Morgunblaðið - 18.03.1967, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.03.1967, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MARZ 1967. n Umræður á stúdentafundinum Að loknum framsöguræð- um á stúdentafundinum i fyrrakvöld hófust almennar umræður, og tók fyrstur til máls Sverrir Bergmann lækn- ir. Rædidi hann um aðtoúnað á slysavarðstoÆunni og taldi honum mjög áhótavant, bæði væri plássleysi og eins væri varðstoían illa staðsett. Taldi hann brýna nauðsyn bera til að reist yrði hið fyrsta full- komið slysasjúkralhúis. i>á gagnrýndi hann harðlega bannið á þættinum JÞjóð- líf“. Ðr. Friðrik Einarsson sagði að byggja þjrrfti sjúkrahús og gera einihverja samræmda aætlun ttm það, en ekki pukra hver í sínum grunnL Einnig talaði hann um nauð- syn heilbrigðrar gagnrýni. Helgi Valdimarsson cand. med. ræddi um stjórnunarein ingar í heilbrigðismálum og sagði að núv. læknaskipunar lög væru ekki í samræmi við nýjustu stefnur erlendis. Einnig gagmrýndi hann það, hve fáir læknar væru í yfir- stjórn heilbrigðismála. I»á fór hann hörðum orðum um bannið á þættiruum „Þjóðlíf". Páll V. G. Kolka læknir, sagði, að ræða Sverris Berg- manns væri einn þy.ngsti áfellisdómur yfir læknastétt um ára'biL Læknar hefðu sof- ið á verðinum og þyrftu að bæta úr því. M taldi hann, að Tryggingastofnunin og heilbrigðisyfirvöld ættu mikla sök á því, að læknar fengjust ekki út á land, vegna mót- stöðu við hækkun á kaup- töxtum. Þó hefði það batnað á undaníförnum árum. M ræddi hann um almenn heilbrigðismál og sagði, að hér vantaði meina samstarf millí lækna auk þess sem al- menningur væri otf fáskiptinn. Sigmundur Magnússon læknir sagðist ekki vilja draga úr verkum ráðherra, hann væri velviljaður lækn- um og hefði sýnt mikinn vilja til samstairfs. Ein því miður vœri ekkert aðhatfst í þessum málum tfyrr en skórinn kreppti að, og eins væru fram krvæmdir tilviljanakendar. Bæri að vinna að framlcvæmd um á heilbrigðismálum sam- bvæmt áætlunum. Gunnlaugur Snædal læknir ræddi um, hvað heilbrigðis- mál væru, og eins um til- viljanakenndar framkvæmdir 1 sjúkrahúsbyggingum. Vildi hann reisa Hláskólasjúkrahús. >4 lagði hann mikla álherzlu á, að kvensjúklingar fengju ffleiri sjúkrarúm, þar viroust þeir algjörlega vera útund- an. Dr. Gunnlaugur Þórðarson sagðist harma atfskipti ráð- herra atf þættinum „JÞjóðlíf'*. Þá gagnrýndi hann skipulags leysi og tildurmennsku í sjú krahúsbyggingum og nefndi dæmi um það. Einnig gagnrýndi hann lækna fyrir deyfð í þessum málum og eins tfyrir ábyrgðarleysi í kröifugerð. Gömlu læknarnir hefðu sýnt meiri átoyrgðartil finningu. Að lokum tók hann undir orð nafna síns og sagði að konuir ættu það skilið að fá meira sjúkrarúm Arinbjörn Kolbeinsson lækn ir ræddi ulfc kjaramál lækna og sagðL að þar hetfði orðið bót á. Hann sagði ráðherra hafa betra samtoand við lækna en fyrirrennarar hans. Þá ræddi hann um skipulagn ingu Landsspftalalóðarinnar og gagnrýndL að tillögum lækna í heilbrigðismálum hetfði verið stungið