Morgunblaðið - 02.04.1968, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 196»
eins og hún ætti lágt með and-
ardráttinn.
Nemetz sneri sér að henni.
— Verið þér alveg róleg. Hann
skýtur ekki. Hann er góður,
kristinn maður. Gæti ekki gert
flugu mein og því síður lög-
reglunni. Og alls ekki þegar
hann er algáður.
Bartha haltraði að fataskápn-
um og tók fram Browning-
skammbyssu. sem lá þar ofan á
hrúgu af lökum. Hann gekk til
Nemetz og rétti honum hana, án
þess að segja eitt orð. Nemetz
vafði vasaklút utan um hana og
stakk henni í vasa sinn.
Aður en hann fór, reyndi hann
enn að fá Bartha til að segja
nánar frá því, sem hann hefði
hafzt að á laugardagskvöldið, en
maðurinn fullyrti, að hann gæti
ekkert munað, eftir að komið var
inn í ölstofuna.
Nemetz hafði enga ástæðu til
að efast um, að hann segði satt,
enda þótt þessi þrákelknislega
þögn hans benti til þess, að hann
væri að vinna sér svigrúm. Nem
etz skrifaði niður nöfnin á
'drykkjufélögum hans, og bað
hann koma í skrifstofuna til sín
klukkan tíu næsta morgun.
— Og reynið ekki að svíkjast
um það, því ég læt einhvern af
mínum mönnum hafa auga með
yður, allt þangað til þér eruð
annaðhvort laus undan öllum
grun, eða þá tekinn fastur.
Með þessari kveðju skildi
hann við Bartha. Það var sudda-
rigning er hann lagði af stað
til stöðvarinnar. Nú var ennþá
fleira á götunum en verið hafði
áður. Einstöku matvörubúðir
voru opnar, og langar biðraðir
fyrir framan þær. Sumstaðar
náði röðin alla leið kring um
húsasamstæðuna.
Þegar hann fór framhjá einni
röðinni, heyrðist allt í einu hinn
þungi hávaði af herbílum úr átt-
inni að Rakoczi—breiðgötunni.
Mannfjöldinn í biðröðunum
þagnaði snögglega. Enginn tók
til fótanna, heldur þrýsti fólkið
sér aðeins fastar upp að hús-
veggjunum. Flatti sig upp að
þeim, rétt eins og ætlaði inn í
þá. Svo komu bílarnir fyrir horn
ið, og nú sást, að þetta voru
ungverskir skriðdrekar með göt-
27
ótta fána. Líkastir mávum, sem
hvíla sig á skipsþilfari, húktu
ungir menn og stúlkur á skrið-
drekunum, bak við turninn eða
sátu klofvega á fallbyssunni.
Sumir karlmennirnir voru her-
menn, aðrir stúdentar eða verka
menn, en allir voru mjög ungir,
rjóðir í kinnum og með mikið
hrokkið hár. Nemetz tók eftir
því, að enginn þeirra var sköll-
óttur.
Einhver í biðröðunum hrópaði
T Í ZKU SKÓLI ANDREU
MIDSTRÆTI 7 SÍMI 1 9395
Hér sjáið þér nokkrar af þeim
endurbótum, sem við höfum gert
á J968 árgerðinni af
VW 1300 og VW 1500
En auk þess eru ýmsar a3rar endur-
beetur, lem ekki sjást ó þessari mynd.
I haust hafa verið gerðar fleiri end-
urbætur ó þessum gerðum en nokkru
stnni fyrr.
Fjölmargar þessara endurbófa miðast
við að auka öryggi bílsins. ( þessu
sambandi viljum við nefna t.d. Tvöfalt
bremsukerfi. Dryggisstýrishjól, Drygg-
isstýrisás. Ný aðalljós, sem eru með
lóðróttum Ijós-glerjum. Tveggja hraða
rúðuþurrku. Dryggisspegla bæði úti
og inni. Hærra staðsetta, lengri og
sterkarl fram- og aftur-stuðara.
