Morgunblaðið - 02.04.1968, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 190«
Flestir líta á Johnson, sem
miklu meiri mann en áður!
Sendiherrar Islands vestan
hafs segja frá viðbrögðum
fólks þar
MORGUNBLAÐIÐ hringdi í
gær til íslenzku sendiherr-
anna, sem hafa aðsetur í
Bandaríkjunum, til að spyrj-
ast fyrir um viðbrögð fólks
við hinni óvæntu yfirlýsingu
Johnsons, forseta, í fyrrinótt.
Pétur Thorsteinsson, sendi-
herra íslands í Washington,
saigði:
— Hér í Washington eru
allir forviða á þessari til-
kynningu forsetan-s. Hún
kom algerlega á óvart. Ræð-
u Johnsons á blaðamanna-
fundinum var sjónvarpað og
komu margÍT blaðamannanna,
sem voru á fundinum, fram í
sjónvarpinu strax á eftir, þar
sem þeir voru spurðir álits.
Tilkynning forsetans kom
þeim jafnmikið á óvart sem
öðrum og vixtust sumir orð-
lausir.
— Það kom strax fram í
fréttum á sunnudagskvöld og
eins í dag, að forsetinn hefði
tekið þessa ákvörðun þegar
á sl. hausti og aðeins fimm
manns vitað um hana, þ.e
konan hans, sem talin er
hafa hvatt hann mjög Hi
þessa, Humpihrey, varaforseti,
um, að það muni leiða til frið
arumleitana. Fulbright lýsti
einnig ánægju sinni yfir því,
að forsetinn skyldi undir-
strika friðarvilja sinn með
því a’ð gefa ekki kost á sér
til endurkjörs.
— Kl. 10 í dag hélt Robert
Kennedy blaðamannafund og
lýsti mikilli ánægju sinni yfir
ákvörðun hans, sem hann
taldi merki um hugrekki og
stjórnmálavizku. Skýrði
Kennedy frtá því, að hann
hefði sent Joflmson skeyti,
strax að lokinni ræðu hans,
þar sem hann hafði lýst þess-
ari skoðun sinni.
— Annars virðast skoðanir
fólks skiptar á því, hvaða
áhrif þessi ákvörðun John-
sons haifi á gang Víetnam-
styrjaldarinnar. Sumir telja
Hannes Kjartansson
Dean Rusk utanríkisráðherra,
Clark Clifford, hinn nýi varn
armálaráðflierra, og George
Christian blaða/fulltrúi hans.
Sumir telja, að NcNamara,
fyrrum varnarmálaráðherra
hafi einnig verið kunnugt um
þetta.
Blöðin og aðrar fréttastofn-
anir hafa átt viðtöl við marga
menn um þetta, m.a. Ful-
bright, formann utanríkis-
málanefndar öldungadeildar-
innar, sem hefur gagnrýnt
Johnson mjög vegna stefnunn
ar í Vietam. Fulbright lét í
ljós ánægju yfir ákvörðun
forsetans um að draga úr
loftárásum á Norður-Víet-
nam og virtist hann vongóður
Pétur Thorsteinsson
að úrslit fáist innan tíðar,
en aðrir telja vafasamt, að
nóg sé að gert til að binda
enda á styrjöldina þar.
— Mál þetta hefur vakið
svo mikla athygli, að einn
blaðamaður, sem á langan
starfstíma að baki, lýsti því
yfir, að það hafi aldrei neitt
komið honum jafn mikið á
óvart og þessi ákvörðun John
sons. Blöðin nota sitt stærsta
fyrirsagnarletur, meira að
segja New York Times, sem
yfirleitt fer varlega í þær
sakir.
— Það er að sjálfsögðu tal-
að mikið um, hvaða áhrif
þetta hafi á framboðin til
forseta. Það var strax farið
að tala um Humphrey, sem
væntanlegt forsetaefni demo-
krataflo'kksins. Johnson var
strax spurður að því, hvort
hann myndi styðja Hump-
hrey, en Joflinson vildi ekkert
um það segja, hvern hann
myndi styðja til framboðs.
Talið er, að Johnson hafi nú
styrkt svo stöðu sína í flokkn
um, að hann geti haft mikil
áhrif á það, hver verði eft-
irmaður hans.
