Morgunblaðið - 01.11.1967, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. NÓV. 1967.
I
12
Rætt um bygginga
samvinnuf élög og
búsnæðismál
Þrjár fyrirspurnir
- framkvæmd stefnuyfirlýsingar
— rekstur lceland Food Centre
Einar Ágústsson (F) mælti í
gær fyrir frumvarpi, er hann
fiytur ásamt Ólafi Jóhannessyni
um byggingasamvinnufélög. Ein
ar sagði í framsoguræðu sinni í
gær, að hann hefði á Aiþingi í
fyrra flutt samhljóða frumvarp.
f>ví hefði verið vísað til nefndar,
en ekki komið þaðan aftur til af-
greiðslu. Óskaði Einar eftir því,
að slíkt endurtæki sig ekki aft-
ur. Ræddi Einar síðan nokkuð
um húsnæðismál almennt og
sagði, að því væri ekki að neita,
að stuðningur hins opinbera við
húsnæðismál hefði farið mjög
vaxandi á liðnum árum, en eigi
að síður vantaði mikið á að þau
væru í viðunandi horfi. Nægði
þar að taka til sem dæmi, að Hús
næðismálastjórn hefði aðeins
getað veitt 600 af 1400 gildum
umsóknum um lán, loforð fyrir
því á næsta ári. Stafaði þetta
m.a. af því, hversu mikið af fé
Húsnæðismálastjórnar hefði
runnið til framkvæmda í
Breiðholti. Talað hefði verið um,
að 1. sept. sl. hefði stjórnin ver-
ið búin að veita þangað 69 millj.
kr., og ætla mætti að miklar fjár
hæðir hefðu bætzt við síðan.
Ræddi síðan Einar um lækk-
un byggingakostnaðar og sagði
þá m.a., að Húsnæðismálastjórn
hefði ekki getað sinnt sem
skyldi því hlutverki sínu, að
vinna að lækkuðum byggingar-
kostnaði.
Að lokum rakti Einar svo efni
frumvarpsins um byggingasam-
vinn/ufélögin og sagði það miða
að því, að auka möguleika þeirra
og gera þau hæfari til að þjóna
hlutverki sínu, en þau hefðu átt
mjög erfitt uppdráttar að und-
anförnu sökum fjárskorts.
Eggert G. Þorsteinsson félags-
málaráðherra vék að nokkrum
atriðum, sem fram höfðu komið
í ræðu Einars. Sagði hann m.a.,
að aldrei hefðu verið gerðar jafn
miklar ráðstafanir til lækkunar
byggingakostnaðar og úrbóta í
húsnæðismálum og á síðustu
8-10 árum. Veigamikill þáttur í
þeirri uppbyggignu væru Breið-
holtsframkvæmdirnar. Vara
mætti þó við bjartsýni um, að
þær framkvæmdir hefðu mikil
áhrif á lækkun byggingakostnað
ar nú þegar. Slíkt yrði aldre:
leyst á örfáum árum, en líta
mætti á þetta skref, sem hið
fyrsta í þá átt
Ráðherra vék síðan að því er
fram kpm í ræðu Einars, að Hús
næðismálastjórn hefði vanrækt
það hlutverk sitt að vinna að
lækkuðum byggingakostnaði.
Benti ráðherra á í því sambandi
teikningar, sem hægt væri að fá
hjá stjórninni fyrir mun lægra
verð en ella. Þá hefði húsbyggj-
endum verið boðin þjónosta
tæknideildar stofnunarinnar í
sambandi við kostnaðaráætlanir
og fl. og sérstak/ur eftirlitsmað-
ur hefði verið starfandi hjá stofn
uninni.
Einar Ágústsson tók aftur til
máls og einnig félagsmálaráð-
herra. Frumvarpinu var síðan
vísað til 2. umræðu og heil-
brigðis- og félagsmálanefndar
með 13 samhljóða atkvæðum.
Mý mál
f GÆR var lagt fram á Alþingi
stjórnarfrumvarp um breytingu
á framfærslulögum frá júní 1947.
Frumvarp þetta er flutt í sam-
ræmi við samþykkt borgar-
stjórnar Reykjavíkur frá 20. júlí
1967 um nýskipan félagsmála í
Reykjavík. Gerir frumvarpið ráð
fyrir því, að í Reykjavík komi
félagsmálaráð í stað framfærslu-
nefndar og annist framkvæmd
framfærslumála. Skipan félags-
málaráðs, fjöldi ráðsmanna og
kjörtímabil, ákvarðast af borg-
arstjórn Reykjavíkur.
