Morgunblaðið - 01.11.1967, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. NÓV. 1967.
íslenzk stúlka doktor
frá Harvard Háskóla
Samtal við dr. Sigríði Valfells
HÉR hefur undanfarið dvalizt
Sigríður Valfells. Hún hefur
verið við nám í Bandaríkjunum
um tíma, og hélt aftur utan um
helgina. Hún leit inn á ritstjórn-
arskrifstofur Mbl. skömmu áður
en hún fór og spurðum við hana
þá um doktorsritgerð sem hún
hefur nýlega skrifað við Har-
vardháskóla, og ýmislegt fleira
bar á góma.
Jæja, Sigrí'ður, þér voruð nem-
andi við Menntaskólann í Reykja
vík og stúdent þaðan?
Já, ég var stúdent 1956. Var
þá dálítinn tíma að hugsa mig
um, hvað skyldi taka til bragðs,
en fór svo til Bandaríkjanna
1958.
Fór þá strax til Cambridge,
Massachussetts, og hóf nám við
Radcliffe College, sem er kvenna
deild Harvardháskóla, og lauk
þaðan BA prófi 1960 í málvís-
indum. Náminu var reyndar þrí-
skipt. Eftir BA prófið, fluttist
ég yfir í Harvard Graduate
School, og undirbjó mig fyrir
MA prófið, sem ég tók 1961. Að
doktorsritgerð minni hef ég svo
unnið síðan 1963, en það hefur
verið erfitt verk, þar sem við
þetta hefur þurft töluverða
skipulagningu og rannsóknir, og
svo hef ég aftur þurft áð skera
niður og lagfæra heilmikið.
Þessi ritgerð fjailar auðvitað
um málvísindi, Sigríður, en um
hvað þá helzt, er að þeim lýtur?
Hún er um íslenzka málfræði,
hljóðskipti og hljóðvörp og ýmis
abstrakt vandamál, er að þeim
lúta.
Hvernig stóð nú á því, að þér
völduð málvísindin sem a'ðalfag
og sérgrein?
Ja, ég hef alltaf haft áhuga á
tungumálum, og svo voru þessi
vísindi nú alveg ný námsgrein,
og því lagði ég út á þessa braut.
Málvísindin skýra nefnilega út
fyrir okkur, hvernig málið verð-
ur til, en málfræði og hefðbund-
in málvísindi hafa áður lýst fyr-
ir okkur tungumálinu.
En af hverju varð Harvard-
háskóli fyrir valinu?
Ja, af því, að hann er frægur
og góður skóli. Ég er svo hepp-
in, að próf. Einar Haugen las yfir
doktorsritgerð mína, en annars
hefur aðalkennari minn verið
Jacobson, þýzk-rússneskur flótta
maður, sem fremstur er í heim-
inum í þessu fagi. Til að ljúka
náminu hef ég þurft að taka
próf í 16 námsgreinum.
BA próffð tók þrjú ár, MA
prófið eitt ár, og svo hefur mér
verið í sjálfsvald sett, hversu
lengi ég væri að Ijúka við rit-
gerðina, og fer það að sjálfsögðu
eftír hverjum og einum, hve
miklum tíma er kosið að verja í
slíkt, en þar sem þetta er fólg-
ið í rannsóknum, þá er það
auðséð, að þetta er geysimikil
vinna, og talsvert tímafrek.
Hvað tekur nú við, þegar þess-
um áfanga er ná'ð?
Sigríður \ alfells
Sumir spyrja mig nú fremur
þess, hvað ég geti eiginlega gert
við þessa menntun. Fyrirætlun
mín er að kenna. Ég ætla að
svo komnu máli að fást við það
í Bandaríkjunum, — hef þegar
fengið nokkur tilboð, en tek
ekki endanlega ákvörðun í mál-
inu, fyrr en ég kem vestur aftur
— þarf nefnilega að ráðfæra mig
fyrst við kennarann minn, hann
Jacobson, hann hefur þegar ráð-
ið mér heilt í ýmsu. Og svo er
þetta nú eiginlega dálítið lúxus-
kennd menntun, svo að bezt er
að athuga málið, áður en fleira
er að hafzt.
