Morgunblaðið - 18.03.1967, Blaðsíða 5
MOKGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MARZ 1967.
5
fl SYNINEU ÞORVALDAR
MÁLVERKASÝNING Þor
valdar Skúlasonar í Boga-
sal Þjóðminjasafnsins hef-
ur þótt mjög athyglisverð
og einn mesti viðburður í
listalífi borgarinnar um
nokkurt skeið. Mbl. hefur
fengið nokkra áhugamenn
uni myndlist að segja álit
sitt á sýningunni, og fara
ummæli þeirra hér á eftir:
Ragnar í Smára
Ný eldsumbrot
á sögueyjunni
Ragnar í Smára komst þann
ig að orði:
Á sýningu I>orvaldar Skúla-
sonar í Bogasalnuan er allt
nýtt frá grunni.
Ný óþekkt orka að verki í
hverri mynd.
Bylting, þaulhugsuð og til
farsælla lykta leidd, án allra
bandalaga úr efra eða neðra.
Ný stórfengleg eldsumbrot.
Ég hef vitað það í þrjú ár,
að lífið byrjar um sextugt.
Óska listamanninum og að-
dáendum hans tii hamingju.
Tónn sem skilur
Sverrir Sigurðsson
og formum, sem gera myndir
hans svo auðþekktar hvar sem
er, t.d. á samsýningum skera
þær sig strax úr.
Á bak við hverja mynd býr
mikil og ströng vinna og hár-
fín nákvæmni, hvert atriði
þaulhugsað. Það má engu
skeika í hinu stranga geometr
iska formi, sem Þorvaldur
hefur svo meistaralega útfært
og glímt við um árabil. Þar er
hálærður maður að verki, sem
gerir strangar kröfur til sjálfs
sín, sem sjá má í öllum hans
verkum og ekki hvað sízt á
þessari síðustu sýningu nú.
Þar sjáum við myndum vel
komið fyrir, sem er svo stórt
atriði til að sýning njóti sín
sem bezt. Að hengja stærstu
myndina til hliðar, en ekki
fyrir enda í miðju boga í saln
um, vakti athygli mína. Hún
er líka mynd myndanna —
nr. 11 — sem á heima á stór-
um vegg ein sér. Þessi mynd
tekur mann ekki við fyrstu
sýn, svo er um flestar góðar
myndir, en í henni er sá tónn
sem skilur ekki við mann,
þótt maður sé löngu genginn
úr salnum, og svo er reyndar
um fleiri myndir á þessari
faUegu sýningu.
ekki við mann Djarfari en
Sverrir Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri, sagði:
Árið 1960 valdi þar til kosin
alþjóðleg dómnefnd 50 lista-
menn frá 20 þjóðlöndum, er
hún taldi mjög athyglisverða,
til að sýna saman í Bandaríkj
unum. Málverk eftir Þorvald
*em vakið hafði eftirtekt á
sýningu í París og verið
keypt þar, var valið á þessa
sýningu er síðar fór víða um
Ámeriku.
Ég get þessa hér aðeins til
að minna á, að við eigum hér
listamann, sem vakið hefur
athygli færustu útlenzkra sér
fræðinga.
Síðan þetta gerðist hefur
Þorvaldur haldið aðeins eina
sýningu, 1962, og svo nú þessa
stórfallegu sýningu í Boga-
salnum. Sýningin nú kemur
mér ekki á óvart frekar en
síðustu sýningar hans á óhlut
lægri myndlist. Þær hafa
hver um sig haft sín sterku
persónulegu einkenni í listum
oft áður
Það sem mér finnst athygl-
isverðast við þessa sýningu
er birtan yfir henni Að vísu
hefur aldrei verið dimmt yfir
list Þorvaldar, en nú sannar
hann að baráttan við hið
geómetríska form hefur borið
árangur. Þorvaldur er í þess-
um myndum djarfari en oft
áður, og á ég þá einkum við
litameðferð hans. Ég hef allt-
af talið Þorvald í fremstu röð
íslenzkra málara og sú skoð-
un mín efldist við að sjá
þessa sýningu, tvímælalaust
er hún með geðfelldari sýn-
ingum, sem ég hef séð lengi.
Mér er aftur á móti engin
launyng í því að ég tel stefnu
Þorvaldar nokkuð „akadem-
íska“, hún getur ekki talizt
„moderna" lengur. En myndir
hans verða ekki dæmdar úr
leik af þeim sökum.
Öbrotinn litur
og þaulhugsad
form
KURT Zier, skólastjóri,
sagði:
Svo vill til, að Þorvaldur
Skúlason sýnir nú á sama
Jóhann Hjálmarsson, skáld
sagði:
Jóhann Hjálmarsson
Kurt Zier
tíma og sama stað og Þór-
arinn Þorláksson skömmu áð-
ur. Mætti líta á þessa tvo
málara sem öndvegissúlur ís-
lenzkrar myndlistar, svo langt
sem komið er.
Ég tel tvímælalaust að sá
sem vill skilja Þorvald til
fulls ætti að skoða gaumgæfi-
lega Þórarin Þorláksson, og
ef hann þá — þrátt fyrir alla
aðdáun á hinum gamla meist-
ara — finnur til hins skap-
andi óróa í verki þess síðar-
nefnda, finnur hina listræna
óánægju og þrá til meiri sann-
leiks meira ljóss og litar, er
hann þegar á réttri leið. . .
