Morgunblaðið - 01.11.1967, Síða 28
HEIMILIS
TRYGfilNO ofoz
'*** ALMENNAR TRYGGINGARP
PÓSTHUSSTUÆTI 9 SÍMI 17700
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1967
Aðalstræti 9
eyðileggst í eldi
KLUKKAN tæplega hálf tvö
í nótt var Slökkviliðinu til-
kynnt að eldur væri í húsinu
Aðalstræti 9., en þar er til
húsa m.a. matsölustaðurinn
Gildaskálinn. Þegar þetta er
skrifað kl. 2:30 var allt
Slökkvilið Reykjavíkur og
Slökkvilið Reykjavíkurflug-
vallar að berjast við eldinn í
húsinu sem er gamalt timbur
hús og mjög stórt um sig.
Varð þá engu spáð að hve
miklu leiti myndi takast að
bjarga húsinu, en bruna-
skemmdir voru þá þegar
Barna- og ung-
lingaskóli
Vopnafjarðar
settur
BARNA- og unglingaskóli
VopnafjarSar var settur í gær
af Ragnari Guðjónssyni, skóla-
stjóra. f barnaskólanum verða
83 nemendur en i unglingaskól
anum 31. Fastir kennarar eru
fimm, auk stundakennara. Þetta
er fyrsti veturinn, sem kennt er
í hinu nýja og glæsilega skóla-
húsi Vopnafjarðar.
orðnar mjög miklar á hús-
inu. Hvergi hafði þó logað
uppúr þaki hússins, hafði
Slökkviliðinu þá náð yfir-
höndinni yfir eldinum.
Skemmtifund-
ur í Keflavík
Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn
í Keflavík heldur fyrsta fund
sinn á vetrinum, fimmtiudag,inn
2. nóv. í Æskulýðs'húsinu. Kaffi-
drykkja. Spilað verður bingó. —
Góðir vinningar.
Heföu Danir selt Island?
athyglisverðar upplýsingar í nýúfkominni
œvisögu William Henry Sewards
Einn eftir i
Loðmundar-
firði
VARÐSKIPIÐ Þór flutti bú-
slóð fjölskyldunnar í Stakka
hlíð í Loðmundarfirði til
Seyðisfjarðar í gær. Fjöl-
skyldan hefur búið þar í
átján ár, en Stakkahlíð hef-
ur ættfólk húsfreyjunnar,
Áslaugar Stefánsdóttur,
byggt allar götur siðan 1840.
Nú'er aðeins einn bær í
byggð í Loðmundarfirði, en
Kristinn Halldórsson ætlar
að þrauka einn að Sævar-
enda í vetur.
NÝLEGA kom út hjá Oxford
University Press ævisaga Will-
iam Henry Sewards, sem var
utanríkisráðherra í stjórnartíð
Lincolns og annaðist kaup
Bandaríkjanna á Alaska af Rúss-
um. í ævisögu Sewards, sem rit-
uð er af Glyndon G. Van Deusen,
kemur m.a. fraui, að áhugi
Sewards hefur á tímabili beinzt
að því að kaupa ísland og Græn-
land af Dönum. Þar segir, í laus-
legri þýðingu:
Áhugi Sewards á eyjum og
herstöðvum á Atlantshafssvæð-
inu var síður en svo einskorðað-
ur við Vestur Indíur. Árið 1867
fékk hann Robert J. Walker,
sem var ákafur fylgismaður út-
þenslustefnunnar, tii að vinna
skýrslu um hernaðar- og stjórn-
málalega þýðingu Grænlands
og íslands.
Walker naut við það starf að-
stoðar þjóðfrægg vísindamanns,
þar sem var prófessor Benjamin
Peirce, yfirmaður bandarísku
strandmælinganna. Walker lagði
svo fram skýslu, sem hvatti til
kaupa á Gænlandi og íslandi
vegna námuauðæfa og fiskimiða
þeirra. Einnig var á það bent, að
eyjarnar gætu orðið útverðir
brezku Ameríku að austan og
örvað áhuga Kanada á að sam-
einast Bandaríkjum Norður
Ameríku.
Seward lét prenta skýrsluna
og Ben Butler, sem var mikill
áhrifamaður á þessum tímum,
var fljótur að minnast á sinn
beiska hátt á mann, „sem væri
nógu vitlaus til að kaupa jarð-
skjálftana á St. Thomas og ísinn
á Græniandi".
Þar fyrir utan vakti skýrslan
engan áhuga, hvorki hjá þinginu
né þjóðinni í heild. Við þetta
sinnuleysi og einnig erfiðleik-
ana í samiband við kaupin á
dönsku Vestur Indíum, slævðist
áhugi Sewards og hann tók þá
ákvörðun, að frekari tilraunir til
landakaupa á Norður-Atlants-
hafssvæðinu yrðu til einskis
gagns.
í gærkvöldi var síðasti leik-
urinn í heimsókn danska liðs-
ins Stadion. FH „kvaddi" þá
í gærkvöldi. Og þrátt fyrir
að Danirnir höfðu fengið
„liðsauka" frá Höfn á sunnu-
dagskvöldið til að mæta FH-
ingum, reyndust íslendingar
þeim ofjarlar. Hér er svip-
mynd frá hinum spennandi
leik, en nánar er sagt frá
leiknum á Íþróttasíðu, bls.
