Morgunblaðið - 18.03.1967, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MARZ 1967.
15
TVÆR SVNINGAR
í LISTAMANNASKÁLANUM
gtendur um þessar mundir yfir
sýning á málverkum og vatns-
litamyndum Ragnars Páls Ein-
arsonar. Ragnar er ungur maður,
alinn upp norður á Siglufirði
og mun hafa fengizt við ýmis-
legt listræns eðlis um dagana
m.a. dægurlagatónlist.
Sýning þessi ber þess greini-
lega vott, að hinn ungi maður
er enn á valdi hinna þrengri
sjónarmiða og að hann á erfitt
með að tileinka sér opnari við-
horf til hlutanna. Það er lands-
lagið, sem hann tekur aðallega
til meðferðar, en ekki athafna-
lífið, fólkið, né sérker.nilegar
húsastemningar æskustöðvanna.
Smávegis skólun við Myndlista
og Handíðaskólann og ársdvöl
í heimsborginni London, hafa
ekki megnað að rífa hann upp
úr hinum einangraða heimi sín-
um. Viss leikni, er hann hafði
augljóslega til að bera, er hann
hóf skólanám, einkennir hann'
ennþá, sömu mótív -— sami hugs
unarháttur. Hann hefur innan j
takmarkaðs sviðs aukið við sig j
leikni, einnig er hægt að tala:
um tækni, en þá í þröngri merk
ingu. Mótivaval hans einnig ó-
frumlegt, maður kannast við
þessa kíassísku staði frá ótal
sýningum, og hann kemur ekki
með neitt, sem ekki hefur áður
sézt, annað en e.t.v. algeng blæ-
brigði í vatnslitamyndura, sem
hann mun hafa tamið sér eftir
dvöl sína ytra. Litir hans eru
undarlega útlenzkir, nema helzt
þar sem kenna má áhrifa frá
Ásgrími.
1 myndum hans bregður þrá-
faldlega fyrir þeirri rómantik,
er ég hélt að væri að mestu horf
in úr málverkum hérlendis a.m.
k. þeirra manna er gera tilkall
til að teljast hlutgengir mynd-
listamenn. 1 slíkum tilvikum
líta menn þá á málaralist eins
og á sport líkt og t.d. laxveiðar
— holla útiveru í faðmi nátt-
úrunnar — eintal við himin
haf og jörð. Það er auðvitað
ágætt í sjálfu sér, en kemur
ekki málaralist við nema í fá-
um tilvikum. Því að list er ekki
sport heldur vinna — skapandi
vinna. Annað er að fara út í
náttúruna og viða að sér hug-
myndum og mótívum til seinni
útfærslu og krufningar — en að
gera slíkar tækifærismyndir,
sem eru jafnvel dagsettar eins
og til að staðfesta, að þær hafi
verið málaðar í einni lotu.
Það er líka misráðið og um
leið vanmat á dómgreind og
sjónhæfni skoðenda, að rita á
annað horn myndar t.d. „Bát-
ar“, ef myndin er af bátum —
eða ef um er að ræða hálfssam-
anfallnar bátsgrindur „Gamlir
bátar“ (!). Stundum skemmir
fyrirferðamikil áritun heild
myndanna — listræn er hún
naumast og getur einungis auk-
ið á annað ósamræmi. Litirnir
minna mig stundum óþægilega
mikið á þann neikvæða innflutn-
ing listvöruverzlana á númeruð-
um málverkum. (Kaupandinn
velur ákveðna mynd í skraut-
legum kassa — inni í honum er
svo númerað léreft — hvert
númer hefur ákveðinn lit). Að
vinna þannig er vísasta leiðin
til að deyða alla skapandi til-
finningu fyrir línum, litum og
formi — auk þess eru viðkom-
andi myndir oftast lítilsigld
verk. Þetta er að vísu vinsæll
leikur dilettanta, og kaupmenn
gera vafalítið góðan pening úr
þessu, en fátt er sem málarar
hafa meiri óbeit á. Ég trúi nú
alls ekki og vil helzt ekki trúa,
að Ragnar Páll hafi sótt skólun
Tannlæknastofa
mín er flutt á Laufásveg 12. Viðtalstími frá kl.
9—12 og 2—5 nema laugardaga. Sími 10452.
Eyjólfur Busk, tannlæknir.
SkriíslofuliíisnæSi
til leigu um 250 fermetrar, væri einnig hentugt
fyrir teiknistofur, að Ármúla 5.
Upplýsngar í síma 36000, og 33636.
Ráðskona
Vön ráðskona óskast í mötuneyti á Norðurlandi í
sumar. Umsækjendur sendi upplýsingar, aldur og
fyrri störf til Morgunblaðsins fyrir 31. marz
merkt: „Ráðskona 2003“
Varúð í liáiku
Látið skðsmlð yðar setja snjósóla á skóna yðar. Það
veitir öryggi í hálkunni
Samband skósmiða.
sína að einhverju leyti T því
skyni. En hann þarf aöt þjálfa
litnæmi sína til mikilla muna,
því litir hans eru of líflausir —
stjarfir og óupplifaðir. Þessu er
varpað hér fram, vegna þess að
litnæmi má þjálfa — flestir hafa
meðfædda litnæmi, en misjafn-
lega mikla — þessa litnæmi má
auka og þroska hjá öllum þorra
fólks með þjálfun augans. Heim
ur litarins er eins og heimur
lesmálsins — hefur sitt stafróf,
sín lögmál, sem ekki er hægt að
fara í kring um.
