Morgunblaðið - 01.11.1967, Page 4

Morgunblaðið - 01.11.1967, Page 4
4 MOKGTTN'BLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. NÓV. 1967. ÍVIAQIMÚSAR SKIPHOLTl21 SÍMAR 21190 eftir lokun stmi 40381 SIM' 1-44-44 mfíiFim Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt Ieigugjald Sími 14970 Eftir lokun 14970 eða 81748 Sigurður Jónsson BÍLALEIG4N - VAKUR - Sundaugaveg 12 - Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. f , *BUA If/GAM L5&/L(V7/3S)' RAUÐARÁRSTtG 31 SlMI 22022 Rúskinnshreinsun Hreinsum rúskinnskápur, jakka og vesti. Sérstök meðhöndlun. Efnalaugin Björg, Háaleitisbr. 58—65, sími 31380, útibú Barmahlíð 6, sími 23337. AU-ÐVITAÐ ALLTAF ★ Ráð gegn gang- brautarslysum Róbert Valdimarsson skrif- ar langt bréf um það, hvernig koma megi 1 veg fyrir hin svo- nefndu gangbrautarslys. Segir hann ónauðsynlegt að láta óþol inmóðum bílstjórum haldast þáð uppi að óvirða rétt gang- andi vegfarenda við gangbraut- ir. Hins vegar þýði ekki að venja þá á að stanza eða hægja á sér við gangbrautir með því að lögreglunjósnarar fari í felu- leik við þá, heldur verði að grípa til raunhæfra ráðstaf- ana, sem neyði þá til þess að halda gangbrautarregluna í heiðri. Háðið sé aö leggja rör- pípu til hálfs niður í göturnar báðum megin við merktar gang brautir, svo að bílstjórar neyð- ist til þess að aka þar yfir með gát, vilji þeir ekki skemma farartæki sitt. „Hættan við gangbrautirnar leynist oftast í því, að kurteis bifreiðarstjóri nemur staðar til þess að hleypa fólki yfir merkta gangbraut á tvískiptri akbraut, og þá kemur annar bílstjóri, sem ekki nemur stað- ar, e. t. v. af því, að hann sér ekki hfð gangandi fólk fyr- ir fyrri bifreiðinni, fyrr en þá um seinan. Engin falin lögregla getur komið í veg fyrir slík slys, og kurteisi bílstjórinn kennir sér um slysið. Væru rör lögð í götuna, þyrftu báðir bíl- stjórarnir að hægja á sér eða nema staðar“. Einnig segist bréfritari oft hafa séð leiðinlega frekju og óbilgirni gangandi fólks við bifreiðarstjóra í Reykjavík, „eins og þegar fólk ryðst í hala- rófu yfir Austurstræti, beint á móti rauðu ljósi, þannig að bílstjórar neyðist til þess að nema staðar á miður heppileg- um stöðum og trufli með því alla umferð í Austurstræti og Bankastræti". Um góða bók og barnauppeldi í skólum Kona, sem nefnir sig „136“, skrifar: „Velvakandi sæll! Ég má til með að skrifa þér og vita, hvort þú hefur farið yfir bókina „Mannlíf í deiglu“ eftir Hannes J. Magnússon? Ég vil eindregið, að allar mömmur, pabbar og kennarar lesi þessa bók og þá sérstaklega þær mömmur, sem eru að byrja að setja bömin sín í skóla. Þær hljóta að líta öðrum augum á allt í sambandi við barnið og skólagöngu yfirleitt. Annars er ég vist ein af þeim fáu, sem held því fram, að foreldrar og kennarar eigi að tala saman um barnfð og nám- ið. Eg hef gert það að svo miklu leyti sem mér hefur þótt ástæða til, en sé þó eftir að hafa ekki gert meira að þvL En svo er annað, sem mig langar til að segja þér, og það er með leikfimina. Ég vil, að henni verði breytt að sumu leyti. Að bömunum verði kennt að bjóða góðan daginn og heilsa fallega. Drengjum og stúlkum kennt áð snyrta sig, já, og jafnvel þeim síðast töldu kennt að nota