Við höfum heldur ekki gleymt að
gera bilinn þægilegri. Skemmtileg-
osta nýjungin i þeim efnum, er senni-
lega loftræstikerfið. Þér getið fengið
ferskt loft að vild ððru hvoru megin,
eða beggja megin I bílinn. Aðrar end-
urbætur: — Bóðar hurðir eru nð opn-
anlegar með lykli að utanverðu. Ný
gerð úti-hurðarhúna. Benzfnófylling-
arstútur er f inngreypfu plássi á hægri
hvalbak og smellilok yfir. Og svo er
12 volta rafkerfi f bóðum bessum
gerðum.
Varahluta- og
viðgerðaþjónusta.
Óli minn þú verftur að gegna honum föður þínum jafnvel
þó þér þyki hann eitthvað klikkaður.
einhverja spurningu til ungu
mannanna á skriðdrekunum.
Nemetz skildi ekki svarið, en
hvað sem það var, fór fólkið í
biðröðunum nú að skjálfa, rétt
eins og það hefði orðið fyrir
raflosti. Nokkrir hlógu og klöpp-
uðu, og skerandi kvenrödd tók
að syngja þjóðsönginn. Eftir and
artak höfðu aðrir tekið undir en
falskt og hjáróma, og hefur þessi
alvarlegi söngur víst sjaldan ver
ið sunginn jafnilla. Nemetz stanz
aði og tók ofan. Þegar hann fann
fíngerða regndropa falla niður
á skallann, sem á voru ekki
Tvær stúlkur
vantar í frystihús úti á landi.
Upplysingar í Sjávarafurðadeiid SÍS.
Félag íslenzkra snyrtisérfræðinga
FUNDUR
verður haldinn miðvikudaginn 3. apríl 1968 að
Hótel Sögu kl. 8,30 sídegis.
Fitndarefni: Selrna Hannesdóttir segir frá snyrti-
kennslu í skólum. — Kaffi.
STJÓRNIN.
2. APRÍL.
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl.
Ný \ erkefni hlaðast á þig, en þú ert maður til að sinna þeim
flestum, svo framarlega sem þú færð góða aðstoð á heimiliþínu.
Nautið 20. apríl — 20 maí.
Þú \ erður að vera varkár í umtali um aðra og forðast að
segja og mikið, nema þú vitir fullar sönnur á.
Tvíbuiarnir 21. maí — 20. júní.
Þú ert heldur latur í dag og vinnst ekki mikið. Slappaðu af,
þú hefur unnið prýðilega að undanförnu og átt skilið nokkra
hvíld
Krabhinn 21. júní — 22. júlí.
Þú ert stundum einum of fljótur á þér að auglýsa sjálfan þig
og verk þín og þó r.ð hvort tveggja sé harla gott skaltu ekki
líta of stórt á þig.
Ljómö 23 júlí — 22. agúst.
Þú skalt ekki láta neinn vera í vafa um afstöðu þína í
ókveði u n.áli í framtíðinni. Það er langbezt að hafa þetta allt
á hreinu.
Jómfrúln 23. ágúst — 22. september.
Vertu þolinmóður í dag og leggðu ekki eyru við slúðursögum,
sem þér eru sagðar um vini eða ættingja. Þær eru að öllum lík-
indum einber uppspuni.
Vogin 23. september. — 22. október.
Hugsnnagangur þinn dálítið ójafn og annarlegur i dag. Reyndu
að meta hvert mál á réttsýnan hátt.
Drekinn 23. október — 21. nóvembdr.
Kann að vera að Dúreikningar þínir fari nokkuð úr Skorðum
vegna ineðfæddrar höfðingslundar þinnar. Þú færð það margfald-
lega endurgoldið síðar.
Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember.
Þér bættir til að taka hlutina ékki nógu alvarlega, en skyldir
nú gera bragarbót og rannsaka hvernig málin standa.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar.
Þú skalt gera áæUanir langt fram I tlmann jafnvel fara að
hugsa fyrir sumarleyfinu. Sýndu keppinautum þínum I hyllinni
um hitt kynið umburðarlyndi.
Vatnsberinn 20. janúar — 18 febrúar.
Þú skalt vera á varðbergi í dag og taka engum boðum sem
þér eru gerð, jafnvei þótt þau virðist einkar lokkandi. Skrifaðu
bréf í kvöld.
Fiskainir 19. febrúar — 20. marz.
Þú skalt forgast ailar skemmtanir i dag og einbeita þér að
því að ijúka verkefnum sem beðið hafa afgreiðslu allfof lengi.