Morgunblaðið - 04.04.1968, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. APRtL 198*
Fjársöfnun til byggingar nýs
Færeyingaheimilis hér
Á BLAÐAMANNAFUNDI, er | auk lítillegs opinbers styrks þar-
biskup íslands boðaði til í gaer, (lendis.
var staddur Jóhann Ólsen for-
J. Olsen, forstöffumaður.
stöðumaður Færeyingaheimilis-
ins í Reykjavík, að Skúlagötu 18.
Heimilið er styrkt af sjálfboða-
starfi og framlögum í Færeyjum,
- HO
Frarrnhald af bls. 1
gaumgæf lega verið rannsakað-
uir.
Varaforseti Bandaríkjanna
Hubert Humphrey hitti Johnson
að máli eftir fund þeirra Kenn-
edys.
Stjórnmálamenn í Washington
segja, að ekki virðist mikll
munur á Hanoi-yfiirlýsingunni
og afstöðu Bandaríkjastjórnar
til samningaviðræðna, sem John
son og utanríkisráðherrann, De-
an Rusk, hafa hvað eftir annað
gert grein fyrir. Viðbrögð meðal
Öldungardeildarþingmanna voru
yfirleitt mjög jákvæð, og létu
flestir þeirra í ljós gleði sína
Einstöku þingmaður sagði þó:
„Stríðinu er ekki lokið ennþá.-1
Talið er í Washington, að yfir-
lýsing Hanoi muni verða til þess
að auka stórlega álit Johnsons
forseta.
Friffartilraunir.
Bandaríkin hafa rúmlega 30
sinnum boðið fulltrúum Hanoi-
stjórnairinnar að samningaborð-
inu síðan 1984. Öllum þessum
boðum var vísað á bug. Hins
vegar hefur Hanoi oft lýst því
yfir ,að N-Vietnamar væru reiðu
búnir að hefja samningaviðræð
ur en þá ætíð með óaðgengileg-
um skiiyrðum fyrir Bandaríkja-
menn.
Hinn 10. apríl 1965 samþykkti
þingið í N-Vietnam ályktun,
Matreiðslan er auðveld
og bragðið ljúffengt
ROYAL
SKYNDIBÚOINGUR
Þetta heimili hefur verið starf-
andi hér síðan 1961. Færeyingar
hafa samskonar heimili starfand''
víðar, svo sem 2 í Grærilandi
mörg í Faereyjum, og í samvinnu
við Skandinava í Grimsby.
Þar sem þetta hús fellur ekkj
inn í framtíðarskipulag Reykja-
víkurborgar, mun á næstu ár-
um koma að því, að hús þetta
verði að víkja, og eru því for-
stöðumennirnir farnir að hyggja
á það, að leita lóðar undir nýtt
heimili, er byggja skal. Því ei
þó þannig farið, að þær lóðir, ei
haganlegast mun þykja fyrir
slíka starfsemi, eða í nágrenni
við höfnina, munu yfirleitt ver?
eignarlóðir, eða þá óhemju dýr
ar, eða þá hvorttveggja í senn.
Bæjaryfirvöldin hafa tjáð for-
stöðumönnunum, að þau séu fyr-
ir sitt leyti hlynnt byggingu sjó-
mannaheimilis.
Sjómannastofan hér hefur
yfirleitt starfað fjóra mánuði
ársins, eða frá janúar fram í maí
í stjórn starfseminnar í Færeyj-
um eiga sæti 10 manns, og standa
auk þess að henni sextíu kven-
félög. Til fjáröflunar hafa þau
sem fól í sér fjögur atriði, sem
mótaðilinn varð að ganga að,
ef hann vildi frið. Staðhæfði
Hanoi-stjórnin að þau væru i
samræmi við Genfar-sáttmálann
um Indó-Kína, en þau eru þessi:
1. Hernaðarbandalög og er-
lendir hermenn verði útlæg er
sunnan og norðan 17. breiddar-
baugs, er skiptir landinu.
2. Viðurkennt yrði sjálfstæði
Vietnam, sjálfstæði þess, eining
og Bandaríkjamenn yrðu að
hverfa frá Vietnam fyrir full'
og allt og hætta árásum gegn
N-Vietnam.
3. Pólitísk vandamél í innan-
ríkismálum S-Vietnama yrðu að
leysast af s-vietnömsku þjóðinni
í samræmi við samþykkt Þjóð-
frelsisfylkingarinnar.
4. Friðsamleg sameining viet-
nömsku þjóðarinar yrði sam-
kvæmd af þjóðinni sjálfri án I-
hlutunar útlendinga.
Viffbrögff um allan heim.
Aðalframkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, U Thant, sagði
í dag, að það væri með mikilli
gleði, sem hann tæki á móti
fregnunum frá Hanoi og lét í
ljós þá von, að hér væri um að
ræða fyrsta jékvæða skrefið í
átt til friðarsamninga í því
stríðsihrjáða landi, Vietnam. U
Thant kvaðst einnig mjög ánægð
ur með frumkvæði -Johnsons
forseta að slíkum samningum.
Frá London var tilkynnt, að
I
M CB I I S 1/7, liter al. kaldri
miólk oq hellió 1 skál
Blandið innihaldi pakk-
ans saman við og þeyt-
ið i eina mínútu —
Bragðtequndir —
Súkkulaðí
Karamellu
Vanillu
larðarberta
,/
samskotbauk og bazara. Og fyrir
utan sjómannaheimilin, sem
starfa sem samkomustaðir fyrir
sjómenn og Færeyinga og gesti
þeirra, lesstofur, skrifstofu og
annast póstinn til sjómannanna,
annast félagsskapurinn ýmiskon-
ar þjónustu við sjómenn um
borð í skipum, og senda þeim
jólapakka um borð til glaðnings
fyrir þá. Kvaðst Jóhann Ólsen
oft hafa heimsótt íslenzka sjó-
menn um borð í skipum í Grims-
by, og sömuleiðis hefðu þeir
heimsótt sjómannaheimilið tals-
vert, sem Skandinavar reka þar.
Á árinu 1967, kvað Ólsen, að
safnazt hefðu eitt hundrað og
sextíu þúsund í byggingarsjóð-
inn hérna, en betur mætti auð-
vitað gera, ef átakið ætti að duga
til byggingar heils húss. Hann
sagðist vera viðlátinn í Færeyska
sjómannaheimilinu að Skúlagötu
18, til 20. maí, og veita móttöku
öllu því, sem fólk kynni að vilja
láta af hendi rakna til að styðja
starfsemina. Sími þar er 12707.
Er hann fer af landi brbtt mun
Jens Pétursson í síma 37207 veita
allar upplýsingar um málið.
Biskup íslands, herra Sigur-
björn Einarsson, kvað það bæði
sjálfsagt og drengilegt að styðja
þessa frændþjóð okkar, sem
þetta framtak hefði sýnt, og
kvað hann Biskupsskrifstofuna
fúslega veita móttöku öllum
gjöfum til þeirra, og eins kvaðst
hann þess fullviss, að allir prest-
ar á landinu myndu taka það að
sér að taka á móti framlögum og
annast það, að koma þeim til
skila til. biskupsembættisins.
A sunnudagssamkomu í Fære yingaheimili. (Ljósm.: Kristinn Benediktsson).
brezka stjórnin hefði lýst yfir I
ánægju tiiboðinu frá Hanoi, og
sagði Wúson forsætisráðherra,
að hann vonaði að brátt feng-
izt réttlát og varanleg lausn á
þessu ægilega vandaméli.
Fregnin var borin brezku
stjórninni, er hún beið eftir
Michael Stewarts, utanríkisráð-
herra, þess efnis, að hann fengi
að hitta að máli utanríkisráð-
herra Sovétríkj anna, Andrei
Gromyko, til að ræða um nýja
Genfar-ráðstefnu um Vietnam.
Sovétríkin og Bretland deildu
með sér formannssætinu á Gen-
far-ráðstefnunni um Indó-Kína
árið 1954.
Heimildir innan Vatikansins
herma, að Páll páfi álíti gagn-
kvæm tilboð Bandaríkjanna fyí
iir þremur dögum og Hanoi
stjórnarinnar nú geta haft úr-
slitaáhrif um þróun mála í Viet-
nam og telji þau hin athyglis-
verðustu.
Paul Martin, utanríkisráðherra
Kanada, sagði í dag, að tilboð
Hanoi hefði verið fagnað í Ott-
awa, og væri Kanadastjórn enn
sem áður re ðubúin til að taka
þátt í friðarráðstefnu um Viet-
nam.
Svissneska stjórnin hefur
sömuleiðis tjáð si'g reiðubúna ti'
að taka að sér málamiðlun í Vi-
etnam og kvað ekkert því til fyr-
irstöðu að funduir bandarískra
og n-vietnamskra fulltrúa færi
fram í Sviss.
