Morgunblaðið - 02.04.1968, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1968
23
fæti fyrir Johnson forseta
- en gáfur hans og víðtæk
stjórnmálaþekking eru viður-
kenndar
Lyndon B. Johnson Banda-
ríkjaforseti, verður sextugur
á þessu ári, fæddur 27. ágúst
1908 á búgarði í grennd við
Johnson City í Texas. Hann
ólst upp við lítil efni og tók
ýmis störf í borginni til að
létta undir með foreldrum sín
um, jafnframt því sem hann
stundaði skólanám af kappi.
Úr framhaidsskóia útskrifað
ist Johnson 16 ára gamall og
fór síðan til Kaliforníu, þar
sem hann starfaði um nokk-
urrar ára skeið. Ekki festi
hann yndi þar, en sneri aft-
ur til Johnson City í þeim
ásetningi að læra meira og
hóf nám við Southwest State
kennaraskólann í San Marcos
Hann vann jafnan með nám-
inu - var um skeið húsvörður
síðar sölumaður, en kennara-
prófi lauk hann árið 1930.
Eftir tvö ár í kennarastarfi
bauðst honum staða einkarit-
ara republikanaþingmannsins
Richard Kleberg. Johnson
hafði þá um langt skeið haft
mikinn áhuga á stjórnmálum
og kynnt sér þau eftir föng-
um.
Er Johnson hafði verið rit-
ari Klebergs í fimm ár, losn-
aði þingsæti í Texas og ákvað
hann þá að bjóða sig fram.
Kosningabaráttan var hörð,
en Johnson sigraði glæsilega.
Hann sat í fulltrúadeild Band
aríkjaþings þar til Bandarík-
in sögðu Þýzkalandi og Japan
ístríð á hendur 1941, en þá
varð hann fyrstur þingmanna
til að láta skrá sig í herinn.
Hann var sæmdur heiðurs-
merki fyrir frammistöðu sína
í flugleiðangri yfir Nýju Guin
eu. 1942 tók hann aftur sæti
á þingi, er Roosevelt forseti
skipaði öllum þingmönnum að
snúa heim aftur til embætta
sinna. í fulltrúadeildinni átti
hann sæti til 1948, er hann
var kjörinn í Öldungadeild-
ina. Stjórnmálahæfileikar
Johnsons komu brátt í ljós,
árið 1951 var hann einróma
'kjörinn löggjafarráðunautur
demokrata og hlaut mikla við
urkenningu í starfi fyrir ein-
urð og festu.
Þegar John F. Kennedy var
útnefndur frambjóðandi dem
okrata sumarið 1960 kom mjög
til greina að Lyndon Johnson
yrði valinn. Af 1521 atkv.
þurfti frambjóðandi að hljóta
761 atkv. til að ná kostningu
en þegar við fyrstu atkvæða-
greiðslu hlaut Kennedy til-
skilinn meirihluta og vel það,
806 gtkv., en Johnson var
næstur með 409 atkv. Þau at-
kvæði sem þá voru eftir skipt
ust á níu frambjóðendur aðra.
Kennedy mat Johnson mik
ils og Johnson studdi stefnu
forsetans heilshugar. Hin lang
a reynsla Johnsons af marg-
ra ára starfi í Öldungadeild
inni, og sem leiðtoga demo-
krata í deildinni, varð hon-
um mikils virði í embætti vara
forseta. Hann barðist fyrir
bættum lífsskilyrðum og aukn
um réttindum blökkumanna í
Suðurríkjunum, og beitti öll-
um áhrifum sínum meðal þing
manna til framgangs mann-
réttindafrumvarps Kennedys
forseta. Þessi afstaða bakaði
honum óvinsældir í Suður-
ríkjunum. Var jafnvel haft á
orði, að hann yrði af þessum
sökum að víkja sem varafor-
setaefni demokrata við næstu
forsetakosningar. Hins vegar
var Kennedy því afdráttar-
laust fylgjandi, að Johnson
yrði varaforseti flokksins.
