Morgunblaðið - 26.03.1968, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 196«
Get bætt við mig
nemendum « ökukennslu.
ÞÓRIR
HERSVEINSSON
Sími 19893.
Rauðarárstlg 31
Simi 22-0-22
MAGIMÚSAR
SKIPHOLTI21 símar21190
i eftir lokun slmi 40381
1-44-44
Hverfisgötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Simi 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Sigurður Jónsson.
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
ÞEKKIRÐU
MERKIÐ?
D.12
EINSTEFNUMERKI
Þetta merki gefur til kynna, að
ekiS sé inn á einstefnuaksturs-
götu, og að akstursstefnan sé í
þá átt, sem örin vísar. Merkið er
einnig algengt við innakstur á
bilastæði, eða þar sem lagðar
hafa verið sérstakar götur með-
fram íbúðarblokkum, vegna inn-
aksturs á sérstök biiastæði
þeirra. Ókunnugum er sérstak-
tega bent á að fara eftir siíkum
leiðbeiningum f stað þess að
reyna að smjúga stytztu leið, I
skjóli þess, að lögreglan sjái ekki
tfl þeirra.
HFRAMKVÆMDA-
NEFND
HÆGRI
UMFERÐAR
Sænska endur-
varpið
„Útvarpshlustandi'* skrif-
ar:
„Kæri Velvakaradi!
Nú hafa Svíar fengið Víet-
nam á heilann, og þótti víst
engum mikið. En hefur Ríkis-
útvairpið fengið Svíþjóð á
heilann? Mér þykir það meira
en títili furðu gegna, að út-
varpið skuli telja það helztu
heÍTnsviðburðina dag etftir dag,
hvað sænskir póhtíkusar hugsa
um stríðið í Víetnam. Rakið er
sem aðaltfrétt og mjög ná-
kvæmlega, hvað sænskir þing-
menn segja um málið. Hverj-
um kemuT betta við hér uppi
á íslandi? Væri ekki nær að
rekja álirt þeirra, sem nær búa
í Víetnam, t. d. þjóðþinganna
á Filippseyjum, í Singapore, í
Malasíu, í Indónesíu, í Suður-
Víetnam, í Laos, í Síam, í
Japan, á Formósu, í Suður-
Kóreu, í Ástralíu, í Nýja-Sjá-
landi o. s. frv.? Þótt vinstri
sósíalistunum, sem vinna við
fréttastofuna NTR, þyki gam-
an að ihnjóða í Bandaríkjamenn
og bera Svía fyrir sig, þá er
ástæðulaust fyrir okkar Ríkis-
útvarp að lepja þann kjafta- og
rógvaðal upp endalaust.
Er Víetnam
í Lapplandi?
Um daginn var fluttur
einn len/gsti fréttaauki, sem
heyrzt hefur með kvöldtfrétt-
um, og var sagt, að hann væri
frá Svíþjóð, eöa nánar tiltek-
ið Stokkhólmi .En fjallaði
hann um sænsk máietfni?
Nei, hann fjallaði um Víetnam!
Er Víetnam þá norður í Lapp-
landi eða kannske suður á
Skáni? Ég held Svíum væri
nær að hugsa um sín fáfæku
mínoritet eða minnihlutabrot,
eins og Lappa, Tatara, Finna
og Eistlendinga, áður en þeir
fara að siðbæta annað fólk. Og
hvað um þjóðarmorðin handan
Eystrasalts? Ætla Svíar að
horfa á þau þegjandi alla sína
daga? Eða skmmast þeir sín
kannske fyrir hlut sinn að mál
inu (endursenda flóttamenn,
sem Östen Undén sendi í af-
tö'kuklefa sovézku leynilögregl
unnar), svo að breiða á yfir
vonda samvizku með afskipt-
um af Víetnam-málinu? Og
hvern styðja þeir austur þar?
Morðingjasveitir eins arðvitug
asta einræðisríkis, sem saga
Austurlanda kann frá greina!
Kosningar hafa aldrei verið
haldnar í Norður-Víetnam, en
á það minnast Svíar ekki og
vilja helzt gleyma frjálsum
kosningum ,sem tvíveigis hafa
verið haldnar í Suður-Víetnam.
Morðingjasveitir norðanmanna
og Víetkong hafa mörg undan-
farin ár myrt þúsxmdir sak-
lausra borgaxa og rænt öðrum
eins fjölda. Það þykir ekki
fréttnæmt. Það þykir heldur
ekki í frásögur færandi, þótt
kommúnistar Ihafi um Langt
árabil iðkað það að sprengja
full samkomufhús í lotft upp,
láta sprengjur reka eftir skipa-
skurðum og ám, gert sprengju-
og skotárásir á skip og bíla
en svo ætla Svíar að rifna af
vandlætingu etf svarað er með
loftánásum á herbækistöðvar
norðanmanna!
Nei, góðir menn. Hlífið okk-
ur við þessum langlokxrfrétt-
um atf skoðunum sænskra stjóm
málamanna á Víetnam-málinu.
