Morgunblaðið - 01.11.1967, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. NÓV. 1967.
Yfirlýsing frá stjórn
Stýrimannafél. Islands
ÞANN 28. okt. s.1. birtir Þjóð-
viljirm á forsíðu blaðsins grein
með fyrirsögninni „Ólögleg
stjórn í Stýrimannafélags ís-
lands?“ í umræddri grein er
þess getið í upphafi, að nokkrir
stýrimenn á farskipaflotanum
hafi sent stjórn F.F.S.Í. bréf,
þar sem krafizt var rannsóknar
á því, með hvaða hætti Sverrir
Guðvarðsson gæti kallað sig lög-
legan formann stjórnar Stýri-
mannafélags ísiands, og hvernig
aðrir stjórnarmeðlimir gætu
setið löglega í stjórnínni, þar
sem aðalfundur í félaginu hafi
ekki verið haldir.n enn á árinu.
Af þessu tilefni vill stjórn
Stýrimannafélags íslands taka
fram eftirfarandi:
Á fundi, sem haldinn var í
Stýrimannafélagi íslands 14.
júní s.l., voru mættir 55 félags-
menn. Á þeim fundi skýrði for-
maðu félagsíns frá því, að vegna
ófyirsjáanlega orsaka hefði
orðið að fresta aðalfundi félags-
ins, en að hann yrði haldinn
eins fljótt og unnt væri og í
síðasta lagi á haustmánuðum.
Fundamenn hreyfðu engum mót
mælum við þessari yfirlýsingu
formanns, og þótti skýring sú,
er hann gaf á frestun fundar-
ins, ekki óeðliieg.
Þriðjudaginn 24. október var
haldinn stjórnarfundur í F.F.S.Í„
og átti þar að ræða yfirlýsingu
þá, er stjórn F.F.S.Í. lét frá sér
fara og nú hefur birzt í flestum
dagblaðanna. I fundarbyrjun
barst forseta sambandsins bréf,
undirskrifað af 13 stýrimönnum,
en í Stýrimannafélagi íslands
eru nú 135 félagsmenu. Efni
bréfsihs var á þá leið, að þessir
13 stýrimenn óskuðu eftir því,
að stjórn F.F.S.Í. hlutaðist tií
um að löguin Stýrimannafélags
íslands væri framfylgt, og
töldu, að þau hefðu verið brot-
in, þar sem aðalfundur hafði
ekki verið haldinn.
Það skal tekið fram varðandi
bréf þetta, að Stýrimannafélagi
íslands hefur ekki borizt í hend-
ur neitt bréf frá félagsmönnum,
þar sem óskað hefur verið eftir
skýringum á því, hvað tetfði aðal
fund félagsins, og sýnir það
bezt, að félagsmenn hafa tekið
skýringu formanns, er hann gaf
á fundinum 14. júní s.l. varð-
andi frestun fundarins, fyllilega
til greina.
í lögum félagsins, 14. gr., segir
svo:
Til fundar skal stjórninni
skylt að boða, ef áríðandi mál-
efni eru fyrir hendf eða ef
minnst 10 félagsmenn æskja
þess.
Eins og gefur að skilja á um-
ræddri lagagrein, geta félags-
menn hvenær sem er, 10 eða
fleiri, krafizt fundar, telji þeir
UMRÆÐUKVÖLD
í Himinbjörgum, félagsheimiii Heimdallar
fimmtudagskvöld 2. okt. kl. 20.30.
Guðmundur H. Garðarsson formaður
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur ræðir
um og stýrir umræðum um
Aðsteðjandi vandamál
í íslenzku atvinnulífi.
STJÓRNIN.
Guðmundur H. Garðarsson.
s
IMýtl frá Ítalíu
kjólar
peysur
blússur
GLUGGIIMN
Laugavegi 49.
ástæðu til eða brýna þörf fyrir.
Þess hefur ekki verið óskað í
sambandi við mál þetta. Þá er
og rétt að geta þess, að er um-
rætt bréf barst stjórn F.F.S.Í.,
hafði aðalfundur félagsins
þegar verið ákveðinn 15. nóv.
n.k.
Varðandi það, sem sagt er í
Þjóð'viljanum sunnudaginn 29.
okt., þar sem þess er getið, að
engin verkfailsboðun hafi komið
frá félögum yfirmanna á kaup-
skipum, er rétt að geta þess,
að þriðjudaginn 24. okt. s.l.
ákvað stjórn Stýrimannafélags
íslands að bíða með verkfalls-
boðun, þar sem væntanlegur
væri gerðardómur um kaup og
kjör yfirmanna, en hann á að
hafa iokið störfum fyrir 1. nóv.
1967.
