Morgunblaðið - 14.02.1967, Blaðsíða 11
MÓRGUNBLÁÐIÐ, jÞRIÐJUDAGUR 14. FÉBRUAR 1967.
fi *
11
saæsími
Læknisþjónusta við síidarflotann
Ný mál
Alfreð Gíslason ,(K) lagði fram
í gaer frv um bann við tóbaks-
auglýsingum.
Einar Olgeirsson og aðrir þing-
menn Alþbl. í Neðri deild lögðu
fram í gær lagafrv. um uppsögn
varnarsamningsins.
Einar Olgeirsson (K) lagðl
fram í gær þingsályktunartillögu
um samstarf íslands við Önnur
lönd gegn alþjóðlegum einok-
unarauðhringum.
Björn Fr. Björnsson (F) o.fl.
hafa lagt fram þingsályktunar-
tillögu um verðiöfnun á áburði.
Menntamálanefnd Nd. hefur
lagt fram nokkrar breytingar-
tillögur við frv. um n'ámslán og
námsstyrki.
— mikið heilbrigðis- og öryggis-
mál — sagði Sigurður Bjarna-
son á Alþingi í gær
SIGURÐUR Bjarnason hélt
á fundi neðri deildar í gær
framsögu fyrir frumvarpi,
er hann flytur um breyting
á læknaskipunarlögunum.
Er hún í því fólgin, að ríkis-
stjórninni verði heimilt að
ráða lækni til þess að veita
sjómönnum síldveiðiflotans
læknishjálp á fjarlægum
miðum. Slíkur læknir skal þá
hafa bækistöð um horð í síld-
arleitar- eða rannsóknar-
skipi.
Benti Sigurður á það í
ræðu sinni, að brýna nauð-
syn hæri til að íslenzki fisk-
veiðiflotinn ætti kost á lækn-
isaðstoð, þegar slys eða veik-
indi bæru að höndum um
borð í skipunum, ekki sízt
þar sem hann sækti æ meir
á fjarlægari mið. Sérstaklega
ætti þetta við síldveiðiflot-
ann, er sækti til fiskjar langt
á haf út. Við hefðum marg-
oft notið aðstoðar lækna
bæði Norðmanna og Rússa,
ef einhvern voða bar að hönd
um, en það væri ekki sæm-
andi Islendingum, að láta
svo stóran hóp þjóðfélagsins
vera afskiptan sjálfsagðri
heilbrigðis- og öryggisþjón-
ustu.
(Sigrurður Bjarnason): ÞaS
mun ekki þurfa að flytja ýtar-
leg rök fyrir nauðsyn þessa frv.
Dagskrá
AlþSngis í dag
Dagskrá Alþingis í dag:
Efri deild:
1. Samkomudagur reglulegs
Alþingis.
2. Einkasala ríkisins á tóbaki.
Neðri deild:
1. Áburðarverksmiðja.
2. Húsnæðismálasofnun ríkis-
ins.
3. Verkfræðrráðunautar ríkis-
ins á Norður-, Austur- og
Vesturlandi.
4. Námslán og námsstyrkir.
5. Stýrimannaskóli í Vest-
mannaeyjum
6. Austulandsvirkjun.
7. Verndun og efling lands-
byggðarinnar.
8. Sala eyðijarðarinnar Skarðs.
9. Ungmennahús.
Sigurður Bjamason
i
Það er almennt viðurkennt, að
mikla nauðsyn beri til bess. að
hinn fjölmenni fiskiskipafloti
íslendinga, sem sækir á æ fjar-
lægari mið, einkum á síldveið-
um, eigi kost á læknisþjónustu.
þegar slys eða veikindi ber að
höndum um borð í skipunum.
Þess vegna er lagt til í þessu
frv., að ríkisstj. verði heimilað
að ráða lækni til þess að veita
sjómönnum síldveiðiflotans slíka
þjónustu á fjarlægum miðum.
Ég tel, að hér sé um mikið
heilbrigðis- og öryggismál að
ræða, sem þörf er skjótra úr-
ræða í. Ég leyfi mér að vitna
til þess, að skömmu eftir að
þetta frv. kom fram, var stofn-
að félag síldveiðisjómanna hér
á landi, og gerði stofnfundur
þess ályktun einmilt um þetta
mál, þar sem áherzla var lögð
á nauðsyn þess, að síldveiðiskip,
sem sækja á fjarlæg mið, eigi
kost læknishjálpar. Það mun
hafa orðið að leita læknishjálp-
ar norður að Jan Mayen, t.d.
annað hvort hjá rússneskum-
eða norskum skipum, eða jafn-
velr hjá læknum, sem staðsettir
hafa verið norður þar. Ég held
þess vegna, að það fari ekki á
milli mála, að hér sé um mikið
nauðsynjamál að ræða.
Á það má einnig benda, að
í- þáltill., sem flutt var snemma
á þessu þingi, er á það minnst,
að kannað verði, hvort ekki sé
mögulegt að koma á fót lækna-
þjónustu, sem fylgt geti síldveiði
flotanum, að minnsta kosti á
djúpmiðum.