Fregnir höfðu ekki borizt um
viðbrögð ráðamanna í Kreml
við tilboði Hanoi, en stjóirnmála
menn telja, að þau verði já-
kvæð. Izvestija, málgagn sov-
ézku stjórnarinnar, segir að um-
mæli Johnsons um takmarkað-
ar loftárásir á N-Vietnam væru
markleysa, eins og allt sem frá
þeim manni kæmi. Izvestja var
komið út, er fregnin barst um
tilboðið frá Hanoi. í París var
því lýst yfir, að de Gaulle teldi
ákvörðun Johnsons um að tak-
marka joftárásirnar bera vitni
um skynsemi og pólitískt hug-
rekki.
Síffustu fréttir.
Johnson forseti lýsti því yfir
síffla kvölds, aff stjórn sín
myndi við fyrsta tækifæri hafa
samband við stjórn N-Vietnams
og ræffa undirbúning aff friffar-
ráffstefnu. Sagði Johnson í sjón-
varpsræffu, er hann hélt í kvöld,
að hann hyggffist fara flugleið-
is til Hawaii á morgun, fimmtu-
dag, til viffræðna viff bandaríska
embættismenn ,sem aðsetur hafa
í Saigon. Þá sagffi hann, aff ráff-
gjafar Bandaríkjastjórnar héldu
nú fundi með bandamönnum
Bandarikjanna í Vietnam.
- MASERYK
Framhald af bls. 1
ið birtar á prenti í Tékkósló-
vakíu fyrr en nú.
Svitak prófessor krafðist
þess í grein sinni, að dauði
Masaryks yrði rannsakaður.
í kvöld tilkynnti settur rík-
issaksóknari Tékkóslóvakíu
að hafin væri ný rannsókn á
dauða Jan Masaryks vegna
greinar Ivan Svitaks prófess-
ors. í greininni staðhæfði
Svitak að starfsmenn leyni-
þjónustunnar í Tékkóslóvakíu
hefðu myrt Masaryk og haft
samvinnu við sovézku leyni-
lögregluna.
Ríkissaksóknaranum í Prag
barst í dag fjöldi bréfa þar
sem þess er krafizt að mál
verið höfðað á hendur lög-
fræðingum sem áttu þátt í
sýndarréttarhöldum i tíð fyrr-
verandi stjórnar. Saksóknar-
inn sagði í dag, að hvert ein-
stakt mál yrði rannsakað
gaumgæfilega og viðeigandi
ráðstafanir gerðar.
- VARAÐ
FramhaLd af bls. 1
þjóðfélaginu og þar sé herinn
engin undirtekning. Hér sé um
alls konar fjandsamleg öfl að
ræða, meðal annars zíonista.
Blaðið segir að fjórir Pólverj-
ar, sem flúið hafi til Vestur-
landa nýlega, hafi verið zíónistar
og gegnt mikilvægum embættum
í hernum, öryggislögreglunni og
leyniþjónustunni. Blaðið minnir
á réttarhöld, sem fram fóru í
Szczezin (Stettin) í febrúar, en
þá hafi Vestur-Þjóðverji og Pól-
verji verið dæmdir til langrar
fangelsisvistar fyrir stunda
andpólska starfsemi í skjóli em-
bæta er þeir hafi gegnt í vestur-
þýzkum trúfélögum.
Blaðið segir, að árvekni jafn-
gildi ekki taugaóstyrk, hgldur að
gripið verði til örugrra gagn-
ráðstafana á réttum stað og
tíma og að vinna verði heiðarlegt
og markvisst pólitískt starf í öll-
um stéttum þjóðfélagsins og þar
sé herinn meðtalinn. Við hlið-
ina á þessari grein er birt frétt
um víðtæk mannaskipti í æðstu
stjórn pólska hersins. Þrír hers-
höfðingar eru fluttir úr yfir-
mannsstöðum í skrifstofuem-
bætti.
UNGMENNAFÉLAGIÐ ^ Skalla-
grímur og Lionsklúbbúrinn í
Borgarnesi hafa að undanförnu
sýnt sjónleikinn „Sláturhúsið
Hraðar hendur“ eftir Hilmi
Jóhannesson í Borgarnesi og
eru sýningar orðnar 11. Aðsókn
hefur verið góð og einnig hafa
leikfélög víða um land reynt að
falast eftir sýningarrétti á sjón-
leiknum.
Mánudaginn 8. apríl verður
sjónleikurinn sýndur í Bíóhöll-
inni á Akranesi. Pöntunum á
miðum er veitt móttaka þar,
en síðasta sýning á þessum gam
anleik verður næstkomandi
miðvikudag í Borgarnesi.
Ágóða þess kvölds verður varið
til styrktar sjóslysasöfnuninni.
Á myndinni sem hér fylgir .eru
leikendur í „SLátuirhiúsinu
Hraðar hendur“ og höfundur
og leikstjóri, Hilmir Jóhannes-
son, en hann er lengst til vinstri
á myndinni.