Morgunblaðið - 01.11.1967, Blaðsíða 1
28 SÍÐUR
54. árg. 248. tbl. MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1967 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Wilson vill
fækka lávörðum
— úr rúmlega 1000
London, 31 október, AP.
NTB.
ELÍSABET drottning setti í dag
brezka þingið á sameiginlegum
fundi lávarðardeildarinnar og
neðri málstofiunar og flutti þar
m.a; þingheimi þann boðskap
—
IUartin Luther
King í fangelsi
Birmingb.am, Al. 31. okt.
BLÖKKUMANNALEIÐTOG-
INN og Nóbelsverðlaunahaf-
inn Dr. Martin Luther King
og þrír nánustu samstarfs-
menn hans voru í gærdag
teknir höndum á flugvellinum
i Birmingham og ftuttir beint
í fangelsið í nágrannabænum
Bessemer.
King og fylgdarlið hans
kom flugleiðis frá aðalstöðv-
um samtaka þeirra í Atlanta
í Georgíuríki, til þess að af-
plána dóm er kveðinn hafði
Framhald á bls. 27
« 300
V erkamannaflokksstjórnarinnar
að hún hygðist innan skamms
leggja fram lagafrumvarp er fæli
í sér gagngera breytingu á starfs
tilhögun lávarðardeildarinnar og
töluverða skerðingu á starfs-
sviði hennar og völdum, með
það fyrir augum að lávarða-
deildin geti í framtiðinni þróazt
innan ramma nútíma þingræðis
eins og sagði í ræðu drottningar.
Þá sagði drottning að stjórn
Wilsons myndi bjóða íhalds-
flokknum og frjálslyndum að
skipa fulltrúa í nefnd, sem ræða
myndi nánar tilhögun skipulags-
breytinganna.
Haft var eftir ótilgreindum
heimildarmönnum að Verka-
mannaflokkstjórnin væri stað-
ráðin í að lögfesta þessar breyt-
ingartillögur þótt Þ»r kynnu að
mæta andstöðu hinna stjórnmála
flokkanna, og er gert ráð fyrir
að frumvarpið verði að lögum
um mitt næsta ár.
Það er helzt talið vaka fyrir
Wilson og stjórn hans með frum-
varpi þessu að skjóta loku fyrir
Framhald á bls. 27
Indónesía og Kína
— slíta stjórnmálasambandi
Djakarta, 31. október, — NTB
FYRRVERANBI starfslið sendi-
ráðs Indónesíu í Peking hélt í
dag af stað heimleiðis með kín-
verslkri þotu af Ilyushin-gerð,
sem átti svo að taka í Djakarta
þá starfsmenn sendiráðs Kína i
borginni sem enn eru þar eftir
og flytja heim til Peking. Er þá
formlega slitið stjómmálasam-
bandi Kína og Indónesíu, sem
nú hafa um alllangt skeið eldað
saman grátt silfur.
Þessi óvenjulegu skipti á er-
leixdum sendimönnum eru sögð
hafa komizt í kring fyrir tilstilli
Rúmena og voru hvorir tveggja
fegnir, sendiráðsmennirnir ind-
ónesisku, sem beðið höfðu brott
fararleyfis frá Peking síðan í
ágúst sl. og Kínyerjarnir við
sendiráð Kína í Djakarta sem
margir hverjir báru enn merki
harðhentrar meðferðar indónes-
iska stúdenta er réðust að sendi
ráðinu fyrir mánuði. Ekki kom
til neinna átaka á flugvellinum
í Djakarta í dag, enda mann-
skipti þessi látin fara fram
með stökustu ieynd til þess ein-
mitt að fyrirbyggja uppþot.
8-Vietnam:
Fréttin um það að sovézkum vísindamönnum hafi tekizt að tengja tvö ómönnuð geimför úti í
himingeimnum hefur vakið heimsathygli. Mynd þessi var tekin úr Kosmos 186 og sýnir hvar
geimförin tvö, Kosmos 186 og Kosmos 188, nálgast hvort annað óðfluga. — Nú er Kosmos 186
lentur mjúkri lendingu á jörðunni, en Kosmos 188 er áfram úti í geimnum og mun eiga að
stunda þar frekari rannsóknir.
Kosmos-186 lenti heilu og höldnu
Nýr stórsigur fyrir sovézk geimvísindi
— segir í Pravda
Moskvu, 31. október.
NTB-AP.
KOSMOS-186, annað hinna
tveggja ómönnuðu geimfara,
sem í gær voru tengd saman og
siðan skilin að, lenti í dag mjúkri
lendingu á fyrirfram ákveðnum
stað í Sovétríkjunum. — Skýrði
TASS-fréttastofan frá þessu í
dag.
