Morgunblaðið - 20.04.1967, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1067.
3
-• ,v^:
: f - áíÍ*i*í
9**9+.u . f~' :cr
■*** =*^fr • • ♦ ■ ^ 4 *«** % m
% * w*. **<,, ^v<
■' _ "" ' :í - •>:•’ ^
Séð yfir nokkurn hluta athafnasvæðis Fjarðasíldar á SeyðisfiiOi.
' .v , S&WC4.X. r'- 'V v • % t
FJARÐASÍLD, ný síldar-
verksmiðja á Seyðisfirði
FRÉTTARITARI og ljósmyndari
blaðsins á Seyðisfirði, fóru að
skoða framkvæmdir við hina
nýju síldarverksmiðju, sem
Fjarðasíld er að reisa á Ölfueyri
við Seyðisfjörð. Eyrarnar, það
er Ölfueyri, Hánefsstaðaeyrar og
Þórarinstaðaeyrar eru, eru elzti
verzlunarstaður við Seyðisfjörð,
og gömul verstöð frá því að ró-
ið var á opnum bátum, og litl-
um þilfarsbátum. Þá var þægi-
legra að stutt væri á miðin, en
Eyrarnar eru 5 km. utan við nú-
verandi kaupstað, sem alltaf er
að flytjast innar með firðinum.
Vestdalseyrin er til dæmis aiveg
komin í eyði, og verið er að
grafa nýja höfn inn í leiruna
fyrir botni fjarðarins. Nú eru
öll íbúðarhús byggð fyrir botni
fjarðarins. öfugt við það sem áð-
ur var, þegar smábátaútgerð var
aðalatvinnuvegurinn. í>á var
byggðin dreifð út með firðinum
báðumegin, því þægilegt var að
stutt væri til sjávar, í uppsátrin
og sjóhúsin.
Á Eyrunum standa ennþá
nokkur gömul 'hús, sem ekki hafa
verið notuð til íbúðar í nokkur
ár. Ef til vill verða einhver
þeirra aftur tekin í notkun, þeg-
ar svona stór atvinnuveitandi er
kominn á staðinn. Einnig breyt-
ast aðstæður að því leyti, að nú
er komið rafmagn á staðinn.
Rafmagnsveitur ríkisins lögðu
háspennulínu út eftir, en söltun-
arstöðin >ór og Fjarðasíld kost-
uðu hana að mestu með háum
stofn- og fjarlægðargjöldum.
Einnig breytast aðstæður hvað
samgöngui á landi snertir, þar
sem búið er að leggja nýjan veg
að söltuna-stöðinni Þór, og von-
ir standa til, að fljótlega verði
vegaframkvæmdum framhaldið,
svo að nýr vegur fáist alla leið
að Fjarðasíld.
Ég hitti Ástvald Kristófersson,
bróður Péturs Blöndal, fram-
kvæmdastjóra Fjarðasíldar. Þeir
eiga í féiagi vélsmiðjuna Stál,
sem sér um aila járniðnaðar-
vinnu við byggingu síldarverk-
smiðjunnar.
— Hvar er Pétur? spyr ég.
— Pétur er í Reykjavík og
hefir verið þar með annan fót-
inn síðan byrjað var að vinna
að þessu Allar teikningar og
áætlanir, sem ekki fylgja inn-
fluttum vélum, eru gerðar i
Reykjavík og mjög mikill tími
hefur varið í viðræður við lána-
stofnanir
— Hvernig hefir framkvæmd
um og verkstjórn verið hagað?
— Við komum fljótlega upp
hafa unnið að staðaldri 15—20
menn. Verkstjóri er Eiríkur Sig
urðsson, sem áður var verkstjóri
hjá okkur í Stál. Það er áhuga-
mál þeirra. sem að fyrirtækinu
standa, að Seyðfirðingar séu
þarna aðalverktakar, eftir því
sem framast er unnt. T.d. sér
Leifur Haraldsson, rafvirkja-
neistari hér á Seyðisfirði, un
allar raflagnir, sem er mjög
mikil vinna, og Steypustöð Krist
ins Árnasonar leggur til alla
steypu.
— — Hve stór er verksmiðj
an, og hvað er áætlað að hún
kosti?
— Verksmiðjuhús og mjöl-
geymsla er reist fyrir 10 þús.
mála verksmiðju. En áæt.lað er
að byrja i sumar með 2 þús. mál-
um, sem fljótlega verða aúkin
upp í 5 þús. mál, með uppsetn-
ingu soðkjarnatækja og gufu-
þurrkara. Áætlað er að kostnað-
ur fari í sumar upp í 42—43
millj. og er þá gufuþurrkarinn
reiknaður með.