Þingmál
■ gær
f NEÐRI DEILD Alþingis mælti
Guðlaugur Gíslason fyrir frum-
varpi um heimild fyrir ríkis-
stjórnina að selja eyðijörðina
Hól í Ölfusi í Árnessýslu. Frum-
varpinu var að lokinni fram-
söguræðu vísað til 2. umræðu
og landbúnaðarnefndar deildar-
innar.
Framhald af bls. 14
Hanoi boðaði árið 1959 — átti
ég persónulega þátt í þessari
ákvörðun.
Það sem við sáum, ógnanir
gegn Diem-stjórninni og
öryggi iandsins ,hafði mikil
áhrif á okkur. Og í framhaldi
af þeim atburðum, sem við
höfðum orðið vitni að, bætt-
um við eftirfarandi grein í
skýrslu okkar til forsetans:
„Þótt við teljum að sú
stefna sem við hér mælum
með feli í sér þær leiðir, sem
við álitum með tilliti til vitn-
eskju okkur um Suðaustur-
Así uað fara ben, segjum við
ekki að þetta séu okkar síð-
ustu orð í málinu. Framtíðar-
í GÆR xoru lagðar fram á Al-
þingi þrjár fyrirspúrnir frá al-
þingismönnum til ráðherra.
Er þar í fyrsta lagi fyrirspurn
frá Matthíasi Á .Mathiesen um
skólarannsóknir. Er hennar getið
annarsstaðar í blaðinu í dag.
í öðru lagi er eftirfarandi fyr-
irspurn frá Magnúsi Kjartans-
syni til forsætisráðherra:
Hvernig hyggst ríkisstjórnin
framkvæma eftirfarandi atriði í
nýjustu stefnuyfirlýsingu sinni:
„Efnt verði til sérfræðilegrar
könnunar af íslands hálfu á því,
hvernig vörnum landsins verði
til frambúðar bezt háttað“?
þarfirnar fara ftir því hvaða
lausn við náum í Laos og
hinu hvaða afstöðu Hanoi-
stjórnin tekur til þeirrar
lausnar. Ef það er tilgangur
Hanoi-stjórnarinnar að halda
áfram skæruhernaði gegn
Suður-Vietnam og styðja þær
sveitir séu sendar yfir landa-
á landi baí:damanna okkar,
verðum við að taka ákvörð-
un um það hvort við getum
sætt okkur við að skæruliða-
sveitir séu sendár yfir landa
mæri, en aðilinn sem verður
fyrir árásinni geti einungis
snúizt til varnar á eigin land-
svæði. Getum við samþykkt
að komið verði á þannig
ástandi, að þeim, sem ráðizt
er á og bandamönnum hans
sé meinað að snúast gegn
undirrót árásarinnar, þegar
sú staðreynd er augljós að
um utanaðkomandi árás er
að ræða? Það er álit okkar
að ríkisstjórnin eigi í sam-
vinnu við stjórn Suður-Viet-
nam að fara þær leiðir, sem
bent er á í þessari skýrsiu,
en jafnframt að taka til at-
hugunar það mikla vanda-
mál hvað stendur á bak við
árásina."
Enginn okkar mælti með
því að hefja loftárásir á
„undirrót árásarinnar“, en
margir okkar íhuguðu þann
möguleika á næstu árum. Ég
kom sem ambassador til
Saingon í júlí 1964, og tók í
arf pólitíska erfiðleika, sem
stöfuðu af falii Diem-stjórn-
arinnar árið áður. Hvernig
sagnfræðingar framtíðarinn-
ar meta þýðingu falls Diems
veit ég ekki, en bein afleið-
ing þess var mikil ringulreið
í stjórnmálum, þar sem hver
stjórnarbyltingin rak aðra,
og valdafíknir minnihluta-
flokkar, sem enginn streittist
gegn, steyptu hverri stjórn-
inn: af annarri.
Fall erkióvinarins Diems
gaf Viet Cong og stjórninni
í Hanoi kærkomið tækifæri,
sem þeir ekki hikuðu við að
nota sér. Allt árið 1964 var
þeim það tímabil, þegar þeir
reyndu að notfæra sér fall
Diems til að vinna þann sig-
ur, er þeir nú töldu sig hafa
möguleika á. Af okkar hálfu
var unnið kappsamlega að
því að styðja stjórnirnar í
Saigon, og styrkja vonir
Suður-Vietnam um að enn
gæti tekizt að verjast vax-
andi skæruhernaði. Við átt-
um hættulegar stundir um
þetta leyti, aldrei vissir um
það hvort ríkisstjórnin héldi
völdum til næsta dags, né
hvort við misstum enn eitt
þorp eða herstöð.
