Morgunblaðið - 16.05.1968, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1968.
31
Stjórnarmenn Loftleiða, Kristján Guðlaugsson, Alfreð Elíasson og Einar Árnason, fagna flug-
stjóranum Ólafi Ólsen og áhöfn hinnar nýju flugvélar, Þorvaldar Eirikssonar, við komuna
Tekiö á móti
Þorvaldi Eiríkssyni
Hin nýja vél Loftleiða,
TF-LLJ, „Þorvaldur Eiríksson"
flugnúmer LL-423, kom úr
fyrsta áætlunarflugi sínu frá
Bandaríkjunum og lenti á Kefla-
víkurflugvelli kl. 10:30 í gær-
morgun. Á flugvellinum voru
mættir ýmsir forystumenn Loft-
leiða, m.a. Alfreð Elíasson og
Kristinn Olsen, Kristján Guð-
laugsson og Einar Árnason úr
stjórn Loftleiða, auk Sigurðar
Magnússonar blaðafulltrúa, o.fl.
Flugstjóri í þessu fyrsta áaetl-
unarflugi Þorvalds Eiríkssonar
var Olav Olsen, og voru honum
færð blóm við komuna af hlað-
freyju Loftleiða á Keflavíkur-
flugvelli Önnu Þorgrímsdóttur.
Aðrir meðlimir í áhöfn vélar-
innar voru: Guðmundur Ólafs-
son, aðstoðarflugmaður: Ingvar
Herbertsson, flugleiðsögumaður,
og Gerhard Olsen, flugvélstjóri.
Fyrsta flugfreyja var Andrea
Þorleifsdóttir. Aðrar flugfreyj-
ur voru: Sigurbjörg Snorradótt-
ir, Hanne Larsen, Sigrún Jó-
hannsdóttir, Hildur Ragnars og
Dröfn Hjaltalín.
Með vélinni frá Bandaríkjun-
um voru 100 farþegar, og héldu
60 þeirra beint áfram með vél-
inni eftir um klst. viðdvöl til
ósló, Gautaborgar og Kaup-
mannahafnar. Af vélinni hér á
Keflavíkurflugvelli fóru 40 far-
þegar — þ.e. íslendingar og svo-
nefndir viðdvalarfarþegar Loft-
leiða, en í þeirra stað komu um
40 farþegar sem fóru með vél-
inni héðan og til Norðurlanda.
Vélin er væntanleg aftur frá
Kaupmannahöfn, Gautaborg og
mannahöfn
Ósló í nótt. Viðdvölin í Kaup-
mannahöfn er um þrír tímar.
Flugstjóri í vélinni héðan í
morgun til Norðurlanda, flug-
númer LL-422, var Ásgeir Pét-
ursson. Honum til aðstoðar var
Magnús Guðmundsson, yfireftir-
litsflugmaður Loftleiða (þ.e.
chief check pilot).
Sinfóníuhljómsveitin
frumflytur íslenzka
sinfóníu í kvöld
Næst seinustu áskriftartónleik
ar Sinfóníuhljómsveitar íslands
á þessu starfsári verða haldnir
í kvöld.
Stjórnandi er Bohdan Wodiczko,
og á efnisskránni verða eftir-
talin verk: Forleikurinn að óper
unni „Brúðkaup Fígarós“ eftir
Mozart og Píanókonsert í C-moll
K.V. 491, einnig eftir Mozart.
Tónleikunum lýkur með frum-
flutningi Sinfóníu í f-moll,
„Esju“, eftir Karl O. Runólfs-
son.
Einleikari á tónleikunum verð
ur pólski píanóleikarinn André
Tchaikowsky. Hann hóf nám í
píanóleik á unga aldri í Pól-
landi. Að lokinni heimsstyrjöld-
inni síðari stundaði hann nám
við Tónlistarháskólann í París
og brautskráðist þaðan með heið
urspening. Áframhaldandi nám
hans var undir handleiðslu Ste-
fan Askenase.
Tchaikowsky hefur unnið til
ýmissa verðlauna í alþjóðlegum
— Farfuglarnir
Framh. af bls. 32
ar húsrými, sagði hann.
— Hér gránar jörð annan
hvern sólarhring og svo kalt er,
að það tekur ekki upp. Hanga
grýlukertin niður úr þakrennun
um, þó þau séu beint á móti
sól, sagði Benedikt. ísinn kælir
svo feikilega.
Lítil breyting er á isnum
en það lítið sem er, er I vest-
urátt, þvi SA-átt hefur ríkt að
undanförnu. Ekkert útlit er fyr-
ir breytingu á þessu fyrr en
átt breytist rækilega.
Að lokum svarar Benedikt
spurningunni um hvort hann
hefði nóg hey þannig: — Ekki
ef ég þarf að gefa fram i slát-
urtíð. Og bætti við: — Annars
held ég að í þessari sýslu séu
nægilegar heybirgðir.
samkeppnum. Tvítugur að aldri
vann hann verðlaun í Chopin
keppninni í Varsjá 1955, og ári
síðar í keppni þeirri, sem kennd
er við Elísabetu drottningu í
Belgíu. Þá var það, sem píanó-
snillingurinn heimsfrægi, Artur
Rubinsteiin sagði: „Ég állíf Andxé
Tchaikowsky einn bezta píanó-
leikara sinnar kynslóðar — og
hann er meir en það — hann
er afbragðs tónlistarmaður“. Síð
an hefur Tchaikowsky verið á
nær látlausum tónleikaferðum
um víða veröld, og hlotið hinar
beztu undirtektir.