Þegar John F. Kennedy var
myrtur í Dallas, 22. nóvember
1963, sór Johnson embættis-
eið sem 36. forseti Bandaríkj-
ana samdægurs. Fáeinum dög
um síðar birti tímaritið „U.S.
News and World Report“ við
tal við hinn nýja forseta,þar
sem hann gerði í megindrátt-
um grein fyrir skoðunum sín-
um á utanríkis- og innanríkis
málum. Þá sagði Johnsonm.a.:
„ . . Ég vil vera varkár án
þess að vera afturhaldssamur.
Ég fellst á að áðrir séu jafn
miklir föðurlandsvinir og ég.
Ég álít að flestir þeirra hafi
reynslu og dómgreind, ann-
ars hefðu þeir ekki verið
kosnir í þetta starf (þ.e. for-
setaembættið). Ég veit að ég
get haft á röngu að standa.
Ég held að það sem ég geri
sé rétt, annars gerði ég það
ekki . . . . Ég hef mikla trú
á heimspeki spámannsins:
„Komið nú, við skulum rök-
ræða.“ Krúseff þarf ekki að
rökræða við menn: hann get-
ur skotið þá. En okkar stjórn
skipulag er ríkisstjórn sann-
girninnar, eða dómgreindar,
þar sem mannréttindi eru virt
og sérhver getur látið álit sitt
í ljós .... Við ætlumst til
fullkomnunar af forsetanum
og þegar einhverrar ófull-
komnunar gætir, eins og ger-
ast hlýtur njá sérhverjum ein-
staklingi, þá komum við fram
við hann með hörku. Þegar ég
fer flugleiðis yfir borgir og
hugsa um alla þá, sem sitja
heima hjá sér og reiða sig á að
forsetinn taki ákvarðanir, sem
eru viturlegar og réttlátar,
þegar ég hugsa um hvort ljós
in munu loga þar annað kvöld
eða hvort kjarnorkuspreng-
ing afmái þau öll, þá er til-
hugsunin ógnvekjandi."
í forsetakosningunum í nóv
ember 1964 sigraði Johnson
með meiri glæsibrag en nokk-
ur annar forseti í sögu Banda
ríkjanna. Hlaut hann tæplega
42 milljónir atkvæða, en and-
stæðingur hans Öldungadeild-
arþingmaðurinn Barry Gold-
water hlaut um 26 millj. atkv.
Johnson bar sigur úr býtum
í 44 fylkjum Bandaríkjanna
'og hlaut 486 kjörmenn af
538, en Goldwater hlaut að-
eins 52 kjörmenn.
Framan af kjörtímabili sínu
átti Johnson að fagna vin-
sældum almennings í landinu,
Hann beitti sér fyrir ýmsum
umbótum, m.a. sjúkrahjálp til
handa gömlu fólki, þrátt fyr-
ir andstöðu í þingi, en þegar
í byrjun ársins 1965, fór að
halla undan fæti fyrir for-
setanum. Skoðanakannanir,
sem gerðar voru í Bandaríkj-
Johnson forseti kom hingað til
mánuðum áður en John F.
er tekin í lok ræðu, er Johnson
unum með reglubundnu milli
bili sýndu, að fylgi hrundi af
Johnson vegna stefnu stjórn-
arinnar í Vietnam, dýrtíðar
heima fyrir og síðast en ekki
sízt kynþáttaóeirðanna, sem
náðu hámarki sl. sumar. Það
sem gerðist varðandi almenn
ingshylli Johnsons á sér nán-
ast enga hliðstæðu í banda-
rískri sögu. Á tveimur mánuð
um eftir Glassboro-fundinn í
júlí í fyrra stórminnkuðu vin-
sældir hans og skoðanakann-
anirnar sýndu, að einn af
hverjum fimm Bandaríkja—
mönnum hafði snúizt á móti
honum. f september sama ár
voru einungls 39% þjó'ðarinn-
ar samþykk gerðum Johnsons.