f árslok 1964 urðu banda-
rískar herstöðvar og vista-
geymslur uppáhalds skot-
mörk óvinanna. Sprengjuár-
ásirnar á Ben Hoa-herstöðina
í nóvember, á Brínk Hotel í
Saigon á aðfangadagiskvöld
og á Pleiku í febrúar 1965
urðu okkur dýrar. Við stóð-
Þriðja fyrirspurnin er frá Gils
Guðmundssyni til landbúnaðar-
ráðherra um rekstur Iceland
Food Centre í London. Er fyrir-
spurnin svohljóðandi:
1. Hversu miklu ríkisfé hef-
ur verið varið til stofnunar og
rekstrar fyrirtækisins Iceland
Food Centre í London?
2. Hvernig er háttað fjár-
skuldbindingum ríkisins gagn-
vart fyrirtækinu?
3. Hvernig hefur reksturinn
gengið?
4. Hverjar áætlanir eru á
döfinni um framtíð Iceland Food
Centre?
um andspænis síversnandi
ástandi, sem einkenndist af
áframhaldandi ringulreið í
stjórnmálum, árekstrum
minnihlutahópa meðal þjóð-
arinnar og í hernum, aukn-
um ofsóknum gagnvart
bandarískuro hermönnum og
varxandi kjarkleysi þjóðar-
innar í Suður-Vietnam. Það
var þessi þróun mála, sem í
árslok 1964 sannfærði mig
um að nú — fjórum árum
eftir að við fyrst höfðum
leitt hugann að því — væri
kominn tími til að beita yfir-
burða flugher okkar og ráð-
ast á staðina þar sem árásirn-
ar áttu upptök sín.
Þegar ákvörðunin var tek-
in um að hefja lofthernað-
inn— eftir árásina á Pleiku
— var það gert með þrjú
markmið í huga, sem, eftir
því sem ég fæ bezt séð rétt-
læta sprengiuérásirnar.
f fyrsta lagi áttu lotftárás-
irnar að hughreysta íbúana í
Suður-Vietnam. Loks áttu
íbúarnir að fá að heyra að
árás væri hafin á land fjand-
mannanna í hefndarskyni
vegna þess gífurlega tjóns,
sem margra áv skæruhernað-
ur hafði valdið í Suður-Viet-
nam.
Annað markmiðið var að
beita flughernum til að tak-
marka og erfiða flutninga
hermanna og vista frá Norð-
ur- ti! Suður-Vietnam. En ég
vil leggja áherzlu á að engum
þeirra, sem þáti áttu í ákvörð
uninni um að befja loftár-
ásir, datt í hug þá, né álíta
í dag, að flugherinn einn
gæti stoðvað herflutninga frá
norðri, Rpynsia okkar bæði
frá síðar: heimsstyrjöldinni
og Kóreustyrjöldinni hafði
sýnt okkur að það er tak-
markað að hve mi'klu leyti
loftárásir geta tafið herflutn-
inga þrjozkra fjandmanna.
Hinsvegar hafði sama reynsla
sýnt að með loftárásum væri
í rauninni unnt að takmarka
fjölda þeirra hermanna, sem
óvinurinn getur beitt til bar-
daga, og dregið úr hreyfan-
leika óvinahersveitanna, ef
samgönguleiðii þeirra eru
undir stöðugum loftárásum.
Þriðja maikmiðið var bæði
stjórnmáia- og sálfræðilegs
eðlis.: Þörfin á að minna
stjórnina í Hanoi á að í fram-
tíðinni sæti húr ekki á frið-
helgu landsvæði, og að Norð-
ur-Vietnam yrði krafið sí-
hækkandi gjalds fyrir árás-
irnar, meðar. þeim væri hald-
ið áfram gegn Suður-Viet-
nam.
JHi
AIIGI SÍMI LYSI 22 INGAR 1*4*80
Gullverðlaunalampi
PAUL HENNINGSEN KOMINN ÁSAMT LÖMPTJM TEIKNUÐ-
UM AF FINNSKA ARKITEKTINUM ALVAR AALTO.
Nýtt lampetit
HEFUR STRAUMSTILLI GETUR STAÐIÐ
Á BORÐI EÐA HANGIÐ Á VEGG.
117 MÖGULEIKAR Á STILLINGU
LAMPANS.
HÖFUM EINNIG ÓVENJU FJÖLBREYTT
ÚRVAL ALLSKONAR LAMPA í ALLA
ÍBÚÐINA.
«9 RAFBtÐ
DOMUS MEDICA
SÍMI 18022.