Morgunblaðið - 05.06.1968, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1968
11
Mannvinurinn Helen Keller
Helgaði líf sitt í þágu blindra og daufdumbra
Þegar Helen Keller kom hingað til lands fyrir 11 árum tók
Ólafur K. Magnússon þessa mynd, þegar hún var að heilsa
einum ungur heyrnar- og má lausum pilti.
HELEN Keller lézt sl. laugar-
dag að heimili sínu í Ala-
bama, 4Í7 ára að aldri. Bana-
mein hennar var hjartabilun.
Helen Keller var blind og
heyrnarlaus frá barnæsku
vegna illkynjaðs sjúkdóms er
hún hlaut 19 mánaða gömul.
Með fádæma viljaþreki og
skapfestu tókst henni að sigr-
ast á þeim erfiðleikum er
þessu fylgdu og með starfi
sínu fyrir blinda og dauf-
dumba um allan heim gaf
hún þeim þrek til að gera hið
sama.
Til sjö ára aldurs lifði hún
í „engri veröld“ eins og hún
sagði síðar og barðist gegn
einangrun sinni. Þá vildi það
henni til happs, að foreldrar
hennar fengu kennslukonu,
Önnu Sullivan að nafni, til
hennar. Anna var írskrar ætt-
ar og hafði sjálf verið blind,
en uppskurður hafði veitt
henni sjónina á ný.
Anna Sullivan átti erfitt
verk fyrir höndum. Hún
kenndi Helen Keller að nema
orð með því að stafa þau með
fingrunum á hönd hennar, en
blinda stúlkan skildi þó ekki
fyrr en löngu seinna, þegar
vatn úr dælu rann yfir hendi
hennar. Önnu tókst að kenna
Helen með þolinmæði og
þrautseigju að lesa, skrifa og
tala. Var sagan af þessari bar
áttu vinkvennanna skráð í
leikritsform. Leikritið var
sýnt viða og einnig var sag-
an kvikmynduð, og hefur sú
kvikmynd verið sýnd hér á
landL
Anna Sullivan stóð við hlið
Helen Keller til dauðadags,
1936, og sagði Helen þá: „í>að
var kennari minn sem færði
mér kærleikinn og opnaði
augu mín og hjálpaði mér að
öðlast þekkingu og meta mik-
ilfengleik lí£sins“.
Polly Thompson, sem var
einkaritari Helen Keller frá
1914, tók þá sæti Önnu Sulli-
van.
f ævisögu sinni segir Helen
Keller frá því, að eitt sinn
hafi legið nærri að hún gift-
ist. Hún felldi ástarhug til
ungs blaðamanns, sem var
einkaritari hennar meðan ung
frú Thopson var í leyfi. Þau
fengu sér leyfisbréf og hugðu
á hjúskap, en móðir hennar
var hrædd við uppistand og
tók dóttur sína í flýti heim til
sín. Um þennan atburð skrif-
aði Helen Keller: „Hvaða
kona hefur ekki þráð ást, en
ég held, að mér verði ekki
gefið að njóta hennar frekar
en tónlistar eða ljóss“.
Helen Keller var mikilvirk
ur rithöfundur og hlaut
heimsfrægð fyrir bók sína
„Saga lífs míns“, er fyrst kom
út 1902. Hún skrifaði margar
bækur og ritgerðir. Hún var
vel menntuð, gekk í háskóia,
er hún var um tvítugt og
lærði tungumál, hagfræði og
heimspeki. Sagði hún síðar, að
þetta hefði opnað fyrir sér
nýjar víðáttur. Helen Keller
hóf snemma starf sitt í þágu
blindra og daufdumbra. Hún
var óþretyandi í því starfi og
ferðaðist til flestra þjóðríkja
veraldar. Hvarvetna eggjaði
hún blint og daufdumbt fólk
lögeggjan til að láta ekki
merki sitt falla en sigrast á
erfiðleikunum, afla sér mennt
unar og vinna að þjóðnýtum
störfum. Sjálf var hún ein-
stæð fyrirmynd. Hún talaði
móðurmál sitt svo að vel var
skiljanlegt og kunni sex
tungumál að auki. Las hún af
vörum þeirra, er við hana töl
uðu, með fingrunum.
Heilsu Helen Keller fór
hnignandi síðustu fjögur árin
og þau tvö síðustu lá hún í
kör. Sjálf sagði hún: „Menn
ættu ætíð að hafa það hug-
fast, að dauðinn er ekki lok
lífsins, heldur ein sú reynsla,
sem mikilvægust er.
Helen Keller hlotnaðist
margs konar heiður og virð-
ing, m.a. var hún sæmd æðsta
heiðursmerki er forseti
Bandaríkjanna veitir borgara.
Var það árið 1964.
★
Helen Keller kom hingað
til lands í maíbyrjun 1957
ásamt leiðsögukonu sinni ung
frú Thompson. Sótti hún
heim málleysingjaskólann og
flutti almennan fyrirlestur í
Hátíðasal Háskólans.
í Málleysingjaskólanum
var tekið hjartanlega á móti
Framíh. á bls. 23
Rúskinnsjakkar og rúskinnskápur
NAPPASKINN OG NAPPASKINNSKÁPUR
13 LITIR.
JASON, Bröttugötu 3 B.
Rýmingarsala
Kvenpeysur, kjóiar, kápur, skokkar á mjög
lágu verði.
SÓLBRÁ, Laugavegi 83.
OLIVETTI RAFRITVÉL
PRAXIS 48
SAMEINAR GÆÐI, STYRKLEIKA
OG STÍLFEGURÐ, VERÐ KR. 17.500
m. s. sk. FULLKOMIN VIÐGERÐA-
ÞJÓNUSTA,
TRYGGIR LANGA ENDINGU
G. HELGASON & MELSTED HF.
Rauðarárstíg 1 — Sími 11644.
HVER AF ÞESSUM
ÞREM
KAFFITEGUNDUM
ER BEZT?
■4 1 (^0—1
irííl AVOKKA JAVA
Það er smekksatriði - hitt er staðreynd að allt er þetta
úrvalskaffi. Þess vegna eru allar tegundirnar svona hressandi.
*
0. J0HNS0N &KAABER
VEUUM fSLENZKT <H> ISLENZKAN IDNAD
Lumb erpa nel vi ð a r þ i 1 j u r
Stærð Stærð Stærð Stærð
270 x 30 270 x 30 250 x 30 250 x 30
Plötuverð Plötuverð Plötuverð Plötuverð
Limba kr. 184.— kr. 130.— kr. 155.— kr. 110,—
Gullálmur kr. 270.— kr. 185.— kr. 229,— kr. 157.—
Eik kr. 306,— kr. 209,— kr. 259,— kr. 178.—
Askur kr. 259.— kr. 178,—
Oregon Pine kr. 193.— kr. 132,—
Fura kr. 218.— kr. 150,—
Einnig tilheyrandi f jaðrir og festingar.
Vegna gæða og verðs er meira key pt af þessum viðarþiljum en af
nokkrum öðrum.
Páll Þorgeirsson & Co. Sími 1-64-12. — Vöruafgr. 3-40-00.