Morgunblaðið - 20.04.1967, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1967.
Sverrir Júlíusson alþm.:
Forusta Sjálfstæðisflokksins hefur
leitt til uppbyggingar í sjávarútvegi
Stö&nun - afleiðing stjórnarfor-
ustu Framsóknarflokksins
AÐ tveim mánuðum liðnum
munum við íslendingar
ganga að kjörborðinu.
Á Alþingi og í málgögn-
um stjórnmálaflokkanna má
sjá þess mörg dæmi, að nú
nálgast kosningar; því er
nauðsynlegt fyrir kjósendur
að rifja upp hleypidómalaust
hvaða áhrif stjórnarstefna
Framsóknar hafði á sínum
tíma á afkomu almennings
og hag hvers einstaklings í
landinu, og nú þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur verið
leiðandi aflið um stjórn
landsins um 8 ára skeið.
Ég vil vekja menn tiJ um-
hugsunar um þessi atrði, um
leið og ég bendi á, að Frain-
sóknarflokkurinn er sá flokkur,
sem lengst hefur viljað ganga
í stjórnarathöfnum um afskipti
i atvinnumálum, húnsæðismál-
um, verzlunar- og viðskipta-
málum, að ógleymdu skömmt-
unarkerfinu, er náði til alls
gjaldeyris og allra lífsnauð-
synja. Svo ekki sé minnst á,
þegar Framsóknarflokkurinn
ætlaði á vinstri-stjórnarárunum
að víkja til hliðar nær helm-
ingi þjóðarinnar, Sjálfstæðis-
mönnum, og gera þá áhrifa-
lausa.
Það var þá talin forsenda
þess, að hægt væri að stjórna
þessu landi. En hvernig fór?
Eftir tveggja og hálfs árs for-
ystu hljóp hún frá vandanum
í annað sinn, í des. 1958, en
í fyrra skiptið var það eins og
kunnugt er árið 1938, þegar
fyrra vinstrastjórnartímabilinu
lauk. Þá var leitað til Sjálf-
stæðismanna og þjóðstjórnin
mynduð.
En hver var aðkoman þegar
Sjálfstæðismenn tóku við 1959?
Allir gjaldeyrissjóðir tómir,
miklar skuldir í erlendum gjald-
eyri og lánstraust landsins alveg
þrotið.
Það var því ærið verkefni
fyrir Viðreisnarstjórnina að
rétta við lánstraust þjóðarinnar
og mynda gjaldeyrissjóði.
öllum mun vera ljós nauðsyn
trausts efnahags hverju sjálf-
stæðu ríki, er lifa vill menn-
ingarlifi og við vaxandi velmeg-
up. Okkur íslendingum eigi síð-
ur en öðrum þjóðum, — vegna
þeirrar miklu uppbyggingar, sem
þjóðinni er lífsnauðsyn, — vegna
þeirrar kyrrstöðu er ríkti hér
um aldarsðir.
Viðreisnarstjórninni hefur tek
izt að rétta við lánstraust og álit
þjóðarinnar það vel, að nú
standa Alþjóða lánastofnanir
henni opnar. Einmitt þess vegna
hefur reynzt kleift að ráðast í
stærstu mannvirkjagerð, sem er
lykillinn að stóriðju á íslandi,
er rennir fleiri stoðum undir at-
vinnulíf og gjaldeyrisöflun þjóð-
arinnar.
Það er ekki ætlun mín að
segja að ekkert megi finna að
stjórnarfari síðustu 7 til 8 ára.
Nei, alltaf er hægt að finna eitt-
hvað, sem betur má fara. En
höfuðverkefnin, er viðreisnar-
stjórnin tók að sér, hefur tekizt
að leysa. f því sambandi éndur-
tek ég myndun gjaldeyrissjóðs,
endurheimt lánstraust landsins,
aukin sparifjármyndun, og aldrei
hefur verið flutt inn jaínmikið
af stórvirkum atvinnutækjum til
lands og sjávar, að ógleymdum
loftflota landsmanna. Hafizt
hefur verið handa um stærstu
virkjun landsins, Búrfellsvirkj-
un, er gerir kleyft að hefja stór-
iðju á íslandi.
