Morgunblaðið - 02.04.1968, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 196®
31
- FULBRIGHT
Framhald af bls. 1
andi ,að ákvörðun hans hæri
tilætlaðan árangur.
• Frá Robert Kennedy
heyrðist fyrst síðdegis í dag
er hann hélt fund með frétta-
mönnum í New York og
hyllti forsetann fyrir hug-
riekki og örlæti, er hann
sýndi með ákvörðun sinni.
Hann sagðist hafa sent for-
setanum símskeyti þar sem
hann léti í ljós þá ósk að fá að
hitta hann sem fyrst að máli
um það m.a., hvernig og
hvort þeir gætu í sameiningu
unnið að því að efla þjóðlega
einingu heima fyrir og koma
á friðarviðræðum um Viet-
namdeiluna. Kennedy kvaðst
einnig hafa sagt í símskeyti
sínu, að ákvörðun Johnsons
um að vera ekki í framboði
sýndi, svo ekki yrði um villzt,
að hann setti hagsmuni lands
og þjóðar ofar eigin hag.
• Síðar í dag svaraði John-
son forseti tilboði Kennedys
og kvaðst reiðubúinn að hitta
hann að máli, hvenær sem
honum hentaði.
Kennedy kvaðst vona, að
takmörkun loftárása á Viet-
nam yrði skref í friðarátt.
Aðspurður bvort ákvörðun
Johnsons breytti í einbverju
fyrirætlunum hans sjálfs
svaraði Kennedy „Ég bef haf-
ið þátttöku í kapphlaupinu
og mun halda því áfram“.
Kennedy sagði ennfremur
um þær kosningar, sem nú
stand'a fyrir dyrum, að kosn-
ingabaráttan gæti haft úrslita
þýðingiu fyrir þróun Banda-
ríkjanna á næsta áratug og
stefnu komandi kynslóðar.
Kvaðst hafa sínar ákveðnu
skoðanir urn það, hvermg
fjalla bæri um það mál, en
miestu máli skiipti, að þjóð-
arinnar vegna yrði að binda
enda á valdbeitingu og lög-
leysu, sém valdið hefði vand-
ræðum í landinu. Ennfremur
yrði bandaríska þjóðin að í-
huga og endurskoða afstöðu
sína til þróunarlandanna og
ákveða hvaða framtíðarstefnu
ætti að tafca varðandi kjarn-
orkumálin.
Hinn framlbjóðandi demó-
krata, Eugene McCarthy
rædidi einnig við fréttamenn
í dag um ákvörðun Johns j.ns
forseta og hrósaði honum
mjög fyrir hana. Sagði hann,
að Jolhnson hefði nú rutt
brautina til sátta og einingar
meðal bandarísku þjóðarinn-
ar, — og taldi víst, að það
hefði verið erfiðleikum bund-
ið fyrir forsetann, — mann
sem hefði þjónað þjóð sirni
svo lengi og vel — að taka
þessa átovörðun.
McCarthy sagði jafnframt,
að hún mundi í engu hafa
áhritf á fyrirætlanir ha is.
Hann kvaðst mundu skrifa
forsetanuan bréf í kvöld og
gera honum þar grein fyrir
skoðunum sínum. ' Ekki
kvaðst hann þó ætla að fara
að eins og Kennedy, að æskj^
fundar við bann — sagði, að
það væri forsetans að óska
eftir fundi við sig, ef hann
kærði sig um að ræða v.ð
hánn.
• Nixon og Reagan.
Frambjóðandi republikana-
flokksinis Richard Nixon safði
um ákvörðun Johnsons, for-
seta, að hann vonaði, að hún
bæri tilætlaðan árangur og að
sú ákvörðun hans að tak-
marka loftárásir á Norður-
Vietnam svo mjög, yrði til
góðs. Þó kvaðst hann sjálfur
ekki hafa trú á því, að stöðv-
un loffcárásanna væri spor í
friðarátt — en ef Bandaríkja
stjórn teldi sig hafa t”ygg-
ingu fyrir því að svo væri,
bæri að fagna því. Nixon var-
aði Bandaríkjamenn við því,
að láta leiða sig út í undan-
látssemi í hugsanlegum frið-
arviðræðum við stjórnina í
Norður-Vietnam. Minnti
Nixon á Kóreustyrjöldina í
Þ'ví sambandi og sagði Banda-
ríkjamenn hafa goldið mest
atEhroð þar eftir að friðar-
einhvern tíma sagt, að þegar
barizt væri samhliða þvi að
haldið væri uppi friðarvið-
ræðum, væri hægt að opna
nýjar bardagaleiðir.