26. (Ljósm. Kr. Ben.).
Islenzka sjónvarpið
nær til 20.000 heimila
SEGJA má að sjónvarpskerfið
nái nú allt austur frá Skaftafells-
sýslum vestur í Búðardal, að því
er Vilhjálmur Þ. Gislason út-
varpsstjóri tjáði Mbl. í gær.
Rúmlega 20.000 sjónvarpstæki
Ráðstafanir vegna
Ijósabúnaðar reiðhjóla
MORGUNBLAÐINIJ hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
lögreglunni:
Gerðardómur kveðinn
upp í farmannadeilunni
— slysa- og örorkubœtur tvöfaldast
— 7°]o orlof greiðist af yfirvinnu
í SAMRÆMI við lög númer 63
frá 16. júní 1967 kvað gerðar-
dómur í fyrradag upp úrskurð í
kjaradeilu stýrimanna, vélstjóra
og loftskeytamanna á farskipum
við skipaútgerðirirnar. Slysabæt-
ur vegna dauða eða 100% ör-
orku hækk* samkvæmt úrskurð-
inum úr krónum 300.000 í 600.-
009. Þá skal eftirleiðis greiða
yfirmönnum 7% orlof af yfir-
vinnu.
Engar breytingar urðu á
grunnkaupi, vinnutíma eða
vinnufyrirkomulagi á skipunum.
Slysabætur vegna dauða eða
100% örorku hækka samkvæmt
úrskurðinum í krónur 600.000.
Eftirvinna hjá þeim, sem starf
að hafa lengur en tvö ár hækk-
ar nokkuð og nýr taxti kemur
eftir fimm ára starí. Þá skal
greiða yfirmönnum 7% orlof af
yfirvinnu, svo sem víðast tíðk-
ast.
Samræmdar eru reglur um
það, af hvaða launaþáttum líf-
eyrissjóðstillag skuli greitt.
Úrskurðurinn gildir frá 16.
júní sl.
Gerðardóminn skipuðu: Guð-
mundur Jónsson, borgardómari,
formaður, og Guðmundur Skafta
son, lögfræðingur, og Torfi Ás-
geirsson, hagfræðingur, meðdóm
endur.
Þar sem hættulegasti tími árs-
ins í umferðinni fer nú í hönd
vill lögreglan skora á reiðhjóla-
menn að hafa lögboðinn ljósa-
búnað reiðhjóla í fiullkomnu lagi.
Áberandi hefur verið, að ljósa-
búnaði rei'ðhjóla er áfátt, en
þrátt fyrir stöðugar áminningar
lÖgreglumanna hefur lítil breyt-
ing orðið til batnaðar.
Lögreglan hefur því ákveðið að
beita sektum gagnvart reiðhjóla-
mönnum, eða eftir atvikum að
taka hjólin af börnum og ungl-
ingum og geyma, þar til þau eru
sótt af foreldrum eða forráða-
mönnum.
Framangreindar aðgerðir
munu hefjast mánudaginn 6.
nóvember n.k.
eru í notkun og er talið að um
130.000 manns hafi möguleika til
að sjá dagskrá íslenzka sjónvarps
ins.
í sumar hefur verið unnið að
mælingum fyrir norðan land og
austan, en einnig á Suðurlands-
undirlendinu og verður reynt að
koma sjónvarpinu austur í Skafta
fellssýslur í haust og allt til
Hornafjarðar, ef mögulegt reyn-
ist.
28. október var opnuð ný end-
urvarpsstöð í Búðardal og á næst
unni verður unnið að því að
koma sjónvarpinu í þær upp-
sveitir Borgarfjarðar, sem enn
eru eftir.
Næsta haust verður sett upp
bráðabirgðaendurvarpsstöð á
Vaðlaheiði, en mikið er eftir að
mæla á Austurlandi og á Vest-
fjörðum enn sem komið er.
Reiknað er með því að sjónvarp-
ið nái til landsmanna allra á ár-
inu 1969.
New York, 31. október — AP —
AFTUR lamaðist athafnalífið í
höfninni í Brooklyn á þriðjudag
er rúmlega 4000 hafnar.verka-
menn neituðu að hefja vinnu og
rjúfa með því verkbann það er
samband eftirlitsmamna hafði
sett til áherzlu kröfum sínum
um viðurkenningu sem samnings
aðila. ,
IMatthías A. Mathiesen leggur fram
fyrirspurn um störf skólarannsókna
MATTHÍAS Á. Mathiesen,
alþm. hefnr lagt fram á Al-
þingi fyrirspurn til mennta-
málaráðherra. Er fyrirspurn-
in í tveimur liðum:
1. Að hverju hafa skólarann-
sóknir menntamálaráðuneytis-
ins aðallega bemzt fram til
þessa?
2. Telur ríkisstjórnin, að með
núverandi starfskröftum við
skólarannsóknir verði hægt að
framkvæma fyrirhugaða endur-
skoðun á fræðsluiöggjöfinni inn
an hæfilegs tíma?