Á það má minna, að stjórnar-
andstaðan var á móti þessum
framkvæmdum, þ.ö.a.s. Alverk-
smiðjunni. Aðeins 2 Framsókn-
armenn sátu hjá við afgreiðslu
þessa máls. Myndun gjaldeyris-
varasjóðs er forenda frjálsra
viðskipta við aðrar þjóðir, og má
benda á, að þrátt fyrir hinn
mikla innflutning, er átt hefur
sér stað síðustu árin, og frjáls-
ræði um sölu erlends gjaldeyris,
var gjaldeyrissjóður lands-
manna um síðustu áramót nær
tveir milljarðar króna.
Atvinnuvegirnir.
Um það er vart ágreiningur,
að forsenda fyrir mannsæmandi
menningarlífi í landinu er sú, að
þannig sé búið að atvinnuveg-
unum af hálfu hins pólitíska
valds, að þeir geti staðið undir
sér með eðlilegum hætti, og eigi
hvað sízt sé búið vel að þeim
atvinnuvegum, er standa að
verulegu leyti undir gjaldeyris-
öflun þjóðarinnar.
Enginn atvinnuvegur í land-
inu er jafn áhættusamur og sá
þáttur sjávarútvegsins, er að hrá
efnisöflun lýtur. Hann er jafn-
framt sá þáttur, sem þjóðin má
sízt án vera.
Að mínu áliti eru það nokkrir
samverkandi þættir, sem verða
að vera til staðar, svo þjóðin
njóti ávaxta af þeim auði, er
fiskimið okkar bjóða upp á.
1) Nægilegur fjöldi dugandi
sjómanna, er sækja vilja gull í
greipar Ægis á hverju tíma.
2) Athafnamenn, er bæði hafa
vilja og þor til að hætta fjár-
munum sínum í þennan áhættu-
sama atvinnurekstur, sem fisk-
veiðar eru.
3) Nægilegt fjármagn til
byggingar fiskiskipa sé fyrir
hendi á hverjum tíma.
4) Til séu verksmiðjur og verk
unarstöðvar til úrvinnslu aflans.
5) Fyrir hendi sé þekking á
markaðsmálum, og sölu-samtök,
fyrir íslenzkar sjávarafurðir.
6) Ekki hvað sízt þarf að
ríkja, skilningur hjá þeim
stjórnmálamönnum er með völd-
in fara hverju sinni. Eðlileg
aukning og uppbygging þessa at-
vinnuvegar, er ekki aðeins lífs-
nauðsyn fyrir þá, sem næst hon-
um standa, heldur einnig vegna
þjóðarheildarinnar. Þá getur
verið rík nauðsyn að ríkisvaldið
komi til aðstoðar. þegar sér-
staklega stendur á.
Ósanngjarnt væri að segja
annað, en að vaxandi skilnings
hafi gætt hjá öllum stjórnmála-
flokkunum á síðari árum. Einn
er sá f lokkur þó, þ.e.a.s. Fram-
sókn, er fram eftir árum hafði
hvað minnstan skilning á þessum
málum og beinlínis vann á móti
eðlilegri þróun þeirra, þegar sá
flokkur var í stjórnarandstöðu,
og staðreynd er, að Framsókn
hefur verið „utan dyra“ á mestu
uppbyggingartímum sjávarút-
vegsins, sem var á nýsköpunar
árunum og viðreisnartímabilinu
síðastliðin 8 ár.
Ég vil nú taka nokkur dæmi
máli mínu til sönnunar. í árslok
1938, þegar Framsókn leitaði á
náðir Sjálfstæðisflokksins og
Þjóðstjórnin var mynduð, var
vélbátafloti landsmanna samtals
496 bátar, eða tæpar 13 þús. smá
lestir. Af þessum fjölda voru 218
fleytur undir 12 lestum, 400
undir 30 lestum. Á þessum tíma
var bannaður innflutningur
fiskibáta, og einn mektar útvegs-
og athafnamaður var sektaður
fyrir að gera tilraun til vöru-
skipta á síld til Svíþjóðar og
fiskibáti til íslands.
Það var ekki fyrr en að verka
Sverrir Júlíusson
nýsköpunarstjórnarinnar fór að
gæta, að aukning varð á vél-
bátaflotanum, á árunum 1947—
49. Bátarnir stækkuðu og þeim
fjölgaði. Á þessum árum
nær tvöfaldaðist rúmlestafjöldi
þeirra, eða í 25.516 rúmlestir og
nær helmingur þeirra yfir 30
rúmlestir.