Annar framámaður repú-
blikanaflokksins, Ronald
Reagan, ríkisstjóri í Cali-
forniu, krvaðst hafa orðið
fyrir vonbrigðum vegna á-
kvörðunar Joihnsons, forseta,
um að draga úr sókninni 5
Vietnamstyrjöldinni. Taldi
hann einsýnt, að sú stefna
yrði til þess eins, að Banda-
rákjamenn misstu fleiri
menn.
Einnig sagði Reagan, að sú
ákvörðun forsetans, að taka
ekki þátt í kosningabarátt-
unni nú gæti leitt til þess,
að forystumenn republikana
biðu átekta í stað þess að
fylkja sér um Riohard Nixon
þegar í stað.
Þá er loks áð geta um-
mæla George Wallace, Suður
ríkja-demókratans sem einnig
hefur boðið sig fram til for-
setakjörs — en hann taldi á-
kvörðun Johnsons gefa sér
auknar sigurlíkur. Ekki vildi
hann segja álit sitt á ákvörð-
unum forsetans varðandi Viet
nam, kvaðst aldrei hafa átt í
deilum við forsetans vegna
markmiða hans á þeim vet-t-
vangi, þótt þeir væru ósam-
mála um ýmis atriði, en hann
teldi meira máli skipta að
fcoma á f-riði í Vietnam, held-
ur en hver það yrði sem
ieysti málið.
Á blaðamannafundi, er Birgir
Þórhallsson, forstöðumaður SAS
á íslandi' boðaði til í gær, skýrði
hann frá því, að viðstöddum
Hr. Engen, forsitöðumanni upp-
lýsingaþjónuBfcu SAS, J. Maehl,
sölustjóra, og Helge Skjoldager,
sfcöðvarstjóra á Kastrup flug-
velli, að flugferðir SAS til ís-
lands myndu hefjast þann 4.
júní n.k. VerðuT flogið á þriðju
dögum,_en þá daga flýgur Flug-
félag íslands ekki til Kaup-
mannahafnar. Er þetta ákveðið
í samvinnu við Flugfélagið. Verð
ur farið frá Kaupmannahöfn kl.
12:20, með flugvél aí gerðinni
DC-ð, og komið tíl Keflavíkur
kl. 14:20. Þar mun Loftleiðir
Eldur í
félagsheimili
Hellnum, 28. marz.
Á MÁNUDAGSKVÖLDIÐ vildi
það til, að Félagsheimilið Snæfell
í Breiðavíkurhreppi stórskemmd
ist af eldi og reyk. Enginn var
í húsinu er þetta skeði, en það
var hitað upp með olíukyndingu.
Kristgeir Kristinsson á Felli varð
fyrstur eldsins var og gerði hann
húsverði þegar aðvart, þá var
eldur í miðstöðvarklefa og allt
brunnið þar sem brunnið gat.
Tókst þeim fljótlega að slökkva
eldinn. Hurð á milli miðstöðvar-
klefa og veitingastofu hafði
brunnið og fyllzt af reyk og er
það gjörsamlega allt undirlagt af
reykskemmdum, utan eitt her-
bergi, sem slapp. Tjón hefir ekki
verið metið, en það er mjög mik*
ið. Líklegt er talið, að eldsupp-
tök séu út frá miðstöðvarkatli.
— K.K.
PEARL HARBOUR
Framhald af bls. 3
brjósts. Ég veit að mikill
hluti flokksleiðtoganna hér í
Wisconsin hefur sent forset-
anum skeyti, þar sem þeir
hvetja hann til að endurskoða
afstöðu sína.
„Heldurðu að hann kunni
að gera það?“
Ég vildi að ég gæti trúað
að því, en ég er hræddur um
að það sé aðeins óraunveru-
legur draumur". — Annars
veit ég ekki hvað ég á að
segja, ég svaf ekki dúr í nótt
og er enn hálfruglaður af
þessu öllu. Þetfca var ægi-
legt áfall. Johnson, forseti, er
mikilmenni, sem hefur nú sem
ætíð áður sýnt stórkostlegt
hugrekki. Þjóðin þarf á slík-
um manni að halda, meira nú
en nokkru sinni fyrr“.