undir stói. Þór Vilhjálmsson prófessor ræddi um refestur sjúkrahúsa og sagði hann vera nokkuð dýran, eða 1250 kr. dag hvern á sjúkrarúm. Hér vseri því um að ræða mikið fjárhags- atriði fyrix hið opinbera. Hann væri I stjórnarnefnd ríkisspítalanna og væri sitt verk að reyna að gera rekst- urinn sem skynsamlegastan. og laun, etf það fengist, vseri Þar skorti tilfinnanlega upp- lýsingar lækna um starfstíma auðveldara að gera sér grein fyrir kostnaðinum Jón Þorsteinsson læknir ræddi um aðtoúnað á Lands- spítalanum o gsagðd, að þar væri mikill sfeortur á hús- næði. Þ*á þakkaði hann störl Þorláksmessunefndar. Njáll Gunnlaugsson sagði átakanlegar sögur af slösuðu fólki og veiku. Ólafur H. Ólafsson læknir ræddi um póliták og ástand i heilbrigðismálum. Hann sagði að almenningur ætti að meta heilbrigðismál meira en sjónvarp og bíla. Sæmundur Kjartansson læknir sagðist hatfa verið stiyr!k(þegi frægra stiotfnana og vildi ekki að ráðherra talaði illa um þær. Tómas Helgason prófessor ræddi um læknadeild Há- stóólans og sagði, að i undir- búningi væru víðtækar breyt ingar á kennslutilhögun læknadeildarinnar. Væri von þeirra, er þar kenndu, að hægt væri að stytta nóms- tíma þar úr sjö árum í *ex. Væri það bagalegt mjög, hve læknar kæmu seint til starfa hér á landL sérfræðingar væru komnir á ferbugsaldur áður en þeir gætu ihafið störf. En þetta væri ekki aðeins varvdamál lækna, heldur og vandamál, er snerti alla æðri menntun. Þyrfti að reyna að stytta námstíma langskóla- manna, þannig að þek kæm- ust fyrr til starfa. Ólafur R. Grimsson ræddi um útvarpsþátt, sem hann hafði með höndum. Sigurður A. Magnússon ræddi þau vandamál sem skapast hefðu, vegna brott- flutnings sérmenntaðra manna úr landL og spurði, hvort kunnugt væri um, að nokkur heildsali hefði flutt atf landi brott og taldi nauðsynlegt, að braskarar yrðu færðir niður I annað sæti í landinu. Sverrir Bergmann ræddl m.a. aðstöðu til slysahjálpar á slysavarðstofun.ni og sagði, að ekki væri aðstaða til siysa þjónustu, er fjöldaslys bæ’U að höndum. Væri þetta mjög alvarlegt ástand. Helgi Valdimarsson ræddi það, hvers vegna ungir lækn- ar hyrtfu til starfa í öðrum löndum og sagði, að áistæðan væri sú, að vegna sjúklinga sinna teldu þeir þörí á full- komnustu aðstöðú, sem lækna húss. Um ástæðux þess, að ekki vair haft samstarf milU ríkis og borgar um sjúkra- húsbyggingu í Reykjavík tóvaðst ráðherra ekki geta upplýst frekar. Þá ræddi ráð herrann læknamiðstöðvar, og kvaðst hafa skipað netfnd til þess að semja reglugerð um læknamiðstöðivar etftir að ósk ir hefðu komið úr fjórum byggðarlögum um, að komið yrði á fót slíkum læknamið- stöð'vum, en það væri auðvit- að þá tfyrst, sem eðlilegt væii að gera sér frekari grein fyr- ir eðli og starfsemi læknamið stöðva, þegar almennar ósk- ir kæmu fram um að serja þær á stotfn. Um heilbrigðÍBmálaráðu- og niðurstöðum lækna og Læknadeildar fram á síðustu vikur. Hann fcvaðst hafa rete- ið á eftir þeim niðurstöðum, en engan atyrt fyrir