Morgunblaðið - 18.03.1967, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MARZ 1967.
Kafað í Njarðvíkurhöfn
Ég raða þessu upp eins og múrsteinum
1>AÐ var snjómugga, jiegar við
lögðum af stað úr Reykjavík,
og eilítið kul, svo að það gat
þrugðið til beggja vona, hvort
þeir væru að kafa suður við
Njarðvikurhöfn, en þangað var
ferð okkar heitið, tveggja blaða
manna Morgunblaðsins, síðastl.
þriðjudag. Annar þeirra var
m.a.s. froskmaður í Syndasel-
um og meiningin var, að hann
færi niður með kafaranum,
Kristbirni Þórarinssyni, sem
þar var að vinnu og myndaðl
hann neðansjávar. En ekki eru
allar ferðir til fjár, þótt farn-
ar séu.
Á Keflavíkurveginum var
jafnfallinn snjór, en færð að
öðru leyti góð, og Fólksvagn-
inn okkar fór á kostum suður
allan veginn, fram hjá þessu
makalausa tollskýli, framhjá
hinni væntanlegu Álverk-
smiðju, framhjá Hvassahrauni,
þar sem á síðustu árum er að
rísa upp mikið sumarbústaða-
*væði, framhjá Kúagerði, sem
hernámsandstæðingar hafa end
urnýjað frægð á sem áningar-
Btað, eftir Vogastapa, sem leng-
ur er ekki í neinu draugafæri,
framhjá hliðinu inn á Völlinn,
*em færri komast í gegnum en
úlfaldarnir í gegnum nálar-
auga Gullna hliðsins þar suður
í Gyðingalandi forðum og að
lokum renndum við niður að
hinum nýja hafnargarði, sem er
í byggingu í Ytri-Njarðvík, og
við höfðum frétt af skotspón-
um að væri byggður með ný-
stárlegum hætti og mun fljót-
virkari en hinir eldri hættir.
sem komu upp á yfirborðið frá
þeim þremur félögum. Hitinn í
sjónum reyndist \Vz gráða á
Celsius, samkvæmt hitamæli
Emils. Stór krani, vafalaust
með stærri krönum á landinu,
sveiflaði 10 tonna steinsstykkj-
um af stórum vörubílum niður
í hafdjúpið, og þar tók Krist-
björn við þeim eins og fisi, rað-
aði þeim eins og múrsteinum 1
nýja hafnargarðinn, og við
fréttum frá ýmsum aðilum, að
60% flýtisaukning væri við
þessa nýju aðferð, miðað við
þá eldri með steinsteyptu ker-
unum.
Þegar kafararnir komu upp,
notuðum við tækifærið og
spurðum Kristbjörn Þórarins-
son kafara, hvernig verkið
gengi?
stakk Kristbjörn sér aftur í
hafið og hafði ekki fyrir því
að nota stigann, sem var við
borðstokk Orions, og í hæla
hans dembdu þeir sér í sjóiinn,
hver af öðrum, blaðamaður
Mbl. Óli Tynes og félagi hans
úr Keflavík, Emil Kristjánsson,
en við Helgi S. Jónsson frétta-
ritari Mbl. 1 Keflavík, horfðum
agndofa á. Þetta var eitthvað
framandi fyrir okkur, annað líf,
en menn eru almennt vanir.
Blaðamaður Mbl. Óli Tynes
kemur upp á yfirborðið.
Við fórum inn í stjórnklefa
Orions, þar sem aðstoðarmað-
ur kafarans, Kristbjörns,
Kristóbert Rósinkarsson, ættað
ur úr Álftafirði við ísafjarðar-
djúp, átti tal við Kristbjörn í
gegnum talstöðina, og gaf síð-
an kranamanninum bendingar
eftir skipan kafarans. Þær
hljóðuðu eitthvað á þessa leið:
„Lítið eitt til hægri, örlítið
neðar" og Kristóbert gerði
merki með fingrunum, sem
fyrir okkur var hin argasta gol-
franska, en allt skildist þetta,
eins og á milli þeirra lægi ein-
hver leyniþráður. Hávaðiinn 1
vélinni, sem dældi lífsloftinu
til kafarans, hindraði frekari
samræður, enda var liðið á tím
ann sem froskmennirnir gátu
verið undir yfirborði með kút-
anna sína.
