Morgunblaðið - 16.05.1968, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 16.05.1968, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 196«. Sundfólkið að æfa^ í nýju sundlauginni l\lörg stórverkefni framundan hjá sundfólkinu og örar framfarir Á fundi, sem stjórn Sundsam- bands íslands hélt með íþrótta- fréttamönnum s.l. laugardag, kom fram að í þeim herbúðum hefir ekki verið haldið að sér höndunum, frekar en endranær. Með fullri virðingu fyrir æf- ingum og undirbúningi annarra íþróttamanna var greinilegt af upplýsingum þeim, er v. formað- ur SSf Garðar Sigurðsson, frá Hafnarfirði, lagði fréttamönnum í té, að þjálfun sundfólksins er í alla staði til fyrirmyndar og eftirbreytni, enda sýndi hinn góði árangur, sem afreksfólkið náði á ÍR-mótinu að erfiðið upp- sker launin. Mörg verkefni og ströng í- þróttakeppni er framundan. Manchester í úrslit MANCHESTER United og Real Madrid háðu æsispennandi leik í gærkvöidi í undanúrslitum í keppninnu um Evrópbikarinn. Real Madrid sótti mjög í fyrri hálfleik, en Englendingar lögðust í vörn — ætluðu líklega að verja 1:0 forskot sitt frá fyrri leiknum. En í hálfleik var staðan 2:1 Real Madrid í vil — og höfðu Spán- verjar skorað öll mörkin. Varð Zoco bakverði það á að skora sjálfsmark og rétta þann veg hlut Manchester. En í síðari hálfleik breyttu Englendingar um leikaðferð, sáu að annaðhvort var að duga eða drepast. Samt komust Spánverj- ar í 3:1. En á síðustu 18 mínútun um skoraði Sadler og Foulkes fyrir Manchester og lyktaði leikn um með jafntefli 3:3. George Best lagði knöttinn fyrir þá í bæði skiptin. Þetta nægir Manchester til að komast í úrslit, því þeir unnu Örn Kærnested Á, sá er sigraði á skíðamótinu um sl. helgi. Lokahátíð skíðamanna N.K. LAUGARDAG, 18. máí, halda skíðamenn sína árlegu lokahátíð í Átthagasal Sögu. Kl. 3 síðdegis verður verðlaunaaf- hending í unglingaflokkum og þá afhent verðlaun fyrir ýmis skiðamót vetrarins. Eru eldri skíðamenn sérstaklega hvattir til að mæta þá og fá sér kaffisopa um leið og þeir láta hugann reika til sinna unglingsára. Um kvöldið kl. 9 hefst svo dansleikur og verða þá afhent verðlaun í eldri flokkunum. Það hefur ætíð ríkt góð stemning á þessum lokahófum skíðafólks og þau fjölsótt. fyrri leikinn, sem fyrr segir. En þáð má heppni kallast að komast í úrslitaleikinn á sjálfsmarki mót herjanna. Mörkin komu þannig: 31 mín. Piri fyrir Real, 40 mín. Gento fyrir Real, 42. mín. Zoco sjálfs- mark (fyrir Manchester) 72. mín. Sadler og 77 mín. Foulkes. Þess má geta að þetta er í 1. sinn sem enskt lið kemst í úrslit um Evrópubikarinn, en úrslita- leikurinn verður leikinn á Wemb ley 29. maí n.k. í hinum leik undanúrslitanna mættust Juventus og Benfica. Fyrri leik liðanna (í Portúgal) lauk með sigri Benfica 2:0. í gærkvöld fóru leikar svo að Benfica vann með 1:0 og er því Benfica í úrslitum móti Manchest er United. Sundmeistaramót Reykjavíkur verður háð í sundlauginni í Laugardal ' 21. maí n.k. og Sundmeistaramót Islands 19. 