Morgunblaðið - 02.04.1968, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1968
. Lr .
ísinn séður frá landi og á haf
- HAFÍS
Framhald af bls. 32
inn á Húnaflóa og víkur á Horn
slröndum eru flestar fullar af
ís.
Austur að Óðinsboða gisnar
ísinn Htið eitt, en þéttist aftur
vestan við Siglufjörð. Þaðan
liggur ís, 4—6/10, fyrir öllu
landi, 4—6 sjm. frá ströndinni,
unz komið er að Rauðunúpum,
en þar þéttist ísinn, til muna og
er allt að 7—9/10 undian Sléttu.
Þistilfjörðurinn er nær allur þak
inn ís 6—9/10, og þéttari þegar
innar í hann dregur. Allur þessi
ís barst hratt til lands, á aust-
anverðu Norðurlandi, með
hvassri NNV átt.
fs er nú kominn fyrir Langa-
nes og in undir Digranes og í
í mynni Vopnafjarðar, og nokk-
ur rekís allt suður á móts við
Glettinganee.
Siglingarleið er varasöm frá
Látrabjargi, að Straumnesi, eink
um þó í fjarðarmynnunum. Frá
Straumnesi að Óðinsboða er
varla fært, nema mjög öflugum
skipum. Siglingarleið fyrir öllu
Norðurlandi, er öll mjög ógreið-
fær og hættuleg, einkum fyrir
Sléttu, en þar mun hætta á að
siglingarleið lokist allgjörlega,
ef veður helzt óbreytt. Snjókoma
hamlaði mjög ísathugun við
vestanvert Norðurland og Norð-
austurland“.
Jónas Pétursson alþingismað-
ur, fór með í ísflugið í gær.
Mbl. hafði tal af honum og
spurði hann um það hvernig
honum hefði komið ísinn fyrir
sjónir. Jóna sagði:
— Eftir að komið var undir
Látrabjarg og horft var til hafs-
ins virtist vera samfelld isspöng
og var alhvítt um að litast. Þetta
var kuldalegt flug, en skyggni
var sæmilegt austur fyrir Eyja-
P
út. — Ljósm. Sv. Þorm.
fjörð, en er austar dró, byrjaði
að snjóa. Úti fyrir Vestfjörð-
um var kominn lagís inni á milli
jakanna og sást ekki auður sjór.
— Ég hef alltaf heyrt það
sagt, að er ís komi að landi
svo seint, sé mjög hætt við að
hann verði fram eftir sumri. Mér
fannst aðstæður allar mjög kúlda
legar og ekki spá góðu.
Fréttaritari Mbl. á Akureyri
Sverrir Pálsson símaði eftirfar-
andi lýsingu á hafísnum í gær:
„Síðdegis í dag fór að sjást
til hafíssins héðan frá Akureyri
og rak hann hratt inn fjörðinn
undan hvassri norðanátt. Fyrstu
jakana bar að landi við Odd-
eyri í ljósaskiptunum í kvöld, en
allmikinn ís var þá að sjá utan
við Svalbarðseyri og út fyrir
Hjalteyri, eða eins langt og sást.
héðan.
Akureyrarpollur er lagður
þykkum ísi og nær hann skammt
út fyrir Oddeyrartanga. I gær
var hér 17 til 18 stiga frost og
norðan hvassviðri, en í dag er
heldur mildara, ekki nema 9 til
10 stiga frost. Heldur hefur dreg
ið úr vindhraða með kvöldinu“.
Fréttaritari Mbl. Á Húsavík
símaði eftirfarandi í gærkvöldi:
„Is hefur nú rekið meira inn
á Skjálfandaflóa en vorið 1965,
þegar hann var hér lónandi fyr-
ir utan, en kom merkilega lítið
inn. í gær og dag hefur verið
stöðugt ísrek inn flóann undan
norðaustanátt og er kominn tölu
verður ís á fjörur fyrir botni
Skjálfandaflóa og með landinu
að austanverðu. Framanvið Húsa
víkurhöfn er ísbreiða 3 til 4 km
að breidd. Engir borgarísjakar
eru í þessu ísreki, allt smájak-
ar, en mjög þéttir og hætta get-
ur verið á að þeir frjósi saman.
Vír hefur verið strengdur milli
Húsavíkurbryggju og hafnar-
garðsins til að reyna að hindra
ísrek inn í höfnina, en ef ís-
inn kæmi inn í höfnina myndu
bátar þar verða í hættu.
Mikið af rauðmaga, grásleppu
og þorskanetum er þegar komið
undir ísinn og búast má við, að
af því hljótist töluvert tjón.
Kjarnfóður er talið hér nægt
fram á sumar og olíubirgðir út
þennan mánuð“.
Samkvæmt upplýsingum Veð-
urstofunnar er ekki nein átta-
breyting sjáanleg í nánustu fram
tíð og er útlit fyrir áframhald-
andi frost. ísútlitið er því mjög
ískyggilegt, en norðvestan hvass
viðri er á hafinu norðaustur af
landinu. Siglingaleið frá Horni
að Mánáreyjum út af Tjörnesi
var mjög ógreiðfær í gær og
sögð ófær í myrkri.