— Hér í Washington virð-
ast menn vera almennt þeirr-
ar skoðunar að Joflmson hafi
tekið þessa ákvörðun sína
fyrst og fremst til að auð-
velda friðarsamninga í Víet-
nam og korna í veg fyrir
sundrung innanlands, þar sem
vaxandl óróa hafi gætt með-
al fólks.
— Þess má geta að lok-
um, að einstáka blaðamenn í
landinu hafa lengi haldið því
fram, að Johnson myndi ekki
verða í endurkjöri. En bað
lögðu engir trúnað á slíkt.
Kennedy og Nixon taldir lík-
legastir frambjóðendur.
Hannes Kjartansson, sendi-
herra íslands hjá Sameinuðu
þjóðunum í New York, sagði:
Menn eru agndofa yfir
þessum fréttum og vita ekki
hvaðan á þá stendur veðrið.
Það velta allir fyrir sér,
hvað muni nú gerast í pólitík-
inni. Flestir virðast vera þeirr
ar skoðunar hér, að Robert
Kennedy verði frambjóðandi
demokrata, og Nixson fram-
bjóðandi republikana. Þetta
er samt ekkert hægt að full-
yrða um, því allt getur gerzt
í pólitík. Sumir segja, að það
verði Humphrey, sem hljóti
útnefninguna.
— Sumir halda því fram,
að hér sé um pólitískt bragð
að ræða hjá Johnson. Hann
muni reyna að koma málum
þannig fyrir á næstu mánuð-
um að flokksþingið í Chicago
muni krefjast þess að haxm
verði í kjöri.
— Málin skýrast á næstu
dögum, en sem stendur virð-
ast stjórnmálaskýrendur á
þeirri skoðun, að ákvörðun
Johnsons tryggi tilnefningu
Roberts Kennedys á flokks-
þinginu.
— Fólk virðist almennt
þeirrar skoðunar, að Johnson
hafi tekið ákvörðun sína sök-
um þess, að hann óski ekki
eftir því að innanlandsstjórn-
málum í Bandaríkjunum sé
blandað inn í Vietnamstyrj-
öldina. Ennfremur vilji hann
gera sitt ítrasta til að koma
fjármálum landsins í það gott
horf, að staða dollrans verði
trygg. Flestir líta á Johnson
sem miklu meiri mann en áð-
ur.
— Fólk er yfirleitt á þeirri
skoðun, að ákvörðun Johnsons
muni auðvelda samninga í
Víetnam, m.a. vegna þess, að
Johnson muni nú ekki þurfa
taka tillit til stjórnmálaum-
brota heima fyrir. Hann geti
nú beitt sér sem stjórnspek-
ingur fremur en stjórnmála-
maður.
— Menn líta bjartari augum
á framtíðina en áður, sagði
Hannes Kjartansson að lok-
um.
KALDASTA APRÍLVEÐUR
MIKILL norðanstrengur var í
gær austantil á landinu og var
af þeim sökum fárvirði t-d. í
Höfn í Hornafirði, Hins vegar
var hægrur vindur vestast á land
Inu, en snjókoma á Akureyri og
þar austurundan og náði hún
suður eftir Austfjörðum. Frost
var mikið víða um land í fyrri-
nótt og hefur víða ekki mælzt
annað eins frost í aprílmánuði
síðan mælingar hófust. í Reykja-
vík, þar sem í fyrrinótt var frost
frá 16.4 gráðum og upp í 21.2
gráður, hefur ekki mælzt meira
frost síðan 1885.
Á stórhöfða hefur ekki mælzt
svo mikið frost í aprílmánuði
síðan mælingar hófust í Vest-
mannaeyjum, en þar var í fyrri-
nótt 17 stiga frost. Mesta frost
á landinu var á Hveravöllum 28
stig og 26 á Grímsstöðum á Fjöll
um.
Samkvæmt upplýsingum Veð-
urstoíunnar var ekki unnt að
greina neina verðrabreytingu í
gær. Líkur eru því á áframhald-
andi norðanátt, en afleiðingar
hennar geta orðið alvarlegar
vegna ísalaga fyrir norðan ís-
land.
Fulltrúar leikara bera kistu Helgu Valtýsdóttur úr kirkju.