Með því að beita mjúkri lend-
ingu til þess að ljúka þessari
sögulegu geimferð virtist vera
staðfest fyrra hugboð manna um,
að tengingin hafi verið æfing
fyrir mannaða geimferð og smíði
stórrar geimferðastöðvar, sem
snúast eigi umhverfis jörðu.
í tilkynningu TASS-fréttastof-
unnar segir, að „öll tæki um
borð í Kosmos-186 hafi reynzt
mjög örugg við lausn verkefna,
sem séu algjörlega ný fyrir geim
vísindamönnum, þ.e.a.s. á öllum
stigum þess að leita að, nálgast,
komast að og tengjast Kosmos-
188 jafnt sem við aðskilnað geim
faranna síðar og við förina og
lendinguna síðan á jörðinni.
Aðalefni Moskvublaðanna
Dagblöðin í Moskvu skrifuðu
meira um fréttina um tengingu
geimfaranna en nokkurt annað
efni í dag. Þannig birti Pravda
fréttina með sjö dálka rauðri
fyrirsögn á forsíðu og segir þar,
að með þessari tilraun hafi unn-
izt nýr sigur á heimsmælikvarða
rétt á undan hinum mikla há-
tíðardegi 7. nóv. nk.
Leonid Sedov, varaforseti al-
þjóðasambands geimvísinda-
manna, segir í viðtali við
Pravda, að tengingin sé „afrek“,
nýr stórsigur fyrir hin sovézku
geimvísindi. Lagði Sedov á-
herzlu á, að tengingin hefði
krafizt einstakrar nákvæmni á
því augnabliki, sem geimförun-
um hefði verið skotið á loft, en
einnig við mælingar á löngum
fjarlægðum og hraða og mjög
þróaðra aðferða við að stjórna
geimförunum. Hann sagði, að
tilraunin opnaði nýja möguleika
á að koma upp geimstöðvum um-
hverfis jörðu og koma upp til-
raunastöðvum þar, þaðan sem
unnt yrði að fara í frekari leið-
angra til annarra reikistjarna.
Hann bætti því við, að tilraunin
hefði það í för með sér, að nú
yrði unnt að senda hjálp til
Framhald á bls. 27
Nguyen Van Thieu tekur
viö forsetaembættinu
Vill taka upp beinar samningaviðrœður við N-Vietnamstjórn
Hermdarverkamenn vörpuðu sprengjum
að forsetahöllinni, en engan sakaði
Saigon, 31. okt. NTB, AP.
NGUYEN Van Thieu, hers-
höfðingi var í dag settur inn
í embætti forseta Suður-Viet
nam við hátíðlega athöfn í
miðborg Saigon. Miklar var-
úðarráðstafanir höfðu verið
gerðar, því búizt var við því,
að hermdarverkamenn Viet
Cong myndu ekki láta athöfn
ina afskiptalausa.
Ekkert bar þó til tíðinda
við athöfnina í miðborginni
og sór hinn nýkjörni forseti
embætiseið sin frammi fyrir
þúsundum landa sinna og
fjölda erlendra gesta frá
ýmsum löndum með Hum-
bert Humphrey, varaforseta
Bandaríkjanna, í broddi fylk
ingar.
Eftir athöfninri var gestum
boðið til veizlu í forsetahöllinni
og þá létu hermdarverkamenn
til skarar skríða, rétt í þann
mund er setjast átti að borðum.
Gerðu þeir sprengjuvörpuárás
á forsetahöilma, en hæfðu ek'ki
og hlauzt af mmna tjón en ætla
hefði mátt. Gestirnir létu flest-
ir þessa trutluu lönd og leið og
gerðu margir þeirra sér ekki
Framhald á bls. 27
Grát sig í svefn þegar
Kennedy var myrtur
— vaknaði ekki fyrr en í gær
Buenos Aires, 31. okt.
NTB.
ÁTJÁN ára gömul brasilísk
stúlka, Maria Elena Tello,
vaknaði í dag á sjúkrahúsi í
Buenos Aires eftir þriggja
ára, ellefu mánaða og átta
daga svefn.
Stúlkan grét sig í svefn 22.
nóvember 1963 þegar hún
heyrði það í útvarpinu að
John F. Kennedy, Bandaríkja-
forseti, hefði verið myrtur, og
hefur ekki lokið upp augun-
um síðan. utan einu sinni, á
föstudaginn langa 1964 og
hvíslaði þá „mamma“.
Stúlkan var í fyrri viku
flutt flugleiðis frá San Juan
fylki 1200 kilómetra leið til
Buenos Aires, þar sem lækn-
ar tóku á móti henni. Tals-
maður sjúkrahússins, sem hún
dvelst nú á, telur allar horf-
ur á að hún nái fullum bata.