Morgunblaðið - 14.02.1967, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.02.1967, Blaðsíða 22
22 JM.UmjUNBLiAtílÐ, PmiJJUUAGUR 14..FJEBRUAK 1967. Gustav Ragnar Hakonsen SKJÓTT h«tir sól brugðið sumri, sagði skáldið við óvænt fráfall vinar. Það er gömul saga, en hún endurtekur sig og alltaf jafn sár. Gustav Hakonsen var einn þeirra manna. sem alltaf bar með sér sumar. Hvar sem hann sást og hvernig sem á stóð var hann glaður og fullur velvilja og hjálpsemi, sem hann var allt- af tilbúinn að veita. Hann veitti gleði og hann veitti hjálp og hann lét sig ekki muna um það, var alveg sjálfsagt. Ég talaði við hann í síma að kvöldi dags hinn 5. janúar. Hann var að skrifa systkinum og vin- um, glaður og með hugann full- an af góðum hugsunum til þeÍTra. En fyrir hádegi næsta dag var hann liðið lík. Þar brá sól sumri óvænt. Allir, ssm Gustav þekktu áttu víst að þar sem hann var var góðs að vænta. Slíkir menn eru ekki lítils virði. En svo gott sem vanda- lausum var að þekkja hann, ▼ar hann auðvitað dýrmæt- t Hjartkæra litla dóttir okkar, Dóra Júlía, andaðist 5. þ. m. Jarðarförin hefur farið fram. Þökkum sýnda samúð og vinarhug. Sjöfn og David C. Black. t Eiginmaður minn og faðir okkar, Ingólfur Jónsson, loftskeytamaður, Bogahlið 16, lézt af slysförum 11. þ. m. Petra Þórlindsdóttir og börnin. astur ástvinum sínum. Af því sem sagt hefir verið má gera sér í hugarlund hve mikilvægir þessir eiginleikar efu í heimilis- og fjölskyldulífi. Hann var svo frábær heimilisfaðir að ekki er vitað að lengra verði komist í umhyggjusemi og ástúð. Hann var fæddur við Lofoten í Noregi h. 14. júlí 1905 og var af norskum ættum. Hann kom til íslands 1929 og var hér alla tíð síðan. Hann kvæntist 1934 Þórnýju Gissurardóttur frá t Jarðarför móður okkar og tengdamóður, Theódóru Ásmundsdóttur frá Arnarholti, fer fram frá Haukadalskirkju fimmtudaginn 16. þ.m. kl. 2 e. h. Ferð verður frá Umferð- armiðstöðinni kl. 11. Guðný Indriðadóttir, Steinunn Indriðadóttir, Magnhildur Indriðadóttir, Hulda Indriðadóttir, Ingvar Indriðason, Auðbergur Indriðason, Vilmundur Indriðason og tengdabörn. t Eiginkona mín, móðir, systir og mágkona, Dagmar Heide Hansen, Skipasundi 27, andaðist í Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn, fimmtudag- inn 9. febrúar. Jarðarförin hefur farið fram í Kaup- mannahöfn. Minningarathöfn auglýst síðar. Pétur Axelsson, Kristján Pétursson, Jón Pétursson, Elsebeth Vilhjálmsson, Jens Vilhjálmsson. t Minningarathöfn um móður okkar, fósturmóður, tengda- móður og ömmu, Halldóru Sigurðardóttur frá Siglufirði, fer fram í Fossvogskirkju miðvikudaginn 15. þ.m. kl. 10,30. — Jarðsett verður á Siglufirði. Guðný Þorsteinsdóttir, Anna Hallgrímsdóttir, Ásmundur Þorsteinsson, Bjarni Þorsteinsson, Pétur Þorsteinsson, Þorvaldur Þorsteinsson, tengdabörn og barna- börn. t Jarðarför mannsins míns og föður okkar, Þorsteins Kristinssonar, Kirkjuvogi, Höfnum, fer fram frá Kirkjuvogs- kirkju miðvikudaginn 15. þ. m. kl. 2. Ferð verður frá Sér- leyfisbifreiðastöð Keflavíkur kl. 1.30. Erlendina Magnúsdóttir og börnin. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, langafi og bróðir, Ágúst Jóhannes Pétursson, Hlíðarvegi 4, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju miðvikudaginn 15. febrúar kl. 15.00. Sigríður María Sigurðard., börn, tengdabörn, barna- börn, barnabarnabörn og bræður. Byggðahorni. Þau eignuðust þrjú börn; Gerðu, sem gift er og bu- sett í Bandaríkjunum, Hákon, sem dó 1960 og Olgu sem er enn í foreldrahúsum. Þau hjón urðu fyrir þeirri sorg að sonur þeirra varð fyrir slysi og missti heilsuna 6 ára gamall. Mikil var sú barátta sem þau háðu fyrir bata hans. Þar var ekkert ógert látið, sem í mann- legu valdi stóð að gera. En dýr- ast af öllu sem í það var lagt var hinn óþreytandi kærleiki