Það er skaði, að við skulum
ekki fá að njóta þessarar miklu
sérhæfingar yðar.
Já, en það er enn sem komið
er lítil eftirspum eftir kennur-
um í mínu fagi, amk. hér á landi,
og er ástandið áþekkt í Evrópu,
sem ennþá er rígbundin við
gamla kennslufyrirkomulagið,
utanbókarlærdóminn, og er ekki
sjáanleg breyting á neinu vænt-
anleg í náinni framtíð.
Er ekki námsfyrirkomulagið
eitthvað með ö'ðrum svip vestra?
Jú, mér virðist sem nemend-
unum þar sé miklu fyrr kennt
að vinna og hugsa sjálfstætt og
nota sínar góðu gáfur til þess,
er þær virðast ætlaðar, en ekki
sífelldrar upptuggu. Hér heima
virðist kunnáttan því lofsverð-
ari, sem hún er nær því að vera
orðrétt upp úr bókinni.
Sömuleiðis finnst mér námið
vera tekið alvarlegri tökum í
Bandaríkjunum. Þeir einbeita
nemendurnir sér algerlega að
vinnunni, en félagslífið er lát-
ið lúta í lægra haldi. Mér finnst
það vera synd að eyða t. d. sex
árum í laganám, eins og stund-
um er gert hérna heima í stað
þriggja ára, sem námið tekur
við Harvardháskóla. Nemend-
urnir eru þarna að eyða þrem
dýrmætum árum ævi sinnar til
einskis í stað þess að vera að
koma á fót fyrirtæki, eða ein-
hverri starfsgrein, er námið
gefur aðgang að og tilefni til.
Staðlað nám tekur ekki og á
ekki að taka nema takmarkaðan
tíma.
Allt öðru máli gegnir um rann
sóknarnámsgreinar. Ég held, a'ð
þetta væri vel þess virði, að það
væri tekið til athugunar. Við
lifum ekki nema einu sinni, og
tíminn er dýrmætur.
Sömuleiðis fannst mér stúd-
entarnir erlendis leggja hart að
sér, hvað húsnæði viðvék. Þarna
er erfitt að fá húsnæði og dýrt.
Og hvernig húsnæði er það
svo, sem nemendurnir búa í?
Ja, mér finnst nú sennilegt,
að mörgum okkar myndi ekki
þykja mikið til þess koma, af
því að vfð erum svo góðu vön.
Þarna mega þeir láta sér gott
þykja kjallaraherbergi í gömlum
húsum, þar sem þeir þurfa að
deila húsakynnum með rottum
og kakkalökkum.
Ég er ekki viss um, að margir
yrðu yfir sig hrifnir af slíku
hér á landi.
Fyrstu árin var ég sjálf á
stúdentagarði, en svo þegar ég
lauk BA prófinu, flutti ég út í
bæ. Þá var ég búin að eignast
mína kunningja og nú þurfti ég
bæði betra næði og stærra skrif-
borð; þessvegna betra eða stærra
húsnæði.
Er þetta ekki feykilega dýrt
nám.
Jú, fyrstu árin er það dýrast,
en síðan fellur skólagjald niður
og þá þarf aðeins að þorga bóka-
safnsgjald til skólans, nú og svo
þarf líka a'ð fleyta fram lífinu.
Er það ekki dýrt þarna?
Nei, ekki dýrara en hér, en
sem sagt ég dró nú fram lífið
sæmilega, og var ánægð með
mitc. Kenndi í frístundum mín-
um, sem sagt var fátækur stúd-
ent.
Já, hvað kennduð þér?
Ja, það er nú dálítið skritið,
ég kenndi ensku. Og það gekk
bara vel.
Þér hafið kannske verið í
Bandaríkjunum áður?
Já, faðir minn. Sveinn Valfells,
var við fulltrúastörf í Ameríku
á stríðsárunum, og við dvöldum
þar í nokkur ár. Mér er landi'ð
kært frá þeim tíma, og mér
finnst það alltaf vera mitt ann-
að föðurland. Satt að segja er
ég ekki viss um, að ég hefði
treyst mér í þetta nám þar unn-
ars.
