Morgunblaðið - 16.05.1968, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1968.
Aðalfundur
Aðalfundur Hlaðs h.f., verður haldinn á Hótel Sögu
í kvöld fimmtudag 16. maí kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Onnur mál,
STJÓRNIN.
DELTA
SÖLUFÓLK
óskast tií sölu á happdrættismiðum Reykjavíkur-
deildar Rauða Kross íslands. Sími 10093.
Hótelskipið Víkingur
(Hótelhúsið) áður staðsett á Snæfellsnesi er til sölu
sundurtekið, eins og nú er, eða uppsett — allt eftir
samkomulagi. Sérstaklega hentugt sem gistihús
í fögru umhverfi, einkum fyrir veiðimenn. Hag-
kvæmt verð og greiðsluskilmálar, ef samið er strax.
Upplýsingar gefur
Málaflutningsskrifstofa Páls S. Pálssonar,
Bergstaðastræti 14, Reykjavík,
símar 24200 eða 23962.
Víðimel 64. Símar 15104 og 15146.
Höfum fyrirliggjandi 12” hjólsög.
Hagstætt verð.
Útvegum fjölbreyttasta úrval
af trésmíðavélum.
Tökum fram í dag mikinn fjölda
af fágætum
G. ÞORSTEINSSQN 8 JOHNSON H.F.
Ármúla 1 - Grjótagötu 7
Simi 2-42-50
útfararminningum, œvisögum
og minningarritum (einstaklinga
og félaga).
^vióóneóhar IL
uóóur
GLUGGINN
Laugavegi 49.
ATHUCIÐ
að daglega koma margar bœkur
á markaÖinn og af hverri bók
er aðeins
eitt eintak.
IMILSOL sólgleraugu
Hin heimsþekktu ítölsku NILSOL-
sólgleraugu í miklu úrvali.
— Tízku-sólgleraugu —
— Polarized-sólgleraugu —
— Klassísk-sólgleraugu —
Afgreidd samdægurs, hvert á land sem er.
Heildsölubirgðir:
Ármúla 7 — Símar 15583 — 82540.
- FÓRNAR
Framh. af bls. 16
kommúnisti í a.m.k. 50 ár.
Þegtir hann var ungur mað-
ur, ferðaðist hann víða um
heim og kynntist helztu spá-
mönnum hreyfingarinnar á
þeim tímum. Hann var af
þeirri tegund kommúnista á
byltingartímum, sem lýsa að
vísu yfir trú sinni á ákve'ðn-
ar kennisetningar, en neita að
vera bundnir af kreddum.
Hann var sonur aðalsmanns,
sem bjó í þorpi í Annam og
var ákafur þjóðernissinni og
hataði frönsku nýlendustjórn-
ina. Ef til vill greip Ho I
fyrstu til kommúnisma vegna
þess að honum þætti þjóðern-
isstefnu sinni þannig bezt
þjónað á þeim tíma. Ef til vill
hefði hann aðeins orðið þjóð-
ernissinnaður kommúnisti, ef
byltingu hans hefði tekizt a'ð
ná öllu Víetnam undir sig.
Nú, þegar Ho er 78 ára
gamall, þá er það mögulegt,
að Ameríkumenn og aðrir
ætli honum meira vald en
hann hefur í raun og veru.
En eftir öllum sólarmerkjum
að dæma, hefur Ho enn
geysileg áhrif í Norður-Víet-
nam, hann er foringi þjóðar-
innar og baráttutákn.
Ef Norður-Víetnamar
hyggja á einhvern konar frið
við Bandaríkjamenn og Suð-
ur-Víetnama, þá er líklegt að
ráð Ho Chi Minhs verði þung
á metaskálunum vi'ð áikvörð-
un þess máls, hvort sem ald-
ur hans leyfir honum að stýra
öllum daglegum rekstri ríkis
hans, sem nú er 14 ára gam-
alt.
Ef Norður-Víetnamar velja
friðarleiðina að ráði Hos, þá
yrði sú ákvörðun á kostnað
æðsta draums lífs hans, —
sem er að Víetnam verði eitt
riki.
Ef til vill verða Norður- og
Suður-Víetnam einhverntíma
sameinuð. En fari svo, að frið-
ur verði saminn á þessu stigi
málsins, er ólíklegt að Ho
Chi Minh muni lifa það að sjá
eina þjóð í Víetnam.
(AP-grein, eftir William
L. Ryan).
— Um landbætur
Framh. af bls. 18
sem vilja gera þetta land að
betra landi, taki höndum saman
og reyni að styðja alla upp-
græðslu, hvort sem hún nefnist
skógrækt, landgræðsla, sand-
græðsla eða annað. Reyni að sam
eina kraftana í stað þess að
sundra þeim. Láta skynsemina
ráða í stað nágrannakritar og af
vegaleiddrar tilfinningasemi.
Beita þeirri ræktun á hverjum
stað, sem til mests árangur leið
ir.
Eyðing landsins af völdum
aldalangrar rányrkju er meira al
vörumál en við gerum okkur
grein fyrir í fljótu bragði. Það
er hollt að líta til hinna fornu
stórvelda, Grikklands og Spán-
ar. Þar hefur orðið mikil land-
eyðing á undangengnum óldum.
Samtímis hefur þessum þjóðum
hnignað efnahagslega svo þau
teljast ekki lengur meðal
fremstu ríkja. Ætli geti ekki
verið samband milli þessarra
tveggja atriða. Væri okkur ekki
hollt að hugleiða þetta í ein-
lægni, næst þegar við sjáum
sauðahjarðirnar standa í svelti
við afréttargirðingarnar á út-
hallandi sumri, en uppblásturs-
mekkirnir rísa við loft og valda
myrkri um miðjan dag í sveitum
landsins.
Halldór Jónsson, verkfr.
AUGLYSINGAR
SÍMI 22.4‘SO