Á þessari leið eru margir á-
fangastaðir, sem eru ef til vill
áningarstaðir hjartans og aug-
ans. Má hér aðeins netfna Jón
Stefánnsson, Ásgrím, Kjarval
og Scheving svo einhverjir séu
nefndir. Ber að hafa í huga í
þessu sambandi, að Þorvaldur
hefur einnig farið um marga
þessara áfangastaða.
Með allri virðingu fyrir
meistaranum Þórarni held ég
samt að við séum hætt að
sjá náttúruna og landslagið
í þessum hátíðabúningi og
sparifötum, sem Steingrímur
Thorsteinsson kenndi samtíð-
armönnum sínum að dýrka.
Viðfangsefni Þorvalds er
annars eðlis. Það er hinn
hreini litur og hið hreina
form, og hvort tveggja er
þáttur náttúrunnar og manna
veraldar. Samt má í verkum
Þorvaldar fyrirfinna „ein-
verunnar helgidóm", en
kannski án englahljóms Qg
svanasöngs. Þorvaldur er mað
ur sem neitar sér um slíkt í
myndlist, enda þótt ég þyk-
ist sannfærður um að hann
hafi yndi af hinu síðarnetfnda.
Líkar mér við myndir
hans? Ég verð að játa að til
eru málarar, sem hatfa djúp
áhrif á mig, þótt mér líki
ekkert verka þeirra, því að
mér finnst þrátt fyrir allt
viðleitini þeirra og stefna svo
mikilfengleg, að ég hetf að-
dáun á þeim. En ég hef gam-
an atf fjölmörgum myndum
Þorvalds.
Hvort mér þyki myndir
hans góðar? Hvað um það?
En þykist sjá að þær eru
traustar vörður á þeirri braut,
sem honum er nauðsyn að
fylgja.
Báðum spurningunum vil
ég þó svara á þessa leið:
Fegurð mynda Þorvalds er af
öðru tagi en við höfum hing-
að til vanizt, og etf til vill eig-
um við margt ólært. Þor-
valdur er einn karlmannleg-
asti málari, er ég þekki. Hann
neitar sér nú orðið um allan
sætleika litaspilsins eingöngu.
Hann hafnar kvenlegri til-
finningasvölun með litunum
einum saman ( sem er víð-
ast hvar einkenni nútíma-
listar). Hann reynir heldur að
sameina í myndum sínum ó-
brotinn lit og þaulhugsað
form.
Þessi formgreind er andlegs
eðlis og þess vegna karlmann-
legt fyrirbrigði, líkt og eins
konar drangur lögmáLs í hafi
óljósra tilfinninga.
Þroskandi að
koma inn á svoncr
sýningu
Stefán Kristinsson fulltrúi
sagði:
Ég kynntist verkum Þor-
valds fyrir u.þ.b. þrjátíu ár-
um, en um þær mundir hélt
hann sína fynstu sýningu á
Vesturgötu. Ég var vanur að
fara á málverkasýningar, sem
stóðu til boða, og fór einnig
á sýningu Þorvalds. Ég varð
þegar hrifinn af verkum hans,
mér fannst þá strax, að hann
hefði óvenjumikla næmni
fyrir litum og hreyfingu, þó
hann málaði þá figúratívt.
Síðan hef ég ekki misst af
neinni sýningu hjá Þorvaldi
og mér finnst hann stöðugt
vera að ná meiri og meiri
Stefán Kristinsson
fullkomnun, sem er aðals-
merki allra sannra lista-
manna. Þorvaldur er harð-
músikalskur maður, og hefur
mikið yndi af bæði klassiskri
og nútíma hljómlist. Ég held,
að það hafi komið einna bezt
fram í síðustu myndum hans,
og er að mér finnst áber-
andi á þessari sýningu. í því
sambandi kemur mér í hug
mynd nr. 10, Húm 1 og nr. 14.
Flug, og fleiri. Húm 1 finnst
mér ákaflega fáguð mynd og
múisíkölsk og hún vekur sterk
áhrif í einfaldleik sínum. í
heild þykir mér þessi sýning
einhver sú allra bezta atf sýn-
ingum Þorvalds og er þá mik-
ið sagt. Það er þroskandi að
koma inn á svona sýningu,
því að það er alltaf eitthvað,
cem síast inn í mann. Beztu
þakkir Þorvaldur.
Gullfallegir
svefnsófar
frá 1900.— kr.
Nýir svefnsófar og svefnstólar með 1500
afslætti. — Opið til kl. 9 í dag.
SÓFAVERKSTÆÐIÐ, Grettisgötu 69.
Sími 20676.
— kr.
Bátaeigendur
lítil kraftblökk til sölu, hentug fyrir smærri nætur
og snurruvoð. Upplýsingar gefur Árni Valmunds-
son Akureyri, sími 11815 og 12177.
HÖFUM 0PIÐ TIL KL. 5 I DAG
BÍLAPRÝDI KÁRSNESBRAUT
Kópavogi