Kannski hefur Ragnar af
ásettu ráði farið út í þessa
kortagerð landslagsins — vili
vinna létt og áreynslulaus —
bægja frá sér óllum var.damál-
um, a.m.k. eru myndir hans
átakalausar með öllu. Svo lcngi
sem hann málar á þennan hátt,
er hann öruggur um að lifa í sin
um einangraða heimi. Hann höfð
r til hylli áV.veðins hr.-ps fólks
og hlýtur hana vafalitió — og
ef það er honum fullnæging, þá
er auðvitað ekkert við því að
segja. Hver og einn er sjálfráð-
ur im þá braut, er hnnn velur
scr. En merm verða líka að
kunna að taka afleiði agunur.t.
og ciga hvorki að láta kóng né
p 'est eða fiöldann ráð i vali
sínu. En fyrir því mega þeir
ekki missa sjónar á þeirri stað-
reynd, að þekking og lærdómur,
avort heldur hann er fenginn í
:-kóla eða utan, er grundvöllur
al's árangurs.
Vilji Ragnar Páll rífa sig laus-
an, meðan tími er til, ma hann
vera minnugur þess að ísalnd
vantar tilfinnanlega málara,
sem geta endurnýiað landslags
málverkið, og það er ungum
manni verðugra verkefni en að
framleiða dægurflugur, sneydd?
ar öllum öðrum tilgangi en að
líkiast fyrirmyndinni.
Á sýningunni var málverkið
,,Systrastapi“, að mfnum dómi
sú mynd, þar sem hann kemst
næst því að vinna af alvöru. Ég
vil í einlægni óska honum þess,
að hann geri fleiri slíkar um
leið færist meira i fang í fram-
tíðinni. Það er ekkert spaug að
vera málari, og það er heldur
ekkert spaug að kveða sér
hljóðs í stærsta sýningarsal þjóð
arinnar og að mikilsvert er að
vera þar vel undirbúin.
Mynd „Systrastapi“.
Sýning í Mokka.
Kevin Palmer, enski leikstjór
inn, sem hefur verið mikill afl-
gjafi íslenzkri leiklist, hefur
fyrir hönd vinar síns Donald
Jesse, sett upp litla en skemmti-
lega sýningu í Mokka-kaffi við
Skólavörðustíg — Þetta eru vel
gerðar eftirmyndir af látúns-
plötum úr enskum kirkjum, sem
eru gerðar með því að leggja
pappírsörk yfir plötuna og
nudda hana vandlega með
svörtu vaxi. Þessar látúnsplöt-
ur voru venjulega settar á graf-
hvelfingar og í kirkjugólf. Þær
voru yfirleitt á gröfum aðals-
fólks eða ríkra kaupsýslumanna
og gefa vafalaust dýrmætar upp
lýsingar um enskan klæðnað
frá 1200 til um það bil 1600.
Það birtir mikið upp í Mokka
við tilkomu þessara mynda. og
maður kemst gjarnan í góða
stemningu við návist þeirra, því
að einmitt slíkar myndir eiga
vel heima í litlum, þokkalegum
veitingastöðum. Þær vekia
ekki of mikla athygli, en eru
þægilegar í kynningu. Myndirn-
ar fá á sig dekoratív grafísk
einkenni við þessa yfirfærslu og
eru oft mjög listrænar og
skemmtilegar.
Bragi Ásgeirsson.
Akureyrarbær
Starf yfirverkstjóra
hjá Akureyrarbae er laust til umsóknar.
Upplýsingar um starfið veitir bæjarverk-
fræðingur. Sími 96-11438 Akurevri. Um-
sóknarfrestur til 1. apríl næstkomandi.
Akureyri 11. marz 1967.
Valgarður Baldvinsson, settur bæjar-
stjóri.
Hafnarfjörður
Sjálfstæðiskvennafélagið Vorboði heldur
fund í Sjálfstæðishúsinu, mánudaginn
20. marz kl. 8.30.
Fundarefni:
1. Ræður og ávörp flytja eftirtaldir
frambjóðendur á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins.
Mathías Á. Mahiesen, alþingismaður,
Jóhanna Sigurðardóttir, frú,
Fétur Benediktsson, bankastjóri.
2. Kosning fulltrúa á landsfund
Sj álfstæðisflokksins.
Kaffidrykkja. Sjálfstæðiskonur fjöl-
mennið á fundinn.
Stjómin.
Fæöingas! .z-^.nilið
í Kópavogi
vantar ljósmóður nú þegar. Þarf að vera
vön að vinna á deild. Upplýsingar gefur
forstöðukona í síma 41618 kl. 13—14.
Smurbrauðstofan
Björninn auglýsir
Okkar viðurkennda smurbrauð ávallt nýtt og fjöl-
breytt á boðstólum.
Kaffisnittur, cocktailsnittur, brauðtertur,
hálfar og heilar brauðsneiðar.
Vinsamlega pantið tímanlega fyrir fermingarnar.
BjÖrnirm
Njálsgötu 49. — Sími 15105.