Morgunblaðið - 02.04.1968, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1968
- AKVORÐUN
Framh. af bls. 1
ingaviðræðum um frið í Ví-
efnam. Enn hafa stjórnarvöld
í Norður-Víetnam ekkert lát
ið í ljós opinberlega um af-
stöðu sína gagnvart friðartil-
lögum forsetans, en sam-
kvæmt óopinberum heimild-
nra virðist að svo komnu
máli sem þessar tillögur séu
alls ekki fullnægjandi til þess
að stjórnin í Hanoi vilji hefja
samningaviðræður um frið.
I ósfaðfestum fréttum frá
Peking segir einnig, að af-
staða kínverskra valdhafa sé
hin sama. Þá hafa sovézk
stjórnvöld tekið friðartillög-
um Johnsons fálega.
Víðast hvar annars staðar
hefur ákvörðun Johnsons for
seta um að draga úr sprengju
árásum í því skyni að reyna
að koma á friði verið tekið
með fögnuði og fjölmargir
stjórnmálamenn í ýmsum
löndum beita sér nú fyrir því
að koma af stað raunhæfum
friðarsamningum.
Eining ofar framaferli
Hið áhrifamikla blað, The New
York Times, segir í leiðara í dag,
að hin óvænta yfirlýsing John-
sons forseta sé eitt hið áhrifa-
mesta, sem gerzt hafi í nútíma-
sögu bandarískra stjórnmála.
Blaðið segir enn fremur, að
ákvörðun forsetans hafi sýnt
fram á þá miklu önn, sem öll
þjóðin líður vegna sundrungar-
innar, sem styrjöldin í Víetnam
veldur, ástandsins í kynþátta-
málum, sem stöðugt fer versn-
andi og vafasamrar efnahags-
stefnu jafnt út á við sem innan-
lands.
Blaðið heldur því hins vegar
fram, að hinn 59 ára gamli for-
seti kunni að að hafa skipulagt
hlutina þannig, að hann komi til
með að standa frammi fyrir út-
nefningarþingi demokrata í
Chicago 26. ágúst n.k. sem sá, er
komið hafi á friði, og þannig
fengið því áorkað, að hann verði
kjörinn forsetaefni til þess að
eiga kost á því að vinna að síð-
ustu atriðum friðarsamnings,
sem komið verði á.
Blaðið Washington Post segir í
leiðara sínum, að Johnson forseti
SVÍAR, Danir og íslendingar
voru í sérflokki á unglinga-
meistaramóti Norðurlanda, er
fram fór í Tönsberg í Noregi.
Er þaff samróma álit þeirra er
á keppnina horfðu, aff heppni
ein hafi ráðið hvaffa sæti lönd-
in skipuffu endanlega, og þvi
miffur var gæfan ekki hliðhoil
fslendingum sem lentu í þriffja
sæti, eftir aff hafa tapaff leikj-
um gegn Danmörku og Svíþjóff
meff eins og tveggja marka
mun.
Svíar urðu Norffurlandameist-
arar. Gerffu þeir jafntefli viff
Dani í síffasta leik mótsins 11:11,
en höfffu hagstæðara markhlut-
fall 71:46 á móti 55:40 hjá Dön-
um. ,
Skýrt hefur veriff frá leikjum
fslendinga gegn Norffmönnum
og Svíum, en á sunnudag
hafi innt af hendi persónulega
fórn og valið einingu framar eig-
in framferli og stolti. Hann hafi
dregið Víetnamstyrjöldina eins
langt út úr kosningabaráttunni,
eins og unnt var, og baráttan
fyrir forsetakosningarnar fram-
undan gætu nú farið fram með
auðveldari hætti en þjóðin hafði
búizt við.
Stöffvun sprengjuárásanna víffa
fagnaff.
Enda þótt ákvörðun Johnsons
forseta um að gefa ekki aftur
kost á sér til forsetaembættis
hafi vakið mikla athygli utan
Bandaríkjanna, er það þó fyrst
og fremst ákvörðunin um að
draga úr sprengjuárásunum á
Norður-Víetnam, sem mest hefur
verið rætt um og í höfuðborg-
um flestra ríkja, hefur henni ver-
ið tekið með fögnuði.
Utanríkisráðherra Indlands,
B. R. Bhagat skýrði frá því,.að
Indland hefði tekið ákvörðun
Johnsons forseta um að draga úr
hernaðaraðgerðum með fögnuði.
Sagði hann, að Indland, sem
skipar formann alþjóðlegu eftir-
litsnefndarinnar myndi láta í té
samstarf sitt að fullu og öllu.
Frá Tokyo bárust þær fréttir í
kvöld, að japanska stjórnin hefði
beðið Bretland og Sovétríkin,
sem sameiginlega fara með for-
mennsku í Genfarráðstefnunni
um Indókína að hefja að nýju
aðgerðir í því skyni að koma á
friði í Víetnam.
