Morgunblaðið - 20.04.1967, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL, 1067.
9
Höfuðviðfangsefni næstu ára.
Það er höfuðviðfangsefni næstu
ára að treysta og efla undirstöðu
avinnuvegi þjóðarinnar og gera
ný átök til að hagnýta auðlindir
landsins. Það verður mikið vanda
mál að sjá hraðvaxandi þjóð fyr-
ir nægri atvinnu, því að trygg-
ing lífskjaranna er einmitt fólg-
in í fækkun mannshandanna við
framleiðsluna. Það er því mikil-
vægt að hafa augun opin fyrir
nýjum viðfangsefnum. Það mun
ekiki gleymast hverjir voru and-
vígir álbræðslu og kfeilgúrverk-
smiðju. Afrek hafa verið unnin
í uppbyggingu íslenzkra atviimu
vega á síðustu árum. Verðlag hef
ir verið hagstætt á sjávarafurð-
um en árgæzka síður en svo
verð meiri en oft áður. Síld hefir
verið áður austur í hafi meðan
engin veiddist hér við land .Nú
hefir með miklu framtaki út-
vegsmanna og vegna efnahags-
málastefnunnar á fáum ár-
um byggður stór floti nýtízku
síldveiðiskipa, sem flutt hefir
hinn mikla afla að landi. Þannig
hefir vélvæðing og tækni haldið
innreið sína á mörgum sviðum
og þarf enn að aukast.
En öll þessi stóru átök í þjóð-
félaginu, sem gerbreytt hafa lifs-
kjörum þjóðarinnar og aukið
henni trú á framtíðina og á mátt
sinn og megin hafa farið fram
hjá forustumönnum stjórnarand-
stöðunnar. Þeir hafa ekki séð til
sólar allt þetta tímabil. Jafn-
hliða því sem atvinnuvegirnir
auka fjármuni sína um þúsund-
ir milljóna, þá eru þeir á vonar-
völ að dómi stjórnarandstæðinga.
Að þeirra dómi eru síðustu átta
ár tímabil hinna glötuðu tæki-
færa.
Verkin tala.
Þessir svartsýnismenn biðja nú
þjóðina um að velja sig til for-
ustu. Þeir fara ekki dult með
það, að þeir ætli að stefna inn
á nýjar brautir. Frelsið er þeim
þyrnir í auga. Allt hlýtur að
ganga á tréfótum nema pólitískir
eftirlitsmenn ráði framkvæmd-
um og útfaluti leyfum til þeirra,
sem þóknaniegir eru taldir .All-
ar vestrænar þjóðir hafa hafn-
að haftastefnunni. Hin leiðin er
að vísu af stjómarandstæðingum
búin í sætlegan þokuhjúp og
kallað skipulagt frelsi.
Sjálfstæðisflokkurinn boðar
þjóðinni áframhald þeirrar frjáls
lyndu efnahagsstefnu, sem á fá-
um árum hefir gerbreytt til batn
aðar hinu íslenzka þjóðfélagi.
Hann býðuT ekki þjóðinni nein
óséð hnífakaup. Hann biður um
það eitt að verða dæmdur af
verkum sínum og varar þjóðina
alvarlega við afleiðingum þess,
ef ríkjandi stjórnarstefnu verður
hafnað og stöðnun og spilling
haftakerfisins heldur á nýjan leik
innreið sína.
Hít juvmin$arc|jafa
Kanaclisku MaJOR Rod
^ VcíSisttngurnar í míklu úrvali
gPORTVAL
VE RP FRA Kr. 160.“
!
Laugavegi 116
Afgreiðslustarf
Afgreiðslumann vantar nú þegar í bifreiðavara-
hlutaverzlun. Enskukunnátta æskileg. Tilboð merkt:
„Vinna 2396“ sendist afgreiðslu blaðsins.
TIL LEIGU
Húsnæði fyrir iðnað eða
j
vörugeymslu
Höfum til leigu húsnæði fyrir hreinlegan iðnað eða
vörugeymsla að Sætúni 8. Gólffötur alls um 1900
fermetrar. Leigist helzt í einu lagi.
O. JOHNSON & KAABER H.F.
Fermingargjafir
Vindsængur
Svefnpokar
Tjöld
Bakpokar
Ferðaprímusar
Skautaskór
Útivistartöskur
Sjónaukar
Ljósmyndavélar
V eiðis t angasett.
VERZLIÐ ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER.
VERZLIÐ ÞAR SEM HAFKVÆMAST ER.
Sími 13508
Laugavegi 13.
