Morgunblaðið - 03.05.1968, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGLLi i. MAÍ 1968
23
Listamennirnir Haukur Dór Sturluson og Jens Kristleifsson i
Mokka. (Ljósm. Mbl. Kristinn Benediktsson).
Samsýning á Mokka
— 1. maí
Framibald af bls. 1
til að láta almennt í ljós hversu
þeir mætu þær ráðstafanir til
aukins frelsis, sem þar hafa ver-
ið gerðar að undanförnu. Leið-
toge kommúnistaflokksins, Al-
exander Dubcek, var ákaflega
fagnað, er hann hélt ræðu sína:
sérstaklega, þegar hann sagði,
að nú væru Tékkóslóvakar að
gera ýtarlegt og gagnrýnið end-
urmat á fortíð sinni og þjóðin
mundi nú leita nýrra markmiða
og nýrra verðmæta. „Yið föður-
landsvinir í Tékkóskóvakíu mun
um sjálfir marka framtíð lands-
ins“, sagði hann. En hann vildi
greinilega einnig hafa vaðið fyr
ir neðan sig og talaði um- hríð
einkar vinsamlega um Sovétrík-
in. „Við sendum bandamönnum
okkar kveðju, sérstaklega Sovét
ríkjunum, sem við eigum
frelsi okkar að þakka og
við megum vænta að sýni okk-
ur bróðurlega hjálpsemi“
Við hátíðahöldin mátti sjá
margskonar búninga, sem bann-
aðir hafa verið undanfarin ár,
m.a. skáta og félaga úr Sokol-
íþróttahreyfingunni sem starfaði
fyrir heimstyrjöldina síðari. Þá
vakti athygli, að hvergi sáust
hinir venjulegu borðar og víg-
orðaspjöld með skammaryrðum
um Vesturlönd og ummælum
um baráttuna gegn heimsvalda-
sinnum. Ljóst var, að Dubcek
var hræður yfir gleði fólks-
ins og er haft eftir honum, að
hann hafi hvergi séð spjöld, er
ekki hafi með sanni sýnt, hvað
fólkinu bjó í brjósti. „Þetta er
sterk tilfinning.......ég hef
ekki lengi upplifað annað eins.
Þegar ég sé þetta fólk fæ ég
þá trú að það geti leyst Öll
verkefni“ sagði hann.
Ludvik Svoboda, forseti lands
ins, sem einnig flutti ávarp sagði
að hann myndi ekki ánægjulegri
1. maí hátíðahöld.
Engar merkar vopnasýningar
í Moskvu.
f Moskvu fóru hátíðahöldin
fram næstum alveg eins og síð-
ustu ár — með geysilegri vopna
og hergagnasýningu. Ekki voru
sjáanlegar nýjar gerðir vopna,
a.m.k. ekki mikilvægar, og helzta
nýjungin í hersýningunni var
400 manna deild fallhlífaher-
manna, sem báru rauðar húfur
og eru taldir mótleikur við
„grænu alpahúfurnar“ banda-
rísku, sem m.a. hafa tekið þátt
í bardögunum í Vietnam. Raun-
ar kom þessi deild fram á bylt-
ingarafmælinu sl. haust. Ekki
hefur verið upplýst í hverju
„rauðu húfurnar“ séu frábrugðn
ar öðrum herdeildum, en talið,
að hermennirnir séu sérstaklega
velþjálfað úrvalslið og muni
Rússar hugsa sér að geta sent
þá í skyndi hvert á land sem
er, ef þeir hlutizt til um átök
einhvers staðar.
Aðalefni ræðuhaldanna var
„hin hugmyndafræðilega undir
róðursstarfsemi heimsvalda
sinna“, er miðaði að sögn að því
að grafa undan stoðum hins sós-
íalistíska þjóðskipulags. Báru
ræður greinilega með sér, að
Rússar eru lítt hrifnir af þróun
mála í Austur Evrópu, sérstak-
lega þó Tékkóslóvakíu. Aðal-
ræðuna hélt landvarnarráðherr-
ann, Andrei Gretsjko.
Vill efla aga og virðingu fyr-
ir yfirvöldunum.