t>----------------------------- þeirra og þrautiseigju og er það minnistætt og einstakt í augum allra sem til þekktu. En þó það væri erfitt, veitti þessi ungi efnilegi sonur þeim mikla gleði og enginn hefði vitað hve mikið með þeim bjó, ef þau hefðu ekki staðið í þessari baráttu. Gustav heitinn var sívinnandi og hinn mesti ráðdeildarmaður. Enda blómgaðist hagur þeirra vel, þrátt fyrir erfiði og útgjöld veikindanna. En það sem bezt var af öllu var það að hamingju Ingimar í Hnífs- dal siötugur ÞAÐ etr ekki há elli talin að vera sjötugur — en flestum er þó þann veg farið, að þá etru undan farnir að láta í hinum harðari áltökum lífsins'— en þó eru þeir menn til — sem ótrúlega vilja- og starfsþreki eru gæddir og bera í hug sínum sömu fram- farafýsina — og sem ávallt hefir einkennt þeirra líf allt og starf. Einn af þeim er Ingmar Finn- björnsson, skipstjóri og útgerðar maður í Hnífsdal, sem varð 70 ára 4. janúar sl. Ég kynntist Ingimar ungur að árum, og ég á margar hugljúfar minningar um Hnífsdal og það elskulega fólk, sem þar býr. Og það er ekki ein- ungis, að hver sem kynnist Ingi- mar, minnist þeirrar heiðríkju sem með honum býr, — heldur hlýtur einnig að minnast þess drengskapar, tryggðar og hjálp- semi, sem þessi maður hefir til að bera, — og hins ljúflega við- mót's í fari hans — ®em engum gleymist, sem honum kynnist. Ingimar er maður hreinn og beinn, hann hallar ekki á lítil- magnan, hann talar ekki ávallt við alla eins og þeirn líkar í augnablikinu bezt, — og hann fer ekki í neinar grafgötur með skoðanir sínar, og segir ekki síð- ur þeim „stærri“ hispurslaust meiningu sína, — og fer þá eng- ar krókaleiðir, — og það er alltaf einhver hressandi blær yfir mál- fari Ingimars — og framkomu — svo ekki líður það ávallt strax úr minni, sem í góðu tómi er við hann spjallað. Ingimar hefir alla tíð staðið i fararbroddi sinnar byggðar í at- höfn og öflun verðmæta — og t Við þökkum innilega þá miklu samúð, sem okkur og fjölskyldu okkar hefir verið sýnd, vegna fráfalls systr- anna Xeniu og Yrsu. Olga og H. Biering. það er engin smáræðis lyftistöng og kjölfesta hverju sjávar- og byggðarplássi að slíkum mönnum. Og það er þess vegna söknuður — þegar slaknar á þeim strengjum, sem Ingimar hefur á slegið til heilla og fram- vindu þeirra uppbyggingarmál- efna, — sem Hnífsdalur hefur blómgvazt af um langa tíð, og á eftir að njóta ávaxtanna af um langa framtíð. Það var ekki malað undir sjó- mennsku Ingimars í Hnífsdal, og hans samtíðarsjómann-a fram eftir allri ævi. — Fisku/rinn var fluttur í land á opnum árabát- um sökklhlöðnum í kolsvarta myrkri, — já, og oflt byl og báru, báturinn hífður með aflanum I, á handspili upp snarbrattan malarkambinn, fleiri flutningar, og að því loknu gert að fiskinum úti undir berum himni, hversu sem viðraði kvöla og nætur. Hnífsdælingar áttu heldur ekki fáar ferðirnar út hlíðina milli ísafjarðar og Hnífsdals, oft í þreifandi byl og ófærð, og ósjaldan máttu þeir fara úr sjó- bússum sínum, og bera þær með sér, en labba á sokkunum, þá blautir og kaldir. þegar sleipa, ófærð, og rokið töfðu förina heim á leið, þá er ófær reyndist lendingin heim i Hnífsdal — eða færa þurfti bátana af legunmi þar í uppgangsveðrum, inn á ísafjörð. Þessa sögu þekkir Ingimar manna bezt, — en þeir settu ekki fyrir sig erfiðið Hnífsdælingar, og byggðin þeirra og heimilin voru þeim allt, — fyrir þeim skyldi berjast hvað sem það kostaði, og það var þeim fjarri að hopa. En það gekk ótrúlega seint fram eftir árunum að fá um bætt til farsællegri hafnar- aðstöðu, enda þótt hver höndin frá barni til gamalmennis, ynnu þar drjúgum, að öflun og sköpun verðmaeta og gjaldeyris úr sjávarafla. Ingimar var traustur og far- sæll skipstjóri, — eins og han-n er traustur maðut í allri hugsun og starfi. Þeir voru ekki stórir farbostir