Morgunblaðið - 20.04.1967, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.04.1967, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1967. Sverrir Júlíusson alþm.: Forusta Sjálfstæðisflokksins hefur leitt til uppbyggingar í sjávarútvegi Stö&nun - afleiðing stjórnarfor- ustu Framsóknarflokksins AÐ tveim mánuðum liðnum munum við íslendingar ganga að kjörborðinu. Á Alþingi og í málgögn- um stjórnmálaflokkanna má sjá þess mörg dæmi, að nú nálgast kosningar; því er nauðsynlegt fyrir kjósendur að rifja upp hleypidómalaust hvaða áhrif stjórnarstefna Framsóknar hafði á sínum tíma á afkomu almennings og hag hvers einstaklings í landinu, og nú þegar Sjálf- stæðisflokkurinn hefur verið leiðandi aflið um stjórn landsins um 8 ára skeið. Ég vil vekja menn tiJ um- hugsunar um þessi atrði, um leið og ég bendi á, að Frain- sóknarflokkurinn er sá flokkur, sem lengst hefur viljað ganga í stjórnarathöfnum um afskipti i atvinnumálum, húnsæðismál- um, verzlunar- og viðskipta- málum, að ógleymdu skömmt- unarkerfinu, er náði til alls gjaldeyris og allra lífsnauð- synja. Svo ekki sé minnst á, þegar Framsóknarflokkurinn ætlaði á vinstri-stjórnarárunum að víkja til hliðar nær helm- ingi þjóðarinnar, Sjálfstæðis- mönnum, og gera þá áhrifa- lausa. Það var þá talin forsenda þess, að hægt væri að stjórna þessu landi. En hvernig fór? Eftir tveggja og hálfs árs for- ystu hljóp hún frá vandanum í annað sinn, í des. 1958, en í fyrra skiptið var það eins og kunnugt er árið 1938, þegar fyrra vinstrastjórnartímabilinu lauk. Þá var leitað til Sjálf- stæðismanna og þjóðstjórnin mynduð. En hver var aðkoman þegar Sjálfstæðismenn tóku við 1959? Allir gjaldeyrissjóðir tómir, miklar skuldir í erlendum gjald- eyri og lánstraust landsins alveg þrotið. Það var því ærið verkefni fyrir Viðreisnarstjórnina að rétta við lánstraust þjóðarinnar og mynda gjaldeyrissjóði. öllum mun vera ljós nauðsyn trausts efnahags hverju sjálf- stæðu ríki, er lifa vill menn- ingarlifi og við vaxandi velmeg- up. Okkur íslendingum eigi síð- ur en öðrum þjóðum, — vegna þeirrar miklu uppbyggingar, sem þjóðinni er lífsnauðsyn, — vegna þeirrar kyrrstöðu er ríkti hér um aldarsðir. Viðreisnarstjórninni hefur tek izt að rétta við lánstraust og álit þjóðarinnar það vel, að nú standa Alþjóða lánastofnanir henni opnar. Einmitt þess vegna hefur reynzt kleift að ráðast í stærstu mannvirkjagerð, sem er lykillinn að stóriðju á íslandi, er rennir fleiri stoðum undir at- vinnulíf og gjaldeyrisöflun þjóð- arinnar. Það er ekki ætlun mín að segja að ekkert megi finna að stjórnarfari síðustu 7 til 8 ára. Nei, alltaf er hægt að finna eitt- hvað, sem betur má fara. En höfuðverkefnin, er viðreisnar- stjórnin tók að sér, hefur tekizt að leysa. f því sambandi éndur- tek ég myndun gjaldeyrissjóðs, endurheimt lánstraust landsins, aukin sparifjármyndun, og aldrei hefur verið flutt inn jaínmikið af stórvirkum atvinnutækjum til lands og sjávar, að ógleymdum loftflota landsmanna. Hafizt hefur verið handa um stærstu virkjun landsins, Búrfellsvirkj- un, er gerir kleyft að hefja stór- iðju á íslandi. Á það má minna, að stjórnar- andstaðan var á móti þessum framkvæmdum, þ.