Morgunblaðið - 06.04.1968, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1968
3
Tíu tilbrlgði í Lindarbæ
LEIKFLOKKUR Litla sviSsins í
Lindarbæ frumsýnir á morgun
leikritið Tiu tilbrigði eft-
ir Odd Björnsson. Leikstjóri er
Brynja Benediktsdóttir, og er
þetta þriðja leikritið sem hún
stjórnar — hinn fyrri voru: Ég
er afi minn eftir Magnús Jóns-
son og Ætlar blessuð manneskj-
an að gefa upp andann eftir Thor
Vilhjálmsson. Tónefekta hefur
Leifur Þórarinsson, tónskáld,
gert.
í Tíu tilbrigðum koma fyrir
ungt tónskáld, „séníið“, sem Sig-
urður Skúlason leikur, litla, fal-
lega konan hans, sem Margrét
Jóhannsdóttir leikur og mamm-
an, afturgengin, og hana leikur
Auður Guðmundsdóttir. Leikrit
þetta er nú leikið í fyrsta sinn,
en áður hafa menntaskólanemar
lesið það upp.
Eftir Odd Björnsson hafa ver-
ið sýnd þessi verk: Partý, Við
lestur framhaldssögunnar,
Köngulóin, Amalía, Jóðlíf, Ein-
kennilegur maður, Hornakórall-
inn og barnaleikritið Snjókarl-
inn okkar.
Brynja stjórnar ekki aðeins
þessu leikriti, heldur hefur hún
einnig átt hugmyndir að búning-
um og leikmynd. f leikritinu er
mjög fjölbreytt ljósabeiting, en
ljósameistari er Kristinn Daníels
son.
Tíu tilbrigði er þriðja verk-
efni Leikflokks Litia sviðsins.
Hin voru: Fyrst einþáttungarnir
Yfirborð og Dauði Bessie Smith
og síðan Billý lygari, sem var
sýndur 17 sinnum, að jafnaði fyr
ir fullu húsi. Leikflokkur Litla
sviðsins í Lindarbæ er í tengsl-
um við Þjóðleikhúsið, m.a. á
þann hátt, að Þjóðleikhúsið sér
honum fyrir leikstjóra, sviðsmun
um, æfingaplássi og öðrum nauð
synjum meðan á æfingum stend-
ur. Frá og með frumsýningu sér
flokkurinn sjálfur um rekstur
Litla sviðsins. Stjórn leikflokks-
ins skipa nú: Guðrún Guðlaugs-
dóttir, Sigrún Björnsdóttir, Jón
Gunnarsson og Ketill Larsen. —
Við hittum Odd Björnsson að
segja okkur frá leikritinu.
„Það er orðið nokkuð langt síð
an að ég byrjaði á þessu lei'k-
riti, enda þótt það sé það nýj-
asta, sem ég læt frá mér fara.
'É>g hef farið mér hægt, unnið
það í áföngum og oft með öðr-
um verkum. Erfitt er að lýsa
efni þessa leikrits, þó býst ég
við að það flokkist undir „ab-
súrd“-leikhús, þó að ég líti allt-
af á leikrit mín sem eins konar
realisma.
Ef til vill má segja, að það
fjalli öðru fremur um „egois-
mann“ hjá öllum aðilunum og
kemur hann fyrir í ýmsum til-
brigðum. Leikritið er í 10 at-
riðum, eins og nafn þess bend-
ir reyndar til. Þegar ég skrifa
styttri leiki, eins og þennan, vak
ir alltaf fyrir mér að taka mögu
leika sviðsins með í reikning-
inn, lei'kritin eru eins konar rit
gerðir af minni hálfu um „tíhe-
ater“. Þess vegna eru ýmiss
konar „effektar" notaðir ekki
gegna þeir veigmiklu hlutverki
í heildarbyggingu verksins. Hef
ég þar notið ágætrar aðstoðar
Leifs Þórarinssonar. En með
þessu móti leitast ég við, að
gera öllum skynfærunum jafn
hátt undir höfuð. Þá hietf ég
líka lagt meira í samtödin núna,
Brynja Benediklsdóttir
leikstjóri
en ég er vanur, og leik mér
reyndar svolítið í sambandi við
þau.“
Þess má að lokum geta, að
í tilefni þessarar sýningar verð
ur gefin út bók með texta leik
ritsins, bæði á íslenzku og í
enskri þýðingu ásamt myndum
úr leiksýningunni. Bókin verð-
ur aðeins fáanleg á sýningun-
um í Lindarbæ, en þær verða
fáar. Er þetta algjör nýjung hér
lendis. Eintök af bókinni verða
tölusett.
Mamma gamla, afturgengin, lAuður Guðmundsdóttir) er
mætt til kvöidverðar hjá ungu hjónunum. f leikriti þessu
fjallar Oddur Björnsson öðru fremur um sjálfselskuna, og
kemur hún fyrir í Tíu tilbrigðum.
Lúðvík, tónskáidið og seníið, ( Sigurður Skúlason) og Málfríð-
ur, eiginkona hans, (Margrét Helga Jóhannsdóttir).
Fóstbræöur syngja þrjú kvöld
f BYRJUN næstu viku etfnir
Karlakórinn Fóstlbræður til
þriggja söngs'kemtana í Austur-
bæjarbíói í Reykjavík fyrir
styrktarfélaga kórsins. Verða
samisöngvar þesir á miánudag
þann 8., þriðjudag 9. og miðvku-
dag 10. apríl og hefjast kl. 7:15
alla dagana.