Stærð og fjöldi fiskibáta.
f árslok 1958 fór vinstri
stjórnin frá völdum. Þá var báta
leyfir þeim, innan hæfilegra
marka að njóta ávaxta af hug-
kvæmni sinni og dugnaði, til
velfarnaðar sér og sínum. Eng-
inn getur náð langt í þessum
efnum, nema samborgararnir og
þjóðfélagsheildin njóti þar
einnig góðs af. Þetta sýnir, að
fjármagnið hefur leitað í stærri
bátana, þ.e.a.s. síldarbátana, og
sjómenn hafa leitað þangað, sem
meiri hagnaðarvon er, þess
vegna hefur mjög lítið verið
byggt af bátum, sem fyrst og
fremst eru ætlaðir fyrir bolfisk-
veiðar. Þetta er áhyggjuefni
vegna hráefnisöflunar fyrir fisk-
vinnslustöðvarnar víðsvegar um
landið, og verð ég að láta nægja
að benda á þingsál.tillögu, er
við þrír þingmenn stjórnarflokk-
anna höfum flutt um athugun
á sérstökum ráðstöfunum til
endurnýjunar smærri vélbát-
anna og bættum rekstrargrund-
velli fyrir þá.
Við skulum eigi álíta, að ekki
hafi orðið erfiðleikar á vegi
þjóðarinnar, sem stjórninni hef-
ur ekki tekizt að hafa í fullu
tré við. Verðbólgan hefur verið
það verkefni, sem þessari stjórn
hefur ekki tekizt að ráða niður-
lögum á, frekar en öðrum rikis-
stjórnum, er með völdin hafa
farið allt frá stríðslokum. Það eru
mörg samverkandi öfl, sem við
er að glíma, en sérstaklega veld-
ur þetta útflutnings atvinnuveg-
unum miklum erfiðleikum, og
þegar þar við bætist, að mikið
verðfall hefur orðið á ýmsum
aðalútflutningsafurðum okkar,
svo sem síldarmjöli, síldarlýsi
og hraðfrystum fiski, þá er vand
inn þeim mun meiri.
Alþingi samþykkti á s.l. hausti
verðstöðvunarlög, er gilda munu
til 31. okt. þ.á.
Svo bezt ná lög þessi tilgangi
sínum, að kaupgjald hækki ekki
umfram það, sem atvinnuveg-
irnir geta borið.
Þá hefur ríkisstjórnin samið
við útflutningsatvinnuvegina um
nokkrar uppbætur og verðtrygg-
ingu á útflutningsafurðum hrað
frystiiðnaðarins, og eru tekjur
í sambandi við þessar ráðstaf-
fjöldinn 649, samtals 28.070 rúm- anir fengnar án nýrrar skatta-
lestir. lagningar.
Fjöldi Rúml. MeðaUal
1958 undir 100 rúml. 599 20.414 34 rúml.
— yfir 100 — 50 7.658 153 rúml.
Fjöldi Rúml. Meðaltal
649 28.060
1963 undir 100 rúml. ■ 676 23.591 35 rúml.
— yfir 100 — 111 18.206 164 rúml.
787 41.797
Fjöldi Rúml. Meðaltal
1966 undir 100 rúml. 577 19.014 33 rúml.
— yfir 100 — 184 35.559 193 rúml.
761 54.573
Það er athyglisvert, að þegar Minnisstæð frá umræðum um
fyrsta kjörtímabili Viðreisnar-
stjórnarinnar lauk, var bátafloti
landsmanna 787, eða 41,797 rúml.,
og nú um s.l. áramót, þegar
hálft ár er eftir að öðru kjör-
tímabili Viðreisnarstjórnarinnar,
er fjöldinn 761 bátur, að rúm-
lestatölu 54.573. Við þetta má
bæta, að í smíðum voru um síð-
ustu áramót 34 bátar, samtals
10.810 rúmlestir meðalstærð 318
rúmlestir. Mér virðist að þessar
tilvitnanir sýni, að þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur stjórnar-
forustu, þá leyfir hann einstakl-
ingnum að njóta sína, og hann
vill laða fram dug og dáð, og
frumvarp til laga um ráðstafan-
ir vegna sjávarútvegsins verða
mér ummæli stjórnarandstöðu
þingmanna, og þá sérstaklega
Lúðvíks Jósefssonar, er þar lék
hann svo tveim skjöldum, að
jafnvel er einsdæmi, þegar hann
gaf í skyn, að 260 millj króna,
sem er millifærsla frá útgerð-
inni sjálfri, vátryggingariðgjöld
og greiðslur í Aflatryggingasjóð,
séu uppbætur úr ríkissjóði.
