Morgunblaðið - 16.05.1968, Page 32
INNIHUBÐIR
i landsins . i
mesta úrvali
SIGUKÐUR ELÍASSON HF.
AUÐBREKKA 52—54, KÓPAVOGI.
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1968
Unga fólkið
— málgagn ungra stuðningsmanna
Cunnars Thoroddsens
Út er komið „Unga fólkið“
málgagn ungra stuðningsmanna
Gunnars Thoroddsens. í blaðinu
er greint frá stofnun samtaka
Thoroddsens í Reykjavík. Til-
gangur samtakanna er m.a. að
skipuleggja starf unga fólksins
í kosningaundirbúningnum, fá
sjálfboðaliða til starfa og safna
fé í kosningasjóðinn.
f 1. tbl. „Unga fólksins“ er
sagt frá nokkrum æviatriðum
Völu og Gunnars Thoroddsens.
Jón Ögm. Þormóðsson laganemi
ritar greinina Forsetaembættið í
hnotskum og Ómar Þ. Ragnars-
son skrifar þátt, sem hann nefn-
ir íslendingasögur hinar nýju,
en þar er fjallað um „hina göf-
ugu þjóðaríþrótt, „kjaftasagna-
listina".
í ritnefnd 1. tbl. eru: Friðrik
Sophusson, Helgi E. Helgason,
Ómar Þ. Ragnarsson, Sigríður
R. Sigurðardóttir og Þórður Ár-
elíusson.
Skrifstofa samtaka ungra
stuðningsmanna Gunnars Thor
oddsens er í Vesturgötu 17, sími
84520 og annast Baldvin Jóns-
son daglegan rekstur hennar.
Ingóltthofii^
Ljott þotti Þingeyingum að lita yfir Skjalfanda á þriðjudag, þó segja megi að myndin sé falleg. Yfir
flóann, allt frá hafnargarðinum er að sjá samfeld an ís og við bryggju liggur GOÐAFOSS og bíður
þess að ísinn beri burt. — Og bændur bíða þess ein nig að hann fari og að þeir fái sauðgróður og
hlýrra veður, því almennt mun sauðburður hafinn, — og sjómennimir komast ekki á sjóinn.
Ljósm.: - Spb.
Farfuglarnir drepast unnvörpum
á ísilagðri suðausturströndinni
Rœtt við Benedikt í Hvalnesi
ÉG ER fimmtugur og hefi ver-
ið alla mína æfi hér í sveit-
inni og aldrei séð hafís fyrr.
En nú er hér ísbreiða út í
hafsauga og varla sér í vök á
milli, sagði Benedikt Stefánsson,
bóndi á Hvalnesi við Lón í sím-
tali við Mbl. í gær. Síðast sást
ís þar um slóðir 1918. En faðir
Benedikts, Stefán Jónsson í
Hlíð, sem kominn er á níræðis-
aldur, sagði honum að svona mik
ill ís hefði ekki komið síðan
1881.
Kuldalegt er um að litast í
Hvalnesi, að sögn Benedikts, og
útlitið óskaplegt. Að þessum
hluta landsins koma hópar
farfugla. — Nú deyr mikið af
þeim, sagði Benedikt. Á hverj-
um morgni er mikið af dauðum
steindeplum í hlöðunni hjá mér,
en ég hefi hana alltaf opna fyrir
Hafísinn þéttist upp að s-austur
horni landsins
En þar eru skörp straumaskil
Hafísinn er nú kominn suður
fyrir suðausturhorn landsins og
liggur þéttur að Höfn í Horna-
firði, en úr því eru aðeins stak-
ir smájakar vestur með, langleið-
is að Hrollaugseyjum, samkvæmt
könnun úr flugvél Landhelgis-
gæzlunnar. Margir hafa látið
sér detta í hug að nú mundi
hafísinn berast vestur með Suð-
urlandi, en dr. Unnsteinn Stef-
ánsson, haffræðingur sagði okk-
ur að þarna væru skörp hita-
skipti í hafinu og kaldur straum
ur frá Austurlandi lægi á haf
út, munaði 3-4 stigum á hita,
svo hann hefði ekki trú á öðru
en að ísinn bráðnaði ef hann
kemur í svo miklu hlýrri sjó.
Flugvélin Sif fór í ísfluginu
um 340-350 sjómílur í norðvest-
ur frá íslandi. — Þetta er alveg
ógurlegt ísmagn á hafinu milli
fslands og Grænlands, sagði
Gunnar H. Ólafsson, skipherra.
