Morgunblaðið - 01.11.1967, Blaðsíða 2
2
MORG-UNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. NÓV. 1967.
Erhard
*
í Israel
Nokkrir fundarmanna á aðalfundi Dómarafélags Islands.
Sitjandi frá vinstri: Björn Fr. Bjömsson, sýslumaður
Rangæinga; Jóhann Gunnar Ölafsson, sýslumaður Isfirð-
inga; Torfi Hjartarson, tollstjóri; Jón Isberg, sýslumaður
Húnvetninga, Hákon Guðmundsson, yfirborgardómari;
Þórður Bjömsson, yfirsakadómari; Halldór Þorbjörnsson,
sakadómari; Ásberg Sigurðsson, sýslumaður Barðstrend-
inga og Páll Hallgrímsson, sýsiumaður Amesinga.
Standandi frá vinstri: Friðjón Skarphéðinsson, yfirborg-
arfógeti; Hafsteinn Hafsteinsson, lögreglustjóri Bolungar-
vík; Ásgeir Pétursson, sýslumaður Mýramanna og Borg-
firðinga; Sigurður Guðjónsson, bæjarfógeti Olafsfirðinga;
Erlendur Bjömsson, sýslumaður Norðmýlinga; Bjami K.
Bjarnason, borgardómari; Valgarður Kristjánsson, borgar-
dómari, Ólafur A. Pálsson, borgarfógeti; Jónas Thoroddsen,
bæjarfógeti Akurnesinga, Sigurgeir Jónsson, bæjarfógeti
Kópavogsbúa; Ölafur Þorláksson, sakadómari, Magnús
Thoroddsen, borgardómari, Emil Agústsson, borgardómari,
Einar Oddsson, sýslumaður Skaftfellinga og Björn Ingvars-
son, lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. Magn.)
Aðalfundur Dóm-
arafélags Islands
AÐALFUNDUR Dómarafélags
fslands var haldinn í Reykjavík
dagana 25.—27. október s. 1. Auk
venjulegra aðalfundarstarfa, þar
sem rædd voru ýmis félagsmál
og málefni, er varða dómara-
stéttina og dómstólaskipan lands
ins, kom á fundinn framkvæmda
nefnd hægri umferðar undir for-
ystu formanns hennar, Valgarðs
Briems hdl. og gerði þar grein
fyrir þeim ráðstöfunum, sem fyr-
irhugaðar eru vegna væntan-
legrar hægri umferðar, er upp
verður tekin á næsta ári.
Þá fluttu einnig erindi á aðal-
fundinum ráðuneytisstjórarnir
Hjálmar Vilhjálmsson og Jón
Sigui'ðsson og ræddu við fundar-
men um ýmis málefni, er und-
ir ráðuneyti þeirra heyra. Sverr-
ir Þorbjörnsson forstjóri Trygg-
ingastofnunar ríkisins ræddi um
ýmis mál, er hana varða, en
bæjarfógetar og sýslumenn úti
um land eru umboðsmenn trygg-
ingastofnunarinnar.
Formaður félagsins var end-
urkjörinn Hákon Guðmundsson
yfirborgardómari, en aðrir í
stjóm eru Benedikt Sigurjónsson
hæstaréttardómari, Bjarni K.
Bjamason borgardómari, Jón Is-
berg sýslumaður og Torfi Hjart-
arson tollstjóri.
Dómarafélag íslands starfar í
tveim deildum, þ. e. Dómarafé-
lag Keykjavíkur og Sýslumanna
félagið. Bjarni K. Bjarnason
borgardómari tók nú við for-
mennsku í Dómarafélagi Reykja-
víkur af Þórði Björnssyni yfir-
sakadómara, er baðst undan end-
urkjöri, en formaður Sýslu-
mannafélagsins er Jón ísberg
sýslumaður á Blönduósi.
Jerúsalem, 31. okt., NTB.
LUDWIG Erhard, fyrrum kanzl-
ari Vestur-Þýzkalands, kom í
dag til ísraels í ellefu daga heim
sókn ásamt konu sinni.
Þau komu í morgun að graf-
hýsi því, sem reist hefur verið
í minningarskyni um þær sex
milljónir Gyðinga, sem ráðið var
bana í Þýzkalandi á dögum Hitl-
ers og voru mjög hrærð bæði.
