Morgunblaðið - 14.02.1967, Blaðsíða 7
IVlWnUUJNtSljAtlltt, PmtlJ UUAUUK 14. Í KtJHUAR 1907
7
Hlutavelta og kökuhappdrætti
10 ÁRA A og 11 ára A í Mýrarhúsaskóla söfnuðu um daginn
kr. 7.288,20 til Hnífsdalssöfnunarinnar. Þær gengu í búðir og
söfnuðu munum til hlutaveltu, sem þær héldu í skólanum. Einnig
höfðu þær kökuhappdrætti, og mömmurnar bökuðu kökurnar.
Það voru 22 vinningar í happdrættinu og mörg núll, en á hluta-
veltunni voru engin núll. Lárus Salómonsson, lögregluþjónn á
Seltjarnarnesi, var dyravörður hjá þeim. Á myndina hér að of-
an vantar 3, þær Ragnhildi Björgu, Margréti og Þóreyju.
1 aftari röð frá vinstri eru: Steinunn Ásta, Sunneva Guð-
finna, Kristjana, María Guðrún, Valdís Ósk, Kristín Björk og
Axelína María. í neðri röð frá vinstri: Guðrún, Bryndís Hildur,
Vigdís, Anna Steinunn og Margrét.
VÍSLKORIM
gerði 39. Kópavogi. barna- &
fjölskyldu LJÓSMYNDIR, Aust-
urstræti 6 — Simi 12644).
Laugardaginn 28. janúar voru
gefin saman í Langholtskirkju
af séra Árelíusi Níelssyni ung-
frú Rannveig Karlsdóttir og
Eyjólfur Brynjólfsson. Heimili
þeirra er að Grundargerði 6.
Reykjavík. (Ljósmyndastofa >ór
is Laugaveg 20 B. Sími 15602).
Hart að leitar hugur minn,
þar hafði ég skemmtun mesta.
Væri ég ungur annað sinn,
setti ég kindur og hesta.
Jón Ólafsson frá Katanesi.
76 ára er í dag fú Marselia
Jónsdóttir, Lindargötu 56. Hún
dvelst á Hei'lsuhæli NLFÍ í
Sunnudaginn 16. jan. voru gef-
in saman í Nesk. af séra Jóni
Thorarensen ungfrú Sigurbjörg
Ágústsdóttir Miðkrika, Hvol-
hreppi og Daníel Guðmundsson,
Hraunteig 30, Reykjavík.
(Ljósmyndastofa Þóris Lauga-
veg 20 B. Sími 15-6-0-2).
Laugardaginn 4. fébrúar voru
gefin saman í hjónaband af séra
Ólafi Skúlasyni ungfrú Alma
Karen Friðriksdóttir og Jón
Andres Snæland. Heimili þeirra
verður fyrst um sinn að Skóla-
sd NÆST bezti
Konan: „Oft hef ég óskað þess, að ég væri orðin bók Þá mund-
ir þú ekki láta mig sitja einmana hér heima dag eftir dag.“
Maðurinn: „Ég vildi þá óska, að sú bók væri almanak."
Konan: „Vegna hvers?“
Maðurinn: „Af því ,þegar árið er liðið, hættir maður að nota
það almanak, og fær sér annað nýtt.“
Áheit og gjafir
Litli drengurinn afh. Mbl.: Safn-
að af fjórum stúlkum, Anna. Jóna,
Lára og Álfhildur 4.073,15. S.Ó. 1.000
Starfsfólk Skeljungs 2.950. Guðm.
Magnússon Borg N. ísf. 100. Pétur
Jónas, Eggert. safnað í Austurbrún
og Kleppsv. 3.150. Samskot frá
Bændaskólanum á Hvanneyri 6.200
ÆXÆ 1.000. BH 500. ÖH 200. Guð-
jón og Hanna 300. NN 100. Safnað
af 5 telpum úr Öldutúnsskólanum
í Hafnarfirði 1.845. Laufey, Ingibjörg,
Þorbjörg og Hulda, Kópavogi,
3.327.20.
Hnifsdalssöfnunin afh. Mbl. SO
1.000. Jón Guðmundsson 1.000 II bekk
ur Vélskóla íslands 14.300. Guðjón
og Hanna 500. Lovísa Þorláksd. 100.
MG 100. Guðrún Erla 260. Rannveig
100. Saumaklúbbur 500. IH 500. HEE
150. Sigurgeir Friðriksson 1500. NN
100 SS 125. Safnað í Silfurtúninu
Alfreð. Kristín, Bára 2.0*13.
Strandarkirkja afh. Mbl., N-N 25.
SB 100. NN 100. EV 200. Hringur 50.
KB 100. í»SG 200. Ómerkt í bréfi
250. GÓL 500. JT 50. NN 50. GÓ 200.
Ómerkt 100. Áheit 100. KE 500. EG
50. GI> og NJ 50. GCH 100. NN 10.
MB og GG 150. ÁKO 100 TH 400.
íþróttamaðurinn afh. Mbl. MN 46.
Sólheimadrengurinn afh. Mbl. BÓ
og S 50.
>f Gengið
Reykjavik 7. febrúar 1967.