— Hvað er hlutaf'éð mikið?
— Hlutafé mun verða um 25
millj. og meiri hluti þess hefir
þegar verið innborgað. Enda
hefur þetta verið eina innlenda
framkvæmdaféð til þessa.
— Það er óvenju mikið og ég
minnist ekki að hafa heyrt um
fyrirtæki með yfir 50% af stofn
kostnaði í hlutafé. Hvernig er
afgangi fjárins aflað?
— Afgangur fjárins er svo
fenginn með erlendum og inn-
lendum lánum. Erlendu lánin
hafa verið tiltö'iulega auðsótt,
en mjög erfiðlega hefir gengið
að fá innlent lánsfé, og fram-
kvæmdir fyrir þá sö'k tafizt til
stórra muna, enda hefir lang-
mest af tíma framkvæmdastjór-
ans farið > að afla þeirra.
— Hvenær hófust bygginga-
framkvæmdir?
Eiginlegar byggingafram-
kvæmdir hófust í júní. Áður var
búið að ýta fram og jafna land-
ið. Það íyrsta, sem við gerðum,
var að reisa hafskipabryggju, og
eru aðstæður við hana góðar,
eins og reyndar alls staðar hér
við Seyðisfjörð. Síðan var reist
íbúðarhús fyrir starfsmenn.
— Ég held að þetta sé lengsta
verbúð sem ég hef séð.
— Já, þetta eT norskt hús,
flutt inn tilbúið til uppsetning-
ar, 64 metrar á lengd. í því eru
16 herbergi fyrir 27 starfsmenn
og 2 matráðskonur. Síðan er eld
'hús og matsalur, dagstofa fyrir
starfsmenn, 3 skrifstofuherbergi,
böð, snyrtiherbergi og geymslur.
— Er þetta ódýrara en inn-
lend hús?
— Kostnaður er sennilega
mjög svipaður, en stór kostur,
hvað fljótlegt er að reisa þessi
hús. Við vorum ekki nema um
tvo daga að koma húsinu undir
þak, og innrétting gengur líka
mjög greiðlega. Síðan hefur
þetta rekið hvað annað. Búið er
að reisa lýsisgeymi, 3100 rúm-
metra, og grunn undir olíu-
geymi. Reisa stíflu og leggja
vatnslögn, sem er 6 tommu plast
rör frá Reykjalundi. Stíflan er
gerð fyrir ofan brúna í Sörla-
staðaá. Og síðast en ekki sízt,
er verksmiðjuhúsið, sem má
heita fullgert, og gólf og undir-
stöður undir vélar langt komið.
— Verksmiðju'húsið mun vera
stærsta hús á Austurlandi, hve
stórt er það?
— Já, verksmiðjuhúsið, sem
er norskt stáigrindar'hús, og
mjölgeymsla er undir sama þaki,
er 104 metra langt og 40 metra
breitt og rúmmál alls rúmir 36
þúsund rúmmetrar. Því er skipt
að endilöngu í miðju og véla-
salur öðrumegin, en mjöl-
geymsla hinu megin. í vélasaln-
um er sérstakt hús fyrir raf-
magnstöflur og stjórnklefa. Úr
honum á að vera hægt að stjórna
öllum vélum verksmiðjunnar.
— Hvaðan eru vélarnar fengr,
ar?
— Vélarnar eru svo til allar
komnar á staðinn. Gufuketill er
þýzkur, skilvindurnar enskar,
en önnur vinnslutæki dönsk.
— Eru nokkrar nýjungar?
— Það væri þá helzt gufu-
þurrkarinn, sem lítið hefir ver
ið notaður hér á landi í síldar-
bræðslum og svo ýmislegt smá-
vegis í sambandi við vinnuhag
tæðingu og nýtin^u hráefnis.
— Hvað er þá ógert?
— Næst er svo að setja niður
vélar og síldargeyma, og ganga
frá löndun og síldarflutningi.
— Heldurðu að þið fáið svo
einhverja síld í verksmiðjuna?
— Svo fraþiarlega að síld
veiðist fyrir Áustfjörðum, telj-
um við það nokkuð öruggt, þar
sem hluthafarnir eru svo til all
ir útgerðarmenn. þar á meðal
báðir heimabátarnir. Reynslan
hefur líka sýnt að aukning verk
smiðjukosts á einum stað, dreg
ur ekki úr hráefnismöguleikum
þeirra, sem fyrir eru, heldur eyk
ur þá, því bátarnir koma fyrst
þangað sem mestir löndunar-
möguleikar eru og þá um leið
önnur þjónusta greiðust. Við
kveðjum Ástvald og þökkum
honum fyrir upplýsingarnar.