seiua- gang í þeim efnum, þar sem hann gerði sér grein fyrir víðfeðmi þessa verketfnis. Nú væri fengið samkomulag í að alatriðum um þessi mál. Að lotóum sagði Jóhann Hatfstem: Mér var ljóst þegar ég *ók við embætti heilbrigðismála- ráðherra, að þar var mér mik ill vandi á höndum. Ég hafðd ríkan áhuga á að láta gött af mér leiða á þessu sviðL sér- staklega þax sem ég haifði kynnst þessum málum í bæj- arstjórn Reykjavíkur, sem netfndarmaður í heilbrigðis- Frá stúdentafundinum í fyrrakvöld. (Ljósm. Ingimundur Magnússon) vísindin hefðu upp & að bjóða, en hún væri etóki fyrk hendi hér á landL Jón E. Ragnarsson gerði atfhu'gasemd við ummæli, sem um hann höfðu verið látin falla, vegna starfa harw 1 stjórn Bifreiðalánasjóðs hér- aðslækna, og benti á, að startf sitt þar væri ekki á sviði læknavísinda, (heldur tfólgið i lögfræðilegri þjónustu við nefndina og héraðslækna. Jóhann Hafstein, heilbrigð- lsmálaráðherra tók siðan tfl. máls og ræddi ýmsar fyrir- spurnir, sem fram hötfðu ver- ið bornar til hans. Heilbrigð- ismálaráðherra sagði, að á ár inu 1947 hefðu umræður haf- izt í bæjarstjórn Reykjavík- ur um byggingu sjúkrahúss, og hetfði hann átt sæti í bæj- arstjórn á þeim tíma. Nefad hefði verið kosin til þess að athuga málin, og síðar hefði þáverandi borgarstjóri skipað sérstaka byggingarnefnd, en byggingaframkvæmdir heíðu hatfizt í júní 1954, þótt fjár- festingarleyfi hefði þá enn ekki verið fyrir hendL 1952 var nefnd einnig skipuð tíl þess að fjalla um viðbótar- byggingu við Landsspítalann, og sagði Jóhann Haflstein, *ð bæjarstjórnarfulltrúum hefði þá fundizt undarlegt, að stofna skyldi til slíkra fram- kvæmda, þegaT Reykjavíkur- borg var að hefja fram- kivæmdir við byggingu sjúkra neyti og óskir fundarmanna um sérstakt ráðuneytL sagði ráðherrann, að ástæða væri til að benda á, að ektóert slikt ráðuneyti væri á hinum Norðurlöndunum. Hins vegar væru það sérstakar stotfnanir, sem heyrðu beint undir ráð- herra. ísland vseri því efckert sérstakt að þessu leytL Það skiptir hins vegajr málL sagði J'óthann Hafstein, að stjórn heilbrigðismiála sé sterk. Ég hef sett fram þá hugmynd nýlega, að styrkja emtoætti Landlæknis og Trygginga- stofnunar og mynda á grund- velli þeirra stofnana sterka heilbrigðisstofnun. En það er engin löggjöf til um ráðu- neyti á íslandi og þau hafa a!4rei verið sett á stofn sam kvæmt sérstakri löggjötf etf undan er skilið utanríkisráðu neytið. Mestu máli skiptir að góðri skipan sé fcomið á þessi mál. Ráðherrann fcvaðst taka und.ir þau ummaeli Ásmund- ar Brekkan, þess etfnis, að nauðsynlegt væri að koma á áætlunargerð um þörf al- mennrar. heilbrigðisþjónustu 1 landinu á næstu árum og áratugum. Hann fcvað efcki liggja fyrir sér neinar slíkar áætlunargerðir, en taldi að slíkt mundi stefna í rétta átt. Þá ræddi Jóhann Hatfstein skipulag Landsspítalalóðar- innar og sagðL að í þeim efn- um hefði staðið á athugunum nefnd Reykjavikurtoorgar. 