Morgunblaðið - 02.04.1968, Page 32
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA'SKRIFSTOFA
SÍMI IQ.IOD
ÞRIÐJUDAGUIt 2. APRIL 1968.
Telja ekki grundvöll
fyrir karfavinnslu
SH hefur skrifað sjávarútvegs-
máEaráðherra út af málinu
í MORGUNBLAÐINU sl. sunnu
dag, var skýrt frá því í útvegs-
þætti Einars Sigurðssonar, „Úr
verinu“, að togarinn Maí hafi
hætt við veiðiferð á Nýfundna-
landsmið sökum þess að frysti-
húsin viiji ekki kaupa karfa til
vinnslu.
Sæmundur Auðunsson, for-
stjóri Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar, sem á togarann Maí,
staðfesti þetta í viðtali við
Morguniblaðið í gær.
Sæmundur sagði, að frystihús
in teldu ekki grundvöll fyrir því
Engin loðnu-
veiði síðustu
sólarhringa
ENGIN loðnuveiði hefur verið
þrjá síðastliðna sólarhringa,
vegna ótíðar. í fyrradag reru
nokkrir hátar frá Reykjavík, en
þeir gátu ekki athafnað sig
vegna leiðindaveðurs og vegna
þess að ísing hlóðst á bátana.
Fyrir þremur sólarhringum
fengu 22 bátar slatta af loðnu út
af Alviðru og lönduðu þeir í
Vestmannaeyjum.
að vinna krafa á því verði, sem
þau verða að greiða fyrir hann,
þ.e. kr. 4.76 pr. kg. Sagði hann.
að verðið í fyrra hefðá verið kr.
401 auk 11% uppbótar Nú
greiddi hið opinbera engar upp-
bætur og því yrðu frystihúsin
að taka á sig þessa 75 aura hækk
un á kg
Morgunblaðið sneri sér í gær
til Guðmundar Garðarssonar,
blaðafulltrúa SH, og spurðist fyr
ir um erfiðleikana í karfavinnslu
í frystihúsunum.
Guðmundur sagði, að samtök
in hefðu gert sér grein fyrir, að
ekki væri vinnslugrundvöllutr á
karfa í frystingu og því hefðu
þau í bréfi dagsettu 21. marz
sl .snúið sér til sjávarútvegsméla
ráðihenra, þar sem m.a. sé skýrt
frá því, að ekki sé rekstrargrund
völlur fyrir hendi til að vinna
kafa í hraðfrystibúsum hér.
Sagði Guðmundur, að samtök
in teldu brýna nauðsyn bera til
að gripið verði til ráðstafana,
sem geri karfafrystingu kleifa.
Guðmundur Garðarsson sagði
að lokum, að þess væri að vænta
að svar bærist hið fyrsta frá sjáv
arútvegsmálaráðfaerra um, hvað
unnt sé að gera í þessum efn-
um.
Stjórnorfrumvarp á Alþingi:
Hafís fyrir öllu
IMorðurlandi í gær
Fyrstu hafísjakarnir við Oddeyrartanga
á Akureyri í gœrkvöldi — Húsvíkingar
reyna að verja höfn sína
MIKILL hafís er nú á hraðri
ferð að landi og er ísinn víða
Sjórinn milli ísspanganna er
jafnframt að frjósa og verður þá
orðinn mjög þéttur, allt að 9/10. samfelld ísspöng með nær öllu
Norðurlandi, allt frá Horni að
Tjörnesi. Siglingaleið er nú mjög
ógreiðfær í björtu og ófær í
myrkri. Inn á Skjálfanda hef-
ur rekið mikinn ís, meira magn
en ísárið 1955. Fyrir Suðurlandi
er mikil hrímþoka, er Vest-
manneyingar nefna frostharða.
Myndast hann vegna uppgufun-
ar ur sjonum, og í gærmorgun
: er bátar reru mátti aðeins greina
siglutoppa þeirra upp úr frost-
harðinum.
Vegasjóðí aflab fjár til stór-
aukínna hraðbrautaframkvæmda
— Benzínverð hœkkað, og einnig gúm-
gjald og þungaskattur
— jafnframt verði tekin erlend lán
ætlanir um bifreiðaf jölda og ben
zínnotkun, sem tekjuáætlanir í
vegaáætlun eru byggðar á.
I Af þessu er augljóst að tals-
vert fé verður til ráðstöfunar
til hraðbrauta og annarra vega-
framkvæmda á árinu 1969, sér-
staklega með tilliti til þess, að
gert er ráð fyrir að jafnframt
verði tekin lán til umræddra
framkvæmda allt að 40%.
Framhald á bls. 14
Landhelgisgæzlan fór í ískönn
unarflug í gær og fékk Mbl. eft-
irfarandi lýsingu á ferðinni með
strönd landsins.