ö.a.s. Alverk- smiðjunni. Aðeins 2 Framsókn- armenn sátu hjá við afgreiðslu þessa máls. Myndun gjaldeyris- varasjóðs er forenda frjálsra viðskipta við aðrar þjóðir, og má benda á, að þrátt fyrir hinn mikla innflutning, er átt hefur sér stað síðustu árin, og frjáls- ræði um sölu erlends gjaldeyris, var gjaldeyrissjóður lands- manna um síðustu áramót nær tveir milljarðar króna. Atvinnuvegirnir. Um það er vart ágreiningur, að forsenda fyrir mannsæmandi menningarlífi í landinu er sú, að þannig sé búið að atvinnuveg- unum af hálfu hins pólitíska valds, að þeir geti staðið undir sér með eðlilegum hætti, og eigi hvað sízt sé búið vel að þeim atvinnuvegum, er standa að verulegu leyti undir gjaldeyris- öflun þjóðarinnar. Enginn atvinnuvegur í land- inu er jafn áhættusamur og sá þáttur sjávarútvegsins, er að hrá efnisöflun lýtur. Hann er jafn- framt sá þáttur, sem þjóðin má sízt án vera. Að mínu áliti eru það nokkrir samverkandi þættir, sem verða að vera til staðar, svo þjóðin njóti ávaxta af þeim auði, er fiskimið okkar bjóða upp á. 1) Nægilegur fjöldi dugandi sjómanna, er sækja vilja gull í greipar Ægis á hverju tíma. 2) Athafnamenn, er bæði hafa vilja og þor til að hætta fjár- munum sínum í þennan áhættu- sama atvinnurekstur, sem fisk- veiðar eru. 3) Nægilegt fjármagn til byggingar fiskiskipa sé fyrir hendi á hverjum tíma. 4) Til séu verksmiðjur og verk unarstöðvar til úrvinnslu aflans. 5) Fyrir hendi sé þekking á markaðsmálum, og sölu-samtök, fyrir íslenzkar sjávarafurðir. 6) Ekki hvað sízt þarf að ríkja, skilningur hjá þeim stjórnmálamönnum er með völd- in fara hverju sinni. Eðlileg aukning og uppbygging þessa at- vinnuvegar, er ekki aðeins lífs- nauðsyn fyrir þá, sem næst hon- um standa, heldur einnig vegna þjóðarheildarinnar. Þá getur verið rík nauðsyn að ríkisvaldið komi til aðstoðar. þegar sér- staklega stendur á. Ósanngjarnt væri að segja annað, en að vaxandi skilnings hafi gætt hjá öllum stjórnmála- flokkunum á síðari árum. Einn er sá f lokkur þó, þ.e.a.s. Fram- sókn, er fram eftir árum hafði hvað minnstan skilning á þessum málum og beinlínis vann á móti eðlilegri þróun þeirra, þegar sá flokkur var í stjórnarandstöðu, og staðreynd er, að Framsókn hefur verið „utan dyra“ á mestu uppbyggingartímum sjávarút- vegsins, sem var á nýsköpunar árunum og viðreisnartímabilinu síðastliðin 8 ár. Ég vil nú taka nokkur dæmi máli mínu til sönnunar. í árslok 1938, þegar Framsókn leitaði á náðir Sjálfstæðisflokksins og Þjóðstjórnin var mynduð, var vélbátafloti landsmanna samtals 496 bátar, eða tæpar 13 þús. smá lestir. Af þessum fjölda voru 218 fleytur undir 12 lestum, 400 undir 30 lestum. Á þessum tíma var bannaður innflutningur fiskibáta, og einn mektar útvegs- og athafnamaður var sektaður fyrir að gera tilraun til vöru- skipta á síld til Svíþjóðar og fiskibáti til íslands. Það var ekki fyrr en að verka Sverrir Júlíusson nýsköpunarstjórnarinnar fór að gæta, að aukning varð á vél- bátaflotanum, á árunum 1947— 49. Bátarnir stækkuðu og þeim fjölgaði. Á þessum árum nær tvöfaldaðist rúmlestafjöldi þeirra, eða í 25.516 rúmlestir og nær helmingur þeirra yfir 30 rúmlestir. Stærð og fjöldi fiskibáta. f