Hann varð fyrsti forseti Band
aríkjanna, sem við átti að etja
meiriháttar styrjöld erlendis
og samtímis meiriháttar upp-
reisn heima fyrir.
Að sögn bandaríska tíma-
ritsins Newsweek fór Johnson
þess á leit við ráðgjafa sína
síðla á síðasta ári, að þeir
íslands 16. sept. 1963, tveimur
Kennedy var myrtur. Myndin
hélt í Háskólabíói.
semdu skýrslu um stöðu hans
meðal bandarísks almennings.
Niðurstaðan var í meginatrið
um þessi:
1. Ótrúlegur fjöldi Banda-
ríkjamanna hafa þungar á-
hyggjur af stefnu stjórnarinn
ur í Vietnam og óttast að
Bandaríkin gætu aldrei með
góðu móti farið þaðan aftur.
En þeir höfðu þó meiri á-
hyggjur af verðbólgunni heim
fyTÍr, launum, sköttum og at-
vinnu.
2. Þeir álíta, að forsetinn
segi þeim ekki beinlínis ósatt,
en hann segi þeim aflur á
móti ekki allan sannleikann,
einkanlega varðandi Vietnam.
3. Bandaríkjamenn dást að
persónustyrk forsetans, orku
hans, reynslu og gáfum, þeg-
ar um það er að ræða að leysa
vandamál heima fyrir, en ein-
hvern veginn treysta þeir ekki
Lyndon Johnson og álíta, að
hann sé pólitískur bragðaref-
ur, sem sjálfur vill standa í
miðju sviðsljóssins.
12 lögregluþjónar áttu í gær 25 ára starfsafmæli og gerðu þeir
sér glaðan dag af því tilefni. Mynd þessa tók Sveinn Þormóðsson
af þeim félögum, er þeir hittust i gær, en þeir eru taldir frá v.:
Fremsta röð: Jóhannes Björgvinsson, Páll Eiríksson og Óskar Óla-
son. Önnur röð: Ásmundur Matthíasson, Davíð Hálfdánarson,
Kristinn Óskarsson og Tryggvi Friðiaugsson. Þriðja röð: Leifur
Jónsson, Kjartan Jónsson, Ingibergur Sæmundsson og Skarphéð-
inn Loftsson. Á myndina vantar Þorleif P. Jónsson.
Fundur um
H-umferð
á Hellu
VERZLUNIN Hamborg, sem
verzlar m>eð flestar gerðir bús-
áhalda er nú flutt úr Vestur-
veri að Hafnarstræti eitt.
Mikið úrval af postulini og
stehvt»ui er fáanlegt þarna bæði
dýrt og ódýrt, við flestra hæfi.
Fyrirtækið hefur komizt að hag-
kvæmum innkaupsskilmálum,
og getur því boðið viðskiptavin-
um þessi kjör á þessum varn-
ingi og ýmsu öðru, Húsakynni
þessi eru bjartari og rýmri, en
hin fyrri, og allur varningur því
fljótfundnari en áður.
Úr verzluninni Hamborg í Hafn arstræti.
Verzlunin Homborg
flytur
Hellu, 1. apríl.
FUNDUR umferðairöryggisnafnd
ar í Rangárvallasýslu var hald-
inn að Hvoli síðastliðinn sunnu-
dag. Hannes Hafstein fulltrúi
Slysavarnarfélags íslands ann-
aðist undirbúning fu'ndaifins.
Hann flufcti ræðu og sýndi kvik-
myndir um umferðarmál. Einnlg
mættu á fundinum Kári Jónas-
son, fulltrúi H-nefndarinnar og
Hafsteinn Þorvaldsson, Selfossi,
en hann hefur tekið að sér er-
indrekstur um umf'erðarmál í
Rangárvallasýslu: Margir fund-
armanna töluðu á fundinum og
kom fram mikill álhugi á því, að
umfe'ðarbreytingin 26. maá n.k.
maetti fara sem bezt úr hendi.
— JÞ.
BEZT að auglýsa
í Morgunblaðinu