Morgunblaðið - 02.04.1968, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1968
— Viðbrögð fólks
Framhald af bls. 18
ákvörðun hans að minni
hyggju vel tímabær. Það hefur
verið of mikil spenna í hans
forsetatíð, og því gott, að hann
skuli ætla að draga sig í hlé og
leyfa öðrum manni að spreyta
sig.
Að mínu áliti er þessi tak-
mörkun á loftárásunum rétt og
finnst mér nú tími kominn til
að Hanoi-stjórnin sýni ein-
hvern friðarlit.
í sambandi við næsta forseta,
held ég svona fljótt á litið, að
Robert Kennedy verði sá, sem
tekur við.
Hefði kosið að Johnson sæti
áfram.
SÉRA SIGURÐUR Haukdal
á Bergþórshvoli hafði þetta að
segja um ákvörðun Johnson:
Mér er illa við þessa ákvörð-
un forsetans, því að ég hefði
kosið að hann sæti áfram. Ég
tel hann mjög hæfan í þessu
embætti.
Um þá ákvörðun að láta
draga úr lofárásunum á Norð-
ur-Vietnam, sagði Sigurður:
„Ég tel skynsamlegt, að reyna
þetta í von um að það ýti undir
friðarsamninga, en er þó van-
trúaður á að það beri nokkurn
árangur“.
Ekki vildi Sigurður neinu
spá um hver yrði næsti forseti
Bandaríkjanna, þvi að í þeim
efnum ættu línurnar eftir að
skýrast mjög.
Tímabær ákvörðun.
PÁLL S. Pálsson, hæstarétt-
arlögmaður sagði:
Ég tel þessa ákvörðun John-
sons mjög tímabæra, og sama
er að segja um þá ákvörðun
hans að draga úr loftárásum á
Norður-V ietnam.
Hanoi-stiórn hefur gert það
að skilyrði fyrir því að setjast
að samningaborði, að Banda-
ríkjamenn hætti loftárásum á
Norður-Vietnam, og ég á von
á, að Norður-Vietnam muni
gera svo, þegar þessu skilyrði
hefur verið fullnægt.
Erfitt er að spá um, hver
verði næsti forseti Bandaríkj-
anna, en ég bind vonir við að
Robert Kennedy nái kosningu.
Ég gæti einnig vel sætt mig
við Nixon“.
Feginn ef það táknar
etefnubreytingu.
EINAR Gestsson, bóndi á
Hæli sagði:
„Ef ákvörðun þessi táknar
stefnubreytingar í styrj aldar-
rekstri Bandaríkjanna er ég
feginn henni
Manni hefur virzt Vietnam-
stríðið algjört þrátefli, sem á-
kaflega erfitt hefur verið að
leysa. Hefur því verið meira
álag á forsetanum en einn mað-
ur getur staðizt lengi. Þess
vegna finnst þér, þetta að
mörgu leyti mjög eðlileg
ákvörðun hjá honum.
Mér finnst einnig ákvörðun
forsetans á um að hætta nær al
gjörlega loftárásum á Norður-
Vietnam bera vott um heilindi,
sem ættu að auðvelda lausn
striðsins og erfitt er fyrir Han-
oi-stjórn að hundsa
1 En ég vil engu spá um það,
hver verður næsta forseti
Bandaríkjanna, enda alls ekki
tímabært ennþá. Gaman verður
þó að fylgjast með þróunþeirra
mála.
Ætlar ekki að tefla á tvær
hættur í tvísýnum kosningum.
Guðmundur H. Garðarsson,
viðlskiptatfræðingur, sagði:
„Ákvörðun Johnsons kom
mér á óvart, en að athuguðu
máli tel ég, að Jolhnson hatfi
tekið þá skynsamlegu afstöðu
að tefla ekki á tvær hættur
í tvísýnum kosningum við unga
og upprennandi stjórnmiála-
menn í Bandaríkjunum. Hann
ætlar greinilega að hverfa úr
sögu bandariskra stjórnmála,
sem sá forseti, sem unnið hefur
glæsilegastan kosningasigur í
forsetakosningunum þar vestra
en það var í síðustu kosning-
um. Mun hans verða minnzt
í sögunni fyrir það, hversu gíf-
urlegrar lýðhylli hann naut.
Varðandi þá ákvörðun forset
ans að hætta loftárásum á N-
Vietnám, þá get ég ekki um
hana dæmt, þar sem ég hef
ekki þá þekkingu á þeim styrj-
aldarrekstri, sem hér um ræðir.
Um þriðju spurninguna hef
ég það að segja, að nú finnst
mér að báðir aðilar eigi að setj
ast að samningum um þær að-
gerðir, er gætu leitt til friðar.
Ég spái Nixon sigri í næstu
kosningum.
Sé ákvörðunin tekið í einlægni
ber að fagna henni.