Aðalstöðvar McCarthys eru
í sömu byggingu og þar var
mikið um að vera. Bjartsýni
og sigurandi lágu í loftinu
og þótt allt starfsfólkið hefði
verið á fótum alla nóttina á-
samt McCarthy sjálfUm, var
ekki að sjá neitt lát á sigur-
vissu þess. Ég hitti frú Midge
Miller, sem veitir forstöðu
kosningabaráttunni í Madi-
son og nágrenni og spurði
hana, hvernig þeim hefði orð-
ið við í gærkveldi. Hún svar-
aði? „Þú hefðir átt að vera
hérna hjá okkur á skrifstof-
unni. Við vorum að fylgjast
með ræðu forsetans í sjón-
varpinu og fannst hann hafa
heldur litið haft að segja, þar
til hann varpaði þessari
sprengju, sagðist ekki ætla í
framboð. Segja má, að allt
hafi farið í háaloft hérna.
Fólkið hljóp hér út á götu,
dansaði og söng og var al-
menn ánægja. Okkur finnst
hér, að sú ákvörðun forset-
ans að draga sig í hlé, sé
fyrsta skrefið i sigri McCarth
ys og málstaðar hans. Okkur
finnst forsetinn með þessu
viðurkenna, að hann hafi gert
mistök og ekkert sé annað fyr
ir hann að gera en fara frá.
Við erum þess fullviss, að Mc
Carthy muni sigra með gífur-
legum meirihluta hér á morg-
un. Og á því byggjum við
okkar lökaistairf“.
Hér eru engar bækistöðvar
fyrir stuðningsmenn Roberts
Kennedys, því að hann er
ekki í framboði hérna fyrir
prófkosningarnar á morgun.
En það sagði mér prófessor
við skólann hérna, sem hefur
mikið samband við forystu-
menn stuðningsmanna Kenn-
edys, að þeir séu að skipu-
leggja „write— in“ atkvæði
fyrir Kennedy — að nafn
hans sé skrifað á kjörseðil-
iun — . Og þeir halda, að
þeim muni takast að ná sam-
an talsverðum fjölda slíkra
atkvæða.
- HÉR RÍKIR
Framhald af bls. 5
ann í tilsvörunum svo vinna
leikinn upp .Það er skemmti-
legt að sjá hvernig Sveinn
vinnur þetta.
Á sviðinu túlkar hver leik-
ari sitt hlutverk. Tesman-
hjónin (Helga Bachmann og
Guðmundur Pálsson) koma
heim úr brúðkaupsferðinni.
Assessor Brack (Jón Sigur-
björnsson) ver þríhyrninginn
á heimilinu, skáldið Ejlert
Lövborg týnir sínu dýrmæta
óútgefna handriti, Tea Elv-
sted opinberar sitt hreina,
tæra hjarta, og fraenkan
(Þóra Borg )og vinnukonan
gamla (Áróra Halldórsdóttir)
snúast af umhyggju kringum
augasteininn sinn, Jörgen Tes
man.
Og Hedda sjálf heldur
dauðahaldi í fegurðina í líf-
inu. Hún neitar að horfa upp
á sjúkdóma og dauða. Gæti
skáldið ekki séð svo um að
skjóta sig fallega! Hvílíkur
léttir það er henni að í
heiminum skuli geta gerzt
eitthvað frjálst og djarfmann-
legt. Eitthvað sem blær feg-
urðar ósjálfrátt leikur um. En
nei, það gengur ekki. Þetta
hlægilega og auðvirðilega
leggst eins og bölvun yfir
allt! Við slíkt líf getur hún
ekki lifað. — E. Pá.
viðræður höfðu' hafizt.
Einnig minnti hann á, að
stjórn Norður-Vietnam hefði
SAS byrjar íslandsflug i fúní
Enn erfiðleikar
hjá Laxárvirkjun
Akureyri, 1. apríl —
AÐSTÆÐUR við Laxárvirkj-
un eru hinar erfiðustu og orku-
framleiðslan eftir því,. Knútur
Otterstedt, rafveitustjóri skýrði
svo frá síðdegis í dag, að gamla
stöðin skilaði mest 5700 kw.
Margt er það sem háir starf-
semi orkuversins. Frá Halldórs-
stöðum og niður á Birnings-
staðaflóa eða á nokkurra km
kafla er mikil klakastífla. Ur
Mývatni renna um 50 rúmmetr-
ar á sekúndu af vatni, en aðeins
rúmlega 40% þess vatnsmagns
skilar sér við orkuverið. ís kemst
í misjafnlega miklu mæli inn á
vélar og því er orkuframleiðsla
I ótrygg og mismikil. Þá hefur
árfarvegurinn stíflazt neðan við
, nýju stöðina. Ofan við þá stíflu
| hefur vatnsborðið hækkað um
nálega 10 metra og er fari'ð að
hafa áhrif á vatnsborð frárenns-
lisskurðar stöðvarinnar. Loks
hefur hið mesta illviðri geisað
eystra, snjókoma mikið frost og
veðurhæð svo að ekkert hefur
verið hægt að aðhafast til að
bæta ástandið.