Kaup Sala
1 Sterlingspund 120,05 120,35
1 Bandar. dollar 42,95 43,06
1 KanadadolLar 39,77 39,88
100 Danskar krónur 621,30 622,90
100 Norskar krónur 600,45 602,00
100 Pesetar 71,60 71.80
100 Sænskar krónur 831,60 833,76
100 Finnsk mörk 1.335,30 1.338,72
100 Fr. frankar 869,50 871,74
100 Belg. frankar 86,38 86,60
100 Svissn. frankar 990,70 993,25
100 Gyllini 1189,44 1192,50
100 Tékkn kr. 596.40 598,00
100 V.-þýzk mörk 1.080,06 1.082,82
1()Ö V.-þýzk mörk 1.080,15 1.082,91
100 Lírur 6,88 6,90
100 Austurr. sch. 166,18 166,66
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Árelíusi Niels
syni, ungfrú Anna Kristín Skúla
dóttir og Jón Ingi Haraldsson,
vélamaður. — Heimili þeirra er
í Sigluvogi 13. — Ljósm. Studio
Gests Laufásvegi 18. Sími 24028.
Úr Passíusálmum
Ifallgriimir Pétursson.
Bið ég þín böndin hörðu
bindi nú hvern minn lið
frá ails kyns glæpa gjörðum
og göldum heimsins sið.
Laus og liðugur andi,
lifs meðan dvelst ég hér,
þér sé jafnan þjónandi,
Þessa bæn veittu mér.
6. sálmur, 13. vers.
MÁLSHÁTTUR*-
Þyrpast hrafnar að hræjum.
Munið eftir að gefa smáfugl-
unum, strax og bjart er orðið.
Fuglafóður Sólskríkjusjóðsins
fást vonandi í næstu búð.
Sauðatað — Hrossatað Skarni Heimkeyrt og borið í garða ef óskað er. Sími 36870. Málaravinna önnumst alla málaravinnu. Jón og Róbert, sími 15667 og 21893.
Rúskinshreinsun Hreinsum rúskinnskápur, jakka og vesti. Sér stök meðhöndlun. Efnalaugin Björg, Háaleitisbr. 58—60. Sími 31380, útibúið Barma hlíð 3, sími 23337. Færeyingar! Tapazt hefur grænn sjó- poki merktur Hans Peter Tjþrniedal Tjþrnevik .öðru megin en Grindavík ísland hinu megin. Uppl. í síma 8107 Grindavik.
„Halló stúlkur“ Miðaldra maður ósikar að kynnast stúlku 35—45 ára með hjónaband fyrir aug- um. Tilb. ásamt mynd send ist Mbl. fyrir laugardagskv. merkt „Vinur 4073“. Ford 1959 til sölu Fasteignatryggð skulda- bréf koma til greina, einn- ig eru til sölu á sama stað miðstöðvarkatlar og eld- húsvaskar. Uppl. í síma 35161 eftir kl. 7.
Sparifjáreigendur Ávaxta sparifé á vinsælan og öruggan hátt. Uppl. kl. 11—12 f.h. og 8—9 e.h. Margeir J. Magnússon Miðstræti 3 A. Símar 22714 og 15885. Keflavík — Suðurnes Útsalan hættir miðvikudag Karlmannaföt, buxur skyrt ur, vinnujakkar, blússuir, frakkar. Lágt verð. Klæðaverzlun B. J. Keflavík.
Postulínsveggflísar
Ensku postulínsflísarnar komnar aftur.
Stærð: 7%xl5 og 15x15 cm. — Gott verð.
LITAVER
Grensásvegi 22 og 24.
Erlent sendiráð
óskar eftir 2ja til 3ja herb. íbúð í Vestur- eða Suð-
vesturborginni fyrir fámenna fjölskyldu. — Eins
árs fyrirframgreiðsla. — íbúðin óskast frá 15. apríl
nk. — Tilboð leggist inn á afgr. Mbl., merkt: „15.
apríl/Vesturbær“ fyrir 17. febr. nk.
Skemmtileg hæð
Til sölu er skemmtileg 5—6 herb. hæð í tvíbýlis-
húsi við Kópavogsbraut í Kópavogi. Hæðin selst
fokheld með uppsteyptum bílskúr. Afhendist fljót
lega. Sérþvottahús á hæðinni. Sérhiti. Sérinngangur.
Mjög skemmtilegt útsýni. Stærð hæðarinnar er
136,4 ferm.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutuningur — Fasteignasala.
Suðurgötu 4. — Sími 14314.
TIL SÖLU
RAUÐALÆK
3ja herbergja íbúð, 90 ferm. á jarðhæð. Mjög hag-
stæð lán áhvílandi. Laus fljótlega.
ÁLFHEIMAR
4ra herb. íbúð, 107 ferm. á IV. hæð ásamt óinnrétt
uðu risi, 83 ferm.
HÁALEITISHVERFI
4ra herbergja íbúð á samt 1 herbergi í kjallara.
AUSTURBRÚN
2ja herbergja íbúð. Engin lán áhvílandi.
Skip & Fasteignir
Austurstræti 18 — III. hæð. — Sími 21735.
Eftir lokun 36329.