Gunnvör Braga SiguFðs-
dóttir húsfreyja svaraði spurn
ingum okkar á þessa leið:
„Fyrst þegar hringt var af
Morgunblaðinu og þessar fjór-
ar spurningar lagðar fyrir mig,
hélt ég að um væri að ræða
einhverskonar aprílgabb. En
fyrstu, þriðju og fjórðu spurn-
ingu hlýt ég að svara í léttuin
dúr.
Sé ákvörðun Johnson forseta
tekin í einlægni og ekki til að
ná betri baktjaldavígstöðu þá
fagna ég þessari ákvörðun hans
og þá sérstaklega með styrjöld-
ina í Vietnam í huga. Má vera
að hér sé komin hvít örk til
að afskrifa hana á, og í fram-
haldi af því svara ég þriðju
spumingu — og leytfi mér að
benda háttvirtum Ho Chi Minh
á hið góð fordæmi Johnsons,
taka sér lútu í hönd og stunda
hljómlist í stað herlistar þar til
yfir lýkur.
Víkjum þá að annari spurn-
ingu. Norður-Vietman. Suður-
Vietnam. Vietnam. Fyrst reyndi
ég að hugsa um spurninguna
af einhverju viti og sjá orsak-
ir, leiðir og afleiðingar þeirrar
styrjaldar, sem nú er háð í Viet
nam. Láti maður teyma sig út
í þá geðveiki að játa gamla
ástæðu fyrir upphafi þessarar
styrjaldar ber einnig að játa
að ekki er hægt að ljúka henni.
Fyrir þrem árum sá ég frétta-
mynd frá N-Vietnam tekna á
jörðu niðri að afstöðu loftár-
ásum. Ég á engan skilning á
einnar mínútu lífi í því örviti,
sem ég sá þá, hvað þá heldur
þriggja ára örviti, sem liðið er
síðan. Einstaklingi af íslenzkri
þjóð, sem frá upphafi hefur ver
ið það inntak lífsbaráttu að
að lifa veturinn af og missir
hvers mannslífs-katastroffe“, er
það grátóskiljanleg og af-
sakanleg geðveiki.
Næsti forseti Bandaríkjanna?
Kennedy-glans og æra kann
að ráða miklu í komandi for-
setakosningum. Ég hef mikla
trú á dyggðum mannanna, en
hafi Johnson verið réttlátur
þá bið ég guð um að forða
Bandaríkjamönnum frá réttlát-
um forseta. Ég þekki engan
N-Ameríku með nafni, annars
jarðræktarmann í N.-Ameríku
með nafni, annars myndi ég
gefa ykkur það upp.
„Ég er himinlifandi.“
Sigurður Jónsson Kennara-
skólanemi.
— Er ég heyrði frétt þessa
í útvarpinu, datt mér ekki ann
að í hug en hún væri apríl-
gabb. En sem bétur fer reynd-
ist hún sönn. Ég er himinlif-
andi. Hann hefði betur gert
þetta fyrr.
— „Það hefur sýnt sig að
þrátt fyrír ítreku'ð friðartilboð
Johnsons, hafa „höfðingjarnir"
í Hanoi ekki verið til viðræðu.
Ég er mjög vantrúaður á að
það muni bera nokkurn árang-
ur.“
— „Hefðu þeir einhverja á-
byrgðartilfinningu ættu þeir
að taka boði þessu, en því mið-
ur held ég að þeir kæri sig
lítið um frið.
—„Því er fljótsvarað, Nixon.“
“Ákvörðunin gerhugsuð"
Pétur Sigurðsson forstjóri
Landthelgisgæzlunnar:
„Ég álít að ókvörðun John-
sons sé gerhugsuð og einhver
sú merkasta sem ég hef heyrt
um í líðandi stjórnmálum.
Hvað af þessu leiðir mun
sagan leiða í ljós, en það er
enginn efi á því að þarna hef-
ur mikill stjórnmálamaður tek
ið ákvörðun.
Hvað viðvíkur spá um næsta
forseta Bandaríkjanna álít ég
að engu sé þar hægt að spá
um ennþá, að minnsta kosti
ekki hér heima á íslandi."
„Kennedy er maður nýrrar kyn
slóðar og nýrra hugmynda.“
Ármann Eyjólfsson, skóla-
stjóri Stýrimannaskólans íVest
mannaeyjum.
— Fréttin um ákvörðun John
son, að gefa ekki kost á sér í
haust kom eins og þruma úr
heiðskíru lotfti. Ég hélt satt að
segja lengi vel að þetta væri
djarft aprílgabb fréttastofu út
varpsins, svo óhugsandi fannst
mér ákvörðun forsetans.