- STERK
Framhald af bls. 1
að beint frá skrifstofu forsetans
í Hvíta húsinu. Blaðamenn fengu
afrit af ræðunni klukkustund
áður, en þar var hvergi vikið að
ákvörðun forsetans að sækjast
ekki eftir endurkjöri.
Loftárásir verði stöðvaðar um-
svifalaust.
I upphafi ræðunnar sagði
Johnson, að hann hefði ákveð-
ið að loftárásir skyldu stöðvað-
ar umsvifalaust á Norður Viet-
nám, nema á birgðalestir and-
stæðinganna við hlutlausa beltið.
Johnson kvaðst heita á forseta
N-Vietnam Ho Chi Mint að
bregðast drengilega við því
skrefi sem nú hefðá verið stigið
í samkomulagsátt. Þá skoraði
hann á Bretland og Sovétríkin
að gera það, sem í þeirra valdi
stæði til að koma á friði í
Suð-austur Asíu. Orðrétt sagði
forsetinn: „Við erum reiðutoúnir
að hefja samstunidis undirtoúning
að friðarviðræðum, og í kvöld
slíg ég fyrsta skirefið í þeirri von
að það leiði til skjótra og já-
kvæðra viðtoragða. Ég er hér
með að taka fyrsta skrefið til
að leiða þessa deilu til lykta.“
í kvöld hef ég gefið flugflota
okkar og sjóher fyrirmæli um
að gera engar loftárásir á N-
Vietnam, nema á svæðinu norður
af hlutlausa beltinu, þar sem
stöðugir birgðaflutningar óvin-
anna og hervæðing ógnar banda
mönnum okkar. Svæði það sem
við stöðvum nú árásir á er um
það bil 90 prósent af öllu landi
Norður Vietnam."
Þvínæst sagðist Johnson hafa
skipað þá dverill Harriman og
Llewellyn Thomson. amibassa-
dor Bandaríkjanna í Moskvu, til
að undirbúa samningaviðræður
og gætu þær hafizt í Genf eða
á hverjum öðrum stað, sem á-
kjósanleg væri.
Johnson varar við ágreiningi
og togstreitu meðal demókrata.
Þegar forsetinn hafði þannig
lýst ákvörðun sinni með tilliti
til Vietnam kvaðst hann vilja
hvetja til einingar innan flokks
ins og með landsmönnum öllum.
Hann lagði áherzlu á, að láta
i ekki sundrung og tortryggni
veikja demókrataflokkinn
Hann vitnaði í orð John F.
Kennedys og sagði: „Þessi kyn-
slóð ungra Bandaríkjamanna er
reiðuibúin að gjalda hvaða verð,
bera hverja byrði, mæta hverj-
j um vanda, styðja hvern vin,
berjast gegn hverjum andstæð-
ingi til þess að tryggja að frels-
ið lifi og sigri.“ Éftir að hafa
vitnað til orða Kennedys sagði
Johnson að hann hefði allan
sinn stjórnmálaferil trúað að
hann væri frjáls maður, Banda-
ríkjamaður, þjónn landis síns.
í í þau 37 ár, sem hann
hefði unnið í þágu Bandaríkj-
anna, sem þingmaður, varafor-
seti og forseti hefði hann látið
einingu þjóðarinnar sitja í fyr
irrúmi. Nú virðist ágreiningur
og sundrung ríkjandi og það
er innbyrðis sundrung í brjóst-
um okkar í kvöld. Við getúm
ekki lokað augunum fyrix þeirri
hættu, sem blasir við og ógnar
vonum okkar um framgang band
rísku þjóðarinnar og frið öllum
mönnum til handa“. Johnson rifj
' aði upp, að fyrir 52 mánuðum
og 10 dögum hefði hann á ör-
: lagaríkri sorgarstund tekið á
sig skyldur forsétaembættisins.
Hann kvaðst þá hafa beðið um
I hjálp guðs og þjóðarinnar til að
' fá risið undir þeim vanda, svo
í að þjóðin mætti halda áfram
| rétta braut. „Við höfum staðið
! saman og við höfum rækt skyld-
ur okkar saman, og saman höf-
, um við lagt auknar skyldur á
I herðar okkar, og ég trúi því að
Bandaríkin verði sterkari, traust
ari, réttlátari í framtíðinni."
„Ég mun ekki leita eftir endur-
kjöri sagði Forsetinn
Síðan sagði Lyndon B. John-
son.
! „Ég hef kQmizt að þeirri nið
j urstöðu, að ég geti ekki leyft að
'forsetaembættið dragist inn í
flokkadrætti og viðsjár, sem eru
að þróast meðal okkar. Á víg-
vellinum berjast synir Banda-
ríkjanna, hér heima erum við og
vonin um frið sameinar okkur.
