Morgunblaðið - 05.06.1968, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JUNI 1908
— Jæ.ja, Kalli, þegar þú verður búinn að vera 6 vikur á sultar-
skammti langar mig að sjá helminginn af þér á ný.
væri orðin magnþrota. — Ef svo
er ekki, hvað getur það þá ver-
ið? spurði hún lágum rómi og
hrædd-
— Ég veit ekki, hvað það get-
ur verið, en það er að minnsta
kosti ekki frá mér komið, sagði
Nemetz, — og heldur ekki frá
öðrum í lögreglunni. Síðan sagði
hann henni frá heimsókn Toth-
fjölskyldunnar, kvöldinu áður.
Hún brosti í afsökunar skyni.
— Fyrirgefið, að ég skyldi ráð-
ast svona að yður — og það ein
mitt núna, þegar svona illa stóð
á fyrir yður. Allt í einu fór hún
að gráta. Fólk gekk fram hjá
báðum megin, en enginn virtist
einusinni taka eftir henni.
— Þetta er ofmikið af því
góða, sagði hún, og kjökraði af
gráti. Hálfs mánaðar kvalræði
— hann undir grun — ég veit,
að hann myrti hana ekki — ég
veit, að hann gerði það alls
ekki. Ég hef svo miklar áhyggj-
ur af honum og hann iætur eins
og ekkert sé, en honum er alls
ekki sama fyrir því. En það er
víst ekki neitt óalgengt, að
menn séu grunaðir um að hafa
myrt eiginkonu sína.
— Hann er ekki grunaður,
sagði Nemetz.
— Jú víst er hann það. Hún
hristi höfuðið ákaft. — Þetta er
hefndin hennar. Hún eyðilagði
lífið fyrir honum, meðan hún
lifði og því ætlar hún að halda
áfram, eftir að hún er dáin. Ein-
hver hefur myrt hana og nú
vill hún, að það bitni á honum.
Og það tekst henni áreiðanlega
skuluð þér sanna.
Nemetz leiddi þana að einum
bekknum í forstofunni og sett-
ist þar hjá henni.
— Ég skal eftir því, sem ég
get, reyna að komast að því,
hvað Rússarnir vilja honum,
sagði hann við hana- — Segið
Halmy lækni, að hann skuli ekki
fara til yfirherstjórnarinnar á
morgun. Bezt væri ef hann gæti
verið í felum, þangað til ég tala
við hann. Já, það verður hann
að vera. Hann verður að finna
sér einhvern stað þar sem hans
verður ekki leitað. En þér skul-
uð ekki einusinni segja mér,
hvar sá staður er. En hringið til
mín í lögreglustöðina í fyrramál-
ið.
Eftir að hann var farinn, sat
hún kyrr á bekknum stundar-
korn. Hún var tómleg og þreytt,
en rólegri en áður. Af einhverri
ástæðu hafði þetta viðtal við Ne-
metz róað hana. Það var víst
enginn vafi á því, að hann var
óvinur, en samt gat hún ekki
annað en haft einhverskonar
dótturkennd gagnvart hon-
70
um. Hann var á svipuðum aldri
og faðir hennar hefði verið,
hefði hann lifað, og líklega var
það þessvegna, að hún var eitt-
hvað svo róleg í návist hans.
Andlitið á honum, með örinu,
var ófrítt og vöxturinn lotleg-
ur, fötin hans voru krukluð og
héngu utan á honum, og í útliti
minnti hann hana alls ekki á há-
vaxna laglega manninn, sem
faðir hennar hafði verið. En
þessi ró, sem fylgdi honum, ein-
lægnin, sem kom fram í orðum
hans og gjörðum, gerði hann ein
Jazzballett-
skóli 6ÁRU
Nýtt 5 vikna námskeið að
hefjast. Innritun daglega í
síma 83730 eftir kl. 2.
Dagtímar — kvöldtímar.
Barnafl. — unglingafl.
Byrjendur á öllum aldri.
Sýningarflokkar fyrir
framhaldsnemendur.
Jazzballett-
skóli BÁRU
Stigahlíð 45.
Konur
Megrunarleikfiml
fyrir konur á öllum aldri.
Fimm vikna kúr. Aðeins
tíu konur í hverjum flokki.
Dagtímar — kvöldtímar.
Góð húsakynni.
Böð á staðnum.
Konum einnig gefinn kost-
ur á matarkúr eftir læknis-
ráði.
Prentaðar leiðbeiningar
fyrir heimaæfingar.
Nú er rétti tíminn til að
grenna og fegra iíkamann
fyrir sumarleyfin.
Tímapantanir eftir kl. 2
alla daga í síma 8 37 30.
Jazzballettskóli Bárn
Stigahlíð 45.
hvernveginn kunnlegan og vin-
gjarnlegan.