„Mánudaginn 1. apríl 1968 fór
TF SIF í ískönnunarflug. ís að
þéttleika 1—3/10 er um 12 sjm.
: vestur af Kópanesi og 14 sjm.
' vestur af Deild, en þar þéttist
j ísinn og liggur ísbrúnin, 4—6/10,
; upp að Straumnesi og austur fyr
1 ir Kögur. Frá Kögri er mjög
j þéttur ís 7—9/10, sem liggur á
öllu Strandagrunni. fsinn frá
Straumnesi að Óðinsboða er víð
ast samfrosta og er sjóinn að
leggja í vökum á þeirri leið. ís-
eyjar og ísrastir ná mjög langt
Framhald á bls. 17
til framkvœmdanna
Ríkisstjórnin heíur lagt frám
á Alþingi frumvarp um breyt-
ingu á vegalögum frá 1963. Ger-
ir frumvarpið ráð fyrir aukn-
ingu á tekjuöflun til vegasjóðs,
með það markmið fyrir augum
að kleift verði að ráðgast í gerð
hraðbrauta á næstu árum, auk
þess að afla fjár vegna umfram-
Umslag með
12 þús. kr.
tapast
KONA, sem ber út Morgunblað-
ið, varð fyrir því óhappi að
tapa brúnu umslagi með rúm-
lega 12 þús. krónum. Peningun-
•um tapaði hún milli Sólheima
og Álfheima s.l. laugardag.
Skilvis finnandi er vinsamlega
beðinn um að hafa samband við
skrifstofu Mbl.
greiðslna á árinu 1967.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
tekna verði aflað á þann hátt
að innflutningsgjald á benzíni
verði hækkað, og mun hækkun
in svara til rúml. 1 kr. pr. líter,
svo og verður hækkað innflutn-
ingsgjald á benzíni verði hækk-
að, og mun hækkunin svara til
rúml. 1 kr. pr. líter, svo og
verður hækkað innflutnings-
gjald af hjólbörðum og einnig
verði þungaskattur bifreiða
hækkaður um 50%. afnframt er
gert ráð fyrir að heimilt verði
að leyfa að setja ökumæla í bif-
reiðar og greiða þungaskattinn í
samræmi við akstursvegalengd.
Er áætlað að tekjuauki ríkis-
sjóðs muni verða 109 millj. kr.
á þessu ári, ef þeirri upphæð
gefi hækkun á benzínskatti 43
millj.kr., og hækkun gúmígjalds
26 millj. kr., og hækkun þunga-
skatts 40 millj. kr. Árið 1969
myndi tekjuauki vegna hinna
nýju ákvæða verða samtals um
157 millj. kr. miðað við þær á- I
IMefnd rannsaki
hafíshættuna
þingsályktunartil. 18 þingmanna
18 ALÞINGISMENN úr öllum
stjórnmálaflokkum hafa lagt
fram þingályktunartillögu um
ráðstafanir vegn hafíshættu. Er
tillagan svohljóðandi: Alþingi á-
lyktar að kjósa 5 manna nefnd
til að athuga, hvaða ráðstafanir
séu nauðsynlegar til að koma í
veg fyrir, að skortur verffi á olíu,
kjarnfóðri og öðrum brýnustu
nauðsynjavörum, þegar ís leggst
að landi og siglingar teppast með
ströndum fram af þeim sökum.
Nefndin velur sér formann.
Alþingismennimir sem flytja l
tillöguna eru Stefán Valgeirsson,
Jónas G. Rafnar, Vil'hjálmur
Hjálmarsson, Jónas Pétursson,
Bjarni Guðbjörnsson, Matthias
Bjairnason, Sigurvin Einarsson,
Gunnar Gíslason, Björn Pálsson,
Björn Jónsson, Eyjólfur Konráð
Jónsson, Ólafur Jóhannesson,
Lúðvík Jósefsson, Páll Þorsteins-
son, Jón Þorsteinsson, Ingvar
Gíslason, Eysteinn Jónsson og
Gísli Guðmudsson. SegÍT í grein-
argerð þeirra að þeir líti svo á,
að ólhjákvæmilegt sé, að athug-
að verði, hvaða ráðstafanir þurfi
að gera til að koma í veg fyrir,
að á verzlunarstöðuim í þeim
landslhl'utum, þar sem hafísihætta
er mest, verði skortur á brýn-
ustu nauðsynjavörum, ef ís
i leggst að landi og siglingar tepp-
I asit með ströndum fram, og er
þá einkum átt við kjarnfóðU'r
og olíu. Benda má á, að sums
staðar þyrftu olíugeymar að
vera stærri en þeir nú eru, ef
þar á að vera hægt að safna
nau ðsy n 1 egum olíutoir gðum.
Nefndarskipun sú, sem gert er
ráð fyrÍT í til’lögunni, er til þess
ætluð að undirbúa þær öryggis-
framkvæmdir, sem hér er ,'ætt
um.