Morgunblaðið - 05.06.1968, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 196«
'B/lALf/KAM
Rauðarárstíg 31
Sími 22-0-22
MAGINIÚSAR
iKIPHOLT»2Í SÍMAR 21190
eftir lokun simi 40381 j
SÍH11.4444
mfíim
Hverfisgötu 103.
Sími eftir iokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 11—13.
Hagstætt leigugjald.
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748.
Sigurður Jónsson.
BILALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
JOHItlS - MAItlVILLE
glerullarcinangrunin
Fleiri og fleiri nota Johns-
Manville glerullareinangrun-
ina með álpappírnum
Enda eitt bezta einangrunar-
efnið og jafnframt það
langódýrasta.
I»ér greiðið álíka fyrir 4”
J-M glerull og 2Mi” frauð-
plasteinangrun og fáið auk
þess álpappír með!
Sendum um land allt —
Jafnvel flugfragt borgar sig.
Jón Loltsson hí.
Hringbraut 121. - Sími 10600.
Akureyri: Glerárgötu 26.
★ Skrílsæði
kommúnista
Ólafur Öm Klemensson
skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Eg get ekki orða bundizt um
aðsúg kommúnista að . Nato-
skipunum. Þvílík skrílslæti
hlýtur að vekja menn til um-
hugsunar um framtíð íslenzks
þjóðfélags. Hvar á vegi er þjóð-
in stödd, þegar opinberum full-
trúum erlendra vinaþjóða er
sýnd slík framkoma, hvernig
geta þeir menn kallað sig
ábyrga um velferð lands vors,
sem líta með velþóknun á slíka
atburði?
Ég var svo óheppinn að vera
áhorfandi að tötralýð þeim og
fjarstýrðri öfgaæsku, sem hellti
svo ógeðslega úr skálum van-
þroska síns, þegar ég skoðaði
skipin á H-daginn. Þar var ég
vitni að slíkum helgispjöllum.
að mér munu seint úr minni
líða. Forystumenn Æskulýðs-
fylkingarinnar brenndu opin-
berlega fána Atlantshafsbanda-
lagsins.
Nú er fáninn æðsta tákn
þeirra dyggða, sem mest eru í
heiðrum hafðar, og gilda um
notkun hans mjög strangar
reglur. Segir orðrétt í almennu
hegningarlögunum, að það að
smána erlenda þjóð eða þjóða-
bandalög, þjóðhöfðingja þess
eða fána, teljist undir landráð.
Slíkt athæfi hafa ungkommar
hvað eftir annað leikið, án þess
að hljóta refsingu fyrir.
Hvernig væri nú að gera
þessa menn ábyrga gjörða
sinna, svo að þeir sverti ekki
framar álit íslands á alþjóða-
vettvangi með skrílshætti og
múgsefjunum?
Þegar við höfum kennt fólki
að hlýða lögunum, þá fyrst get-
um við talið okkur í hópi sið-
aðra þjóða, því að með lögum
skal land byggja, eins og par
stendur.
Ólafur Örn Klemensson“.
Fyrirspurn
Ásmundur Guðmundsson
spyr:
„Velvakandi minn: Getur þú
frætt mig á því, hvort ekki
verði þegar komið landslögum
yfir fólk það, sem í margra
votta viðurvist sleit banda-
ríska fánann aftan af ferjubáti
í Reykjavíkurhöfn sl. sunnu-
dag og kastaði honum í sjóinn?
Eða fólkið, sem brenndi fána
Atlantshafsbandalagsins, einn-
ig í viðurvist fjölda vitna? Eða
fólkið, sem réðst að bíl, fullum
af fólki, og reyndi að velta hon-
um? Eða fólkið, sem sprautaði
málningu á erlend skip í kurt-
eisisheimsókn?
Við íslendingar þolum ekki,
að þetta fólk fái að fremja
ódæðisverk sín, án þess að rétt
refsins að landslögum komi fyr-
ir. Annars verðum við að kenna
því mannasiði, sem hingað til
hafa tíðkazt á okkar friðsama
íslandi.