1 þessum efnum hef ég orðið að treysta á ráð landlæknis >g ráðuneytisstjórans, Baldurs Möllers, senj báðir haía við- tæka þekkingu á þessum efn- um. Verkefni mitt hetfur ver- ið, að beita áhritfum mínum innan ríkisstjórnarinnar t»l framdráttar heiltorigðismál- um og til útvegunar aukins fjármagns til þeirra. Ég hef ævinlega hatft samtoand við fjölmarga lækna, sem verið hatfa mér til ráðuneytis um þessi mál, og vil ég að lofcum Játa í ljós þá ósk, að þessi tfundur verði til þess að kveikja raunverulegan áhuga fyrir framgangi heiltorigðis- mála I landinu. Að lokum tók tfl máls Árnl Björnsson læknir. Hann kvað sér skylt að þaktóa frum- kvaeði Jótoanns Hatfstein wm margvíslega löggjöf og fram- fcvæmdir á sviði toeiltorigðis- iwála og fyrir það að hafa haft meira samtoand vtð lækna en nokkur fyrirrenn- ari hans. Hins vegar kvað hann ljóst, að ekki hetfði enn verið komið á heildarskipu- lagi heilbrigðismála, en á því væri brýn nauðsyn. Árni Björnsson ræddi síðan nokk- ur atriði, sem fram höfðu komið í ræðu fundarmanna, en síðan var fundi slitið. - ÁSM. BREKKAN Framhald af bls. 20. heiltori'gðisþjónustu þjóðin geti veitt sér á hverjum tímau Ég vil því beina þeirri fyrir- ■purn til hæstvirts heilbrigðis- málaráðherra, hvort nokkur drög haifi verið lögð að því að meta þessa þörf, og etf svo er, hvort unnið sé að áætlunum um það, hvernig henni verði full- nægt. Góðir áheyrendur, eftlr rúm 20 ár verður mannfjöldi á þessu landi voru 300 þúsund, 20 ár er skammur tímL Langflest ykkar hér inni geta hugleitt með sjálf- nm sér, ja, það var ekki langt síðan 1947. Fyrir um 20 áium síðan var Ijóst, að nauðsyn bæri ta að byggja 200-400 rúma sjúkraltoús hér í böfuðtoorgmni. Þvi er enn ólokið. Fyrir tæpum 20 árum síðan voru til 14 rúm fyrir kvensjúkdóma á sérdeild. Þau eru jafnmörg í dag. Fyrir 20 árum voru engir möguleikar á því, að taka sjúklinga til end- hætfingarmeðtferðar á opintoerum stofnunum eftir sjútedóma eða slys. Þessir möguleikar eru enn ekki fyrir hendi. Fyrir 20 árum var ekki til slysaspítali á þéttbýlasta svæði lacndsins. Hann er enn ekki til. Fyrir 20 árum síðan var ekki til skipulagsáætl- un um heilbrigðismáL Hún er enn ekki tiL Tilgangur okkar læfcnanna, sem hér höfum hatft framsögu, með þessum yfirlitserindum, sem þó hafa komið óviða við, er að vekja athygli ykfcur & því að heilbrigðismálin eru einn mikil- vægasti þátturinn í þjóðfélags- byggingu nútímans. Velferð ein- Staklingsins er engu háðari en heilbrigði eða góðra úrbóta, ef á heilbrigði skortir. Það er því alvarleg hvatning okkar, tál yfirvalda, til kollega okkar, og til ykkar allra, að við knýjum fram þær raunhæfu aðgerðir, er hefja megi veg heiibrigðisméla í landinu. 1 3íll til sölu Af sérstökum ástæðum er bifreiðin R-4981 sem er af gerð Buick special ’55 til sölu. Bifreiðin er í mjög góðu standi. Uppl. í síma 36858 eftir kl. L 1 Félag V.í. ’57 leldur áríðandi fund á Hótel Loftleiðum (Snorra- >úð) kl. 8.30 e.h., n.k. þriðjudag 21. marz. STJÓRNIN.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.