í Varsjá hélt Wladislaw Gom-
ulka aðalræðuna og lagði á það
áherzlu, að þjóðin yrði sjálf að
sjá um að halda í skeíjum þeirri
- LOFTÁRÁSIR
Frambald af bls. 13
öldinni verður brotið blað í
sögu Afríku, því að þeir hafa
staðið einir og óstuddir. Ung-
ur Biaframaður sem starfað
hefur í sendiráði Nígeríu í
Tókyo, sagði nýlega við frétta
ritara Observers: „Við verð-
um eins og Japanir, við ger-
um kraftaverk. Við förum að
dæmi þeirra og hagnýtum
okkur gáfur og þekkingu til
þess að koma á tæknibylt-
ingu.“ —(Obspver — öll rétt-
indi áskilin).
SAMSÝNINGU á Mokka opnuðu
í gær tveir ungir Reykvíkingar,
þeir Haukur Dór Sturluson og
Jens Kristleifsson, og er allt til
sölu á sýningunni. Haukur Dór
á myndir frá 1—13, sem mest-
megnis eru pennamyndir, en
Jens á hinar, sem eru blýants
teikningar og kolateikningar.
Sögðust þeir hafa valið mynd-
irnar sérstaklega með svipuðu
tema, til að þær ættu sem bezt
saman og verður sýningin opin
í 2—3 vikur.
Haukur Dór stundaði nám hér
í Myndlistarskólanum I þrjá vet-
gagnrýni, sem fram kæmi gegn
stjórn landsins og þjóðskipulag-
inu. Sagði hann brýna nauðsyn
bera til þess að greina á milli
heilbrigðrar gagnrýni og óá-
byrgra yfirlýsinga, þegar fram
færu svo fjörugar umræður um
málefni lands og þjóðar sem að
undanförnu. Og nauðsynlegt
kvað hann að virkja hinn aukna
stjórnmálaáhuga en þó þannig
að auka jafnframt ábyrgðartil-
finningu fólksins gagnvart ríkis
stofnunum, og vinnustöðunum,
og efla þyrfti þjóðfélagsagann
og virðingu fyrir yfirvöldunum.
Einungis við slíkar aðstæður
gæti gagnrýni orðið til góðs og
þannig yrði kveðin niður nei-
kvæð einkenni í þjóðfélaginu.
Hann lýsti því yfir, að engin
andsósialistisk öfl, hvort sem
þau væru pólsk eða af erlend-
um uppruna og engir endurskoð-
unarsinnar eða aðrir, sem hefðu
orðið fy.rir vonbrigðum með sós-
alistíska þjóðskipan ættu sér
minnstu framtíðarvonir í pólsk
um stjórnmálum.
Á kröfuspjöldum hópgöngu-
manna mátti líta stuðningsyfir-
lýsingar við Gomulka og stefnu
hans, spjöld þar sem letraðar
voru fordæmingar gegn Zionism
anum og þeim pólsku Guðingum
sem ekki sýndu föðurlandsást.
Stúdentar sem höfðu heldur hægt
um sig nú, höfðu uppi spjöld,
þar sem stóð, að í háskólum
landisns væri ekki rúm fyrir
pólitíska æsingarmenn og einn-
ig spjöld, þar sem sagði að vísa
bæri Gyðingum úr opinberum
stöðum og úr flokknum.
Mótmælaaðgerðir gegn
spænskum stjórnarvöldum.
Hvergi var eins ófriðlegt 1.
maí og á Spáni, einkum í Mad-
rid, þar sem stúdentar og ungir
verkamenn fóru í hópum um göt
ur og torg og réðust inn í búðir
og banka, brjótandi rúður.
Segja fréttamenn, að þessar að-
gerðir hafi fylgt í kjölfar nokk
urra daga mótmælaaðgerða, sem
hófust gegn stjórnarvöldunum sl.
laugardag. Lögreglan beitti kylf
um og þyrlur flugu yfir átaka-
svæðunum og fylgdust eftirlits
menn þaðan með því, sem fram
fór. AFP fréttastofan franska,
segir, að þúsundir manna hafi
safnazt saman á einni aðalgöt-
unni í Madrid „Gran Via“ og
hrópað „frelsi, frelsi“, Mátti
ur, en fór síðan til Edinborgar
og lærði þar. I fyrra var hann
svo í Kaupmannahöfn við nám
qg hefur hann sýnt hér þrisvar
áður. Hann á 4 myndir á Bienn-
ialinu í Finnlandi í ár, veitir for
stöðu keramikgerð í Bergstaða-
stræti 4, og vinnur að járnsmíð-
um í Sindra.