Og ísinn liggur svo til þéttur
alls staðar, frá föstu ísröndinni
við Grænland og til íslands. Og
ekki er fallegt að fljúga yfir
landið, bætti hann við. Þó mað-
ur fljúgi með allri ströndinni
annan hvern dag, hringinn í
kringum landið, sér hvergi enn
á grænan díl.
fsinn rekur skyndilega í hlýrri
sjó.
Dr. Unnsteinn Stefánsson út-
skýrði strauma við Suðaustur-
ströndina þannig, að milli Eystra
og Vestra Horns lægi kaldi
straumurinn, sem kemur niður
með Austurströndinni, frá landi
og á haf út, þannig að ís er
bærist með honum, kæmi skyndi
lega í hlýrri sjó, eftir að hann
væri kominn fyrir Vestra Horn.
Hitastigið væri svolítið breyti-
legt, en munað gæti 3-4 stigum
Ef enginn ís er, væri sjávarhit-
inn 3-4 stig fyrir austan, en
alltaf 7 fyrir sunnan. f 19 ár
voru síritandi hitamælar í
strandferðaskipunum, svo mikil
reynsla er komin á hitastigið
Framhald á bls. 31
þá. Þeim virðist þó ekki duga
að komast þar inn. Líka sjáum
við mikið af dauðum lóum og
eitthvað af skógarþröstum. En
máríerlurnar virðast harðger-
ari. Þær syngja og veifa stélinu
hér á hlaðinu og láta þetta ekki
á sig fá.
Sauðburður er hafinn í Hval-
nesi og alls staðar í kring. Bene
dikt hefur 250 kindur og er allt
féð innibyrgt í húsum. — Það
verða alltaf mestu vandræði þeg
ar fer að bera í húsi, þá vant-
Framhald á bls. 31
Veðurfar
líkt og
Benedikt í Hvalnesi
Sléttones I sjólfstýringu
Sáu ekki brezka togarann
SJÓPRÓF hafa farið fram hjá
borgardómara í Reykjavík vegna
árekstursins er varð milli brezks
togara og Sléttanessins. Kom það
Mundoði byssn
í Kirkjustræti
Ölvaður maður sló um sig í
Kirkjustræti í gær og mundaði
skammbyssu, sem vegfarendum
sýndist vera raunveruleg. Lög-
reglan kom von bráðar á stað-
inn og handtók manninn. Byss-
an var hvellhettubyssa, en góð
eítirlíking. Maðurinn er sagður
meðal „kunningja" lögreglunn-
fram í framburði skipstjóra og
skipverja á Sléttanesi, að enginn
þeirra sá brezka togarann fyrr
en áreksturinn varð. Voru menn
staddir stjórnborðsmegin í stýr-
ishúsinu, en togarinn kom þvert
á bátinn bakborðsmegin. Var
skipstjórinn sjálfur í brúnni,
ásamt fleirum.
Það kom einnig fram að bát-
urinn var á siglingu milli neta í
ágætu skyggni og var sjálfstýr-
ingin á. Bera skipsmenn að á
engan hátt hafi verið breytt
siglingastefnu, eða hreyft við
sjálfstillingu.
Við áreksturinn fylltist vélar-
rúmið alveg af sjó, svo og kom
sjór í íbúðir aftan til í skipinu.
Framhald á bls. 2
Hofsósbátar á sjó
18. ágúst
Bæ, Skagafirði, 15. mai.
HÉR í ytrihluta Skagafjarðar
er mjög vetrarlegt eins og er.
Eftir hríðarveður frá mánaða
mótum, er þó sæmilegt veður
í dag og í gær. Snjóa tekur
nokkuð upp um hádaginn. Alls
staðar er sauðburður byrjað-
ur og sums staðar húinn og
allt sauðfé er á húsi. Margir
bændur eiga hey til næstu
mánaðamóta, en sumir búnir
með hey nú þegar. Útlitið er
því mjög alvarlegt.
Héðan frá Bæ eru nú að
sjá hafþök og á Skagafirði að
vestan er mikið ísrek. Mjög
lítið er hægt að fara á sjó.
Gamall maður segir mér, að
veðurfar og ís, hagi sér mjög
svipað og 1882. Þá var fyrst
hægt að fara á sjó frá Hofsósi
18. ágúst. — Bjöm.