Það er nóg að þær séu lesnar
í sænska útvarpinu. Annað
eiga þær ekkert erindi, enda
hefur enginn lifandi maðxir
áhuga á þeim utan Svíþjóðar,
varla einu sinni norskix og
danskir kommúnistar.
Grímumenn
„Miðbæjarmaður“ skrif-
ar:
„Velvakandi góður:
Er maður skyldugur til þess
að heilsa grímuklæddu fólki?
Ég er mikið á ferli í Mið-
bænum og „paa Hat“ við
marga rnenn; þ.e. ég kannast
við marga og heilsa þeim. En
oft er það, að fólk heilsar mér,
sem ég ber engin kennsl á, og
tek ég þá stundum undir
kveðju þess á síðasta axigna-
bliki, en stundum ekki. Það er
manni svo lagt út til merki-
legheita. En hvernig skyldi
standa á því, að ég þekki ekki
kunningja míma? Það er af
því, að þeir eru eiginlega
grímuklæddir: 1. Menn, sem
hafa látið sér vaxa alskegg. 2.
Fólk með sólgleraugu. 3. Menn
í úlpu með aðreimaða heftu,
svo að rétt gritíir í augu, nef
og efri vör.
Nú hef ég tekið upp reglu
kunningja min/s, sem segir, að
vilji fólk d-ulbúa sig, sé sjálf-
sagt að virða það og heilsa
því alls ekki. Mér finnst þetta
ágæt regla og sendi þér hana.
Velvakandi minn, ef þú vildir
koma henni áleiðis til fleiri.
Þinn Miðbæjarmaður".
'Ar ,»Húrra fyrir silfur-
meraímönnum"
Þanniig er fyrirsögn á
bréfi, sem Þórey Jónsdóttir á
Akranesi sendir. Það er svona:
„Kæri Velvakandi!
Tilefni þessa bréfs er tak-
markalaus aðdáun min á bók-
menntasmekk þeirra manna,
sem úthlutuðu .silfurbikkj-
unni“ í ár. Meðan við eigum
slka „smekkmenn", er minn-
ingin ekki á flæðiskeri stödd
á voru ísaköldu landi.
En hvers vegna er greyið
svona þrælsligað og grindhor-
að í þokabót? (Ég meina sko
I^kkjuna).
Er hún kannski með hrossa-
sótt eða eitthvað svoleiðis?
Eða á þetta að vera táknrænt?
Svo er það þetta með „kímni-
gáfuna" hans Guðbergs . . .
Þið vitið þessa sérstæðu, sem
talað var um við afhendingu
verðlaxxnanna.
Satt, var orðið. Sérstæð er
hún óneitanlega. Svo sérstæð,
að ég efast um, að maðurinn
eigi marga „þjáningarbræður"
á því sviði, þ.e.a.s. sem ganga
lausir.
En hvað með það? Til ham-
ingju með drógina! Hver veit
nema Eyjólfxxr hressist.
Horbikkjima höndlað fékk,
— hún er taiin mikið þing.
En kímnigáfa kappans hékk
á klámi, bulli og svívirðing.
Að síðustu ferfalt húrra
fyrir þeim silfurmerarmönn-
um!
Þórey Jónsdóttir
Akranesi.
★ Poppkornaþefur
í bíósölum
„Bíó-Bárður“ skritfar:
„Velvakandi góður: Vertu
nú svo vænn, að koma því á
framfæri við bá, sem ráða kvik
myndahúsunum, að þeir banni
poppkornaneyzlu við kvik-
myndasýningar. Fnykurinn af
þessum pönnxisteikta maís er
svo ferlegur, að manni slær
fyrir brjóst. Satt bézt að segja,
þá líkist hann mest vissri teg-
und af ólykt, sem mannslík-
aminn framleiðir, og ekki
þykir hæía að nefna á prenti.
Ég er ekki einn um það, að
þessi viðbjóðslega fýla eyði-
leggi fyrir manni heila bíóferð,
þegar maður er svo ólheppinn
að hafa við hliðina bíóigest,
sem bryður þetta hröngl upp
úr skrjáfandi pokum alla sýn-
inguna, en upp úr honum gýs
síðan ógeðslegur þefur, að
hraustustu mönnum verður
óglatt.
Bannið þennan tortúr!
Bíó-Bárður“.
Iðnaðar-
geymslu- og skrifstofuhúsnæði til leigu. Sanngjörn
leiga. Góð bílastæði. Uppl. 1 síma 40159.
GREHSáSVEO 22-24
SIMAR/30280-322GZ
UTAVER
NYTT - NYTT
Franskur veggdúkur sem er mjög
góð hita- og hljóðeinangrun.
Veggefni er kemur í stað máln-
ingar á eldhxis, ganga, forstofur
og böð.
Dönsku
ruggu-
stolarnir
-x Fermingargjöfin
í ár er þessi ruggustóll.
Fást í öllum regnbogans litum.
Með rósóttu creton í baki og setu
eða köflóttu eftir eigin vali.
»i
-U4
jMl
qaar>cx
<J Simi-22900 Laugaveg 26