Eruð þér nokkuð í giftingar-
hugleiðingum ennþá?
Nei, nei, Svo er ekki. Sannast
sagna er það full starf, og sama
er að segja um námið. Og það
er ekkí hægt, að sinna nenfa öðru
tveggja í einu.
En fáum við ekki senn að
njóta menntunar ýðar hér heima
■Jú, ég vona það. Ég er aldrei
alfarin og aldrei alkomin, enn-
þá. Að svo komnu máli kvaddi
þessi glæsilega íslenzka stúlka,
sem á ættjarðirnar tvær, og
hugði gott til þess að halda vest-
ur um haf um helgina. Vestur
um haf til hugðarefnanna.
M. T.
Laust starf
Samband sveitarfélaga í Austurlar.dskjördæmi
óskar að ráða sér framkvæmdastjóra frá næstu
áramótum, eða síðar.
Umsóknir um starfið, ásamt launakröfum og
upplýsingum um fyrri störf, sendist formanni sam-
bandsins, Sveini Jónssyni, Egilsstöðum, fyrir 1. des
1967.
STJÓRNIN.
BÍLAÁKLÆÐI - BÍLATEPPI
í CAMLA BÍLINN í NÝJA BÍLINN
JÓLIN NÁLCA5T -
PANTID TÍMANLECA
FLJÓT AFGREIÐSLA
ALTÍKABÚDIN
Hverfisgötu 64, sími 22677
TIL SÖLU
Stórglæsilegt
einbýlishús á förgum stað í
borginni. Tvær hæðir, 130
ferm. hvor hæð. Innbyggður
bílskúr. Næstum fullbyggt,
(vantar nokkuð af innrétt-
ingum). Skipti á minna ein
býlishúsi eða stórri sérhæð
koma til greina.
Sérhæð
150 ferm. nýleg og mjög
glæsileg efri hæð á einum
fegursta stað á Seltjarnar-
nesi. Allt sér á hæðinni. —
Skipti á 3ja—4ra herb. íbúð
á 1. eða 2. hæð í borginni
koma til greina.
Ný 4ra
herb. stórglæsileg íbúð á 2.
hæð á fögrum stað í Vest-
urborginni. Bílskúrsréttur.
Ódýrar íbúðir
útboragnir frá 150—400 þús.
2ja herb. við Skipasund. Sér-
hitaveita. Rúmgóð í kjall-
ara. Útb. aðeins kr. 250 þús.
2ja herb. rúmgóð og sólrík
jarðhæð í Kópavogi. Útb.
aðeins kr. 200 þús.
3ja herb. rishæð með sérhita
í gamla Austurbænum.
4ra herb. rishæð, 120 ferm. í
Hlíðunum.
4ra herb. íbúðarhæð við Lang
holtsveg.
4ra herb. góð hæð í Kópavogi.
Verð kr. 850 þús.
AIMENNA
FASTEI6NASAHN
LINDARGATA 9 SlMI 21150
Til sölu
Útb. 400-500 þús.
3ja herb. íbúð á 2. hæð í Hlíð
arhverfi. íbúðin er nýsand-
sett og laus nú þegar.
3ja herb. íbúð við Stóragerði.
Teppi á allri íbúðinni. ís-
skápur fylgir.
4ra herb. 2. hæð í steinhúsi
í gamla bænum. íbúðin er
öll nýstandsett. Sérhitav.
Útb. 500-600 þús.
3ja herb. 1. hæð á<samt herb.
í kjallara í Hlíðarhverfi.
3ja herb. 2. hæð í tvíbýlishúsi
við Laugarnesveg. Sérinng.
og hiti.
4ra herb. íbúð við Hátún. Ibúð
in er laus nú þegar. Sérhiti.
Útb. 600-700 þús.
3ja herb. ný íbúð við Klepps-
veg. Falleg íbúð. Laus 15.
jan.