22. og 23. júní. A báðum þess- um mótum fær sundfólkið tæki færi til að spreyta sig við OL lágmörkin í 50 metra laug, en SSl hefur sent lágmarkstíma í vissum greinum til Olympíu- nefndar íslands til samþykkt- ar. Lágmarkstímarnir voru sendir OL nefndinni í marz s.l., en svar hennar hefir ekki enn fengizt staðfest. Enda OL nefnd heldur þögul um vænt- anlega þátttöku íslenzkra sundmanna á OL í Mexico n.k. október. Enda þótt verktakar vinni við að fullgera sundlaugina í Laug- ardal hefur sundfólkið fengið að æfa sig í lauginni og hefir þessi fyrirgreiðsla borgarstjór- ans í Reykjavík verið sundsam- bandinu og afreksfólkinu ómeit- anleg. Með stakri rækt og eljusemi hefir sundfólkið náð mjög góð- um árangri. Það verður því full ástæða, til að fylgjast vel með þátttöku íslands í Unglingameist aramóti Norðurlanda, sem fram fer í Osló 2. og 3. júlí í sumar og landskeppninni við íra, sem fram á að fafa í sundlauginni í Laugardal 5 og 6. júlí- Sextán sundmenn og konur hafa verið valin til æfinga fyrir lands keppnina og ef marka má ár- angur þann, sem gefinn hefur verið upp, sem beztu afrek írska sundfólksins, á landskeppnin að geta orðið mjög spennandi. Bikarinn 22 sinnum hjá KR Vorknattspyrnan í Reykja- vík hefur verið misjöfn að vanda. Valsmenn hafa þó nokkuð skorið sig úr, þó leik- ir þeirra séu misjafnir eins og annarra liða og nokkuð skort á öryggi í leik liðsins og nýt- ingu tækifæranna. Hér er mynd frá leik Vals og Fram, sem Valur vann 5-2. Það er barizt af hörku um knöttinn, en eins og oft af meira kappi en með því að beita góðri tækni. Til gamans má geta þess, að sigurvegarar í Reykjavíkur- mótinu hafa orðið frá upp- hafi: KR 22 sinnum, Valur 14 sinnum, Fram 12 sinnum, Vík ingur 1 sinni og Þróttur 1 sinni. Skíðamót Austurlands 9KÍÐAMÓT Austurlands var háð í Neskaupstað dagana 13. og 14. apríl. Var mótið haldið í Odds- dal. Þrjú félög sendu keppendur; íþróttafélögin Huginn, Seyðis- firði; Þróttur, Neskaupstað og Austri, Eskifirði . Svig. Drengir 11-14 ára. 1. Sigurbergur Kristjánss. Þ 89,1 2. Sigurður Gíslason H. 93.4 sek. Svig. Drengir 14-17 ára: 1. Jón R. Árnason Þ 95.9 sek. 2. Gunnlaugur Nilssen H 108.7 Svig. Karlar 17 ára og eldri. 1. Ólafur R. Ólafsson H 101,1 sek. 2. Þorleifur Ólafsson Þ 108.0 Ganga. Flokkur drengja 11-14 ára 1. Einar Sigurjónss. Þ 12,34 mín. 2. Valur Harðarson H 14.15 mín. Ganga. Flokkur drengja 14-17 ára 1. Einar Emilsson H 23.50 mín. 2. Einar Hilmarsson H 27.09 mín Ganga. Flokkur karla 17 ára og eldri 1. Ómar Björgúlfsson Þ 23.11 mín 2. Jens Pétursson Þ 24.04 mín. Stórsvig. Drengir 14-17 ára: 1. Jón R. Árnason Þ 63.6 sek. 2. Gunnlaugur Nilsen H 74.4 Stórsvig Karlar eldri en 17 ára 1. Þorvaldur Jóhannsson H 70.5 2. Jens Pétursson Þ 70.7 sek. Svig. Konur 16 ára og eldri 1. Álfhildur Sigurðard. Þ 84.5 2. Dóra Sæmundsdóttir H 85,9 Svig. Stúlkur yngri en 16 ára 1. Kristbjörg Guðmundsd H 84.0 2. Guðrún H. Guðmunds. H 107.4 Stórsvig. Konur 16 ára og eldri 1. Dóra Sæmundsdóttir H 43.4 2. Gunnþ. Gunnlaugsd. H 45.4 Stórsvig. Stúlkur yngri en 16 ára 1. Kristbjörg Guðmundsd H 45.4 2. Hildur Tómasdóttir 'H 47.5 sek Stórsvig. Dregir 11-14 ára 1.