Frv. var vísað til 2. umr. og
heilbrigðis- og félagsmálanefnd-
ar.
Þingmál í gær
EFRI DEILD:
Dr. Bjarni Benediktsson, for-
sætisráðherra, flutti framsögu
fyrir stjórnarfrumv. um sam-
komudag reglulegs Alþingis, en
frv. var afgreitt frá neðri deild
í síðustu viku.
Frv. var vísað til annarrar
umræðu og allsherjarnefndar.
NEÐRI DEILD:
Geir Gunnarsson (K) flutti
framsögu fyrir frv., er hann flyt
ur ásamt Hannibal Valdimars-
syni (K) um að iðnnemar fái að
ild að lánum húsnæðismála-
stofnunarinnar. Er hún flutt
m.a. vegna ályktunar Alþýðu-
sambandsþings um þetta mál.
Frv. var vísað til annarrar
umr. og heilbr,- og félagsm,-
nefndar.
Einar Olgeirsson (K) flutti
framsögu fyrir frv. er hann flyt-
ur um breytingu á núgildandi
lögum um Áburðarverksmiðj-
una. Frumvarpið felur í sér, að
skorið verði úr því ótvlræða, að
ríkið eigi verksmiðjuna. Jafn-
framt er gert ráð fyrir að ríkið
kauipi upp hlutabréf annarra að-
ila og verðbæti þau að fullu.
Einar hefur flutt þetta frv. i
a.m.k. áratug, en það hefur enn
ekki fengið afgreiðslu.
Var frumv. vísað til annarrar
umr. og fjárhagsnefndar.
Gísli Guðmundsson (F) flufcti
framsögu fyrir frv., er hann flyt
ur ásamt Ágústi Þorvaldssyni
(F) um verkfræðiráðunauta rík
isins, er verði staðsettir á Akur-
eyri, Egilsstöðum og ísafirði og
hafi þeir, undir umsjón vega- og
vitamálastjóra umsjón með vega
og hafnarframkvæmdum, svo og
hvers konar opinberum bygging
arframkvæmdum, enda sé það
ábveðið í reglugerð og samþykkt
af viðkomandi ráðuneyti.
Þeir félagar hafa flutt frv.
tvisvar áður.
Að lokinni ræðu Gísla var frv.
vísað til annarrar umr. og alls-
herjarnefndar.
Bifvélavirkjar
Fíatumboðið
óskar að ráða nokkra góða bifvélavirkja nú þegar,
gott kaup og góð húsakynni. — ítalskur sérfræð-
ingur er til leiðbeiningar. Einnig er hér tækifæri
fyrir unga menn er vildu læra að sérhæfa sig í Fíat
viðgerðaþjónustu og mun umboðið senda unga menn
á námskeið til Svíþjóðar, en þar starfar Fíat
viðgerðarskólinn.
Upplýsingar hjá Fíat-umboðinu, Laugavegi 178.
Stefnuljósablikkarar
í úrvali.
Varahlutaverzlun
*
Jóh. Olafsson & Co.
Brautarholti 2.
Sími 1-19-84.
Hraðbátur óskast
Óska eftir að kaupa góðan
bát og á að gizka 40 ha utan-
borðsmótor. Hvort tveggja
þarf að vera gert fyrir sjó.
Þeir, sem vildu sinna þessu,
sendi tilboð, er tilgreini ald-
ur, stærð og verð til afgr.
Mbl. merkt: „Hraðbátur —
8876“.
LONDON- LONDON
dömudeild
dömudeild
Síðasti dagur útsölunnar
er í dag
LONDON LONDON
dömudeild
dömudeild
ENSKUSKOLI
LEO MUNRO
Baldursgötu 39. Símar 19456.
Nýtt námskeið fyrir fullorðna hefst
20. febrúar
Abeins 10 í flokki
Sérflokkur fyrir húsmæður á daginn.
Innritun í síma
19456
alla virka daga frá
IC/. I fi/ 4 eh.
PITMAN SCH00L
0F ENGLISH
Árlegir sumarskólar í London, Oxford
og Edinborg.
Góð námskeið í ensku, þar sem sérstök á-
herzla er lögð á að gera nemendurna hæf-
ari til þess að skilja talaða ensku og tala
málið reiprennandi.
London (University College) 5. júlí til 1. ág.
og 2. til 29. ágúst.
Oxford 2. til 29. ágúst.
Edinborg 14. ágúst til 8. sept.
(á sama tíma og Edinborgarhátíðin).
Útvegum nemendum húsnæði þeim að
kostnaðarlausu. — Lengri námskeið eru
einnig haldin allt árið um kring í skólan-
um í London.
Nánari upplýsingar og ókeypis upp-
lýsingabækling fáið þér hjá:
T. Steven, Principal,
THE PITMAN SCHOOL OF ENGLISH
46 Goodge Street, London, W. 1.
Viðurkenndur af mennta- og vísinda-
málaráðuneyti Bretlands.