snyrtivörur, (því að það eru ósköp að sjá þessi litlu skinn í 12 ára bekk og 13 ára í gagn- fræðaskóla svona útleikin). Dans komi í einn tíma í viku. Kenna þeim að ganga og klæða sig eftir veðrinu. Tóbaksauglýsingar Hvernig er með tóbaks- auglýsingar, er ekki hægt að gera eitthvað í því að banna þetta algjörlega, það er víst nóg samt? Svo ef fyrirtæki er opnað eða veizla haldin, þá er það vínglasið! Nei, fólk ætti að sjá sóma sinn í því að hætta myndatökum af svoleiðis, eða ljósmyndarar að neita að taka myndir af því. Sonur minn 16 ára segir, að þessi kvikmynd gegn tóbaksnotkun sé sýnd í skólanum bara einu sinni á vetri; það ætti að vera lág- mark að sýna hana einu sinni í mánuði allan skólatímann. — 136“. jr Örlítill þanki frá einum Bahai Undir þessari fyrirsögn sendir Herdís Ásgeirsdóttir, Bergstaðastræti 54, Velvakanda bréf. Skv. ósk er það birt óstytt og óbreytt frá handriti (athugið það, prentarar góðir og prófarkalesarar). „Ef þið hafið trúað á Krist, þá munuð þið trúa mér“. Bahá-u-lláh Ekki alls fyrir löngu las ég í Morgunblaðinu um fyrirbær- ið, sem kallast „Beatnics" í Ameriku (og sem stingur upp kollinum víðar í heiminum). Þetta eru ef svo má segja „lög- leysingjar", landeyður. Þeir hópast saman hafa samfélag, en það samfélag er ekki einu sinni á þroskastigi dýra merk- urinnar. Þeir vinna ekki, satt er það (áð sögn) að þeir stela ekki og fremja ekki meiri hátt- ar afbrot, en þeir lifa í algjörri deyfð og sinnuleysi, í eiturlyfj- inn, í raun og veru í algerri uppgjöf og neitun á öllu því er mannlegar verur frá örófi lífsins hafa smám saman skap- að með svo miklum harmkvæl- um, því augu þeirra eru oftast svo fastsamanklemmd, að engl- arnir geta ekki látið þá sjá sig eða gefið þeim hjálpina og hugmyndirnar til þroska, nema í svo örsmáum skömmtum. Þessir „Beatnics“ eru fædd- ir og aldir upp í Kristnum löndum. Bláköld staðreynd, sem alls engan veginn er hægt að fara í kring um, nei, ekki með neinni mælskulist eða rök- hyggju er hægt að komast fram hjá þessarri staðreynd. Og ekki eru þeir heldur allir fæddir og uppaldir í rennusteininum. Nei, þeir hafa margir hlustað á Guðs Orð, þeir hafa verfð skírðir og fermdir. En andinn, Kristsandinn var fjötraður, hann hafði ef til vill verið svo vandlega pakkaður inn að þeir fundu hann ekki, sáu hann ekki. Ég hugsaði, hvað getur bjarg- að þeim? Jú, satt er það marg- ar ofsatrúar stefnur gætu ef til vill náð til þeirra og þeir orðið það sem almennt er kall- að „áð vera frelsaður", og þann ig gætu þessar dauðu sálir feng ið líf á ný, þeir orðið nýtir borgarar. En ekki allir þeirra myndu frelsast svona. Já þar kom kjami málsins. Þetta var ekki einhlít, alger lækning. Hvað þá? Og sál mín svaraði strax. Ef þeir yrðu Baháis, þá myndi hver einasti þeirra lækn- ast og þetta vandamál heims- ins vera úr sögunni. Bahá-u- lláh á svar við öllum vanda- málum nútímans. Þeir myndu fyrst og fremst vakna til lífs- ins, með anda Krists í hjörtum sínum, Hans andi, Hans lög, Har.s kærleikur umfram allt annað myndi ríkja í hjörtum þeirra, að svo miklu magni sem hver og einn þeirra gæti tekið á móti. Og svo í viðbót, við að taka í hönd Hans og láta Hann leiða sig áfram og upp á vi’ð á þroskaleiðinni, þá