André Tchaikowsky
Frumflutningur íslenzkrar sin
fóníu hlýtur í sjálfu sér að vera
mikill viðburður, en ekki ætti
það að draga úr eftirvænting-
unni,. þegar í hlut á eitt kunn-
asta tónskáld landsins. Sinfón-
ían ber heitið „Esja“, og segir
Karl sjálfur svo frá, að nafnið
hafi upphaflega átt við síðasta
þátt verksins, sem ortur var
fyrstur. Sinfónían er í fjórum
þáittum, þar af er einn scherzo
þáttur, sem saminn er um frum-
samið rímna og vikivakastef.
Yfir Grænlandsjökul
í svifflugu með vél
— Hafísinn
Framh. af bls. 32
þarna. Svo skörp er breyting-
in á sjónum þarna, að greini-
legur litamunur sést er siglt er
þar. Hlýsjávarmótin virðast fær
ast svolítið til, og gætu verið
svolítið vestar nú.
fs 3-4 sjómílur út frá HornafirSi
Skýrslan um isflugið í gær er
svohljóðandi:
Sigling sæmilega greiðfær frá
Straumnesi meðfram landi og um
1,4 sjóm. af Hornbjargi. Þaðan
má sigla eftir stórri vök, sem
liggur frá stað r/v 055 gr. fjarl.
8,0 sjóm. frá Horni, að stað r/v
090 gr. fjarl. 35 sjóm. frá Horni.
þar lokast vökin með 4 sjóm.
breiðu hafti 7-9/10 þéttleika. ís-
inn í hafinu virðist þó fremur
þunnur. A vakirnar er ísinn
um 7-9/10, en um 43 sjóm. r/v.
100 gr. frá Horni greiðist úr ísn-
um aftur. Út af Skaga er ísinn nú
um 7-9/10, en allrniklar vakir og
virðist sterkbyggðum skipum
fært þar í gegn.
Út af Siglunesi A-verðu er haft
en virðist siglandi og Eyjafjörð-
ur er fær til A til og grunnt
fyrir G jögur og Flatey. SA verð-
um Skjálfanda er þéttur ís
7-9/10 og einnig á Tjörnesgrunni.
Helzt virðist fært sem næst
Lundey og þaðan í NV-læga átt,
fyrir Flatey.
Lítill ís er á A-verðum Axar-
firði, og vök fyrir Rauðunúpa,
en lokast við Rifstanga. Þistil-
fjörður og Bakkaflói eru ósigl-
andi. Frá Bakkafirði suður að
Gerpi eir þéttur ís með landi
10/10 að þéttleika og nær víðast
2-8 sjóm. út. í dag virðast allir
firðir austanlands lokaðir nema
ef til vill Djúpivogur og Breið-
dalsvík. Þéttur ís lokar nú Höfn
í Hornafirði og nær 3-5 sjóm. út
fyrir ósinn.
Hornfirðingar skoða þessa
nýjung
Fréttaritari blaðsins á Horna-
firði sagði að hröngl væri inni í
höfninni á Hornafirði en mikill
ís úti fyrir svo langt sem sæist.
í höfninni liggur danska skipið
Catarina, sem iaskaðist er það
ætlaði til Norðfjarðar og kemst
hvergi. Síðast lokaðist höfnin af
ísi árið 1911. Þá flúði fransbt spít
alaskip inn í Hornafjörð og festist
þar í viku, ásamt strandbátnum.
Krakkarnir á Hornafirði hafa
gaiman af þessum ís, sagði írétta
ritarinn. Og í fyrrakvöld var
mikið um að vera. Þá voru full-
orðnir og börn um allt í bílum
að skoða ísinn og mikil umferð.
Enda þessi sýn mjög nýstárleg.
Nokkuð er um gesti á Horna-
firði, því nú er vel fært yfir
vötnin í Skaftafellssýslu á þílum.
Skólahópur úr Vestur-Skaftafells
sýslu gisti í Hornafirði í fyrri-
nótt, og von er á leikflokki þang
að um helgina.
Einkaskeyti til Mbl. frá Græn-
landi.
LÍTIL eins hreyfils fliugvél kom
hinigað í morgun frá Kefliavik og
tenti í Kulliusik á Austaxr-Græn-
landi kl. 16.15. Flugmaðurinn,
Miraa'av Slovak, vasr á leið til
New York í þessu veikbyggða
íanaintæki, en það er sviffluga
búin 36 hiestaflla Volikiswagein bil
vél.
Frá Kuliusik héflt hanm til
Syðri Straumfj'arðar á Vestur-
Grænlaindi og telja flugstj órnir
á Grænliaindi það óðs manns æði
er höifð eru í huga fyrri sflys á
inniamliandisísnium..
Þaðan ætlar harnn í áfömpgum
um Fnobisherflóa, Goose bay og
Labnador til New Yorlk. —
— Benzon.
Mbl. fékk þær frétrtir hjá fliug
uimisjón í Reykjiavík í gætnkvöldi
að Mirosfliav Slovak hiefði lemt í
Syðri Stna'umfiirði kl. 8.30 í gær-
kvö'ldi, heiliu og höldnu.
Somið við
verktako
ÁKEÐIÐ hefur verið að lnn-
kaupastofnun Reykjavíkur semji
við Óla T. Magnússon og Hellu &
steinsteypuna s.f. um kaup á
steinsteyptum hlífðarplötum fyr-
ir jarðstrengi.
>-------------------------------
Fjarðarheiði hefur verið lokuð
I allan vetur og farið yfir hana
til Seyðisfjarðar á snjóbílum. Nú
er farið að moka þama, og tal-
ið að það sé 2—3 daga verk.
Þessa mynd tók Hákon Aðalsteins
son á heiðinni í gær.