Seinna heimsótti Erhard ráð-
húsið í Jerúsalem og ræddi við
Teddy Kollek, borgarstjóra. Er
hann kom þangað var þar fyrir
fjöldi manna og fagnaði honum
innilega, minnugur þess, að það
var Erhard sem fyrir tveimur
árum, er hann var kanzlari í V-
Þýzkalandi, ékvað að taka upp
stjórnmálasamband við ísrael,
þrátt fyrir mjög harða gagnrýni
Arabalandanna á því tiltæki.
Flugfélagið staðsetur
DC-3 flugvél á Akureyrí
50 innlandsflugferðir farnar frá Reykjavík vikulega
Ólafur ■ Skálavík látinn
ÓLAFUR Ólafsson, fyrrum bóndi
1 Skálavík við ísafjarðardjúp
lézt í Landspítalanum s.l. mfánu-
dag eftir skamma sjúkdómslegu.
Hann var fæddur 13. júní 1879
í Langadal í Nauteyrarhreppi,
var hann því 88 ára að aldri er
hann Iézt. Voru foreldrar hans
Ólafur Jónsson bóndi þar og
kona hans Salvör Kristjánsdótt-
ir. Á yngri árum stundaði Ólaf-
ur Ólafsson jöfnum höndum sjó-
mennskiu og landbúnaðarstörf.
En árið 1912 hóf hann búskap í
Skálavík í Mjóafirði og bjó þar
síðan myndarbúskap í rúm 40
ár. Mótaðist allur búskapur
hans af hinni mestu snyrti-
mennsku, dugnaði og fyrir-
hyggju. Hann gegndi mörgum
trúnaðarstöðum fyrir Reykja-
fjarðarhrepp og hérað sitt. Var
hann heiðursfélagi búnaðarfélags
sveitar sinnar.
Ólafur í Skálavík var í röð
fremstu og merkustu bænda við
ísafjarðardj úp.
NOKKRAR breytingar verða á
tilhögun í innan- og utanlands-
flugi hjá Flugfélagi íslands í
vetur, og meðal annars verður
staðsett Douglas DC-3 flugvél á
Akureyri, sem á að halda uppi
flugferðum til staða á Norðaust-
urlandi og til Egilsstaða í sam-
bandi við flugferðir til Akur-
eyrar. Fimmtíu innanlandsferðir
verða farnar í viku hverri og
þar af 47 með Fokker Friend-
ship skrúfuþotum. Fréttatilkynn
ing Flugfélags íslands um vetr-
aráætlunina fer hér á eftir:
Með tilkomu vetraráætlunar-
innar, sem tók gildi 1. nóvember,
breytast brottfarar- og komu-
tímar nokkuð og í fyrsta sinn í
sögu Flugfélags fslands verður
nú millilandaflug félagsins nær
eingöngu flogið með þotu, það
er að segja til Glasgow, Lund-
úna, Ósló og Kaupmannahafnar.
Að sjálfsögðu munu þó flugferð-
ir um Færeyjar til Bergen og
Kaupmannahafnar áfram flogn-
ar með Fokker Frienship skrúfu-
þotu. í innanlandsflugi verður sú
nýbreytni tekin upp að flugvél
verður staðsett á Akureyri og
heldur uppi flugferðum til staða
á Norðausturlandi og til Egils-
staða í sambandi við flugferðir
til Akureyrar.
MILLILANDAFLUG
Millilandaáætlun félagsins á
vetri komandi er í höfuðatriðum
þannig: Til Kaupmannahafnar
verður þotuflug á mánudögum,
miðvikudögum, fimmtudögum,
laugardögum og sunnudögum og
ennfremur verða ferðir með
Fokker Friendship skrúfuþotum
á þriðjudögum og laugardögum.
Til Glasgow verða ferðir fjóra
daga í viku, á mánudögum, mið-
vikudögum, fimmtudögum og
sunnudögum. Til London verður
flogið á þriðjudögum og föstu-
dögum og til Ósló á laugardög-
um. Til Færeyja verða ferðir á
þriðjudögum og laugardögum og
til Bergen á þriðjudögum. í
þotuflugi til Kaupmannahafnar
og Glasgow verður brottfarar-
tíminn 9:30, til Lundúna og Ósló
kl. 10:00 og flugvélar til Fær.
eyja, Bergen og Kaupmanna-
hafnar leggja af stað kl. 11:30.