^umardt
J'iiróti
//
'u ma rci agu nnn
1967
Hátíoarhöld „Sumargjafar
Utiskemmtanir
Kl. 12,50: Skrúðgöngur barna frá Austurbæjarskólanum og Mela-
skólanum í Lækjargötu.
Lúðrasveitir leika fyrir skrúðgöngunum.
Kl. 1,30: nema skrúðgöngumar staðar í Lækjargötu.
1) Ávarp: séra Árelíus Níelsson 2) Gamanþáttur: Óm-
ar Ragnarss. Lúðrasveitir drengja, undir stjórn
Karls Ó. Runólfssonar og Pauls P. Pampichler, leika
vor- og sumarlög.
Kl. 1,30: Skrúðgöngur barna frá Laugarnes- og Langholtsskól-
anum að Hrafnistu. Lúðrasveitir leika fyrir skrúðgöng-
unum.
Kl. 2,00: nema skrúðgöngumar staðar við Hrafnistu.
1) Ávarp: séra Grímur Grímsson. 2) Gamanþáttur:
Ómar Ragnarsson. 3) Lúðrasveitin Svanur og Lúðra
sveit Reykjavíkur leika vor- og sumarlög.
Kl. 2,00: Skrúðganga bama frá Hvassaleitisskóla að Réttarholts-
skóla.
Lúðrasveit leikur fyrir skrúðgöngunni,
Kl. 2,30: nemur skrúðganganstaðar við Réttarholtsskóla.
1) Ávarp: séra Ólafur Skúlason. 2) Lúðrasveit verka-
lýðsins leikur vor- og sumarlög. 3) Gamanþáttur
Ómar Ragnarsson.
[nnlskemmtanir
Laugarásbíó kl. 3,00.
Börn og unglingar úr Laugarnes, Laugalæ
kjar og Langholtsskóla sjá um skemmti-
atriði.
Réttarholtsskóli kl. 3,00.
Börn úr Álftamýrar-, Hvassaleitis- og Rétt
arholtsskóla sjá um skemmtiatriðL
Austurbæjarbíó kl. 3.00.
Börn af barnahemilum Sumargjafar, fóstr
ur og fóstrunemar skemmta. Fóstrufélag ís-
lands sér um skemmtunina. Hún er ætluð
fyrir yngri börn.
Tjarnabær kl. 3.00.
Hljómlistarklúbburinn Léttir tónar sjá um
skemmtunina. Skemmtunin er ætluð stáip-
uðum börnum og unglingum.
Ríkisútvarpið kl. 5.00.
Barnatími á vegum Sumargjafar í umsjá
frú Guðrúnar Birnis.
LEIKSÝNINGAR:
Ibnó kl. 2.30 og kl. 5
(Leikfélag Reykjavíkur)
Kubbur og Stubbur.
Aðgöngumiðar á venjulegum tíma í Iðnó.
Venjulegt verð.
Þjóðleikhúsið kl. 3
S UNNUDAGINN 23. APRÍL
Galdrakarlinn í Oz.
Aðgöngumiðar á venjulegum tíma í Þjóð-
leikhúsinu. Venjulegt verð.
KVIKMYNDASÝNINGAR:
.... 3 og 5 i Nýja bió
Kl. 5 og 9 i Gamla bió
Kl. 5 og9i Austurbæjarbió
Dreifing og s&ía
Frá kl. 10—2 á sumardaginn fyrsta verður
bókinni Sóiskini og íslenzkum fánum dreift
til sölubarna á eftirtöldum stöðum: Haga-
borg, Barónsborg, Hlíðarenda við Sunnu-
torg, Staðarborg (leikskóli í Bústaðahverfi
og tjaldi við Útvegsbankann kl. 9—6.
„Sólskin" kostar 40.00 kr.
Islenzkir fánar kosta 15.00 og 25.00 kr.
Aðgöngumiðar að skemmtunum verða seldir
í húsunum sjálfum frá kl. 4—6 seinasta
vetrardag og frá kl. 1 sumardaginn fyrsta
og kosta kr. 40.
Aðgöngumiðar að leiksýningum og bíó-
sýningum verða seldir í aðgöngumiðasölum
viðkomandi húsa og því verði sem hjá þeim
gildir.
Sölulaun eru 10 prs.
Blómabúðir verða opnar frá 10—13.
Foreldrar: Athugið að láta börn ykkar
vera vel búin í skrúðgöngunum, ef kalt er
í veðri. Mætið stundvfslega kl. 12,40, þar
sem skrúðgöngurnar hefjast.