Morgunblaðið - 18.03.1967, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MARZ 1967.
13
Loftleiðir bjóða enn...
íslenzkum viöskiptavinum sfnum
þriggja til tólf mánaða greiðslu-
frest á allt að helmingi þeirra
gjalda, sem greidd eru fyrir flug-
för á áætlunarflugleiðum félags-
ins. Skrifstofur Loftleiða í Reykja-
vík, ferðaskrifstofurnar og um-
boðsmenn félagsins úti á landi
veita allar nánari upplýsingar um
þessi kostakjör.
Sívaxandi fjöldi farþega stadfestir,
að þaö sé engu síöur vegna frá-
bærrar fyrirgreiÖslu en hagstæÖra
fargjalda, að þeir ferÖist meÖ
Loftleiöum.
k
W MOFTLEIDIR
Johan Rönning hf.
Heildverzlun, Skipholti 15 — Reykjavík.
Símar 10632 — 13530.
Lekasfraumsliði
Hafið þér athugað, að þér getið svo til
komið í veg fyrir íkviknun frá rafmagni
með því að nota.
Crabtree lekasfraumslióa
sem höfuðrofa á raflögn yðar.
Jafnframt gefur hann
til kynna ef raflögn í
húsi yðar leiðir út, og
getur með því lsekkað
rafmagnsreikninginn.
Athugasemd
frá Jóni á Laxamýri
A AÐFANGADAG jóla síðast
liðin flutti Morgunblaðið langa
grein með yfirskriflinni „Hvern-
ig Gyðingar brugðu birtu yfir
heiminn". Greinin er íslenzkuð
úr útlenda blaðinu ..Observer".
Greinin er svo mikill vantrúar
þvaettingur að bún er raunar
ekki prenthæf meðal kristinna
manna.
Hér á larxii er vissulega nóg
af vantrú, þótt ekki sé verið að
kvnda undir hana með innflutt-
um varningi.
Hér verða þessari rvein ekki
gerð þau skil, sem þyrfti að vera.
Aðeins dregin fram nnkkur atriði
greinarinnar og gerðar athuga-
•emdir við þau.
Samkvæmt því, sem þar stend
ur, hefur Kristur aðeins verið
ófullkominn maður, sem ekkert
hefir látið eftir sig til umbóta
mannheimi nema eina setningu:
„Elskið óvin yðar“. Af orðum
Krists á krossinum eru £ grein-
inni aðeins tilfærð þessi: „Guð
minn, Guð minn hví hefur þú
yfirgefið mig“. Það gerir höf-
undurinn til sönnunuar því að
Kristur hafi aðeins verið maður.
„Guð skapaði manninn eftir
•inni mynd“. Hér í jarðlífinu
varð Kristur, samfara Guðdómn
um, að vera maður. Þessi setn-
ing í greininni kemur af því að
hann, á krossinum, finnur allan
•yndaþunga mannanna, hvíla á
•ér. Eftir upprisuna varð hann
laus við manninn. Kristur sagði
líka á krossinum: „Það er full-
komnað". Honum var ætlað að
færa þessa fórn til að opna náð-
arlhús Drottins fyrir okkur synd
uga menn — friðþægja fyrir mis
gerðir okkar. — Samanber líka
það, sem bann sagði við Pílatus:
„Ekki hefðir þú vald yfir mér,
ef þér hefði ekki verið gefið
það að ofan“. (Jóh. 19,11).
Höfundur greinarinnar kemur
hvergi nálægt því, sem sannar
Guðdóm Krist. Með uppstigning-
unni sannaði Kristur skvrast til-
veru og almætti Guðs. Auk þess
svo öll kraftaverkin, sem hann
gerði. Enginn befði gengið á
vatninu nema Kristur, svo að
tekið sé dæmi.
Framhald á bls. 29
Aímælisfcveðja
til Páls Guðmunds-
sonar Gilsárstekk
í DAG 5. marz, er Páll á Gils-
árstekk sextugur. Verður manni
þá ekki sízt hugsað til liðinna
ára og fjölmargra st»rfa hans fvr
ir sveitarfélagið. Vil ég senda
honum þakkir okkar Breiðdæl-
in<?a fyrir ómetanleg störf í nær
3 áratuvi sem oddviti og hrepp-
stjóri. S.l. vor afsagði hann að
vera í kjöri í hreppsnefnd að
nýju. Var það möroum hér ekki
sársaukalaust, en viðurkenna ber
að ekki þarf að undrast, þótt
menn kjósi að losna við amstur
oddvitastarfa, eftir svo langt
skeið, en eins og áður segir er
það nær 30 ár. Og seta í hrepps-
nefnd og oddvitastarf haut að
fara saman hjá Páli, um það var
ekki ágreininfpir.
Veturinn 1966 var óvenju harð
ur í Breiðdal. A útmánuðum
horfði óvænlega með heybirgðir
bænda þar, þrátt fyrir mikil hey
kaup um haustið. Páll beitti sér
þá fyrir að afla meira heys og
keypti nokkur hundruð hesta til
viðbótar. Með þessu bjargaði
Páll bústofni fjölmargra bænda
hér í Breiðdal, því að án þessa
heyforða hefðu orðið stórvand-
ræði víða. En gæfa fylgdi þessu
starfi hans, eips og svo oft áður.
Bústofninn gekk sæmilega fram
Þetta etta er aðeins eitt dæmi
um störf Páls í þá<*u okkar Breið
dælinga, störf, sem vert er að
þakka og giarna meva fleiri vita
um en sveitungar hans.
Að lekum flyt ég enn alúðar
I þakkir til Páls fyrir störf hans,
| sem oddvita og þeim hjónum báð
I um fyrir hjálpfýsi og alúð. PáH
I óska ég afmælisheilla og Hlíf
konu hans til hamingju með
bóndann.
5. marz 1967.
Br eið dælingur.
Pözt að aucrlúsa
í Morgunblaðinu
PostuBínsveggflísar
Enskar postulínsveggflísar.
Stærð 7%xl5 og 15x15 cm. — Gott verð.
LITAVER
Grensásvegi 22 og 24. — Símar 30280 og 32262.
Til sölu
Efri hæð og ris ásamt % þvottahúsi á neðri hæð er
til sölu og laus til íbúðar, á Hringbraut 5 Hafnar-
firði. Fagurt útsýni, ræktuð lóð. Upplýsingar 1
sima 52343 í dag.
Jón Ól. Bjarnason.