5 herb. efri hæð í tvíbýlis-
húsi við Reynihvamm.
Nokkrar 4ra herb. íbúðir við
Ljósheima.
Útb. 700-900 þús.
4ra herb. íbúð í háhýsi við
Hátún. Sérhiti, fallegt út-
sýni. Suðursvalir.
5 herb. 130 ferm. íbúð á 2.
hæð ásamt herb. og eldun-
arplássi í kjallara í Hlíðahv.
5—6 herb. endaíbúð við Fells-
múla. Þvottahús er á hæð-
inni.
Fasteignasala
SIGURÐAR PÁLSSONAR,
byggingameistara og
GUNNARS JÓNSSONAR,
lögmanns.
Kambsvegi 32.
Símar 34472 og 38414.
Til sölu
2ja herb. íbúð, um 72 ferm. á
1. hæð við Laugarnesveg.
Góð íbúð.
2ja herb. íbúð í háhýsi við
Austurbrún.
3ja herb. íbúð á 4. hæð við
Birkimel.
3ja herb. jarðhæð við Nýbýla
veg, um 90 ferm., sérhiti,
sérinngangur. Harðviðarinn
réttingar. Mjög góð íbúð.
3ja herb. ris, lítið undir súð,
irm 80 ferm. við Sigluvog,
ásamt 30 ferm. bílskúr. —
Ræktuð lóð.
3ja herb. jarðhæð, um 94
ferm. með sérhita og sérinn-
gangi við Rauðalæk.
4ra herb. íbúð á 1. hæð við
Ljósheima. íbúðin er með
harðviðarinnréttingum,
teppalögð. Mjög falleg íbúð.
4ra herb. hæð við Bergstaða-
stræti. Harðviðarhurðir og
ný eldhúsinnrétting. Teppa-
lagt, um 90 ferm.
4ra herb. risíbúð við Eskihlíð.
Lítur vel út.
5 herb. nýlegar íbúðir við
Laugarnesveg, Háaleitis-
braut. Fellsmúla, Reyni-
hvamm, Bólstaðarhlíð, Glað
heima og víðar.
5 herb. 1. hæð við Holtagerði
í Kópavogi, um 130 ferm.
Allt sér, harðviðarinnrétt-
ingar, teppalagt, ræktuð
lóð, bílskúr. Útb. aðeins kr.
600 þús. sem má skiptast.
120 ferm. einbýlishús, full-
klárað við Lyngbrekku í
Kópavogi með harðviðar-
innréttingum, teppalagt,
ræktuð lóð.
I smíðum
2ja, 3ja, 4ra herb. íbúðir tilb.
un-dir tréverk og málningu
við Eyjabakka í Breiðholts-
hverfi. Geta einnig fengist
fokheldar með tvöföldu
gleri og miðstöðvarlögn og
sameign kláruð.
Fokhelt raðhús við Vogatungu
í Kópavogi. Hagstætt verð
og greiðsluskilmálar.
Fokhelt endaraðhús á Seltjarn
arnesi, á tveimur hæðum.
5—6 herb. og eldhús. Vill
skipta á 3ja eða 4ra herb.
íbúð í Reykjavík.
2ja, 3ja, 4ra og 5 herb. fok-
heldar hæðir í Kópavogi
með og án bílskúrs með hag
stæðum greiðsluskilmálum
og hagstætt verð.
Raðhús við Sæviðarsund. Til-
búið undir tréverk og máln-
ingu með bílskúr. Vill
skipta á 2ja eða 3ja herb.
íbúð.. Góð lán áhvílandi.
nfÍGÍHBáSljk
FASTEieWIgf^
Austurstræti 16 A, 5. hæð.
Simi 24850.
Kvöldsími 37272.
Kaupmenn
Sölumenn
Hef gott magn af II. fl. góðum
nylon og crepe kvensokkum:
Netnylon 8,00.
Sléttl. 30 den 10,00—12,00.
Crepe 40 den 18,00.
Svartir net I. fl. 11,00.
Sokkab., sokkal. I. fl. 100,00.
Sími 14-516.