Útför Helgu
Valtýsdóttur
ÚTFÖK Helgu Valtýsdóttur leik
konu var gerð í gær frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík. Athöfnin
hófst með því, að Jón Sigur-
bjömsson söng „Allsherjar drott
inn“ eftir César Frank, þá flutti
séra Jón Auðuns, dómprófastur
minningarræðu, en þar næst
söng Kristinn Hallsson „Litanei"
eftir Schubert. Þá söng Dómkór-
inn, undir stjórn Ragnars Björns
sonar, „Hvað bindur vorn hug
við heimsins glaurn."
Að því loknu lék Pétur Þor-
valdsson á celló hljómkveðju fná
gömlum félögum úr Iðnó eftir
Knút Magnússon. Að síðustu
söng Dómkórinn vers úr „Allt
eins og blómstrið eina.“
Þjóðleikhússtjóri, leikstjórar
og leikarair báru kistu hinnar
látnu úr kirkju.
Útgáfustjórn og rdtstjórar
Morgunblaðsins báru kistuna
hinzta spölinn til grafar.
Yfirlýsing frá S.H.
— vegna skrifa um
MBL. barst í gær eftirfarandi
yfirlýsing frá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna:
„Vegna greinar, sem birtist í
blaðinu „Verkamaðurinn“ á
Akureyri sJ. föstudag, vill Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna taka
fram eftirfarandi:
í Banidaríkjunum er það við-
tekin venja, að skatttayfÍTVöld
athugi reikninga fyrirtækja öðru
Coldwater
hvoru. Fyrirtæki S.H. í U.S.A
er hér engin undantekning.
Coldwater Seafood Corp. hefur
nú starfað í Bandaríkjunum í
yfir 20 ár. Reikningar fyrirtæk-
isins hafa oft verið athugaðir á
þessu tímabili, engar athuga-
semdir gerðar af hálfu banda-
rískra yfirvalda í því sambandi.
Slík aithugun stendur nú yfir og
hefur engin ásökun komið fram
á félagið í neinni mynd.
Benzín þraut
á Akureyri
en Haförninn kom með benzín
Akureyri, 1. apríl —
HAFÖRNINN kom til Akur-
eyrar í morgun og hafði siglt
fyrir Horn í gær, gegnum þétt-
an hafís. Skipið komst leiðar
sinnar engöngu af því, að veður
var kyrrt og bjart, annars hefði
sigling þar verið ófær með öllu.
Skipið flutti hingað um 600
lestir af benzíni og 400 til
450 lestir af gasolíu. Benzín var
alveg að þrotið hér í bæ þegar
þessi farmur barst. Tveir bíl-
farmar höfðu verið fluttir
hingað frá Húsavík á vegum
Olíuverzlunar íslands, Olíufél-
agi’ð átti aðeins benzín á sölu-
geymum, en Skeljungur átti
eftir lítið eitt af benzíni.
Gasolíubirgðir voru ekki mikl-
ar til hér áður en Haförninn
kom, en ún ætti hún að nægja
nokkrar vikur. Reynt verður að
senda annan skipsfarm síðar í
þessari viku og ættu Akureyr-
ingar þá að vera birgir til a.m.k.
tveggja mánaða.
— Sv. P.
Gagnfræða-
skólaskemmt-
un á Akranesi
Akranesi, 1. apríl.
ÁRSHÁTÍÐ Gagnfræðaskóla
Akraness var haldin hér um síð-
astliðna helgi í Bíóhöllinni, eins
og undanfarin ár. Skemmtikraft
ar voru eingöngu nemendur
skólans.
Á dagskrá var m.a. ávarp Jóns
Þórs Hallssonar, Fölsk frænka,
leikþáttur eftir Reck, leikfimi
drengja, Símtalið, gamanþáttur
einleikir á slaghörpu og kórsöng-
ur fjórðubekkinga undir stjórn
Matthíasar Jónssonar, kennara,
en skemmtun þessi er haldin
m.a. til fjáröflunar ferðalags
gagnfræðinga að loknu prófi í
vor. Skemmtunin var haldin fjór
um sinnum fyrir fullu húsi og
þótti takast mjög vel, enda allur
undirbúningur vandaður. Stjórn
andi skemmtunarinnar var Bald-
ur Georgs. — HJÞ.