Morgunblaðið - 03.05.1968, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MAf 190«
Bifreiðastjórar Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein hemla viðgerðir, hemlavarahlutir. HEMLASTILLING H.F. Súðavogi 14 - Sími 30135.
Píanó, orgel stillingar og viðgerðir. Bjami Pálmarsson, simi 15601.
Keflavík — H-ljós Hef flestar gerðir H-ljósa fyrir bifreiðir. Simi 1426, Hörður Valdemarsson, Keflavík.
Vörubíll Vil selja Bedford ’63. Lítið ekinn, mjög vel útlítandi, PcLÍllaus. Uppl. gefur Krist inn Pálsson, sími 17, Höfn, Homiafirði.
Svefnsófar. Eins og tveggja manna sóf ar. Hagkvæmir greiðslu- skilmálar. Nýja bólsturgerðin, Laugaveg 134.
Sófasett, sófasett. Ný gerð af ódýrum sófa- settum. Verð aðeins 18.900 kr. Hagkvæmir greiðslu- málar. Nýja bólsturgerðin, Laugaveg 134.
Verzlunarskólastúlka 16 ára ósikair eftir atvinnu seim fyrsrt.. Uppl. í síma 31499.
Vil kaupa vel með farmn Volkswag- en, árg. ’60—’65. — Staðgr. getur komið til greina. — Uppl. í síma 20370 og eftir kl. 7, sími 35548.
Ódýr bfll til sölu Marris Oxford, árg. 1955. Vil taika notað píanó eða orgel harmonium í skipt- an. Má vera bilað. Simi 83386 kl. 14—18.
Hafnarfjörður Kona óskast til að sitja hjá aldraðri konu, frá kl. 1—7. Uppl. í síma 51769.
Vörubfll Bedford árg. ’65 með krana tdl sölu. Skipti á nýlegum fólksbQ koma tQ greina. — UppL í síma 118, Seyðisf.
Lán óskast 100—150 þús. Sá, sem getur lánað, situir fyriir 3ja herb. risíbúð í Suðvesturb. Tilb. sendist Mbl. m.: „72 ferm. 5099“.
Húsmæðraskólinn BLÖNDUÓSI, árg. ’57—’58. Hafið samband sem fyrst, viið s. 23322 eða Guðrúmi Sigurðar, Litlu-Giljá. A- Hún.
Sumarvinna Ung bamlaus hjón óska eft ir vinnu úti á landi í sum- ar. Allt tekið til greina. Til boð sendist Mbl. fyrir 15. þ.m., m.: „Reglusöm 8516“
Hafnarfjörður 3ja herb. íbúð til leigu gegn þvi að hafa fullorð- imn mann í fæði og þjón- ustu. Eldri hjón koma að- eins til greina. — Uppl. í síma 50142.
Dansskóli Hermanns
Ragnars 10 ára
Talið frá vinstri: Carlsen, dansmeyjan, frú Unnur Arngríms-
dóttir, frú Carlsen og Hermann Ragnar Stefánsson, danskennari.
í dag er föstudagur 3. maí og er |>a
134. dagur ársins 1968. Eftir
lifa 242 dagar. Krossmessa á vori
Vinnuhjúaskildagi hinn forni. Ár-
degisháflæði kl. 9.27
l*ú ert Guð minn og ég þakka þér,
Guð minn, ég vegsama þig (Sálm.
118, 28).
Upplýslngar um læknaþjónustu ■
onrginni eru gefnar í síma 18888,
símsvara Læknafélags Reykjavík-
or
Slysavarðstofan í Heilsuverndar-
stöðinnl. Opin allan sólarhringinn
— aðeins móttaka slasaðra —
«lmi: 2-12-30.
Eæknavarðstofan. Opin frá kl. 5
•iðdegis til 8 að morgni. Auk þessa
nlla helgidaga. — Sími 2-12-30.
Neyðarvaktin t»varar aðeins á
rrrkum dögum frá kl. 8 til ki. 5.
«ími 1-15-10 og laugard. kl. 8—1.
