Morgunblaðið - 20.04.1967, Blaðsíða 13
MOF/iUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1967.
13
Sannleikur málsins er sá, að
samkvaemt 6. gr. þess frumvarps,
greiðir ríkissjóður 75% stofn-
kostnaðar hafnargarða, dýpkana
á aðalsiglingaleið, að og ffá
höfn, og hafnarsvæða innan
marka sem ákveðin eru af ráðu-
neytinu, í stað 40% áður.
Stofnkostnaður annara styrk-
hæfra hafnarmannvirkja, verði
40%, eins og hann hefur verið
hingað til.
Ég spyr með hvaða hugar-
fari hefur háttvirtur form.
Framsóknarflokksinsí lesið frum
varp þetta.
Að mínu viti, er frumvarp
þetta til mikilla hagsbóta, fyrir
hafnarframkvæmdir í landinu.
Það er nú til athugunar i sjáv-
arútvegsnefndum alþingis og
vonandi vinnst tími til _ að af-
greiða það á þessu þingi.
Afkoma sjómanna.
Það fer ekki á milli mála, að
afkoma landsmanna fer eftir
því hvernig að atvinnuvegunum
er búið, og þá ekki hvað sízt
undirstöðu atvinnuvegunum. Ég
sýndi hér áðan hvernig var að
vélbátaflotanum búið, þegar
Framsókn hafði að mestu ráðið
um 10 ára skeið, eða árið 1938.
Það mun ekki fjarri sanni. að
þá munu góðar meðaltekjur há-
seta á vélbátaflotanum hafa
numið um 2 þús. krónum á ári,
en það jafngildir miðað við
neyzluvísitölu ársins 1938 og
1966, 45.704.00. Samkvæmt nýj-
asta hefti Hagtíðinda eru meðal-
tekjur sjómanna, þ.e.a.s. háseta
árið 1965 kr. 290 þús., en meðal-
tekjur allra kvæntra manna á
aldrinum 25—66 ára árið 1965,
kr. 248 þús.
Meðaltekjur sjómanna 1938
hafa því verið um 16 af hundr-
aði miðað við tekjur þeirra
1965. Ég held að þesar tölur
tali sínu máli.
Ef nokkuð líkar aðstæður
væru nú fyrir hendi. yrðu mikl-
ar lífsvenjubreytingar að eiga
sér stað með þjóðinni.
Framsóknarflokkurinn hefur
nú nýlega haldið sitt 14. ársþing,
og haldið upp á 50 ára afmæli
flokksins. Hefur að vonum verið
gert mikið úr þessum tímamót-
um í málgagni flokksins, en við
lestur samþykkta þeirra Fram-
sóknarmanna, hefi ég ekki getað
varizt þeirri hugsun, að í trúar-
legum efnum er talað um að
menn geti frelsast. jafnvel hér
á jörðu, og fengið fyrirgefningu
synda sinna. Mér virðist þeir
Framsóknarmenn ætli nú að
reyna að telja landsmönnum trú
um að eitthvað svipað þessu hafi
gerzt með flokk þeirra. og nú
ætli beir að bæta ráð sitt og lifa
og stjórna sem réttlátir menn
eftirleiðis, og hætta að veita
Framsóknargæðingum forgang
þar sem þeir gætu komið bví við
En hver trúir því? Mín vissa
er. að nógu margir Islendingar
muna beirra valdatíð og forði
því að ofstjórn Framsóknar
hefii innreið sína aftur hér á
landi. Þ°ir munu fylkja sér um
SjáUstæðisflokkinn.. svo áfram
verði haldið með unpbvggingu,
til farsældar fyrir land og lýð.
Trvggja með því áframhaldandi
v°lmegun og réttlátt stjórnar-
far í landinu, minnugir þess. að
aðalkosturinn við-frjálsa stjórn-
skinan þjóðarinnar er sá að ein-
staklingurinn fer að hugsa sjálf-
ur.
Bandarísk könn-
unarvél fórsf
Bandarísk könnunarflugvél af
gerðinni SR—71 hrapaði til jarð-
ar í eyðimörkinni um 20 km. NA
frá Las Vegas í gær. Báðir flug-
mennirnir komust lífs af. en
fundust ekki fyrr en mörgum
klst. síðar. Flugvél þessi er talin
arftaki U-2 njósnavélarinnar og
er þetta í annað skiptið á tveim-
ur árum, sem slík vél ferst. Hún
getur flogið með 3200 km. hraða
á klst. Fréttamenn, sem komu á
staðinn rétt eftir að flugvélin
féll til jarðar. sögðu að brak úr
henni væri dreift yfir tveggja
km. svæði. Ekkert er enn vitað
um orsakir slyssins.
Af sýnipgu Royal Shakespeare Company á „Staðgenglinum" veturinn 1963-1964.
- LEIKLIST
Framhald af bls. 11.
fyrir í dag. En þeir sýna okkur
þessi vandamál í spegli einstakl-
ingsins, ekki einhverrar heildar,
smærri eða stærri. Þeir höfðu
enga lausn á hraðbergi og vanda
málin eru nú önnur en verk
þeirra njóta ekki minni hylli í
dag en fyrst, er þau voru sett
á svið Er það kannski vegna
þeirrar skarpskyggni seaa
kannski relst í því að skynja
hina mismunandi speglun sama
vandamáls hjá ýmsum einstakl-
ingum, að verk þeirra lifa enn?