Hún stóð hægt upp og hægt
gekk hún upp stigann. I rann-
sóknarstofunni fann hún Halmy
liggjandi á legubekknum. Hann
var vakandi.
— Það er ekki Nemetz, sem
hefur kært þig fyrir Rússunum,
sagði hún. — Líklegast er það
þessi ágæti tengdafaðir þinn,
sem hefur gert það. Þau komu
til hans í gær, Toth og konan
hans, og vildi fá þig tekinn
fastann.
— Fyrir hvað?
Hún dokaði andartak, áður en
hún sagði máttleysislega: —
Vegna hennar Önnu. Hún fann
sjálf, að hún roðnaði. — Þau
hata þig, hvort sem er, er ekki
svo? Það hefurðu sjálfur sagt.
Þú hefur sagt það hvað eftir
annað, er það ekki? Hún var
reið sjálfri sér fyrir að taka sér
þetta svo nærri. — Æ góði
horfðu ekki svona á mig. Ég
segi hvort sem er ekki annað en
það, sem Nemetz sagði. Hann ætl
ar að tala við Rússana og kom-
ast að því, hvað þeir vilja þér.
Hann heldur víst, að þú sért í
vandræðum. Og hann telur, að
þú eigir að vera í nótt einhvers-
staðar, þar sem ekki verður leit-
að að þér. Og farir ekki til yf-
irherstjórnarinnar í fyrramálið.
Hún tafsaði þessar setningar,
rétt eins og Rússarnir væru þeg-
ar farnir að berja að dyrum —
En hvert eigum við að fara?
Heima hjá mér verður okkur
ekki óhætt. Kannski getuð við
fengið að sofa í íbúðinni hennar
r
L'tgerðarmenn
Athygli skal vakin á því að engar síldarnætur verða
afhentar út af verkstæðum vorum nema gegn stað-
greiðslu.
Landssamband íslenzkra netaverkstæðiseigenda.
\ iðskiptaf ræðingur
með langa og góða starfsreynslu óskar eftir starfi.
Vanur stjórn og skipulagningu fyrirtækja, erlend-
um bréfaskriftum, bókhaldi og ölium almennum
skrifstofustörfum.
Tilboð merkt: „Viðskiptafræðingur" sendist í póst-
hólf 604, Reykjavík.
Tilboð óskast um sölu á eftirtöldu byggingarefni
í tollstöðvarbyggingu í Reykjavík:
1. Hert, litað gler í utanhúss veggþiljur.
2. Tvöfalt samanlímt rúðugler.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 10140
NÝKOMNAR
málningarsprautur
olíusprautur
loftpressur.
verkfœri & jdrnvörur h.f.
Tryggvagötu 10 Sími 15815.
Birkiplönlur til sölu
hjá Jóni Magnússyni, Suðuirgötu 73, Hafnarfirði.
Sími 50572.
Aðalfundur 1968
Aðalfundur tollvörugeymslunnar h.f., verður hald-
inn í Sigtúni í dag miðvikudaginn 5. júní 1968 og
hefst kl. 20.30.
Hrúturinn 21. rnarz — 19. apríl.
Vertu gott fordæmi öðrum, ekki sízt við vinnu þína, þrátt
fyrir afstöðu annarra.
Nautið 20. apríi — 20. maí.
Lotorð eru á hverju strái, líkt því og væri útsala í dag og því
lítið að marka þau. Gerðir annarra eru meira virði.
Tvíburamir 21. mai — 20. júní.
Fóik í kringum þig blóðlangar í ófrið í dag, einfkum vegna
peninga. Vertu fámáll.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí.
Kurteisi kostar ekkert, en getur margborgað sig.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst
Legðu varlega trúnað á sögusagnir og haltu þig við vinnuþína.
Meyjan 23. ágúst — 22. september.
Eitthvað kann að valda þér áhyggjum, athugaðu hvað þú hefur
fyrr tekið til bragðs við svipuð tækifæri.
Vogin 23. september — 22. október.
Endurskoðaðu hag þinn.
Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember.
Gafðu öllum svigrúm í dag og haltu þig utan við allt sem
valdið gæti erfiðleikum og varndræðum.
Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember.
Faiðu varlega í fjármálum í dag, og gerðu engar stórbreytingar
nema þær séu þér hagkvæmar.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar.
í dag skaltu umfram allt beita þolinimæðinni, þvi að vinimir
geta verið dálítið þreytandi.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar.
Trúðu mátulega því sem þú heyrir. Freetaðu öllum stórað-
gerðum. Vertu heima í ró og næði er kvöldar.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz.
Flestir munu reyna að ganga bak orða sinna gagnvart þér I
dag, og standa á því fa-star en fótunum, að þú hafir gert sUkt
hið sama. Rejmdu að gera gott úr öllu.