-2. Sigurb. Kristjánss. Þ 74.8 1.-2. Sigurður Birgisson. Þ 74.8 3. Árni Guðjónsson Þ 75.8 sek. Boðganga: 1. Sveit Þróttar 31.28 mí . 2.. Sveit Hugins 32.36 mín. þús. láhorfend- ur að leik MANCHESTER United hefur [ sett enn eitt met í knatt- I spyrnu. Það voru þó ekki leik | mennirnir sem eiga hið nýja i met, heldur áhorfendur félags ins; þvi að yfir 57 þús. áhorf- ' endur sáu að meðaltali hvern 121 leik félagsins á hinu ný- | Iokna leikári, á velli Manchest , er United, Old Trafford. Bezta aðsókn að meðaltali I fram til þessa var á St. j James’s Park á leikvelli New castle United 1951 þegar sigur ganga þess var sem mest, eða 56.300. „Allt um iþróttir" — hefur göngu slna á ný sem íþróttablað, en nú í viku biaðsformi Á MÁNUDAGINN hefur göngu sína nýtt íþróttablað, sem ber þó gamalkunnugt nafn: „Allt um íþróttir". Útgefandi og ritstjóri er Ingimar Jónsson, sem nýlega varði doktorsritgerð við háskóla í Austur-Þýzkalandi og fjallaði ritgerð hans um íþróttir á íslandi fyrri hluta 20. aldar. Verður þetta vikublað í dagblaðsformi, nokkru minni síðustærð en í dag- blöðum, en átta síður hverju sinni. Ingimar ræddi við blaðamenn í gær um hið nýja blað. Kvað hann það ætlun sína að það flytti allar fréttir liðinnar helgar og kæmi út svo árla sem verða mætti á mánudögum. Auk þess myndi blaðið leggja ríka áherzlu á fræðslu um íþróttamál og skipta sér af sem flestum þáttum íþrótta. Ingimar verður einn við rit- stjórn blaðsins, en ýmsir skrifa þætti í blaðið m.a. Frímann Helgason. Um efnisval sagði Ingimar að á útsíðum og á bls. 2 og 7 yrðu fréttir helgarinnar. Á 3. síðu er ráðgert að hafa „viðtal vikunn- ar“ og er fyrst spjallað við Guð- mund Gíslason. Á 4. síðu verður skákþáttur, fjallað um ýmis mál, íþróttasögu og statistik. Á 5. síðu er fræðsla um þjálfun og fjallar Ingimar þar bæði um almenna þjálfun og sérhæfða þjálfun fyr- ir hinar ýmsu greinar. Þá er ráð- gerð ein auglýsingasíða. Blaðið mun kosta 15 kr. í lausa sölu og verður selt víðsvegar um landið. Kvaðst Ingimar vera bjartsýnn á gengi blaðsins, ef íþróttahreyfingin og íþróttafólk styddi sig í viðleitni til að efla ísl. fiþróttir. Reykjavík - Keflavík — á IUelavellinum I kvöld í kvöld er önnur bæjakeppni vorsins í knattspyrnu. Á Mela- velli mætast lið Reykjavíkur og lið Keflvíkinga. Leikurinn hefst kl. 8.30. Nú er að sjá hvort Reykvík- ingum tekst eins vel upp í sam- leik sínum og móti Akurnesing- um, eða hvort geta Keflvíkinga er næg til þess að stöðva allt slíkt — og kannski meira. Eft- ir úrslitum Litlu bikarkeppn- inpar að dæma ætti þessi leik- ur að minnsta kosti að verða miklum mun jafnari en sá á þriðjudagskvöldið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.