Því tel ég að ekki megi eyða
hvorki dagstund né klukkustund
til að sinna eigin hagsmunum
heldur ber að rækja þær skyld-
ur, sem forsetaembættinu fylgja.
Ég mun ekki leita eftir endur
kjöri og mun ekki taka á móti
útnefningu flokks míns fyrir
næsta kjörtímabil. En við skul-
um láta heiminn vita, að sterk
og árvökul eru Bandaríkin
reiðubúin að leita ærlegs friðar
og er reiðuibúin að verja hvern
heiðarlegan málstað og axla
hverjar byrðar hvað svo sem
það kostar.
Johnson hafði tár í augunum
er hann kom að niðurlagi ræð-
unnar en kona hans sem varhjá
honum í skrifstofunni brosti
meðan maður hennar flutti ræð-
una. Þegar henni var lokið reis
Lady Bird úr sæti og hljóp til
manns síns og faðmaði hann að
sér. Dæturnar Linda og Lucy
gengu og til hans og kysstu
hann.
Skyndifundir með blaða-
mönnum
Eftir ræðuna var efnt til
skyndifundar
um. Johnson
ánægður og
ákvörðun sín
útnefningu
með blaðamönn-
virtist hress og
sagði þar, að
um að afþakka
væri endanleg og
ekkert myndi breyta henni.
Hann kvaðst mundu nota þá
níu mánuði, sem eftir lifðu kjör
tímabilsins til að reyna að koma
á friði í Vietnam.
Forsetinn sagði að þó að fri'ð-
arviðleitni hans bæri nokkurn
ávöxt gæti hann vart ímyndað
sér að það ástand skapaðist, að
hann yrði neyddur til að endur
skoða afstöðu sína um að gefa
kost á sér. Jclhnson lagði átoerzlu
á það, a’ð ávörðun hans væri
tekin í fyllstu einlægni og
stæði að sjálfsögðu i nánu sam-
bandi við Vietnamstríðið. Að-
spurður viðurkenndi hann, að
ákvörðun Rotoerts Kennedys um
að ganga á hólm við forsetann
í prófkosningunum hefði aukið
á sundrungina, sem hann fjall-
aði um í ræðunni. En hann
vildi hins vegar ekki eyða tím-
anum í innantóma flokkspólitík
og þras, né heldur hefði hann á
Ho Chi Minh, forseti N-Vietnam.
þessu stigi málsins neinar ráða-
gerðir um að sitja flokksþing
demókrata í Chicagó í ágúst.
Vonar, að Hanoi meti
friðarviðleitni
í gær fór forsetinn svo í
óvænta heimsókn til Chicago og
hélt þar ræðu á ársfundi út-
varpsmanna. Þar tilkynnti hann
að forseta S-Vietnam Van Thieu
hefði verið boðið til Bandaríkj-
anna til að ræ'ða um. hvernig
binda megi enda á styrjöldina
og koma á varanlegum friði.
Talið, að Jolinson styðji Hump-
hrey til forseta.
Johnson forseti hefur ekki enn
gefið neina bendingu um það,
hvern hann muni styð.ia sem
framibjóðanda demókrataflokks-
ins, en stjórnmálafréttairitarar
eru eindregið þeirrar skoðunar,
að hann muni leggja til, að Hu-
bert Humphrey verði útnefndur
forsetaefni flokksins. Humphrey
hefur verið dyggur stuðnings-
maður forsetans, síðan hann tók
við emtoættl og er liklegur til
að fyl'gja að mesfu óbreyttri
stefnu Johnsons hljóti hann út-
nefningu.
Vonir Kennedys að glæðast?
Ákvörðun Johnsons hefur að
sjálfsögðu vakið gífurlega at-
hygli um allan heirn (sjá fleiri
fréttir á forsíðu og inni í blað-
inu)" ðg stjórnmálaséi-fræð ngar
eru samm'ála um, „ð bandarísk-
ui almenningur hafi engan veg-
inn jafnað si'g eftir undrunina.
I röðum frjálslyndari demó-
krata hafa vonir g'.æðzt um, að
öldungadeildarþingmennirnir
Kennediy eða McCa: tihy hljóti út
nexningu í nóvember. Áhangend
ur forsetans eru þeirrar skoð-
unar, að Johnson :.é ákveðiinn í
að skipa sér sess í sögunni sem
boðberi friðar og sáttfýsi.
Sttöðvun loftárásanna þýðir,
að nú verður ekki Itnguir varp-
að spren,gjum á H-noi né Hai-
phong. Þeir sem gaignrýnt hafa
stefnu stjórnar.'nnar hafa lengi
krafizt þess, að Loftárásum á þess
air borgir verði hætt, þar sem
þær hafi tilfeölulega litla hern-
aðarlega þýðingu og séu ekki til
annars en granda óbreyttum
borgurum No.ður-Víetnam. Fjög
ur ár eru nú umliðin síðan fyrstu
loftárásir voru gerðar á Norður
Víetnam.