Morgunblaðið - 18.03.1967, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MARZ 1067.
SÍDAN
1 VMSJÁ BALDVINS JÓNSSONAR
Til lesenda
KÆEU lesendur, nú þegar þessi
síða hefur verið hér í blaðinu í
rúman mánuð, langar okkur til
að fá ykkur, lesendur góðir, til
þess að stinga uppá efni, sem
hægt væri að birta hér á síð-
unnL
Eins og þið hafið kannski tek-
iB eftir höfum við reynt að hafa
•fnið nógu fjölbreytt, til þess að
lem flest ungt fólk hafi ein-
hverja ánægju af því að lesa það.
Það eru vinsamleg tilmæli til
ykkar, kæru lesendur, að ef þið
vitið um eitfchvað efnL sem er
athyglisvert fyrir ungt fólk, að
láta okkur vita. Eins er allt að-
sent efni um og fyrir ungt fólk
vel þegið. Utanáskriftin er: „Síð-
an þín“, Morgunblaðinu, Aðal-
strætL
íslandsmótið:
Leikir yngri flokkana
A ÞRIÐJUDAGS’KVÖLDIÐ var
íslandsmótinu í yngri flokkum
haldið áfram að Hálogalandi og
voru leiknir tveir leikir í 2.
flokki kvenna og tveir leikir í 3.
flokki karla.
2. flokkur kvenna, A-riðilI,
Valur—Breiðablik 5:3 (3:3)
Leikurinn var nokkuð jafn og
•pennandi og kom leikgleði og
geta Breiðabliksstúlknanna mjög
á óvart, — greinilegt er, að þeim
hefur farið mikið fram frá fyrri
leikjum í mótinu. Þær héldu í
við Valsstúlkurnar fram að hléi
en eftir það tókst Valsstúlkunum
að bæta við tveimur mörkum og
sigra.
. 2. flokkur kvenna, B-riðill,
T KR—ÍBK 9:1 (4:0)
KR-stúlkurnar höfðu alla yfir-
burði í þessum leik og áttu ÍBK-
stúlkurnar aldrei viðreisnarvon.
3. flokkur karla, B-riðill,
Fram—ÍBK 12:7 (5:2)
Þetta var mjög skemmtilegur
leikur, áttust þama við fcvö lið
með mjög efnilegum leikmönn-
um, sem léku hverja leikfléttuna
af annarri eins og þaulæfð meist-
araflokkslið. Framarar voru þó
betri aðilinn í þessum leik og
var það mikill óþarfi að leika
eins grófan leik eins og þeir léku.
3. flokkur karla, A-riðill,
Haukar—KR 6:5 (2:2)
Leikurinn var nokkuð jafn og
spennandi en hafði ekki upp á
margt að bjóða hvað handknatt-
leik snertir. Haukar unnu verð-
skuldaðan sigur.
HORNAUGAD
KVIKMYNDAGACHRÝNI
UNGA tÓLKSINS
#1
Blörn Baldursion
ÞórSur Cunnarssou
Tónabíó: SVIÐSLJÓS.
(Limelights).
CALVERO, gamanleikari og
trúður hefur beðið lægra hlut í
hinni hörðu samkeppni skemmti
krafta vegna elli og óreglu.
Þáttaskil verða í lífi hans, er
honum tekst að bjarga ungri
atúlku, ballettdansmey, frá því
*ð fremja sjálfsmorð. Stúlkan
ímyndar sér, að hún sé lömuð
I fótunum. Gamli gamanleikar-
inn hjálpar henni að yfirvinna
vonleysi og hugarvíl, er að
henni sækir. Hann kennir henni
að líta lifið björtum vonaraug-
um. Örlögin haga því þannig til,
að dansmærin verður stoð og
stytta gamla mannsins er á bját
ar. Að lokum fórnar hann líf-
inu, til að öðlast aftur eilítið af
fornri frægð, í birtu sviðsljósa.
í myndinni er fjallað um sál-
ræn og félagsleg vandamál
mannsins af næmum skilningi.
Atburðarásin er fremur hæg
framan af, en meitluð fyndr.um
smáatriðum. Myndin er heil-
ateypt, en augljóst er, að einn
maður, Chaplin, hefur gert of
mikið, tilbreytni og hugmynda-
auðgi í uppsetningu og töku er
t.d. af skornum skammti. Leik-
ur er hóflegur, sjaldan ýktur, en
því miður svæfandi tilþrifalítill
á köflum. Myndin er athyglis-
verð.
Hafnarbíó. PERSONA.
fslenzkur skýringatexti.
ÞAÐ er í sjálfu sér ákaflega
vandasamt að leiða fram 1 dags
ljósið hina duldu mannlegu eig-
inleika og hin margþættu af-
brigði sálarlífsins. í kvikmynd-
inni Persona ræðst Ingmar
Bergman í að birta okkur fyrr-
greind atriði og honum tekst
það á snilldarlegan hátt. En vita
skuld er efnið leiðinlegt og
kvikmyndin er oft og tíðum
drungaleg og talsvert langdreg-
in. íslenzki textinn er mjög vel
unninn og leikkonurnar Bibi
Anderson og Liv Ullmann sýna
leik, sem er vel fyrir ofan með-
allag. Söguþráðurinn, sem er af-
ar fábrotinn, greinir frá hjúkr-
unarkonu, er hefur verið valið
HLJOIMAR
FYRIR stuttu síðan fréttum við,
að hin landskunna hljómsveit,
Hljómar, hefðu skipt um trommu
leikara, fengið til sín gamlan fé-
laga, Engilbert Jensen, og hefðu
einnig breytt lagavali að ein-
hverju leytL
Við brugðum okkur út í Glaum
bæ á þriðjudagseftirmiðdegL og
hittum þá alla þar samankomna,
Gunnar, Rúnar, Erling og Engil-
bert þar sem þeir voru að æfa.