Þó a'ð dísilstöðin á Akureyri
gangi með fullum afköstum,
| verður að skammta rafmagn á
! veitusvæði Laxárvirkjunar með-
an ekki bregður til batnaðar.
Sv. P. —
Játa&i á sig 30
veskisþjófnaði
— þýfið nam 40-50 þús. kr.
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
handtók fyrir helgi 15 ára dreng,
esem við yfirheyrslu játaði á sig
30 veskisþjófnaði. Hafði hann
milli 40 og 50 þúsund upp úr
þjófnuðunum, en gat ,engu skil-
að af þýfinu.
Að undaruförnu hefur verið ó-
venju mikið um það, að veskj-
um væri stolið úr fötum á vinnu
stöðvum, sérstaklega skrifstof-
um. Grunur lögreglunnar beind-
ist m.a. að þessum dreng og kom
á daginn, að hann var ekki á-
stæðulaus, sem að framan segir.
Drengurinn hafði yfirleitt
fleygt veskjunum og stundum
talsverðum vérðmætuim með,
m.a. einu sinni töluiverðu af
erlendum gjaldeyri. Þýfinu
kvaðst hann hafa eytt í leigu-
bíla, kvikmyndalhús og alls kyns
kaup.
Rannsóknarlögreglan varar
fólk eindregið við að skilja veski
sín við sig á vinnustað og enn-
fremuir hvetur hún fólk til að
fylgjast vel með ferðum ung-
linga, sem koma inn á vinnu-
staði undir alls kyns yfirskini.
annazt alla afgreiðslu fyrir SAS,
Verður síðan farið aftur til
Kaupmannahaifnar kl. 15:30, en
lent þar kl. 19:20.
I beinu sambandi við þessar
flugferðir mun félagið leigja
vélar af DC-'6 gerð, af Fluigfé-
lagi íslands til Narssassuaq á
Grænlandi. Munu þær ferðir
hefjast frá Keflavík á þriðju-
dögum kl. 16:00, og komið verð-
ur til Narssassuaq kl. 16:55, á
þarlendum tíma, og koma til
bafca á miðvilfcudögum kl. 14:30,
til Kefl'aví'kur. SAS farþegar
munu Allir, fluttir frá Reykja-
vífc á veguim Flu*gifélags íslands.
Fargjöld munu verða hin
sömu og með öðrum flugfélög-
um á þessum leiðum. Mun fé-
lagið starfa náið með ferðaskriif-
stofum hérlendis, svo Flugfélag
íslands, og mun verða lögð höfuð
áherzla á það, að kynna ísland
seim ferðamannaland erlendis.
Hyggst félagið gefa út bækling
í maí, um Reykjavík og ná-
grenni, er kallazt „City
portrait", í 100 þúsund eintök-
um og verður bonum dreift víðs
vegar um heim. Einnig mun fé-
lagið kynna landið í öðrum ferða
bæklingum sínum. SAS mun
verða til húsa með starfsemi
sína í nýju verzlunarhúsi Edin-
borgar að Laugavegi 91, og mun
opna þar í júlíbyrjun n.k.
Vandræðaunglingar
undir þynnisáhrifum
LÖGREGLAN hefur nú í
nokkurn tíma þurft að hafa
endurtekin afskipti af hóp 12
til 15 ára drengja, sem hafa
bækistöð í nýbyggingn Iðn-
skólans á Skólavörðuholti.
Hafa drengir þessir valdið
alls kyns vandræðum og oft
þegar að er komið verið und-
ir áhrifum af þynnisgufu, sem
þeir anda að sér. Væta þeir
tuskur í celluloseþynni, sem
þeir kaupa í málningarvöru-
verzlunum, og anda síðan að
sér gufunni, þar til þá fer
að svima. Virðist margt benda
til þess, að þetta sé orðin
þeim nokkur nautn, en þessi
áhrif eru verulega heilsuspill-
andi. Hefur lögreglan fundið
mikið magn af tómum þynnis
brúsum í nýbyggingu Iðnskól
ans og einnig gert þar upp-
tækt nokkuð magn af þynni,
sem drengirnir hafa viðað að
sér. Skýrslur í máli þessu
hafa verið sendar til bama-
verndarnefndar.