Ráðleggingastöð Þjóðkirkjunnar
au' hjúskaparmál er að Lindar-
götu 9, 2. hæð. Viðtalstími læknis
miðvd. 4—5, viðtalstimi prests,
þriðjud. og föstud. 5—6.
Næturlæknir f Keflavík
3.5. Arinbjöm ÓlaÆsson 4.5. Guð-
Jón Kleimeinsson 5.5. Arinbjöm Ól-
afsson 6.5. ' og 7.5 Kjartan lafs-
son 8.5. og 9.5. Arinbjöm ÓliaÆsson
Bjóða hingað dönskum danskennarahjónum, er útskrifað
hafa flesta íslenzka danskennara
Dansskóli Hermanns Ragnars
á 10 ára afmæli um þessar mund
ir Skólann stofnaði Hermann
eftir að hann hafði lokið prófi
frá dansskóla Carlsenhjónanna í
Kaupmannahöfn í maímánuði
1958, og var það þá fyrsti skól-
ins af þessu tagi, sem hér var
komið á laggirnar. í tilefni af
afmælinu gengst dansskólinn
fyrir veglegum dansleik fyrir
fullorðna að Hótel Sögu nú í
kvöld og annað kvöld, og hefur
Carlsenhjónunum verið boðið til
þessarar skemmtunar, en Her-
mann segir, að engir hafi frekar
en þau lagt grundvöllinn að
danskennslu á tslandi, þar sem
meira en helmingur íslenzkra
danskennara hafa tekið sín loka
próf frá skóla þerra. Einnig verð
ur á sunnudaginn dansleikur fyr
ir böm í dansskóla Hermanns
Ragnars að Hótel Sögu.
Á fundi með blaðamönnum í
gær, þar sem Carlsen hjónin
voru viðstödd rakti Hermann
nokkuð kynni íslenzkra dans-
kennara af Carlsen-hjónunum á
síðustu árum. Kvaðst hann hafa
haldið utan fyrir 11 árum til að
læra danskennslu á skóla þeirra
hjóna, en honum hafði verið
tjáð áður, að skóli þeirra væri
einn hinn fremsti á Norðurlönd-
um. Hefði hann lokið þaðan
prófi ásamt Jóni Valgeiri, sem
niú værí sýningardansari í Kaup
mannaíhöfn. Siðan hefði hann
haldið heim til að stofna fyrsta
dansskólann, sem starfa myndi
reglulega vetrarlangt, en áður
hefðu allir slíkir skólar aðeins
verið í formi námskeiða.
Hermann sagði, að í upphafi
hefði hann haft heldur litla vit-
neskju um í hvers konar fyTÍr-
tæki hann væri að ráðast, en
hann hefði haft með heimleiðis
góð ráð frá Carlsen-hjónunum
um skipulagningu og fram-
kvæmd skólans, sem hefðu stað-
izt í hvívetna. Skölinn hefði
stöðugt stækkað, þannig að fyrir
tveimur vetrum hefði hann flutt
í eigið húsnæði að Háaleitisbraut
60. Hefði verið ákveðið í upp-
hafi að hafa salarkynnin vel
rúmgóð, svo að þau myndu nægja
nokkur ár, en nú væri svo kom-
ið, að salarkynnin væru þegar
fullnýtt. Hermann gat þess, að
allir kennarar skólans hefðu út-
skrifazt frá dansskóla Carlsen-
hjónanna, og að níu af 15 dans-
kennurum, sem væru í dans-
kennarasamtoandinu á íslandi,
hefðu lært hjá þeim. Mætti því
með sanni segja, að Carlsen-
hjónin hefðu öðrum fremur lagt
grundvöllinn að danskennslu á
íslandi eins og hún væri í dag.
>ess vegna hefði þótt viðeigandi
að bjóða þeim til landsins á tíu
ára afmæli skólans, sem þau
hefðu átt stóran þátt í að koma
upp, og á afmælisskemmtunun-
um yrði sýnighorn af þvi, sem
kennt væri í skólanum, gæfist
hjónunum þá kostur á að gagn-
rýna það, sem fyrir augun bæri.