Að lokum er rétt að taka
eftirfarandi fram:
Skrifstofa Stýrimannafélags
íslands er opin þrjá daga í viku,
mánudaga, mrðvikudaga og
föstudaga. Á þessum dögum er
aðeins opið frá kl. 17.00—19.00.
Vegna þess hve stuttan tíma
skrifstofan er opin, og félags-
menn Stýrimannafélagsins eru
starfandi á sjó og hafg oft stutta
viðdvöl hér í Reykjavík, getur
það komið fyrir, að þeir eigi
enfitt með að ná sambandi við
skrifstofuna eða formann fé-
lagsins, sérstaklega þá daga sem
skrifstofan er lokuð, og einnig
þegar litið er á það, að þetta
eru menn sem hafa í mörgu að
snúast þann stutta tíma sem
þeir eru í landl Reynt hefur
verið að bæta úr þessu, og geta
félagsmenn t. d. snúið sér til
stjórnarmanna og haft samband
við þá í þeirra heimasímum í
hádegi og á kvöldin og komið
þannig sínum málum á fram-
færi. Teljum við, að með því
móti ættu féiagsmenn undir
flestum kringumstæðum að
geta náð sambandi við einhvern
af stjórnarmönnum félagsins.
Þá leyfir stjórn Stýrimannafé-
lags íslands sér að mótmæla
harðlega þe'm aðdróttunum, sem
fram koma í Þjóðviljanum sama
dag þess efnis, að í stjómum
félaga yfirmanna á kaupskip-
um séu allskonar sjálfskipaðir
forystumenn, sem haldi niðri
kjörum yfirmanna með hvers-
konar ráðum. Þvert á móti hafa
forystumenn þessara stéttarfé-
laga unnið með dugnaði og
framsýni að bættum hag yfir-
manna og munu halda þeirri-
baráttu áfram
Reykjavík, 30. okt. 1967.
Stjórn Stýrimannafélags
lslands. ,
Mótmælo einnhagsaðgerðum
MBL, hafa borizt frétttilkynn-
ing frá þrrm verkalýðssam-
tökum vegna efnahagsaðgerða
ríkisstjórnarinnar og fara þær
hér á eftir styttar:
Stjórn Alþýðusambands Vest-
fjarða hefir gert eftirfarandi
samþyk'kt:
„Á 19. þingd Alþýðusambands
Vesitfjarða, sem haldið var dag-
ana 21. og 22. sept. s.l. var sam-
þykkt, í sambandi við erfiðleik-
ana í efnahagsmáluim þjóðar-
innar, að vestfirzka verkalýðs-
hreyfingin J.iti svo á, að leggja
beri áherzlu á að mæta minnk-
andi þjóðartekjum með aukinni
ráðdeild og meiri hagsýni í
rekstri fyrirtækja og varfærni
og fyrirhyggju í meðferð fjár-
muna í opinbeium rekstri.
Ennfremur að nauðsynlegt sé
að draga úr margvíslegum
óþ arf sútgj öldum r íkis valdsins,
samfara því af. tryggja atvinnu
öryggi um land allt, og afstýra
kaupmætti launa.
J'af'ntframt lýsir stjórn A.S.V.
yfir f ulium stuðningi við þá
þýðingarmiklu ákvörðun mið-
stjórnar Aiþýðusambands ís-
lands að hefja viðræður við rík-
isstjórnina um lausn vandamáls-
ins, og reyna þannig á raun-
hæfan hátt að afstýra kjara-
skerðingu, sem vofir yfir lág-
launastéttunum.
Stjórn A.S.V. vill í þessu sam-
bandi m.a. benda á þá stað-
reynd, að á þessum vettvangi,
— þ. e. með samningum við
ríkisvaldið —, er un.nt að vaka
yfir og bæta nag þeirra þegna
þjóðfélagsins, ellilífeyrisþega og
annarra helztu bótaþega trygg-
inganna — sem verkalýSshreyf
ingin hefir engin tök á að
vemda í samningum sínum við
atvinnurekendur um kaup og
kjör.
Fari svo að verkalýðshreyf-
ingin nái ekki æskilegum ár-
angri í samningum sínum við
ríkisstjórnina telur stjórn A.S.V.
alls ekki hjé. því komizt að beita
samtakamætti verkalýðlsfélag-
ann af fyllsiu einbeitni og-verja
Framhald á bls. 17
THRBGE - TITAN
Laugavegi 15,
símí 1-33-33.
RAFMAGNSTALIUR
200 - 300 - 400 kg.
lyftiþupgi
Fólk óskast til
blaidreifingar
í Kópavog í eftirtalin hverfi:
Víghóiastígshverfi — Álfhólsvegshverfi II
Talið við afgreiðsluna í síma 40748.