Þetta hafði verið skemmti-
legur tími. Kafararnir komu
upp, einn af öðrum, busluðu i
haffletinum, og fengu sér heita
hressingu til að fá úr sér hroll-
inn, en við héldum í heiðskíru
veðri aftur til Reykjavíkur.
Fr. S.
Við hittum Kristbjörn kafara
«ð máli, en hann var þá stadd-
ur á sjávarbotni, töluðum við
Ihann í gegnum talstöð, og veitti
hann leyfi sitt fúslega, að frosk
maðurinn í okkar hópi kæmi
niður til sín og fylgdist með
aðgerðum hans við að hlaða
upp Njarðvíkurhöfn.
Annar blaðamanna MbL
stakk sér þegar í hafið íklædd-
ur froskmannabúningi sínum og
félagi hans úr Keflavík, Emil
Kristjánsson, sá sem frægur
varð af því að grípa lax á
sundi, fór niður með honum og
honum og Kristbirni kafara til
hugarhægðar. Við stóðum í
stafni kafarabáts Kristbjarnar,
Orions, sem lá þar við garð-
inn, og horfðum á loftbólurnar,
Kristbjörn kafari kemur
vírum utan um stein, sem
er til trafala. Myndin er
tekin á hafsbotni.
„Takk, bærilega", svaraði
þessi hávaxni maður í búningi
kafara, sem einna helzt minnti
á geimfarabúning. ,’,Síðan við
byrjuðum á þessum tveim görð
um, höfum við hlaðið 72 metra,
báðum megin. Við byrjum á því
að hreinsa undirstöðuna með
sterkri dælu, blásum burtu öllu
lauslegu, setjum niður grindur
og steypum í þær, og því næst
er byrjað að hlaða. Fyrstu
steinstykkin eru mismunandi
að stærð, eftir botnlaginu, en
þau næstu eru 10 tonn að stærð,
þau sem við erum með núna
eru um 4 tonn að stærð. Þetta
eru svona 5—7 lög eftir dýpi
Efrafall sér um verkið. Lásar
eru á steinunum, og falla þeir
yfirleitt auðveldlega í grópir.
Milli þessara garða er svo fyllt
upp með grjóti. Steinarnir sem
ég hleð úr, hafa gat í miðjunni,
og í þessi göt er svo steypt með
járnbentri steinsteypu. Þetta
virðist ganga mjög vel, og við
vinnum þetta frá kl. 8 á morgn
ana til kl. 7 á kvöldin. 25—30
manns vinna við þessa hafnar-
gerð að staðaldri."
Klukkan að ganga fjögur
Kristóbert Rósinkarsson rekur smiðshöggið á Kristbjöm kafara.
Húsgagnasmiðir:
Höfum fyrirliggjandi:
AN-TEAK LAKK
SLÍPIOLÍU og herði
BÆS, marga liti
TRÉFYLLI, fl. liti
SANDPAPPÍR, fl. grófl.
STÁLULL, fl. grófl.
SANDPAPPÍRSBELTI
CASCOL-LÍM, rakaþétt
WELDWOOD-LÍM,
vatnshelt
Laugavegi 15.
Sími 1-33-33.
Fermingarskeyti sumarstarfsins
Eflið sumarbúðirnar í Vatnaskógi og Vindáshlíð.
Kaupið falleg litprentuð fermingarskeyti, móttaka
á morgun frá kl. 10—12 og 1—5 í Sjálfstæðishúinu,
Kópavogi og Amtmannsstíg 2B. Upplýsingar í
síma 17536.
Húsgögn - afsláttur
Seljum í dag og næstu daga lítið gölluð húsgögn
á verkstæði voru að Brautarholti 6.
Trésmiðja Birgis Ágústssonar