Þó að Johnson hafi sætt tals-
verðri gagnrýni, er það óum-
deilanleggt að hann var kjör-
inn til þess að gegna hinu á-
byrgðarmikla starfi forseta af
mjög sterkum meirihluta Banda
rísku þjóðarinnar. Johnson for
seti hefur tekið svo afdrifarík-
ar ákvarðanir um stefnu Banda
ríkjanna í Vietnam að flokks-
menn hans, þar með fulltrúar
mikils hluta þjóðarinnar áttu
kröfu á að segja Johnson sitt
álit á gerðum hans með vali
á forsetaefni Demókrátaflokks
ins í haust. Með þessari ákvörð
un sinni hopar Johnson því áð
ur en á hólminn er komið. Hann
hefði átt að standa eða falla
með verkum sínum,
— í sambandi við 2. spurn-
ingu álít ég að allir friðelsk-
andi menn hljóti að fagna því
af heilum hug að þessum skelfi
legu loftárásum linni. Manni
skildist í fyrstu að þær yrðu
stundarfyrirbæri, sem stæðu að
eins í nokkra daga, en nú hafa
þær staðið látlaust um árabil.
Oft verða almennir borgarar, al
saklausir, börn og gamalmenni
harðast úti í slíkum árásum.
Gangur þessa endalausa stríðs
austur þar hefur líka sýnt og
sannað að hernaðarlegur árang
ur af sprengjukastinu hefur
orðið minni, en ætlunin var.
Friður í Vietnam skiptir öllu
máli.
Þriðju spurningunni vildi ég
svara á þessa leið.
— Ef eitthváð er að marka
þessa menn, þá hljóta þeir að
taka upp viðræður við Banda-
ríkjamenn um frið bg endan-
lega lausn styrjaldarinnar jafn
skjótt og loftárásunum er hætt.
Á því hafa þeir sjálfir þrá-
stagast. Vietnam þjóðin hefur
átt í styrjöldum um árabil og
fólkið er orðið þrúgað af þess
ari styrjaldarplágu. Ef nefnd-
ur Ho Chi Minh vinnur fyrir
Vietnam þjóðina, en um það
stendur víst að nokkru styrr-
inn, hlýtur hann að sanna þann
vilja sinn með því að taka í
útrétta hönd sátta og friðar.
— Ég spái Robert Kennedy
sigri, ef hann verður í kjöri
fyrir Demókrata. Mér finnst
hann, ef svo má segja minn
maður, Hann er maður nýrrar
kynslóðar og nýrra hugmynda
í heiminum. Mér virðist Robert
Kennedy fyrst og fremst líta
á staðreyndir, en ekki hleypi-
dóma. Á sama hátt og Banda-
ríkin munu ekki lifa, sem ríki
og þjóð, skipt í hvítt og svart
eftir kynþáttum, er eigi að held
ur unnt að skipta heiminum í
rautt og hvítt eftir stjórnmál-
um. Mér virðist Robert Kenn-
edy starfa í anda þessa og vera
málsvari lýðræðis og jafnrétt
is manna á meðal. f forseta-
stóli myndi hann óefað fylgja
frjálslyndri, en þó ákveðinni
umbótastefnu, hins látna bróð-
ur síns, John F. Kennedy, og
eins og hann standa með ein-
urð vörð um frelsi Vesturlanda
ef í harðbakka slær. Þessir
kostir Roberts Kennedys af-
saka samt ekki ákvörðun John-
sons, en ef til vill eru þeir
veigamesta orsök þessarar ó-
væntu fréttar frá Hvíta húsinu
„Uppgefinn á þessu brambotli."
Ási í Bæ rithöfundur svar-
aði spurningunum 4 á þessa
leið.
— Ætli að karlinn sé ekki
orðinn uppgefinn á þessu bram
bolti.“
— „Ef hugur fylgir máli, þá
stend ég eindregið með honum.‘
—„ Ef það er staðreynd að
Bandaríkjamenn dragi úr loft
árásum eða hætta þeim að mest
er full ástæða fyrir Ho Chi
Minh að athuga sinn gang vel.“
— „Eins og nú er ástatt í
Bandaríkjunum tel ég miklar
líkur á því að unga fólkið
flykki sér um Robert Kennedy
og geri hann að næsta forseta.“
í hrnkningum í
Oddskarði
TVEIR Reyðlfirðingar, sem stund
að hafa nám 1 Iðnskólanum á
Neskaupstað ætluðu gangandi
fyrir Oddsskarð í fyrrakvöld.
Lentu þeir í vonzikuveðri, kom-
ust í kofa, er Landssíminin á og
gátu hrjngt þaðan á hj'álp og fór
björgunarsveitin á E-kifirði þi.m
til aðstoðar á ýtu og tveimur
jeppum.
Mönnumum var'ð ekkert meint
atf, en þeir vor.u þó fremur illa
klæddir og sízt ti'l gönguferða á
öðrum hæsta fjallavegi landsins.
Björgunarsveitin mun hatfa orðið
að skilja ýtuna etftir og komust
mennirnir til byggða stórslysa-
laust.