Hin nýja frjálslyndari stjórn
Tékkóslóvakíu tók ákvörðuninni
um að draga úr sprengjuárásun-
um með fögnuði, en stjórnin þar
telur þetta ekki nægilegt skref
sérstaklega með tilliti til ákvörð-
unarinnar um að senda fleiri her-
menn til Víetnam.
Wilson, forsætisráðherra Bret-
lands, hélt í dag fund með nokkr-
um ráðherra sinna um mögu-
leikana á því að koma af stað
friðarumleitunum í Víetnam í
samvinnu við Sovétríkin, en
Bretland og Sovétríkin fóru með
formennsku sameiginlega á
Genfarráðstefnunni um Indókína
1954. Sendi Wilson Kosygin, for-
saetisráðherra Sovétríkjanna, orð
sendingu um að taka þátt í enn
einni tilraun til þess að koma á
friði, en þeir hafa báðir reynt að
koma á samningaviðræðum um
frið nokkrum sinnum áður en
mistekizt.
Michael Stewart utanríkisráð-
herra átti 45 mínútna viðræður
við Mikhail N. Smirnovsky,
kepptu þeir tvo leiki gegn Finn-
um og Dönum.
ÍSLAND — FINNLAND 12:11.
Leikurinn gegn Finnum var
lélegasti leikur piltanna í för-
inni, enda ekki ósennilegt að
þeir hafi ekki beitt sér að fullu,
þar sem á næstu grösum var
erfiður leikur við Dani. Eigi að
síður voru íslendingar sterkari
aðilinn í leiknum allan tímann
og þegar örfáar sekúndur voru
til leiksloka var staðan 12:10
fyrir ísand. Þá var Finnum
dæmt vítakast og skoruðu þeir
úr því og lau-k því leiknum með
sigri íslands 12:11. í hálfleik var
staðan 5:5. Beztu menn í Is-
lenzka liðinu voru: Vilhjáhnur
Sigurgeirsson, Ólafur Jónsson
og Jón H. Karlsson, en beztu
menn Finnanna voru: Allan
sendiherra Sovétríkjanna í Lon-
don, um allar hliðar stefnubreyt-
ingar Johnsons Bandarikjafor-
seta. Lagði Stewart sérstaklega
til, að hann og Gromyko, sem
formenn Genfarráðstefnunnar
skyldu hittast í því skyni að
kalla saman aðallöndin, sem
undirrituðu samkomulagið um
Víetnam 1954.
Fyrstu viðbrögð sovézkra vald
hafa gangvart þessari málaleit-
un voru samt greinilega ekki
uppörvandi og komu fram mikl-
ar efasemdir af sovézkri hálfu
gagnvart framangreindum til-
lögum.
Franska stjórnin reynir nú að
fá vitneskju um viðhorf stjórn-
arinnar í Hanoi gangvart ákvörð
un Johnsons forseta um að
draga úr sprengjuárásunum. Var
þetta haft eftir frönskum em-
bættismönnum í dag, en þeir
sögðu, að enn væri of snemmt að
segja nokkuð fyrir um árangur.
Vitað er, að franska stjórnin
stendur í reglulegu sambandi
við fulltrúa Hanoistjórnarinnar í
París, Mai Van Bo og menningar-
málaráðherra Norður-Víetnams,
Hoang Minh Giam, er nú einnig
í Frakklandi.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum, að sendifulltrúum
Norður-Víetnams í París hafi
verið látinn í té fullkominn
texti friðartillagna Johnsons for-
seta af frönskum embættismönn-
um í því skyni, að þeir sendu
hann áfram áleiðis til Hanoi. Var
haft eftir þessum heimildum, að
Mai Van Bo hafi óskað eftir við
franska utanríkisráðuneytið að
fá fullkominn texta af ræðu
Johnsons, svo að æðstu leiðtogar
Norður-Víetnams gætu kynnt
sér efni hennar rækilega. Var
talið, að það myndu líða að
minnsta kosti þó nokkrir dagar,
unz stjórnin í Hanoi svaraði frið
artillögum Johnsons.
Hin áhrifamikla yfirlýsing
Johnsons forseta um að draga úr
hernaðaraðgerðum í Víetnam
kom stjórnmála- og hernaðarleið
togum í Suður-Víetnam mjög á
óvart. Sagði talsmaður banda-
rísku herstjórnarinnar þar í dag,
að sprengjuárásum á þéttbyggð
svæði í Norður-Víetnam væri
hætt samkvæmt skipun frá
Washington. Bandarísk herskip
hafa einnig hætt að skjóta á
Norður-Víetnam að undanteknu
svæðinu rétt fyrir norðan hlut-
lausa beltið.