Svo sem fram hefur komið í
fréttum er nú þotan Gullfaxi
nýtt til vöruflutninga að hluta,
og þar sem nýjustu tækni við
hleðslu og afhleðslu er beitt,
hafa vöruflutningarnir gengið
mjög vel þótt um allmikið magn
hafi verið að ræða.
INNANLAND SFLUG
í fyrsta sinn í sögu innanlands
flugs Flugfélags fslands er nú
mestu leyti flogin með skrúfu-
þotum .Af 50 ferðum í viku frá
Reykjavík eru 47 flognar með
Fokker Friendship og aðeins
þrjár með DC-3.
Það sem háð hefur innanlands
flugi á vetrum hin síðari ár er,
hve margir flugvellir á landinu
eru án flugbrautarljósa. Flug-
málastjórnin hefur sýnt mikinn
skilning á þessu máli og standa
vonir til að í náinni framtíð
verði fleiri flugvellir búnir flug-
brautarljósum, þannig að þang-
að sé unnt að fljúga í dimmu.
f vetraráætlun innanlands-
flugs sem nú tekur gildi, er
gert ráð fyrir flugferðum sem
hér segir: Til Akureyrar verður
flogið alla daga, tvær ferðir á
virkum dögum og ein ferð á
sunnudögum. Til Vestmanna-
eyja verða sömuleiðis tvær ferð-
Framhald á bls. 27
Aka syðri leiðina
til Hornafjarðar
Hornafirði, 31. október.
HEIÐAR Pétursson of Gisli
Sigurbergisson, sem stundað
hafa vöruflutninga með bifreið-
um frá Reykjavík tii Horna-
fjarðar hyggjast nú halda þeim
áfram sunnaniands í vetur og
er þé ætlunin að flytja vörur
fná Reykjavík til Hornafjarðar,
Djúpavogs og Breiðdalsvíkur.
Komu þeir úr fyrstu ferðinni í
gær og tókst hún ágæflega.
Skeiðará var hnédjúp, önnur
vötn vatnslítil. Þessi fyrsta
ferð tók um 15 klukkustundir.
Er hér um mikmn mismun að
ræða hjá því að þurfa að keyra
norður um land. — Gunnar.
Yfir 50 millj. gesta
á Heimssýningunni
Norðurlandaskálinn hlaut
mjög góða aðsókn
IIEIMSSÝNINGUNNI Expo 67
lauk í Montreal í Kanada sl.
sunnudag. Yfir 50 milljónir gesta
heimsóttu sýninguna þá sex
mánuði, sem hún stóð yfir, þar af
komu um 7 milljónir í Norður-
lanðaskálann. íslenzka sýningar-
deildin verður nú flutt til Denver
í Colorado, en þar verður haldin
Norðurlandakynning á næsta
hausti.
Heimssýningunni var slitið á
sunnudagsmorgun með hátíðlegri
athöfn á Þjóðartorginu. Hleypt
var af 67 fallbyssuskotum og um
leið voru þjóðfánarnir dregnir
niður. Öllum framkvæmdastjór-
um hinna ýmsu sýningardeilda
var afhenur gullpeningur og tó’k
Elín Pálmadóttir við peningnium
fyrir hönd Gunnars J. Friðriks-
sonar, sem var framkvæmda-
stjóri ísl. sýningardeildarinnar.
Michener, landsstjóri Kanada,
afhenti gullpeningana. Viðstadd-
ir voru allir æðstu menn
Kanada,
Yfir 50 milljón gestir komu á
Heimssýninguna og er það 15
milljónum fleira, en búizt var
við. Norðurlandaskálinn fékk
aðsókn á borð við það, sem bezt
gerðizt, en alls komu í skálann
rúmlega 7 millj. gestir. Yfir 5000
manns borðuðu í aðalveitinga-
húsi skáíans, auk þess sem þús-
undir gesta fengu sér hressingu
í kaffiteríuni og á barnum, Mikil
ánægja ríkir meðal fulltrúa
Norðurlandanna yfir þeim mikla
árangri, sem náðzt hefur til
kynningar á löndunum fimm.
fslenzka sýningardeildin, að
undanskildum listmununum,
verður flutt til Denvex í Colo-
radofylki, þar sem hún verður
notuð sem bakgrunnur að N^vrð-
urlandakynningu, sem haldin
verður í tveim stærstu vöruhús-
um borgarinnar á næsta hausti.
Alls unnu níu íslendingar á
Heimssýningunni allan tímann,
sem hún stóð yfir.