Raunar höfðu samsöngvarnir
upþhatflega verið átformaðir
hálfri annarri viku fyrr og að-
gönguskírteini dagsett sam-
Jovæmt því. 9kal þessvegna vak-
in sérstök athygli á því, að að-
göngumiðar með dagsetningunni
27. marz gilda nú 8. apríl, 28.
marz breytist í 9. apríl og 30.
marz verður 10. apríl. Að öðru
leyti vísast í brétf, sem styrktar-
félögum kórSins hefur áður ver-
ið slkrifað um þetta etfni.
Þjóðlög frá ýmsum löndum
Bingó ó ísoiirði
Sjáltfstæðisfélögin á f'satfirði
gangast fyrir bingói í Sjálfstæð-
iishúsinu þar sunnudaginn 7.
apríl M. 17. Meðal vinninga er
5 þúsund króna vöruúttekt.
setja mjög svip sinn á söng-
skrá Fóstbræðra að þessu sinni,
m.a. er þar syrpa af íslenzkum
rímnalögum, er söngstjórinn,
Ragnar Björnsson ,hetfur fært í
búning fyrir karlakór, og nú
verður tflutft í fyrsta sinn. Þá
eru sýnishorn atf norrænum kór-
lögum, sungin verða ungversk
þjóðlög í kórbúningi etftir Béla
Bartók, svo og fjögur brezk lög.
Efnisskránni lýlkur með fjórum
ástarljóðum úr flokknum „Lie-
beslieder“ op. 52 etftir J. Brahm-s.
Stjórnandi Karlakórsins Fóst-
bræðra er Ragnar Björnsson.
Einsöngvari m'eð kórnum að
þessu sinni er frú Margrét Egg-
ertsdóittir, en nokkrir kórfélaga
koma einnig fram í einsöngshlut
verkum. Píanóleiikarar með kórn
um eru Guðrún Kristinsdóttir
og Ólafur Vignir Albertsson.
Þetta er 52. stfartfsiár Fóst-
bræðra og er kórinn nú skip-
aður 45 söngmönnum.
Karlakórinn Fóstbræður og söngstjórinn, Ragnar Björnsson. Myndin er tekin á æfingu í fyrradag.
8TAKSTEII\IAR
V ísitöluákvæði
íbúðarlána
Ríkisstjórnin hefur nú lagt
fram á Alþingi frumvarp, sem
felur í sér hagsbætur fyrir lán-
takendur Húsnæðismálastjómar,
þar sem vísitöluákvæðum lána
Húsnæðismálastjórnar er breytt
nokkuð þeim í hag. Sú breyting
er í eðlilegu samræmi við þær
breytingar, sem orðið hafa á
verðtryggingu launa í landinu,
eftir samninga þá, sem gerðir
voru milli launþega og atvinnu-
rekenda, um miðjan marz. Er
ástæða til að fagna því að þetta
frv. er fram komið, enda mun
það létta verulega undir með
húsbyggjetndum ef því grund-
vallarsjónarmiði, sem verðtrygg
ing lánanna hefur byggzt á, er
haldið.
Umbótastarfi
haldið áfram
Enginn vafi er á því, að mikil
breyting til batnaðar hefur orð-
ið í lánamálum húsbyggjenda á
undanförnum árum. Kemur þar
bæði til efling Húsnæðismála-
stjómar svo og vaxandi lánastarf
semi lífeyrissjóða í landinu,
þannig að búast má við, að vcl
flestir húsbyggjendur eigi nú
kost á löngum lánum, sem nemi
rúmlega helming af kostnaðar-
verði íbúða. Þrátt fyrir að þeim
áfanga hefur verið náð, má þó
ekki láta staðar numið. Það er
eitthvert mesta hagsmunamál
unga fólksins í þessu landi, að
svo öflugt og traust lánakerfi
verði byggt upp vegna húsbygg
inga, að það standi fyllilega
jafnfætis lánakerfum húsbyggj-
enda í nágrannalöndum okkar.
Með framkvæmdum í Breiðholti
hefur verið mörkuð sú megin-
stefna, að láglaunamenn og efna
litlir skuli eiga kost á
hagkvæmum lánum, sem nemi
80% af kostnaðarverði íbúða og
þótt segja megi að á erfiðleika-
tímum, sem þessum sé tilgangs-
lítið að ræða um slíkt takmark
fyrir lánakerfið í heild, er þó
engin ástæða til að missa sjónir
af því. Auðvitað ber að vinna
að því eftir megni að yfirgnæf-
andi meirihluti þeirra, sem
byggja þurfa yfir sig og sína
eigi kost á slíkum launum.
Það er því tvímælalaust það
bezta, sem hinir eldri geta gert
fyrir æsku þessa lands, að gera
henni þannig tiltölulega auð-
velt að eignast þak yfir höfuðið
og kannski er ekki fjarlægt að
ætla, að slíkt lánakerfi yrði til
þess að sú starfsorka, sem nú
fer í íbúðarbyggingar og ýmis
vandamál í sambandi við þær,
komi þjóðfélaginu að betra
gagni með öðrum hætti en nú
er. Þess vegna mun því treyst
að núverandi ríkisstjórn haldi
áfram því myndarlega umbóta-
starfi sem hún hefur unnið í
byg'gingarmálum og að ekki líði
mörg ár þar til hver og einn á
kost á svipuðum lánum, og í-
búðareigendur í Breiðholti fá
nú.
Lækkun
byggingakostnaðor
Eitt meginmarkmið fram-
kvæmdanna í Breiðholti á ein-
mitt að vera það, að gera til-
raun til þess að lækka bygging-
arkostnað í landinu m.a. með
beitingu nýjustu tækni við
framkvæmdir. Verður vissulega
fróðlegt að sjá hvernig til tekst
að þessu leyti enda verður að
vænta þess, að framkvæmda-
nefndin einbeiti sér ekki hvað
sízt að þessu meginmarkmiði.