Ekki er talið, að Thieu forseti
eða Ky varaforseti hafi verið
Hildeken og Rebbe Burk. Mörk
íslendinganna skoruðu: Jón H.
Karlsson og Ólafur Jónsson 5
hvor, Vilhjálmur Sigurgeirsson
og Björgvin Björgvinsson 1
hvor.
ÍSLAND — DANMÖRK 10:12.
Leikur íslending'a og Dana var
mjög jafn og skemmtilegur frá
uppihaifi til enda. íslendingarnir
sboruðu fyrsta mark leiksins, en
síðan áttu Danir mjög góðan
leikkafla og komust í 4:2; Und-
ir lok hálfleiksins náðu íslend-
ingar að jafna og komast eitt
mark yfir 5:4 og stóð þannig í
hiálfleilk.
Síðari hálfleikur var mjög
spennandi og jafnframt vel leik-
inn. Danir komust í 8:5, en
þegar fáar mínútur voru eftir
af leiknum var staðan orðin
11:10 fyrir Dani. Þá var dæmf
vítakast sem Vilhjálmur Sigur-
geirsson tók, en danski mark-
vörðurinn varði mjög fallega, og
Framh. á bls. 10
samþykkir ákvörðun Johnsons
forseta. Thieu forseti hefur talið,
að sprengjuárásirnar á Norður-
Víetnam væru einn af horn-
steinum styrjaldaraðgerðanna
gegn kommúnistum og sömu
skoðunar eru flestir herforingjar
Suður-Víetnams og Bandaríkj-
anna þar.
Neikvæff afstaða Hanoi.
Aðilar frá Norður-Víetnam í
Peking hafa lýst því yfir, að
þessar síðusu tilraunir Johnsons
forseta í því skyni að koma á
friði, komi ekki til mála sem
grundvöllur fyrir því að finna
lausn á Víetnamstyrjöldinni
Skýrði Peking-fréttaritari jap-
önsku fréttastofunnar Kyodo frá
þessu í dag. Fréttaritarinn skýrði
frá því, að af hálfu Norður-Víet-
nam í höfuðborg Kina væri bent
á það, að bandarískt herlið héldi
áfram árásaraðgerðum sínum í
Víetnam. Var sagt, að enda þótt
þessi sjónarmið yrðu að teljast
óformleg, þá kæmi þar fram af-
staða Norður-Víetnam.
Á það var bent, að forsetinn
hefði ekki minnzt á þær fjórar
forsendur fyrir friði, sem stjórn-
in í Hanoi lagði fram í apríl 1965
en þær eru:
1. Að allt bandarískt herlið
verði flutt á brott frá Suður-Víet
nam, allar bandarískar herbæki-
stöðvar þar verði lagðar niður og
að hernaðarbandlaginu við Suð-
ur-Víetnam verði rift.
2. Á meðan beðið er eftir því,
að báðir hlutar Víetnams sam-
einist að nýju á friðsamlegan
hátt, verða báðir aðilar að hafna
því að taka þátt í hernaðarbanda
lögum.
3. Víetnamska þjóðin verði að
taka ákvarðanir um innri mál-
efni sín án utanaðkomandi af-
skipta.
4. Endursameiningin verði að
fara fram af hálfu vietnamisku
þjóðarinnar án utanaðkomandi
afskipta.
Almennt er haft eftir kínversk-
um heimildum, að möguleikarn-
ir á friði í Víetnam séu víðs
fjarri eftir sem áður, nema því
aðeins að Bandaríkin kalli herlið
sitt á brott frá Víetnam, eftir að
sprengjuárásum er hætt og frið-
arráðstefnu verði komið á.
Er því haldið fram, að sú stað-
reynd, að Johnson hafi kunngjört
þau áform sín að fjölga enn her-
liðinu í Víetnam og neyta enn
frekari heimilda í fjárlögum um
fjárveitingar til styrjaldarinnar
sýni, að því fari fjarri, að dregið
hafi úr styrjaldaraðgerðunum,
heldur hafi þær einungis aukizt.
Hvort sem friðarráðstefnu
verður komið á eða ekki, þá
muni Kína framvegis veita Norð
ur-Víetnam alla aðstoð sína, en
talið er, að nú sé óttast í Peking,
að viðleitni Sovétríkjanna til
þess að fá stjórn Norður-Víet-
nams til þess að koma á friði
muni aukast.
Sovézka fréttastofan TASS
ásakaði Johnson forseta um að
virða enn einu sinni að vettugi
kröfur stjórnar Norður-Víetnams
með því að lýsa aðeins yfir tak-
markaðri stöðvun á sprengju-
árásunum á Norður-Víetnam. í
fyrstu fréttatilkynningu frétta-
stofunnar, þar sem tekin var
fram afstaða til yfirlýsingar
Johnsons forseta, þar sem hann
ságði, að sprengjuárásum yrði
hætt á 9/10 hluta Norður-Víet-
nams, ítrekaði fréttaritari TASS
í Washington, að krafa Norður-
Víetnams væri „algjör og skil-
yrðislaus stöðvun á sprengjuárás
um og öllum styrjaldaraðgerð-
um“ gegn víetnamisku þjóðinni.