Eiga kannske kirkjugarðs-
vargarnir að sleppa við refs-
ingu, þegar þeir finnast?
Ásmundur Guðmundsson“.
Ekki bara hopp
og hí
Brynjólfur Jónsson skrif-
ar:
„Kæri Velvakandi: Of marg-
ir sjá aðeins broslegu hliðina
við ærsl ungkommúnista á hafn
arbakkanum vegna flotaheim-
sóknarinnar frá bandalagsþjóð-
um okkar í NATO. Vist var
spaugilegt að sjá lýðinn taka
það nærri sér að verða fyrir
stríðni smákrakka, og gaman
var að sjá þá kurteislegu and-
úð, sem almenningur sýndi
spjaldberunum. Þúsundir
manna komu til að skoða skip-
in og gengu fussandi og svei-
andi framhjá þessari fjörutíu
manna ofstækisgrúbbu, sem
varð miður sín af einangrunar-
kennd. Broslegt var líka að sjá,
að mesti sprelligosinn í hópn-
um var miðaldra læknir. Þá
kímdu ýmsir að áletruninni,
sem einum tókst að klína með
rauðri menju á einn skips-
skrokkinn: „Che úr NATO 09“.
Líklega hafa þeir átt við það,
að Che Guevara ætti að segja
sig úr NATO árið 1969. Fram
til þessa hefur ekki verið vitað,
að þessi framliðni fjöldamorð-
ingi, sem fékkst við að drepa
bolivíska bændur ásamt með
byssubófum sínum, hafi verið
aðili að NATO. — En hann er
nú alla vega dauður, sem betur
fer, hvort sem hann var leyni-
legur meðlimur í NATO eða
ekki.
^ Litlir rauð-
fasistar
En þetta er ekki allt sam-
an tómt hopp og hí. Á bak við
býr grimm ofbeldishneigð; sú
trú, að hefna megi þess með
hnefum og málningu, sem ekki
næst í frjálsum kosningum.
Gegn slíkum hugsunarhætti
verðum við öll að vera vel á
verði. Þessir rauðfasistar veija
líka dag til óhæfuverka sinna,
þegar þeir vita, að allt lögreglu-
lið borgarinnar er önnum kafið
við að leiðbeina almenningi
um nýjar umferðarreglur, —
sennilega í þeirri trú, að ekki
væri mannafli til þess að hafa
hemil á skrílslátum þeirra. En
þeim varð ekki að ósk sinnL
Lögreglan í Reykjavík sýndi
það, að hún getur fyllilega haft
í tré við óeirðaseggina, þótt
hún sé um leið að sinna mann-
frekasta og mikilvægasta verk-
efni sínu um margra ára skeið.
Þökk sé henni. Yið vitum nú,
að okkur er óhætt að treysta
henni til þess að verja okkur
fyrir litlu rauðfasistunum.
Með fyrirfram þökk fyrir
væntanlega birtingu“.
Þiirí ið þér
sérstðk dekk
fyrir H-UMFERÐ ?
Nei,adeins gðð.
Gerum fljótt og vel við hvaða dekk sem er,
seljum GENERAL dekk.
hjólbarðinn hf.
Laugavegi 178 * sími 35260
Rafvirki óskast
Rafvirki sem getur unnið sjálfstætt og haft umsjón
með verkum óskast. Meistararéttindi ekki nauð-
synleg.
Tilboð merkt: „Rafvirki — 8759“ sendist Mbl. fyrir
15. þ. m.
Póst- og símamálastjórnin
óskar eftir tilboðum í leggingu stöðvarhúss á Skála-
felli í Mosfellssveit. Útboðslýsingar verða afhentar
í skrifstofu tæknideildar á 4. hæð Landssímahúsins
e.h. 5. júní 1968.
BEZTA GLMMÍBEITAN í 20 ÁK