Það kom fram, er blaðamenn
ræddu við þau hjónin, að Carl-
sen-hjónin hafa rekið dansskóla
sinn frá 1917, og er hann einn
hinn virtasti á Norðurlöndum.
Carlsen er forseti stærstá dans-
kennarasambandsins á Norður-
löndum, og hefur hlotið marg-
víslegar viðurkenningar í öðrum
löndum, svo sem verðlaunastyttu
enskra danskennara, sem stund-
um er nefnd Óskarverðlaun dans
ms. Carlsen-fjölskyldan er, ef
svo má segja, leiðandi danskenn
arar á ráðstefnu þessa norræna
sambands, þar sem frúin leggur
ávallt drögin að því, hvernig
kennslu skuli háttað í steppi,
akróbatik og ballett, dóttir þeirra
leggur drögin að jazztoallett-
kennslu og Carlsen segir til um,
hvernig kennslu barnadansa
skuli háttað. Þykja þau hafa
gert mikið fyrir danskennslu á
Norðurlöndum, enda fengu þau
fyrrgreinda viðurkenningu ensk-
ra danskennara fyrir að hafa
gert manna mest fyrir framgang
dansins utan Engands.
Næturlæknir í Hafnarfirði,
helgidagsv. 1. maí og aðfaranótt
2. maí er Jósef lafsson sími 51820
Kvöldvarzla í lyfjabúðum í Reykja-
vík víkuna 27. apríl til 4. maí er 1
Vesturbæjarapóteki og Apóteki Aust-
urbæjar.
Kefiavíkurapótek er opið virka
daga kl. 9—19, laugardaga ki. 9—t
og sunnudaga frá kl. 1—3.
Framvegis verður tekið á mótl
þeim, sem gefa vilja blóð í Blóð-
bankann, sem hér segir: mánud.,
þriðjud., fimmtud. og föstud. frá
kl. 9—11 f.h. og 2—4 e.h. Miðviku-
daga frá kl. 2—8 e.h. og laugardaga
frá kl. 9—11 f.h. Sérstök athygli
skal vakin á miðvikudögum vegna
kvöldtímans.
Bilanasími Rafmagnsveitu Rvík-
ur á skrifstofutíma er 18-222. Næt-
ur- og helgidagavarzla, 18-230.
A. A-samtökin
Fundir eru sem hér segir: í fé-
lagsheimilinu 'Harnargötu 3c:
Miðvikudaga kl. 21. Föstud. kl. 21.
Langholtsdeild, t Safnaðarheimili
Langholtskirkju, laugardaga kl. 14.
Orð lífsins svarar í síma 10-000.
D Edda 5968546-2
I.O.O.F. 1 = 150538% = Ks.
Gamalt og gott
Krummi úti krunkar í for,
kominn að bjargarþroti.
Ekki hef ég séð þig síðan I vor
Sigga í Landakoti.
Sveinbjörn Egilsson.
^Jli i(j(irln irSi i r
í
Lífið er yndælt, ljúfa fagra mær,
loftið svo fagurt, sjórinn hreinn og tær.
Sólin að kveðja með sinn aftan-edd,
sór andvarinn nú leikur dátt uan kyrrlátt kveld.
En þú kemur,
en þú kemur,
og ég kyssi þína mund
og kveð um þig, min heillastj arna, hverja stund.
Gunnar B. Jónsson
frá Sjávarborg.
sd NÆST bezti
Tannlæknir kom eitt sinn á stöð Steindórs og pantaði bíl.
— Það er enginn bíll til, svaraði Steindór.
— Ég þarf að fá bíl, hverju sem tautar, varð þá tannlæknin-
um að orði. v
— Hvernig ætlar þú að fara að því, þegar enginn bíll er á stöð-
inni? Eða getur þú dregið tönn úr tannlausum kjafti? svaraði
Steindór..
Brotizt inn á jeppa!
OÓ-Reykjavik. fimmtuð
Klukkan rúmlega 4
vaknaði fólk í aoK
mn »ly» $
—:-------------------------------------------------------------------5/tytóA/z7 -*
Á þessum erfiðu og verstu tímum verða jafnvel þjófar að taka hagræðiriguna í sína þjónustu.