Morgunblaðið - 21.06.1967, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1967,
19
1 Akureyri, 18. júni.
MENNTASKÓLANUM á Akur-
eyri var slitið í Akureyxar-
kirkju kl. 10.30 í gær. í fegursta
sumarveðri gengu stúdentaefnin
fylktu liði undir fánann frá
skólaihúsinu til kirkju ásamt sett-
um skólameistara, Steindóri
Steindórssyni. Kirkjan var þétt
skipuð fólki þ. á. m. júbilstú-
dentum, vandamönnum nýstú-
denta og öðrum gestum. Meðal
gesta var rektor Hóskóla ís-
lands, Ármann Snævarr, próf-
essor.
Eftir að skólasöngurinn hafði
verið sunginn hóf Steindór
Steindórsson ræðu sína og lýsti
skólastarfinu á liðnu skólaári í
stórum dráttum.
I upphafi skólaárs var 491
nemandi í skólanum, 328 piltar
og 163 stúlkur. Skiptust þeir
svo eftir bekkjum: I 6. bekk
100, 55 í máladeild og 45 í stærð-
fræðideild, í 5. bekk 118 (70
í md., 48 í stfrd.), í 4. bekk 120
(62 í md., 58 í stfrd.) og í 3.
bekk 153. Bekkjardeildir voru 19
og kennarar 25. Nemendur voru
úr öllum sýslum og kaupstöðum
landsins, flestir frá Akureyri
(113), þar næst úr Reykjavík
(40) og Eyjafjarðarsýslu (38).
Stúdentahópurinn sem útskrifaðist nú frá M. A.
Lögfaeðingar
Til sölu er Y2 hluti í þekktri fasteignasölu í Mið-
borginni. Tilvalið tækifæri fyrir ungan lögfræðing
til þess að skapa sér sjálfstæða atvinnu eða auka-
tekjur. Tilboðum sé skilað á afgreiðslu blaðsins fyrir
26. þ.m. merkt: „Fasteignasala — 763“.
næðismál skólans. Væri nú svo
komið, að þar sem útlit væri
fyrir að bekkjardeildum fjölgaði
um 2—3 næsta vetur, yrði að
tvísetja í stofur skólans í fyrsta
sinn. Hins vegar yrði slíkt ekki
lengi, því að afráðin væri ný-
bygging við skólann, hús fyrir
kennslu í raunvísindum með
rúmgóðum samkomusal í kjall-
ara. Væri nú lokið teikningum
og hefði verkið verið boðið út.
Verkinu á að hraða svo, að
kennsla geti hafizt þar haustið
1969. Þakkaði skólameistari
menntamálaróðherra, dr. Gylfa
Þ. Gíslasyni, fyrir margháttaðan
máladeild hlutu Margrét Skúla-
dóttir, Abureyri, 8,76, Steinunn
Jóhannesdóttir og Þuríður Baxt-
er, báðar 8,72. Efstur í stfrd.
og þar með á stúdentsprófi varð
Guðmundur Pétursson, Akur-
eyri, 8,91, og næstur Ásbjörm
Jóhannesson, 8,81.
Verðlaun úr Hjaltalínssjóði
fyrir afburðakunnáttu í íslenzku
Frá skólaslitum M.A.
Hæstu einkunn í skóla hlaut
Alda Möller frá Siglufirði, nem-
andi í 5. bekk stfrd., 9,53.
Undir stúdentspróf gengu 105
nemendur, 60 í md., þar af 7
utanskóla, og 45 í stfird., þar af
4 utanskóla. Einn nemandi á
ólokið prófi vegna veikinda,
þannig að brautskráðir stúdent-
ar eru 104. Hæstu einkunnir í
Steindór Steindórsson, skólameistari, afhendir sonarsyni sín-
um Steindóri Gunnarssyni stúdentsskírteinið, og er þetta
sennilega í fyrsta skipti í sögunni, sem skólameistari útskrif-
ar barnabarn sitt.
hlaut Margrét Skúladóttir og úr
Minningarsjóði Þorsteins J.
Halldórssonar fyrir afrek í
námi og fþróttum hlutu Ásbjörn
Jóhannesson og Guðmundur Pét-
ursson. Ýmsir nemendur hlutu
bókaverðlaun frá skólanum fyrir
nám og starf í þágu skólans, auk
þess sem Dansk-íslenzka félagið
í Rvk, Stærðfræðafélag Islands
í Rvk, Íslenzk-ameríska félagið
á Akureyri og franska og þýzka
sendiráðið gáfu bókaverðlaun.
Var þeim öllum úthlutað við
skólaslit.
Skólameishari gat þess, að
Skólanum ' hefðu borizt ýmsar
gjafir og væri þeirra mest 50 þús.
kr. frá Rafveitu Akureyrar í
Minningarsjóð Stefáns Stefáns-
sonar skólameistara, en Stefén
var einn af frumkvöðlum þess, að
Glerá var virkjuð, og formað-
ur í undirbúningsnefnd þeirra
framkvæmda.