Jens Kristleifsson nam í Hand
íðal og myndlistarskólanum hér
og fór síðan til Kaupmannahafn
ar til náms. Hann er núna
teiknikennari við Laugalækjar-
skólann.
líta þar bæði stúdenta, verka-
menn, prófessora og presta.
Ekki er vitað hve margir voru
handteknir en haft fyrir satt, að
þeir hafi a.mk. verið 60 Mót-
mælaaðgerðum þessum stjórnar
neðanjarðarhreyfing sem kall-
ast „Verkamannanefndin“ Hefur
hún sett fram kröfur um hærri
laun fyrir verkamenn, leyfi til
að mynda frjáls verkalýðsfélög
og um verkfallsrétt. Stjórnin
hefur varað samtökin sem hún
telur kommúnista stjórna við á-
framhaldandi starfsemi, — og
hefur eflt lögreglu og herlið í
Madrid og öðrum stórborgum
Spánar. Talið er, að vinstri sinn
aðir kaþolikkar eigi einnig sterk
ítök í þessari hreyfingu*
Orlofsblær í Peking.
f Peking var Mao Tze tung,
formaður, í fararbroddi helztu
forystumanna stjórnarinnar og
kommúnistaflokksin, sem gengu
fyrir 1. maí skrúðgöngunni.
Þátttakendur skiptu hundruðum
þúsunda, en að því er frétta-
maður japönsku fréttastofunnar
„Kyodo“ segir, var yfirbragð
hátíðahaldanna nú nokkuð frá-
brugðið því, sem var meðan
menningarbyltingin stóð sem
hæst. Þá einkenndu hátíðina æð
isgengin hrifning og eldmóður að
dáenda Maos, en nú var sem létt
ara væri yfir mönnum og meiri
orlofsblær á öllum. Helztu blöð-
in birtu ristjórnargreinar með
árásum á Sovétstjórnina og lof-
gjörðum um menningarbylting-
una.
Verkamenn vinni meira.
í Norður-Vietnam var þunga
miðja í öllum ræðuhöldum áskor
un til verkamanna um að leggja
enn meira á sig en til þessa fyr-
ir baráttuna gegn bandarísk-
um heimsvaldasinnum. Hin opin
bera fréttastofa „VNA“ birti
ávarp, þar sem Bandaríkjamenn
voru m.a. sakaðir um að fresta
eftir mætti friðarumleitunum um
Vietnam og sagt, að þeir hefðu
gengið á bak þeirra orða sinna
að þeir væru reiðubúnir að koma
hvert á land sem væri hvenær
sem væri, til þess að ræða um
frið í Vietnam.
Mercouri og Palme.
í höfuðborgum Norðurlanda
fóru hátíða'höld fram svipað
venju. í Stokkhólmi var gríska
leikkonan Melina Mercouri með
al þátttakenda í kröfugöngu og
gekk þar við hlið- menntamála-
ráðherrans, Olof Palmes, en
hann hélt síðan ræðu og ræddi
fyrst og fremst utanríkismál. Að
albaráttumál Svíanna virtust
vera gríska frelsishreyfingin og
stuðningur við þjóðfrelsishreyf-
inguna í Vietnam. Tage Erland-
er, forsætisráðherra hélt ræðu
við hátíðahöldin í Luleá og hélt
sig að mestu við innanríkismál
einkum mál verkalýðsins og
efnahagsmálim Torsten Nilsson,
sem talaði í Örebro, gerði hins
vegar fyrst og fremst utanríkis-
málin að umræðuefni.
I Fællesparken í Kaupmanna-
höfn, hélt Jens Otto Krag, leið-
togi sósialdemokrata, ræðu og
gagnrýndi borgarastjórnina í
landinu.
