Morgunblaðið - 16.05.1968, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.05.1968, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1968. 21 THkynning Athygli innflytjenda skal hér með vakin á því, að samkvæmt auglýsingu viðskiptamálaráðuneytisins, dags. 9. janúar 1968, sem birtist í 4. tbl. Lögbirt- ingablaðsins 1968 fer önnur úthlutun gjaldeyris- og/eða innflutningsleyfa árið 1968 fyrir þeim inn- flutningskvótum, sem taldir eru í auglýsingunni, fram í júní 1968. Umsóknir um þá úthlutun skulu hafa borizt Landsbanka íslands eða Útvegsbanka íslands fyrir 10. júní næstkomandi. LANDSBANKI ÍSLANDS, ÚTVEGSBANKl ÍSLANDS. Fréttabréf af Skeiðum Karlakórinn Geysir í söngför Hvítárholti 21.4 1968. Góan má teljast hrakviðra- söm að þessu sinni. í fyrstu viku hennar kom hin ofsalega hláka, sem orsakaði steypiregn yfir gadd þann og frera sem þorri herkonungur hafði steypt yfir alla jörð. Afleiðingarnar urðu svo þær sem öllum er í fersku minni að ár tóku að brjóta af ísbrynjuna, en hún reyndist þybbin fyrir, svo að þær viða brutust upp úr far- vegi sínum og ollu þeim spjöll um sem kunn eru orðin þ. e. sundur skornir vegir, girðingar þaktir sandsköflum og grasrót- inni flett af sem eftir jökul- ruðning. Einmánuður er nú senn liðinn, en hann hófst hér sem annars staðar með einhverjum þeim mestu frosthörkum, sem menn muna á þessum tíma árs, þar sem og hafísinn fyllti alla flóa og firði fyrir norðan. Þótt Sunnlendingar hafi nú sem áð- ur ekki af því að segja. En síð- an um páska hefur ríkt hér sum artíð, svo að grænu stráin eru þegar farin að sjást í vörpum. samkomu þessari var settur á leiksvið stuttur þáttur úr Heiðarbýli Jóns Trausta og hófst hann á flutningi „inn- gangs“ samsvarandi efni því sem á eftir fór. Leiktjöld voru einnig máluð hér. Að sýning- unni var góður rómur gerður og þótti vel takast. Næsta at- riði var söngur, blandaður kvart ett, söng undir stjórn Sigurðar Ágústssonar. Þar næst sungnar gamanvísur. Síðan stiginn dans. í vetur hefur „Héraðssamband ið Skarhéðinn" gengist fyrir því meðal ungmennafélaganna í sam bandssvæðinu. Hinn 15 marz fór hér fram önnur keppnin. Kepp- endur voru frá Um.f. Hruna- manna, u.m.f. Gnúpverja og u. m.f. Skeiðarmanna. Spurningar voru 20. Spurt var í tvennu lagi og skemmtiatriði á milli. Gnúpverjar báru sigur úr být- um. í aprílmánuði 1908 var Ung- mennafélag Hrunamanna stofn- að. 60 ára afmælisins var minnst í félagsheimilinu hér 6. þ.m Klaka er nú verulega tekið að leysa og vegir farnir að spillast, það svo, að víða er að verða ófært heim á bæi. Áburður hef ur sem enginn verið fluttur enn í sveitina og ekki séð að það verði gert fyrr en vegir taka að síga, þykir mönnum það ó- vænlega horfa. Samkomuhald og félagslíf má segja að hér hafi verið mikið í vetur. Fundir hafa þó verið fremur fáir, enda ekki auðvelt að koma þeim að fyrir öðru sem fyrir gengur. Haldið hefur ver- ið uppi bridge-keppni með mik- illi þátttöku'og áhuga. Hinn 1. marz var haldin hér í félagsheimilinu hin árlega hjónaskemmtun sem svo hefur verið nefnd, enda þótt hún sé í reynd alls ekki bundin við hjón, heldur allt búandi fólk, eða sem almenn samkoma í sveit inni, þar sem reynt er eftir getu að hafa eitthvað fyrii alla. Á alls vandað. Allir gamlir og ný- ir félagsmenn og aðrir velunn- arar boðnir velkomnir. Kaffi- drykkja. Það sem fram fór var: 1. Ræða: Fyrir minni félagsins: (Sigurður Sigurmundsson) 2. Leikþáttur: Fjórði þáttur úr leik riti Indriða Einarssonar „DANS— I_NN