— ★ —
Vonandi tekst að ljúka þeim
verksmiðjubyggingum, sem nú
standa yfir á Austurlandi fyrir
síldarvertíð, þar sem bátaflot
inn stækkar óðfluga, annars er
gamla vandræðaástandið fyrir
sjáanlegt með löndunarbiðir og
vandræði, ef sæmileg veiði fæst
Undanfarin tvö ár hafa ekki
orðið stórkostleg vandræði með
löndun, þar sem flutningaskipcta
hafa tekið toppana. Nú er óvíst,
að -flutningaskipaflotinn vesrtJi
jafnstór og hann hefir verið wnd
anfarin ár, en aðalbreytingin «r
hvað veiðiflotinn stækkar stór-
kostlega. Það 'hefir oft verið sorg
leg sjón að sjá mikinn hluta
veiðiflotans bundinn í höfn, sem
fljótandi síildarþrær, þegar bezt
hefir verið veiðin.
Vonandi á sá timi ekki eft>T
að koma, að verksmiðjukostur-
nn verði svo iítill að bátarnir
verði að bíða eftir löndun, þar
til varla er orðið líft í þeim fyr-
ir ólykt
Það virðist vera þetta, sem út-
gerðarmennirnir sem standa »6
Fjarðasíld eru að fyrirbyggja,
með því ófurkappi, sem þeir
’eggja á að koma verksmiðjunni
upp.
— S. Guðm.
Sveifa-
keppni ■
hraðskák
í SÍÐAST LIÐINNI viku hðlt
Taflfélag Reykjavíkur sveita-
keppni í hraðskák. Sveit Hauka
Angantýsson fór með sigur af
'hólmi, vann 63 skákir af 88
tefldum og þar með veglegan
farandbikar, sem Heildverzlun-
in Hekla h.f. gaf til keppninnar.
í 2. sæti varð sveit Jónasar Þor-
valdssonar, er hlaut 61% vimv
ing, en 3. sæti skipaði sveit Jóng
Friðjónssonar með 52% vinn-
ing.
Segja má, að keppni þessi hafi
jafnframt verið einstaklings-
keppni í fjórum flokkum. Af L
borðs mönnum varð Ingvar Ás-
mundsson efstur, vann 17%
skák af 22 tefldum, en á 2. borði
sigraði fyrrv. Islandsmeistari 1
skák, Guðmundur Sigurjónsson,
er hlaut 19 vinninga af 22.
Næsta keppni fer fram sunnu-
daginn 15. maí n.k. og hefst
keppnin kl. 2. e.h. að Freyjugötu
27.
Spænskur
styrkur handa
íslendingi
SPÆNSK stjórnvöld bjóða fram
styrk handa íslendingi til náms
á Spáni skólaárið 1967—’68. Styrk
tímabilið er 8 mánuðir frá
október 1967 að telja. Styrkur-
inn nemur 5000 pesetum á mán-
uði, en auk þess fær styrkþegi
3000 peseta við upphaf styrk-
tímabilsins og er undanþeginn
innritunargjöldum í opinberum
kennslustofnunum, sem undir
spænska menntamálaráðuneytið
heyra.
Umsóknum um styrk þennan
skal komið til menntamálaráðu-
neytisins, Stjórnarráðshúsinu við
Lækjartorg, fyrir 15. maí nk. og
fylgi staðfest afrit prófskírteina
ásamt meðmælum.
Umsóknareyðublöð fást
í menntamálaráðuneytinu.
Fá Irani á
sliídent@garði
* *
nagrenni
Parisar
Úr verksmiðju- og mjölgeyms luhúsinu.
EFTIRFARANDI fréttatilkynn-'
ing hefur blaðinu borizt frá
menntamálaráðuneytinu:
íslenzkum námsmönnum sem
stunda nám í Parísarborg, hefur
verið tryggður aðgangur að
tveimur herbergjum í stúdenta-
garði í nágrenni Parísar.
Umsóknir um vist í herbergj-
um þessum næsta vetur þurfa
að berast menntamálaráðuneyt-
inu, Stjórnarráðshúsinu við Lækj
artorg, fyrir 20. maí nk. Umsókn-
areyðublöð fást í ráðuneytinu.