild.
Aukin iðnaðarframleiðsla —
•tórvaxandi viðskipti
■ Einn af forvígismönnum
norsks iðnaðar, Rolf Roem
Nielsen, forstjóri hjá „Noregs
Industriforbund“, lýsti viðhorf-
um sínum í blaðaviðtali nú um
áramótin. Hann komst þar svo
að orði, að iðnaðurinn í heild
hefði eflzt í tíð EFTA. Ýmsar
breytingar hafa átt sér stað á
framleiðsluaðstæðum og skipu-
lagi iðnaðarins.
Samkeppnin hafi vaxið og ein-
Btök fyrirtæki orðið að draga
6r rekstri sínum, en á sama tíma
hafi önnur getað fært út kví-
arnar. Þau fyrirtæki séu til, sem
•tarfrækt séu áfram án þess að
rekstur þeirra beri sig nógu vel,
cg geti vandamálin því verið
meiri, en þau virðist fljótt á
Btið, en í því efni kunni fleira
að ráða en EFTA eitt. M. a. hafi
enn ekki verið leiddar til lykta
lagfæringar á skattakerfinu o. fl.,
■em rætt hafi verið um við rík-
isstjórnina á sínum tíma.
Mikilvægi EFTA fyrir norsk-
an iðnað telur Roem Nielsen
koma ljósast fram í þeirri miklu
aukningu, sem orðið hafi bæði
á vöruafgreiðslu og viðskiptum,
jafnframt því sem meiri breidd
hafi skapast í útflutningnum, en
þarna komi þó auðvitað fleira til
en EFTA. Meðal heillavænlegra
áhrifa megi telja það, að EFTA
hafi dregið úr tvístringi og
örvað samstarf í norskum iðnaði.
Áframhaldandi efling EFTA
Hinn norski forvígismaður
telur ekki sízt ánægjulegt í sam-
bandi við aukningu viðskipt-
anna, að það sé einkum útflun-
ingur fullunninna vara, sem
vaxið hafi. f heild hefur útflutn-
ingur Norðmanna til EFTA-
landanna (Finnland meðtalið)
aukizt um 96,6% á árunum
1959—66, þ. e. í tíð EFTA, og á
sama tímabili hefur innflutning-
urinn frá löndum þessum aukizt
um 90,1%. Viðskiptin hafa því
næstum tvöfaldazt.
í viðtalinu lýsir Roem Nielsen
sig fylgjandi enn nánara sam-
starfi Evrópuríkjanna á sviði
efnahags- og viðskiptamála en
átt hafi sér stað innan EFTA,
enda þótt ljóst sé, að af því
muni leiða enn aukna sam-
keppni. Sú reynsla, sem fengist
hafi í EFTA-samstarfinu muni í
ríkum mæli geta komið að gagni
við frekari útfærzlu hins
evrópska markaðar. Og ef um
áframhaldandi iðnvöxt eigi að
geta orðið að ræða, hljóti áhug-
inn að beinast að Efnahagsbanda
lagi Evrópu og þeirri þróun, sem
þar á sér stað. Höfuðmarkmiðið
hljóti að vera að ná samkomu-
lagi við sex-veldin, sem í raun
réttri þýði það, að ganga verði
í bandalagið. En EFTA-ríkin
geti ekki þvingað sig inn. Gera
verði ráð fyrir, að enn geti liðið
langur tími unz af því verður,
og á meðan verði Norðmenn að
byggja eins skynsamlega og frek
ast er unnt á því sem þeir hafi.
Næst liggi fyrir að efla EFTA
enn frekar og færa starfsemina
út — í sömu átt og þróunin
stefni innan EBE, svo að sem
minnst umskipti þurfi að eiga
sér stað, þegar þar að kemur.