TASS segir enn fremur, að það
sé enn erfitt að dæma um, hvort
ákvörðun forsetans um að gefa
ekki kost á sér aftur í forsetaem-
bætti, sé opinber viðurkenning á
því, að stefna Bandaríkjanna í
Víetnam hafi mistekizt, eða hvort
þetta sé bragð fyrir kosningarn-
ar.
Það hafi komið fyrir oftar en
einu sinni, að í stjórnmálabar-
áttu í Bandaríkjunum hafi for-
setinn neitað að gefa kost á sér
til endurkjörs en síðan lagt út í
kosningabaráttuna með enn meiri
krafti en áður.
Þá segir TASS enn fremur, að
á^vörðun Johnsons forseta um
að draga úr sprengjuárásunum
hafi komið í kjölfar nýrra að-
gerða um að auka á árásaraðgerð
irnar. Bendir fréttastofan í þessu
sambandi á fréttir um, að her
Suður-Víetnams verði útbúinn
nýjum vopnum og að 13.500
manna herlið til viðbótar verði
sent til Víetnams. Einnig er bent
á það, að á þessu fjárhagsári sé
veitt 2.500 millj. dollara til við-
bótar við það, sem áður var, til
styrjaldarinnar og 2.600 millj.
dollurum á næsta fjárhagsári.
Þetta bendi tid þess, að Banda-
ríkin hyggist auka á hernaðarað-
gerðir sínar, segir fréttaritari
TASS.
Viffbrögff á Norffurlöndum
— Ég vil skilyrðislaust kalla
ákvörðun Johnsons mjög ánægju
lega, sagði Per Borten, forsætis-
ráðherra Noregs, í viðtali við
NTB-fréttastofuna í dag. Hann
beitir áhrifum sínum í því skyni
að koma á friðarsamningum til
þess að binda enda á styrjöld-
ina í Víetnam. Ég lít á ákvörðun
hans sem ráðstöfun, sem miðar
að þessu takmarki, en það ver'ð-
ur að vona, að hinn styrjaldar-
aðilinn sýni nú sama vilja til
þess að ganga til samningavið-
ræðna, sagði Borten.
Tage Erlander, forsætisráðherra
Sviþjóðar, sagði í dag, að Sví-
þjóð líti á stöðvun sprengju-
árásanna á Norður-Víetnam sem
skref í rétta átt. Sænska stjórn-
in hefði reynt að hafa áhrif á
almenningsálitið í því skyni, að
dregið yrði úr hernaðaraðgerð-
um í styrjöldínni. — Hvort þessi
ákvörðun, sem tekin hefur verið
sé nægileg, er ekki á mínu færi
að dæma um. Það verður verk-
efni stjómarinnar í Hanoi og
Sameinuðu þjóðanna, sagði Erl-
ander. Hann vildi ekkert segja
um ákvörðun Johnsons forseta
um a'ð bjóða sig ekki fram til
forseta að nýju.
Baunsgaard, forsætisráðherra
Danmerkur, sagði að ákvörðun
Jobnsons bæri á sér jrfirbragð
viss persónulegs harmleiks. Varð
andi stöðvun sprengjuárásanna
sagði hann, að vonandi næði
hún tilætluðum árangri. Poul
Hartling utanríkisráðherra sagði,
að fagna bæri hverju skrefi, sem
kynni að leiöa til friðar samn-
inga. Hann vildi ekkert segja
um ákvörðun Johnsons um að
verða ekki aftur í kjöri. — Það
hlýtur að vera ákvörðun, sem
tekin er af persónulegum og
flokkslegum ástæðum, en það er
ef tii vill unnt að skilja hana
á þann veg, að með henni sé
verið að leggja áherslu á, að
Bandaríkin meini það af fullri
einuúð, er þau segjast vera reiðu-
búin til friðarsamninga.
t
NÝR MAÐ'UR, Mieczyslaw Krok
er, hefur nú tekið við forstöðu
pólska sendiráðsins hér eftir
hið skyndilega fráfall Wiktors
Jabccynskis.
Kroker hefur áður d'valið hér
á larvdi sem starfsmaður sendi-
ráðsins og þekkir vel til ís-
lenzkra málefna.
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIOSLA*SKRIFSTOFA
SÍMI 10»100
Heppni réði mestu hvaða land
hlaut Norðurlandameistaratitilinn
*
— Svíþjóð, Danmörk og Island
með mjög jafnsterk lið