Ekki má þó gera lítið úr rétt-
mæti maigra peirra mála, sem
heimildaleikhúsið hefur barizt
fyrir Það stefnir t.d. að þeirri
hugarfarsbreytingu að gera
menn þess meðvitandi, að þeir
séu ábyrgir fyrir misgjörðum
hvai sem er í heiminum, ef þeir
taki ekk afstöðu gegn þeim,
jafnvel pótt þeir fái sýnilega
engu áorkað. Þetta er höfuðinn-
tak US‘ og Peter Weiss hefur
kallað stefnu sína: „Veginn til
allsherjarábyrgðar“ (Der Weg
zur universalen Verantwortlic-
hkeit).
Það er sjálfsagt, að leikhús
taki virkan þátt í skoðanamótun
manna um sem flest málefni.
Ekkert mælir á móti því. að
raunverulegir atburðir séu meg-
inuppistaða einhverra leikhús-
verka, og reynt sé að fá fólk til
að taka einhverja sérstaka af-
stöðu til þeirra, ef hægt er að
gera þetta betur en í rituðu
máli, kvikmyndum eða sjón-
varpi. .Mutter Courage" eftir
Brecht og „Ó, þetta er indælt
stríð“ (sem fjalla á ólíkan hátt
um þrjátíu ára stríðið og heims-
styrjöldina fyrri) fá okkur til að
efast um að hægt sé að gera
þessu efni betri skil en á leik-
sviði.
Þær heimildir, sem Hocbhuth
notar í ,Staðgengilinn“, eru eng
an veginr. á almannafæri og fæst
ar til á kvikmyndum. Hins vegar
er efni ,US“ allt sótt í atburði,
sem alli' áhorfendur eru nauða-
kunnugir og megi taka nokkurt
mark á skrifum hinna betri gagn
rýnenda ' Englandi (sem flestir
eru annars á sama máli o-g
Brook um styrjöldina í Víetnam
og skeytingarleysi fólks í Vestur
álfu), vinnur sýningin málstaðn-
um fremur ógagr, en gagn, með
því að draga undan mikilsverðar
staðreyndir um atferli N-Víet-
nam og skæruliða Víetkong og
láta líta svo út, sem Bandaríkja-
menn slái á útrétta samnings-
hönd kommúnista, og vekur
því tortryggni á því sanna, sem
Brook fjallar um. Ef þetta er
rétt, þá er miklu erfiði og góð-
um hæfileikum á glæ kastað.
Weiss, Hoshhuth, Kipphardt
og fleiri rithöfundar komu eigin-
lega af stað þeirri skriðu heim-
ildaleikrita, sem nú hefur verið
og er að ríða yfir leikhús Evr-
ópu Þetta er að vísu tízkufyrir-
brigði. en mörg afkvæmi þess
eru svo athyglisverð, að þessi
tegund leikhúss hefur greinilega
unnið sér varanlega sess. Bar-
átta heimildaleikhússins hefur
Vaktamenn
Nokkrir vaktmenn óskast til starfa í Hvalfirði á
næstunni. Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 25.
þ.m. merkt: „Vaktmenn“.
Tvöfalt gíer — tvöfalt glLr
í Gluggaþjónustunni, Hátúni 27 fáið þér tvöfalda einangruna.-
glerið, bæði belgískt og austur-þýzkt með ótrúlega stuttum
fyrirvara, og einnig allar þykktir af einföldu gleri, Hamrað gler,
fallegt mynztur. Sjáum um ísemingar á öllu gleri.
GilEgf€je&|)|£lfi£aSi!'2IEl
Hátúni 27 — Sími 12880.
Siónvarpsloftnet
fyrir rás 5 — 12.5 dB
— 7 — 12,5 dB
— 10 — 12,5 dB
— 10 — 10,5 dB
— 10 — 9 dB
— 5-8 — 12 dB
— 5-12 — 5,5 dB
Kapall 200 MHZ 9,8 dB
Kapal án festingar.
Blanarar rás 6 og 10
Blanarar rás 6 og 10 LMK
Greinibox úti og inni.
Tenglar inngr. og utanal.
TRANSISTOR
útimagnarar rás 5 — 20 dB
— — 7 — 20 dB
— — 5-6 — 20 dB
— -5-10 — 20 dB
TRANSISTOR INNIMAGNARAR
Rás 10 — 34 dB
— 10 — 28 dB
— 5-6 — 34 dB
L.M.K. Fm. 18 dB
Útvarpsloftnet L.M.K. FM.
Rafidjan hf.
Vesturgötu 11 — Sími 19294.
borið ótvíræðan árangur með
því að fá aukið og viðurkennt
hlutverk leikhússins sem félags-
legrar stofnunar. Framleiðni
heimildaieikhússins hlýtur að
vera að nálgast hámark, en
áhrifa þessarar stefnu á aðra
leikritun og ekki síður áhorf-
endur sýninga af annarri ge.'ð,
er þegar tekið að gæta miog.
Áhorfendur eru allt í einu al-
mennt farnir að krefjast ein-
hverrar dýpri merkingar, oftast
félagslegrar. af leikritum, —
jafnvel þeim sömu, sem þeir
nutu áður hugsunar- og dóm-
greindarlaust. _
Örnólfur Ámason.
LANDSHAPPDRÆTTI
sjalfstæoisflokksins
VINNINGAR:
5 GLÆSILEGAf
BIFREItílR
AO VERÐMÆTI
ELLEFU HUNDRUtí
ÞÚSUND
VEfíÐURÞÚ S/f HEPPNI ?
VERÐUR ÞÚ S» HEPPHl ?
VERÐUR ÞÚ SA HEPPHI ?
VERtíUR ÞÚ SA HEPPHI ?
VERtíUR ÞÚ SA HEPPHI?
DREGIÐ 23. MAI 1967