I Helsinki hélt Mauno Koiv-
ista forsætisráðherra aðalræð-
una og lagði áherzlu á bætt sam
skipti Finnlands og Sovétríkj-
anna. f Oslo og víðar í Noregl
var aðalefni hátíðahaldanna
tollamál Norðmanna, ástandið í
Vietnam, afstaða Noregs til At-
landishafsbandalagsins í framtíð
inni og möguleg átök í at-
vinnulífinu.
V-Berlín.
Þátttakendur í 1. maí hátíða-
höldunum í Vestur-Berlín voru
um hundrað þúsund talsins. Þar
hélt Willy Brandt, utanríkisráð-
herra ræðu og sakaði stjórn
Austur-Þýzkalands um að leika
sér að eldinum" með því að
leggja allskyns hindranir 1 veg
eðlilegra samgangna til og frá
V-Berlínar. Einnig gagnrýndi
hann þau öfl í AusturÞýzka-
landi, sem berðust fyrir því að
breyta stöðu Berlínar.
Enda þótt nokkur spenna
væri í Vestur-Berlín eins og ver
ið hefur þar og í öðrum borgum
Þýzkalands fra því á páskum,
er þar logaði allt í óeirðum, fóru
hátíðahöldin friðsamlega fram.
Sósialistísk stúdentasamtök
stóðu að fundahöldum og einn-
ig V-Berlínardeild kommúnista-
flokksins.
- FANNEY
Framhald ,af bls. 32
mönnunum um borð og kl. 00,45
var lagt af stað til Siglufjarðar
og þangað var komið kl. 08,15.
Kristjáni Rögnvaldssyni skip-
stjóra á Fanney sagðist svo frá:
„Við vorum á leið frá Reykja-
vík til Siglufjarðar og vorum
staddir um 25 sjómílur suðaust-
ur af Horni, þegar leki kom að
skipinu. Við vorum þá búnir að
fara í gegn um töluvert íshrafl
allt frá Hælavíkurbjargi og tafði
það okkur nokkuð. Sæmilega
greiðfært var þó og auðvelt að
krækja fyrir isspangirnar. Víð
riðluðumst sama og ekkert á jök
unum.
Um kl. 10.30 kom allt í einu
mikill leki að skipinu, en ég
get ekkert sagt um hvað þarna
hefur komið fyrir. Það var eins
og allar flóðgáttir hefðu opnazt
og skipið sökk laust eftir mið-
nætti. Við yfirgáfum skipið
skömmu áður en það sökk og
fórum í 3 gúmbáta, sem voru
tengdir saman með böndum. Við
héldum síðan bátunum við stór
an ísjaka og vorum búnir að
vera þar í u.þ.b. 20—30 mínút-
ur, þegar Björgvin kom og bjarg
aði okkur. Enginn af áhöfninni,
7 manns, blotnaði, það var bjart
veður og kvikulaust, en farið að
skyggja. Ég þakka öllum sem að
stoðuðu okkur, því að margir
bátar voru á leið til okkar, en
sérstaklega þakka ég skipstjóra
og skipshöfn á Björgvin.
- ' IÐNÞRÖUN
Fram'hald af bls. 32
aðild íslands að Fríverzlunar-
handalaginu hafi fyrir íslenzkan
iðnað.
Baldvin Tryggvason, formað-
ur fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík, setti ráð-
stefnuna, þá flutti Davíð Sch.
Thorsteinsson framkvæmda-
stjóri, formaður framkvæmda-
nefndar ráðstefnunnar ávarp.
Jóhann Hafstein, dómsmála-
ráðherra, flutti erindi um hlut-
verk og aðstöðu stjórnvalda til
áhrifa á iðnþróunina. Árni Þ.
Árnason, viðskiptafræðingur,
ræddi um stjórnunarmál og opin
berar stofnanir iðnaðarins. Þá
flutti Einar Benediktsson, deild-
arstjóri, erindi um áhrif Fríverzl
unarbandalagsins á viðskipti og
iðnað í aðildarríkjunum.
Að því loknu skiptust menn í
umræðuhópa, en fundur hófst
aftur kl. 17 og voru þá flutt 13
stutt erindi um ástand og horfur
í helztu iðngreinum.