Þeir eru margir er telja, að
of langt sé gengið til stuðnings
hraðfrystiiðnaðinum, og átti
þessi kafli í ræðu Lúðvíks að
ná eyrum þeirra manna. Hins-
vegar kafli, er ætlaður var frysti
húsaeigendum. Um þeirra
óánægju vissi hann, en þeir
telja að of skammt sé gengið
til móts við þeirra þarfir, vegna
þess verðfalls, sem þegar er skoll
ið yfir, og horfur eru á að verði
á frystum afurðum.
í sambandi við lögin um
ráðstafanir vegna sjávarútvegs-
ins, vil ég benda framleiðendum
á, hugmyndina um verðtrygg-
ingasjóði, sem þar koma fram,
sem að mínu viti er mjög at-
hyglisverð. Við framleiðendur
eigum að veita þeirri hugmynd
verðskuldaða athygli, svo við
verðum betur undir það búnir
að taka verðsveiflum, sem alltaf
geta orðið á afurðum sjávarút-
vegsins.
Það eru ýmis vandamál, er
bíða úrlausnar, eins og alltaf
verður, bæði varðandi útgerð
báta, togara, sem og vinnslu-
stöðva í landi. Því miður leyfir
tími minn ekki að fara langt út
í þá sálma nú, vil aðeins benda
á mál, sem varða þessar grein-
ar sjávarútvegsins, þótt ekki
verði nema upptalning.
Löggjöf um sjávarútvegsmál.
Fyrir þinginu liggur frum-
varp til laga um Fiskimálaráð,
flutt af 8 þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins, um samvinnu
allra aðila, er hlut eiga að máli,
um mótun heildarstefnu í áfram-
haldandi uppbyggingu sjávarút-
vegsins, fiskiskipastólsins, um
eðlilegt jafnvægi milli hinna
mismunandi útgerðargreina, svo
og uppbyggingu fiskvinnslu- og
fiskiðnaðarfyrirtækja sem og
samvinnu um markaðsmál.
Einnig tillaga um endur-
byggingu togaraflotans o. fl.,
flutt af fjórum þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins. Þá vil ég
einnig minna á þrjú mikilsvarð-
andi mál, er núverandi ríkis-
stjórn hefur til lykta leitt, til
hagsbóta fyrir útvegsmenn og
sjómenn.
Það er í fyrsta lagi lögin um
Verðlagsmál sjávarútvegsins, er
sett voru 1961, en þau auka sam
stöðu útvegsmanna og sjómanna.
í verðlagsmálum ferskfiskafla
eiga þeir samleið, eins og á þeim
málum hefur verið haldið frá
árinu 1960. Einnig fyrirbyggja
þau stöðvun vegna ágreinings
um skiptaverð til sjómanna.
Þá var á síðasta þingi sett lög-
gjöf um sameiningu stofnlána-
sjóða sjávarútvegsins, Fiskveiða-
sjóðs, og Stofnlánadeildarinnar.
Það er trú mín. að þessi sam-
eining með auknu fjármagni
verði til mikilla hagsbóta fyrir
sjávarútvegsframleiðendur.
í þriðja lagi vil ég benda á,
að fyrir tilstuðlan ríkisstjórnar-
innar var tekin upp á s.l. ári
vigtun á allri bræðslusíld á
Austur- og Norðurlandi. Við
nokkrir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins bárum fram þingsál.
um það mál á þinginu 1964 en
mál þetta hafði verið baráttu-
mál útvegsmanna og sjómanna
um langan tíma.
Ég get ekki stilt mig um að
vekja athygli á ummælum hv.
þingmanns Eysteins Jónssonar
s.l. þriðjudagskvöld, þar sem
hann gerir að umtalsefni fram-
lög ríkissjóðs til hafnarfram-
kvæmda, og sagði meðal annars
þó nú lagt fram frumvarp sem
orðrétt: „En ríkisstjórnin hefur
gerir ráð fyrir því, að fella úr
lögum skyldur ríkissjóðs, til þess
að leggja fé í hafnirnar.“