í Hruna“, undir stjórn Emils Ásgeirsson og me_ð skýringum hans. 3. Kórsöngur, blandaður kór, undir stjórn Sigurðar Ág- ústssonar. Síðan nokkrar þakk arræður boðsgesta. Að lokum stiginn dans. Laugardaginn 20. apríl fóru svo hér fram úrslit í spurninga- keppni þeirri, sem hér var áður nefnd. Keppendur voru Biskups tungnamenn og Austur-Eyfell- ingar. Sigruðu Eyfellingar með 90 stigum gegn 75. Gífurlegur mannfjöldi sótti samkonuna um 600 manns. Leikþátturnn úr Dansinum í Hruna var sýndur í annað sinn. S.Sig. Akureyri, 13. maí. KARLAKÓRINN Geysir er nú að leggja upp í söngferð til ísa- fjarðar og Suðvesturlands, en að undanförnu hefir hann haldið nokkra samsöngva á Akureyri við prýðilega aðsókn og góðar viðtökur. Söngstjóri er Jan Kisa, en und irleikari Philip Jenkins. Kórinn hefir í vetur notið raddþjálfun- ar Sigurðar Demetz Franzsonar. Einsöngvarar verða Aðalsteinn Jónsson, Jóhann Daníelsson, Jó- hann Guðmundsson, Jóhann Konráðsson, Lárus Haraldsson og Sigurður Svanbergsson. Á söngskránni eru mörg lög eftir innlenda og erlenda höf- unda, þar á meðal er eitt ís- lenzt lag frumflutt, Lýðveldis- Ijóð eftir Jón Benediktsson. Söng skráin er létt og fjölbreytt, m.a. lagasyrpa úr amerískum söng- leikjum, en þar kemur fram kvartett kórmanna. Fyrsti samsöngurinn verður á ísafirði (Alþýðuhúsinu) 15. maí kl. 24, annar í Nýja Bíói í Kefla- vík 16. maí kl. 21, þriðji í Félags heimilinu að Flúðum, Hruna- mannahreppi, 17. maí kl. 21,30 og hinn fjórði og síðasti í Gamla Bíói í Reykjavík 18. maí kl. 15. Formaður Karlakórsins Geysis er Jóhann Guðmundsson, póst- meistari. — Sv. P. Fyrirtæki sem er vel staðsett og sem vill auka starfssvið sitt í innflutningsverzl- un og dreifingu, óskar eftir manni eða fyrirtæki í félagi við sig sem getur lagt peningaframlag til aukningar rekstrinum. Tilboð sendist Morgunblaðinu, merkt: „8623“. Ný sending af kjólum tekin fram í dag. Kjólabúðin MÆR, Lækjargötu 2. Eigendur veitingaskáfa ATHUGIO Óskum eftir að taka á leigu eða upp á prósentur veitingaskála úti á landi. Tilboð merkt: „Trúnaðarmál — 8624“ sendist Mbl. Skrifstofiihúsnæði til leigu Getum leigt skrifstofuhúsnæði á 3. hæð að Skúlatúni 6. Sig. Sveinbjörnsson h.f. íslenzkar telpur í Norðurlandasjónvarpi TELPNAKÓR'Öldutúnsskóla i| í upphafi og að lokuim. Sögðu Hafnarf'rði 9Ótti miót norrænna barnakóra, sem haldið er á veg- um útvarps -og sjónvarpsstöðva á Norðurlöndum, en það var haldið í Finnlanidi að þessu sinni. Fóru 20 stúlkur á aldrinum 10- 14 ára og sungu undir stjórn Eg- ils Friðleifssonar, en farstjór- ar voru Páll Eiríksson, lækna- nemi og Arndís Jónsdóttir, kenn axi. Sunnudaginn 28. apríl sungu kórarnir í þætti, sem úbvarpað og sjónvarpað var um öll Norð- urlönd kl. 5 sáðdegis. Söng telpnakór Öldutúnsskóla 3 lög, og með 'hinum kórunum tvö lög þeir Egill og Páll að dagsskránni yrði seinna sjónvaxpað hér. Þá fór kórinn í heimsókn til vinabæjar Hafnarfjarðar Hám- eenlinna í Finnlandi þar sem hann söng á þremuir stöðum. Fékk han-n þar frábærar viðtök- ur, eins og alls staðar í ferðinni. Telpurnar í kór ÖMutúnsiskól- ans sungu í sjónvarp fyrir öll Norðurlönd í Finnlandi. Til leigu er íbúð á I. hæð í fjölbýlishúsi við Háaleitisbraut 3 svefnherbergi og stofa. Upplýsingar í síma 40887 í dag kl. 14—21. Vegna jarðarfarar Gunnars Erlendssonar, verða verzlanir okkar lokaðar í dag frá kl. 12 til 4. Kjötborg h/f., Búðagerði 10, Austurborg, Búðagerði 10.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.