Hallgrímur Björnsson, efna-
verkfræðingur, ræddi um mat-
vælaiðnað. M'ár Elísson, fiski-
málastjóri, talaði um fiskiðnað,
Bjarni Björnsson, framkvæmda-
stjóri, talaði um vefnað, fata-
iðnað og prjónles. Ásbjörn Sig-
urjónsson ræddi um ullar- og
skinnaiðnað, Hjalti G. Kristjáns-
son, húsgagnaarkitekt, talaði um
innréttingar og húsgagnasmíði
og Sveinn K. Sveinsson, verk-
fræðingur, um byggingavöru-
framleiðslu. Gissur Sigurðsson,
byggingameistari, talaði um
byggingariðnað og mannvirkja-
gerð, Jósep Þorgeirsson um
skipasmíðar, þá flutti Sveinn
Björnsson, verkfræðingur erindi
um veiðarfæragerð eftir Hannes
Pálsson forstjóra, en hann
gat vegna anna, ekki sótt ráð-
- stefnuna. Sveinn Guðmundsson,
alþingismaður, fjallaði um
málmiðnað, Haukur Eggertsson,
framkvæmdastjóri,' talaði um
umbúðaiðnað og prentun, Kol-
beinn Pétursson, framkvæmda-
stjóri, ræddi um efnaiðnað og að
lokum talaði Stefán Snæbjörns-
son, húsgangaarkitekt, um hönn-
un og vöruþróun.
- TÉKKÓSLÓVAKÍA
Framhald af bls. 17
Novotny kom heim, töldu þeir
sig nógu trausta í sessi til að
krefjast afsagnar hans.
Novotny reyndi að bola D.
úr embætti sínu, en Slóvakar
tóku það óstinnt upp.
Skömmu síðar kom Bresnev
flugleiðis frá Moskvu og
gerði tilraun til að bjarga
honum en of seint. Novotny
sagði af sér í janúar og Du-
bcek var kosinn eftirmaður
hans. En Novotny vildi ekki
enn gefast upp. Bandamenn
hans í varnar- og innanríkis-
ráðuneytinu lögðu á örvænt-
ingarfull ráð um valdarán og
að minhsta kosti ein vélaher
deild var reiðubúin að aka
inn í Prag til stuðnings No-
votnys. En áætlunin fór út
um þúfur vegna sundur-
þykkju og ósamlyndis þeirra,
sem áttu að framfylgja henni.
Um það leyti að flokksleið-
togar söfnuðust saman í Prag
til að minnast 20 ára afmælis
kommúnista í Tékkóslóvakíu
hafði almenningsálitið snúist
svo gersamlega gegn Novot-
ny, að örlög hans sem for-
seta voru ráðin.
— Nígería
Fnamhaild af bls. 1
ræður í London, því Bretar séu
ekki hlutlausir í borgarastyrjöld-
inni. Hefur ofurstinn áður ásak-
að Breta hasðlega fyrir vopna-
sölu til stjórnar Nígeríu. Vegna
þessarar vopnasölu vill Oju-
kwu ekki viðræður í London, og
heldur ekki að svo líti út sem
friðarviðræðurnar verði haldnar
á vegum Breta. Kýs Ojúkwu
því heldur að samtök Afríku-
ríkja, O.A.S. standi að viðræð-
unum, og að þær fari fram í
Afríku.
í fregnum frá Nígeríu og
Biafra er staðfest í dag að báðir
aðilar sendi fulltrúa sína til Lon-
don fyrir helgi. Talsmaður sam-
bandsstjórnarinnar í Lagos
skýrði frá því í dag að ónefndir
en „háttsettir“ fulltrúar stjórn-
arinnar kæmu til London á laug
ardag til að taka þátt í viðræð-
unum. Sagði talsmaðurinn að
þessar viðræður væru til þess
ætlaðar fyrst og fremst að kanna
möguleika á því hvar unnt yrði
að boða til friðarsamninga. Talið
er í Lagos að formaður viðræðu-
nefndarinnar frá Biafra verði
sir Louis Mbanefo yfirdómari,
sem um skeið var dómari við Al-
þjóðadómstólinn.