Hefur einkum borið ríkulegan
ávðxt fyrir norrænu
aðildarríkin
Áhrif EFTA á þróun dansks
iðnaðar voru fyrir skömmu
rædd af formanni Iðnráðsins
þar, N. Arnth-Jensen, og var
sagt frá skoðunum hans í „Tids-
skrift for Industri“ fyrir
skömmu. Hann kvað alla hafa
verið sammála um það, þegar
Danir ákváðu að taka þátt í
stofnún EFTA fyrir rúmum 6 ár-
um, að sú ráðstöfun mundi krefj
ast verulegrar aðlögunar, nýs
framtaks bæði á sviði fram-
leiðslu- og sölumála. Enginn
hafði í rauninni vitað, hvort
iðnaðurinn mundi reynast þess-
um vanda vaxinn. En í dag væri
með ánægju hægt að votta, að
þetta hefði tekizt.
— Ég held, sagði Arnth-Jen-
sen, að allir viðurkenni, að iðn-
aðurinn hafi kunnað að hagnýta
sér þau tækifæri, sem stofnun
hins stóra og frjálsa EFTA-
markaðar skapaði. Það hefur ver
ið unnið vel, og eins og alkunna
er hefur sóknin fram á við eink-
um borið ríkulegan ávöxt fyrir
Norðurlöndin. Hið aukna við-
skiptafrelsi hefur einungis verið
til gagns, og viðu erum þeirrar
skoðunar, að við getum staðið
okkur í framtíðinni — enda þótt
hún sé ekki eins björt og verið
hefur hingað til.
Á ég þar við þá aðstöðub'reyt-
Sérhæfingin skapar bæði stærri
og minni fyrirtækjum
rekstrarskilyrði
Arnth-Jensen telur miklu
skipta fyrir framtíð dansks iðn-
aðar, að ekki verið látið undir
höfuð leggjast að hagnýta hina
fullkomnustu tækni á öllum
sviðum hans. Segja verði skilið
við úreltar framleiðsluaðferðir
og fylgja kröfum tímans svo
sem frekast sé unnt. Samkeppn-
isaðstaðan á mörkuðum verði
ekki tryggð með öðrum hætti.
Eitt af höfuðeinkunnunum í þró-
un síðustu ára hafi verið aukin
sérhæfing, enda sé hún orðin
brýn nauðsyn með stækkun
markaðanna. í sumum tilvikum
hafi þessi þróun leitt til nánara
samstarfs og samruna fyrirtækja,
en á hinn bóginn skapi sérhæf-
ingin einnig skilyrði til áfram-
haldandi starfsemi smærri fyrir-
tækja. Með því að færa sérú nyt
þá möguleika, sem tæknifram-
farirnar bjóða, verði þeim unnt
að gefa neytendum kost á margs
kyns ,skraddarasaumuðuirí“ vör-
um, sem stærri fyrirtækin muni
ekki telja sér hagkvæmt að fram
leiða. Meðalstór fyrirtæki eigi
auðveldara með að laga sig eftir
mismunandi þörfum neytend-
anna — og hafi það á ýmsum
sviðum reynzt hafa þýðingu í
hinni alþjóðlegu samkeppni.
— Á síðasta áratugnum hafa
miklar framfarir átt sér stað í
atvinnu- og efnahagslífi, segir
Arnth-Jensen. — Danir hafa
horfið frá litlum og þröngum
markaði yfir í stóran og opinn.
Iðnaður landsins hefur verið
þungamiðjan í þessari þróun.
Hinn öri vöxtur í efnahagslif-
inu, sem við höfum okkur til
ánægju átt við að búa, er fyrst
og fremst árangurinn af þeirri
öflugu iðnvæðingu, sem átt hef-
ur sér stað í þjóðfélagi okkar.
í dag er Danmörk ekki einungis
landbúnaðarland, heldur í ríkum
mæli iðnaðarland, og það mun
enn í vaxandi mæli verða komið
undir framleiðslu- og sölumögu-
leikum iðnaðarins, hvort okkur
tekst að halda uppi þeirri miklu
atvinnu og framleiðniaukningu,
sem er forsenda áframhaldandi
TIL LEIGU ÓSKAST
Iðnaðarhúsnæði
CA. 100 FERM. MEÐ INNKEYRSLUDYRUM.
SÍMI 13896.
Breyttur viðtalstími
Viðtalstími minn að Klapparstíg 27 verður með og
frá 23. þ.m. mánudögum kl. 13—15, þriðjudögum
kl. 16—18 og miðvikud., fimmtud. og föstudaga kl.