Þegar við vorum búnir að
hlusta á nokkur lög, komumst við
að því, að þeir hafa að okkar
áliti tekið geysilegum framförum
frá því bara um síðustu áramót.
Er við höfðum smellt af þeim
nokkrum myndum, fengum við
okkur sæti og ræddum við þá
um þá sjálfa og álit þeirra á
unga fólkinu í dag og eins og
það var þegar þeir hófu að leika
fyrir rétt rúmum þremur árum,
en þeir hafa leikið saman síðan
5. okt. 1963.
Fyrst spurðum við þá, hvort
þeim finnist lögin hafi breytzt
mikið á þessum tíma. Þeir kváðu
það vera og töldu þau vera mun
betri og skemmtilegri en þau
voru.
Finnst ykkur unga fólkið hafa
breytzt?
Nei, ekki svo mjög, aðallega 1
klæðaburði sem er mikið smart-
ari og frjálslegri en hann var.
Hafið þið hugsað ykkur að
gefa út plötu á næstunni?
Já, við ætluðum að gera það,
en það er bæði erfitt og dýrt,
vegna þess að Ríkisútvarpið er
hætt að lána upptökusal þann
sem áður hefur verið lánaður til
plötuupptöku.
Eftir þennan langa feril, hvað
er ykkur minnisstæðast?
Rúnar: Þegar við fórum til
Englands í upptöku á lögum fyr-
ir kvikmyndina „Umbarum-
bamba“, og þegar við byrjuðum
að leika opinberlega í „Krossin-
um“ í Keflavík.
Engilbert: Hljómleikar 1 Hlá-
skólabíói árið 1964.
Erlingur: í hestaatriði 1 kvik-
myndaupptökunni á myndinnl
„Umbarumbamba", þegar ég
datt af hestbaki og braut gítar-
inn. Einnig þegar við komum
fram í „Cavern Club“ í Liver-
pooL
Gunnar: Mest gaman í plötu-
upptökum.
Öllum fannst þeim gaman þeg-
ar þeir fylgdust með upptöku
á sjónvarpsþættinum „Ready
Steady Go“.
Og að lokum, hafið þið hugsað
ykkur að halda áfram að leika?
Já, svo framarlega sem ein-
hverjir hafa áhuga á að hlusta
á okkur....
Hver á hárið ?
JOHN Lennon átti hárið, sera
kom hér á síðunni 9. marz sl.
Okkur barst fjöldi bréfa, og
voru þau flest rétt, og þá var
dregið úr og upp kom nafn Mar-
grétar Sigurðardóttur, Básenda 1,
og mun hún geta sótt vinninginn
á afgr. Mbl., Aðalstræti 6, fyrir
næstu mánaðamót.
það vandasama hlutverk, að
annast hjúkrun og eftirlit með
andlega vanheilli leikkonu,
Myndina verður að telja í þeim
flokki kvikmynda, sem almenn-
ingur getur ekki haft gaman af.
Til þess er hún alltof einhæf og
fábrotin. Efnið sem heild er
frekar rannsóknarefni sálfræð-
inga heldur en kvikmyndahús-
gesta og kostir hennar megna
ekki að vega upp á móti þeirri
staðreynd, að kvikmyndin Per-
sona er leiðinleg.
B. 1. Hann nam viðskiptafræði
áður fyrr.
2. Hann er mjög oft aðaV
söngvari 1 hljómsveit.
SVÖR skulu send til síðunnar
eigi síðar en 21. þ. m., merkt:
„Síðan þín“, Morgunblaðinu,
Aðalstræti 6, Rvík.
Lífiö er leikur, en þvi miður viljum við oll leika aðalhlutverkið.
ÍSLAND
1. (1) Oh What a Kiss..........The Rocking Ghosts
2. (4) Penny Lane/Strawberry Fields .... The Beatles
3. (2) I’ a Believer....................Monkees
4. (7) On a Carousel .................The Hollies
5. (5) Mellow Yellow ................... Donovan
6. (3) Let’s Spend The Night Together . Rolling Stones
7. (8) I’m a Man...................Spencer Davis
8. (10) There’s a Kind of Hush ..Herman Hermits
9. (6) Rugby Tuesday .............. Rolling Stones
10. (-) Release Me..........Englebert Humperdinck
ENGLAND
1. (1) Penny Lane/Strawberry Fields .... The Beatles
2. (2) Release Me..........Englebert Humperdinck
3. (3) This is My Song...............Peluta Clark
4. (4) On a Carousel ................ The Hollies
5. (8) Edelweiss ......................Vince Hill
6. (5) Here Comes My Baby ............. Tremoloes
7. (-) There’s a Kind of Hush ..... Herman Hermits
8. (-) This is My Song .............Harry Secombe
9. (9) Detroit City ..................: Tom Jones
10 (-) Georgy Girl ...................... Seekers