kynnir Hann okkur fyrir Bróð- ur sínum, Honum, sem hann sagði að myndi koma á eftir sér. Bahá-u-lláh kallar mann- kynið Hann, „Dýrð Guðs“. Fá ekki Himnesku Sendiboðarnir alltaf öll fegurstu nöfnin, sem við mannlegar verur getum hugsað, þrátt fyrir þá hræði- legu, hræðilegu staðreynd að við höfum drepið þá alla eða misþyrmt þeim hryllilega. Bahá-u-lláh var fangi í mann- heimum allt sitt líf. Borinn (eins og Buddha) og barnfædd- ur til auðs og valda, af einni tignustu ætt Persíu, frá hérað- inn Nur, sem þýðir ljós. Allt þetta var einskis virði Honum, sem sendur var frá Himnesku dýrðarheimunum, til að endur- nýja ljósið, sem við vorum að láta deyja út og samtímis að færa okkur ennþá meira ljós og undirbúa okkur fyrir (eftir ef til vill 1000 — eða þúsundir ára) enn annan og stærri Ljós- bera. Hvað gat þvílíkur Sendi- boði verið annað í heimi vor- um en fangi? Hvað var Meist- arinn frá Galileu? Óþekkti tré- smfðurinn, sem lifði fyrir 2000 árum og þú heyrir talað um og siður er að trúa, þó rök- hyggjumennirnir segi, og hafi alveg rétt fyrir sér að það sé þó skrítið að segja að óþekkt- ur handverksmaður í skúma- skoti Austurlanda geti hafa ver ið Guðlegur Sendiboði. Og hvernig stimplaði heimurinn Hann á Hans dögum? Lægstur af öllum lágum, úrkast mann- kynsins. Svikinn af öllum þeim sem sízt skyldi. Og boðorðið nýja, sem Hann flutti. „Elskið óvíni yðar, gerið þeim gott sem hata yður“, hvar er það í heim- inum í dag? Á Hann að gleym- ast alveg? Ennþá muna ótölu- lega margar milljónir eftir Buddha t. d. og Hans boðskap um áttfalda veginn. Vill Guð að verk Sendiboð- anna séu unnin fyrir gíg? Nei, Hann elskar Þá og okkur of heitt til þess, svo heitt að mannlegur hugur getur það ei numið. Þessvegna eru ljósin endurnýjuð sífellt. Vilt þú vera alltaf í sama grugguga pollin- um, þegar úthaf Eilífðar Guðs stendur þér opið til siglingar? Skiljið það, að enginn máður á jörðinni, hvort sem hann er t. d. Hindúi, Múhameðstrúar, eða trúir á stokka og steina, getur orðið Bahái nema hann trúi á Krist og alla Sendiboð- ana á undan honum. Guðs Syn- ir eru allir jafnir. Sanníeikur- inn er alltaf eins, en umgjörð- in verður að henda mannlegum kröfum eftir þrepunum í stig- anum stóra. Að Bahái sé sértrúarflokkur úr Múhameðstrú eru hleypi- dómar þeirra sem ekki vita sannleikann. Og boðorð Bahá- u-lláhs? Nýja bo’ðorðið. Kær- leikurinn var kominn, sverðið sem sundurtætti hið illa var komið. Nú kom sameiningin. Einfaldlega. og líka í öllum, öllum sínum margbreytileika, sameiningin. Sameiningin milli manna, milli þjóða, milli manna og Guðs, undirbúningur heims- ins fyrir hinn margumtalaða „Þúsundára frið“ og Höfðingj- ann, sem þá kemur. „Ef þið hafið trúað Móse og Spámönnunum, þá mynduð þið trúa Mér“. Kristur „Ef þið hafið trúað á Krist, þá mynduð þ?ð trúa Mér“. Bahá-u-lláh Reynið að hugsa um þann leyndardóm að hin sama guð- lega vera hefur birzt oss mönn- unum oft og borið margvísleg nöfn. Herdís Asgeirsdóttir, Bergstaðastræti 54.“ Kaupum hreinar léreftstuskur (stórar). fttttgmtfrliifrifr prentsmiðjan. Akureyri blaðburður Tvö laus hverfi á Suðurbrekkunni. Talið við afgreiðsluna. Vikublaðið ÍSLENDINGUR, Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.