10.30—12 og laugardaga kl. 10.30—11.30. Símavið-
talstími 20425 klukkustund fyrir og hálfa stund
eftir stofutíma.
Vitjanabeiðnir til kl. 13 í síma 20425 eða 52142.
KAGNAR ARINBJARNAR, læknir.
efnahagsframfara, segir hinn
danski forystumaður.
Norðurlöndin og EFTA
Heildarútflutningur Dana hef-
ur aukizt á tímabilinu 1959—65
um 61.7%; heildarflutningurinn
til EFTA-ríkjanna, að Finnlandi
meðtöldu, hefur aukizt meira en
þetta, þ. e. 86,3% En aukningin
á útflutningi iðnaðarvara einna
til EFTA-ríkjanna á þessu tíma-
bili nemur 170,3%. Hefur eink-
um orðið veruleg aukning á út-
flutningi danskra iðnaðarvara til
hinna Norðurlandanna, en til
þeirra hafa farið um % aukn-
ingarinnar. Á sama hátt hafa
u. þ. b. % af þeirri heildaraukn-
ingu, sem orðið hefur á vöru-
útflutningi Dana frá ríkjum
EFTA, komið frá Noregi, Sví-
þjóð og Finnlandi.
Þessi mikla aukning, sem orðið
hefur á viðskiptum Norður-
landanna innbyrðis, vegna að-
ildar þeirra að EFTA, ber þess
glöggan vott, að með EFTA sam-
starfinu hefur nú tekizt að
koma á því viðskiptafrelsi aS
því er iðnaðarvörur snertir, sem
ekki tókst í samningaviðræðum
um stofnun norræns tollabanda-
lags, er fram fóru á árunum upp
úr 1950. Hjá Norðurlöndunum
fjórum, sem tekið hafa þátt í
EFTA samstarfinu, ríkir því
mjög almenn ánægja með þann
mikilsverða árangur, sem náðzt
hefur.
Ekki sízt eru þau ánægð með,
að þarna skuli hafa fundizt
nokkurt mótvægi við þeim erfið-
leikum, sem óhjákvæmilega
hlutu að leiða af hinni nánu efna
hags- og viðskiptasamvinnu
ríkjanna sex í Efnahagsbanda-
lagi Evrópu. Þó að sá vandi sé
hvergi nærri leystur til fulls
með starfsemi EFTA, hefur frí-
verzlunarbandalagið stuðlað að
miklum framförum meðal aðild-
arríkja sinna. Sá ávinningur,
sem af samstarfinu hefur hlotizt,
styrkir einnig mjög möguleika
þeirra til að tryggja stöðu sína
í eínahags- og viðskiptamálum
álfunnar í framtíðinni.
Ibúð óskast
Reglusöm og hæglát barnlaus hjón óska eftir 1—2ja
herb. íbúð strax. Vinsamlegast hringið í síma 21450
á skrifstofutíma.
HAFNARFJÖRÐUR HAFNARFJÖRÐUR
Til leigu
83 ferm. húsnæði að Hverfisgötu 25 Hafnarfirði.
Leigist fyrir léttan iðnað eða annað.
Upplýsingar í síma 51280 eftir kl. 7 í síma 51281.
Vön afgreiðsludama
óskast í metravöru.
Saumakunnátta æskileg.
Skrifstofa Grettisgötu 3 — Sími 20950.
Framtíðarstarf
Duglegur og vel menntaður maður með þekkingu á
bókhaldi óskast til þekktrar stofnunar. Umsóknir
með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf
sendist afgr. Mbl. merkt: „Framtíðarstarf — 8705“
fyrir föstudag 27. þ.m. Farið verður með þær sem
algert trúnaðarmál.
VVisconsin
Motor Corporation eru stærstu
og þekktustu framleiðendur í
heimi á loftkældum benzínvél-
um frá 3-60 hö.
Eigendur Wisconsinsvéla snúi
sér viðvíkjandi varahlutum til
einkaumboðsmanna á íslandi.
Elding Trading Company Hf.
Hafnarhvoli — Sírni: 15820.