árslok 1958 fór vinstri stjórnin frá völdum. Þá var báta leyfir þeim, innan hæfilegra marka að njóta ávaxta af hug- kvæmni sinni og dugnaði, til velfarnaðar sér og sínum. Eng- inn getur náð langt í þessum efnum, nema samborgararnir og þjóðfélagsheildin njóti þar einnig góðs af. Þetta sýnir, að fjármagnið hefur leitað í stærri bátana, þ.e.a.s. síldarbátana, og sjómenn hafa leitað þangað, sem meiri hagnaðarvon er, þess vegna hefur mjög lítið verið byggt af bátum, sem fyrst og fremst eru ætlaðir fyrir bolfisk- veiðar. Þetta er áhyggjuefni vegna hráefnisöflunar fyrir fisk- vinnslustöðvarnar víðsvegar um landið, og verð ég að láta nægja að benda á þingsál.tillögu, er við þrír þingmenn stjórnarflokk- anna höfum flutt um athugun á sérstökum ráðstöfunum til endurnýjunar smærri vélbát- anna og bættum rekstrargrund- velli fyrir þá. Við skulum eigi álíta, að ekki hafi orðið erfiðleikar á vegi þjóðarinnar, sem stjórninni hef- ur ekki tekizt að hafa í fullu tré við. Verðbólgan hefur verið það verkefni, sem þessari stjórn hefur ekki tekizt að ráða niður- lögum á, frekar en öðrum rikis- stjórnum, er með völdin hafa farið allt frá stríðslokum. Það eru mörg samverkandi öfl, sem við er að glíma, en sérstaklega veld- ur þetta útflutnings atvinnuveg- unum miklum erfiðleikum, og þegar þar við bætist, að mikið verðfall hefur orðið á ýmsum aðalútflutningsafurðum okkar, svo sem síldarmjöli, síldarlýsi og hraðfrystum fiski, þá er vand inn þeim mun meiri. Alþingi samþykkti á s.l. hausti verðstöðvunarlög, er gilda munu til 31. okt. þ.á. Svo bezt ná lög þessi tilgangi sínum, að kaupgjald hækki ekki umfram það, sem atvinnuveg- irnir geta borið. Þá hefur ríkisstjórnin samið við útflutningsatvinnuvegina um nokkrar uppbætur og verðtrygg- ingu á útflutningsafurðum hrað frystiiðnaðarins, og eru tekjur í sambandi við þessar ráðstaf- fjöldinn 649, samtals 28.070 rúm- anir fengnar án nýrrar skatta- lestir. lagningar. Fjöldi Rúml. MeðaUal 1958 undir 100 rúml. 599 20.414 34 rúml. — yfir 100 — 50 7.658 153 rúml. Fjöldi Rúml. Meðaltal 649 28.060 1963 undir 100 rúml. ■ 676 23.591 35 rúml. — yfir 100 — 111 18.206 164 rúml. 787 41.797 Fjöldi Rúml. Meðaltal 1966 undir 100 rúml. 577 19.014 33 rúml. — yfir 100 — 184 35.559 193 rúml. 761 54.573 Það er athyglisvert, að þegar Minnisstæð frá umræðum um fyrsta kjörtímabili Viðreisnar- stjórnarinnar lauk, var bátafloti landsmanna 787, eða 41,797 rúml., og nú um s.l. áramót, þegar hálft ár er eftir að öðru kjör- tímabili Viðreisnarstjórnarinnar, er fjöldinn 761 bátur, að rúm- lestatölu 54.573. Við þetta má bæta, að í smíðum voru um síð- ustu áramót 34 bátar, samtals 10.810 rúmlestir meðalstærð 318 rúmlestir. Mér virðist að þessar tilvitnanir sýni, að þegar Sjálf- stæðisflokkurinn hefur stjórnar- forustu, þá leyfir hann einstakl- ingnum að njóta sína, og hann vill laða fram dug og dáð, og frumvarp til laga um ráðstafan- ir vegna sjávarútvegsins verða mér ummæli stjórnarandstöðu þingmanna, og þá sérstaklega Lúðvíks Jósefssonar, er þar lék hann svo tveim skjöldum, að jafnvel er einsdæmi, þegar hann gaf í skyn, að 260 millj króna, sem er millifærsla frá útgerð- inni