þeirrá tíma til sjósókn- ar, sem Ingimar byrjaði sinn þeirra og fjölskyldufarsæld var jafn samgróin og lífsbaráttan. Gustav heitinn unni alla ævi föðurlandi sínu. En íslenzkan ríkisborgararétt fékk hann 1940, og vann af alúð sinni annarri þjóð, þar sem hann hafði fundið ævistarf sitt og eignast ástvini og mikið brautargengi. _ Hann kom öllum ókunnugur og óvænt. Hann hVarf óvænt en elskaður af öllum_ Blessuð sé minning hans. H. G. formannsferil, — og reyndi þá ekki siður en nú, — á hina sönnu sjómannshæfni, athygli, og ár- vekni, en þessum manni förnuð- ust öll sín sjómannsstörf af hinni mestu farsæld, enda þótt þá væru siglingatækin aðeins áitta- vitinn einn. En Ingimar í Hnífsdal var far sæll maður í fleiru en sjó- mennsku sinni. Hann var ekki síður farsæll í sínu heimilis- lífi. Hann naut þeirrar miklu hamingju, að eiga fyrir lífsföru- naut hina ágæta konu, Sigiríði Guðmundsdóttur, frá Fossum, sem öllum veitti yndi og hlýju, sem henni kynntust, — heimilið aðlaðandi hlýtt og bjart, börn- in elskuleg, myndarleg og dug- mikil. Ég óska Ingimar til hamingju með þessi tímamót í ævi hans, en ég votta honum og byggðinni í Hnífsdal einnig samúðar vegna þeirra hörmulega atburða, sem yfir þetta vinalega þorp dundi 1 jólainngangi. Ég veit ekki af hverju Ingimar var ekki heima á afmæli sínu, en hitt veit ég, að hann gat ekki verið heima. Hann gat ekki glaðst með vinum sínum heima í Hnífsdal, sem allir hefðu viljað heiðra með virðingu og þakklæti, þá er hin svifu yfir byggðinni, — þrýstu sér inn í hvert heimili Hnrfsdæl- inga, inn £ hverja lifandi sál byggðarlagsíns, — hraerði hjörtu hvens einasta ísxendings. Blessun og farsæld fylgi þér Ingimar og Hnífsdælingum öll- um. Jens í Kaldalónl. Brauðgerð á Vopnafirði Vopnafirði, 13. febrúar. NÝ brauðgerð tók til starfa hér í þorpinu um siðustu mánaða- mót, og er það rekið af Kaup- félagi Vopnfirðinga. Er það til húsa í nýju mjólkurstöðinni. Hef- ur brauðverð með tilkomu þessa bakarís lækkað nokkuð. Er mjög almenn ánægja með brauðgerð- ina, því að áður bjuggu Vopn- firðingar við það að fá brauðið fryst, hingað og þangað að af landinu, og stundum ekki í sem beztu ásigkomulagi. — Ragnar. Látnir Elúsvskingar 1966 t Þökkum hjartanlega auð- sýnda samúð við andlát og jarðarför, Jóns Sveinssonar, útgerðarmanns. Magnea Magnúsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auð- sýnda samúð við andlát og jarðarför, Jóhannesar Arngrímssonar. Gnðrún S. Helgadóttir, Agða Vilhelmsdóttir, Anna Jóhannesdóttir, Tómas Á. Jónasson og barnabörn. Á SÍÐASTLIÐNU ári létust eftirgreindir Húsvíkingar og voru til moldar bornir; 1. Sveinn Oddsson Garðars- braut 42 f. 14/12 1890 d.25/2. 2. Sveinn Ásmundsson Garð- arsbraut 16 f. 16/6 1909 d. 26/2. 3. Þórður Friðbjarnarson Bröttuhlíð f. 7/11 1898 d. 11/4. 4. Karl Sigtryggsson Garðars- braut 31 f. 4/3 1896 d. 23/4. 5. Jósef Vigfússon Hjarðar- hóli 6 f. 13/4 1911 d. 28/5. 6. Sigfús Eðvaldsson Iðavöll- um 7 f. 16/5 1889 d. 16/6. 7. Vigfús Ólafsson Uppsala- vegi 12 f. 27/12 1895 d. 18/6. 8. Halldór Gamalíel Sigur- jónsson Höfðavegi 5 f. 30/8 1880 d. 8/7. 9. Þórhallur Benediktsson Snædal Höfðabrekku 12 f. 13/6 1923 d. 15/8. 10. Sigtryggur Pétursson Garðarsbraut 15 f. 27/8 1912 d. 3/10. 11. Valgerður Bjarnadóttir Mararbraut 15 f. 2/9 1915 d. 28/1 i 12. Meybara Arnórsdóttir Friðbjörnssonar Garðarbraut 17 f. 13/1 d. 4/8. 13. Petrína Sigurgeirsdóttir Nýja-Bæ Flatey f. 16/9 1887 d. 9/8. 14. Benedikt Jónsson frá Bergi, f. 17/6 1909 d. 18/7. Blessuð sé minning þeirra. Fréttaritari. Ég þakka frændum, vinum og kristniboðsfélögum vináttu og sóma, sem þau sýndu mér á níræðisafmæli mínu þann 1. febrúar með heimsóknum, skeytum og gjöfum. Ég bið ykkur öllum blessunar drott- ins. Árni Þorleifsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.