Þá ræddi skólameistari hús-
stuðning, áhuga og góðvild við
skólann og einnig fjármálaráð-
herra Magnúsi Jónssyni fyrir
skilning og góðvild, svo og fjár-
veitingarvaldi Alþingis.
Þá lét skólameistari þess getið,
að menntamálaráðherra hefði
leyft, að gerð yrði tilraun með
kennslu í náttúrufræðideild í
skólanum á komandi vetri, og
kvaðst hann binda miklar vonir
við þá nýbreytni.
Hófst nú brautskráning stú-
denta og afhending verðlaiuna,
en að þvi búnu tók til máls full-
trúi 25 ára stúdenta, sr. Bjami
Sigurðsson á Mosfelli, flutti skól
anum kveðjur og þakkir og af-
henti gjöf frá bekkjarsystkinun-
um. Síðan kom fram fulltrúi 10
ára stúdenta, sr. Heimir Steins-
son, og bar einnig fram gjafir,
þakkir og góðar óskir.
Loks ávarpaði settur skóla-
meistari nýstúdenta. Hann sam-
fagnaði þeim vegna unnins sigurs
á ertfiðri námisþraut, en kvað
þessa fyrstu vígslu aðeiins opna
nýtt verksvið og nýtt markmið,
það að verða þjóð sinni til heilla
og nytja. Ef það mark væri ekki
Dúxarnir Guðmundur Pétursson og Margrét Skúladóttir ásamt
inspector scholae, Steingrími Blöndal.
sett, væri tii Mtiilis barizt.
Hann kvað hin miklu umbrot
og öru þróun raunvísinda sam-
tíðar vorrar hafa skapað ný
menningarleg lífsviðhorf, nýjan
þjóðfélagsheim. Þannig voru orð-
in til tvö menningairviðhorf, sem
kalla mætti raunvísindahorfið
og hugvísindahorfið. MiUi þess-
ara tveggja menninganstefna
hefði skapazt óheUlavænlegt
djúp, sem sífellt breikkaði. Hvor
heimurinn um sig talar tungu-
máli, sem hinum er torskilið,
slikt ylli úlfúð og andúð, jafn-
vel fyrirlitningu. Þetta væri
hugsandi mönnum mikið áhyggju
efni, því að í raun réttri væri
svo, að hvorug stefnan gæti án
hinnar verið, ef vel ætti að fara.
Því væri það hlutverk mennta-
manna framtíðarinnar að brúa
þetta djúp og koma á sættum og
skUningi öllum til blessunár.
Síðan mælti skólameistari:
„Verið minnugir þess, að aldrei
fyrr í sögu þjóðarinnar hefir
jafnmikið verið gert og nú fyrir
skólaæskuna, allt frá bamaskóla
til háskóla. En því meira, sem
fyrir yður er gert, því meiri
kröfur á þjóð yðar á hendur
yður. Hún krefst þess, að þér
hlaupið ekki undan merkjum
hennar og látið ginnast af ljóma
gullsins í fjarlægum löndum. Og
minnizt þess, þegar annarleg öfl
toga í yður brott frá ættjörð
yðar, „að rótarslitinn visnar vís-
ir“ og fáir eru þeir, sem fóma
ættlandi sínu, að þeir hafi ekki
um leið höggvið á helgasta þráð
lífShamingju sinnar. Yðar hlut-
skipti er að standa og starfa á
vettvangi íslenzkrar þjóðar, vera
henskarar íslenzkrar menningar
og framfara.“
„Hafið hugfast, að velferð
sjálfra yðar og styrkur þjóðfé-
lags vors er öllu fremur fólg-
inn í sterkri siðferðiskennd.“
„Að lokum vil ég bera fram
þá ósk, að þegar þér hljótið
síðasta dóminn við lokaprófið,
þá hljóði hann eins, um hvern
og einn, að þar sé góðs manns
getið þá hefir líf yðar verið yður
sjálfum og umhverfinu ávinn-
ingur.
Farið svo heil. Guð og gæfan
fylgi yður á öllum yðar leið-
Danskar vindsængur
J árs ábyrgð
Nóatúni \Jy
Ferðavörudeild.
Hestamamiafélagið Fákur
Þeir félagsmenn sem 'ætla á vegum félagsins á
hestum á fjórðungsmótið á Hellu í sumar mæti á
fundi í Félagsheimilinu fimmtudaginn 22. júní kl.
2.30. — Áríðandi að allir mæti.
Athugið, munið Jónsmessuferð félagsins laugar-
daginn 24. júní. — Lagt af stað frá Hafravatnsrétt,
kl. 6 síðdegis.
STJÓRNIN.