sjálfri, vátryggingariðgjöld og greiðslur í Aflatryggingasjóð, séu uppbætur úr ríkissjóði. Þeir eru margir er telja, að of langt sé gengið til stuðnings hraðfrystiiðnaðinum, og átti þessi kafli í ræðu Lúðvíks að ná eyrum þeirra manna. Hins- vegar kafli, er ætlaður var frysti húsaeigendum. Um þeirra óánægju vissi hann, en þeir telja að of skammt sé gengið til móts við þeirra þarfir, vegna þess verðfalls, sem þegar er skoll ið yfir, og horfur eru á að verði á frystum afurðum. í sambandi við lögin um ráðstafanir vegna sjávarútvegs- ins, vil ég benda framleiðendum á, hugmyndina um verðtrygg- ingasjóði, sem þar koma fram, sem að mínu viti er mjög at- hyglisverð. Við framleiðendur eigum að veita þeirri hugmynd verðskuldaða athygli, svo við verðum betur undir það búnir að taka verðsveiflum, sem alltaf geta orðið á afurðum sjávarút- vegsins. Það eru ýmis vandamál, er bíða úrlausnar, eins og alltaf verður, bæði varðandi útgerð báta, togara, sem og vinnslu- stöðva í landi. Því miður leyfir tími minn ekki að fara langt út í þá sálma nú, vil aðeins benda á mál, sem varða þessar grein- ar sjávarútvegsins, þótt ekki verði nema upptalning. Löggjöf um sjávarútvegsmál. Fyrir þinginu liggur frum- varp til laga um Fiskimálaráð, flutt af 8 þingmönnum Sjálf- stæðisflokksins, um samvinnu allra aðila, er hlut eiga að máli, um mótun heildarstefnu í áfram- haldandi uppbyggingu sjávarút- vegsins, fiskiskipastólsins, um eðlilegt jafnvægi milli hinna mismunandi útgerðargreina, svo og uppbyggingu fiskvinnslu- og fiskiðnaðarfyrirtækja sem og samvinnu um markaðsmál. Einnig tillaga um endur- byggingu togaraflotans o. fl., flutt af fjórum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins. Þá vil ég einnig minna á þrjú mikilsvarð- andi mál, er núverandi ríkis- stjórn hefur til lykta leitt, til hagsbóta fyrir útvegsmenn og sjómenn. Það er í fyrsta lagi lögin um Verðlagsmál sjávarútvegsins, er sett voru 1961, en þau auka sam stöðu útvegsmanna og sjómanna. í verðlagsmálum ferskfiskafla eiga þeir samleið, eins og á þeim málum hefur verið haldið frá árinu 1960. Einnig fyrirbyggja þau stöðvun vegna ágreinings um skiptaverð til sjómanna. Þá var á síðasta þingi sett lög- gjöf um sameiningu stofnlána- sjóða sjávarútvegsins, Fiskveiða- sjóðs, og Stofnlánadeildarinnar. Það er trú mín. að þessi sam- eining með auknu fjármagni verði til mikilla hagsbóta fyrir sjávarútvegsframleiðendur. í þriðja lagi vil ég benda á, að fyrir tilstuðlan ríkisstjórnar- innar var tekin upp á s.l. ári vigtun á allri bræðslusíld á Austur- og Norðurlandi. Við nokkrir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins bárum fram þingsál. um það mál á þinginu 1964 en mál þetta hafði verið baráttu- mál útvegsmanna og sjómanna um langan tíma. Ég get ekki stilt mig um að vekja athygli á ummælum hv. þingmanns Eysteins Jónssonar s.l. þriðjudagskvöld, þar sem hann gerir að umtalsefni fram- lög ríkissjóðs til hafnarfram- kvæmda, og sagði meðal annars þó nú lagt fram frumvarp sem orðrétt: „En ríkisstjórnin hefur gerir ráð fyrir því, að fella úr lögum skyldur ríkissjóðs, til þess að leggja fé í hafnirnar.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.