Morgunblaðið - 05.06.1968, Síða 30
30
MORGUNBLAEIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1908
Guðmundur nálgast 19 m
markið í kúluvarpinu
— bætti met sitt í 18,45 metra
á E.Ó.P. mótinu sl. föstudag
E.Ó.P.-frjálsíþróttamót KR-inga
fór fram sl. föstudag. Á mótinu
bar það helzt til tíðinda, að Guð-
mundur Hermannsson, KR, setti
nýtt glæsilegt íslandsmet í kúlu-
varpi. Bætti hann fyrra met sitt
úr 18.21 metrum í 18.45 metra.
Má segja að þetta afrek Guð-
mundar sé heimsmet út af fyrir
sig, og það sem meira er — ekki
er ástæða til að ætla að Guð-
mundur láti hér staðar numið,
heldur muni 19 metrarnir vera
hans takmark í sumar. Með 19
metra kasti mun Guðmundur
skipa sér í fremstu röð kúluvarp
ara í Evrópu. Á mótinu á föstu-
dag voru öll köst hans um 18
metra, það næst lengsta 18.02
metrar og þriðja lengsta 17.99
metrar.
Erlendur Valdimarsson varð
annar 1 kúluvarpinu, kastað.i
15.75 m. og Jón Pétursson, HSH,
þriðji með 15.20 m. Þær stór-
stígu framfarir sem Erlendur
hefur tekið í köstunum kom
betur fram í kringlukastinu, en
þar sigraði hann með 5018 m.
kasti. Hefur hann breytt stíl sín-
um og árangurinn lætur ekki á
sér standa. Þarna er á ferðinni
íþróttamaður sem óhætt er að
binda miklar vonir við. Annar
í kringlukastinu varð Þorsteinn
Alfreðsson, UBK, með 45.74 m.
og Jón Pétursson þriðji, kastaði
44.95 m.
Skemmtileg keppni var í
tveimur hlaupagreinum, 400 m.
hlaupi og 1500 m. hlaupi. I fyrr-
nefnda hlaupinu sigraði Trausti
Sveinbjörnsson, UBK, á 52.2 sek.,
Sigurður Jónsson, HSK, varð
annar á 52.6 sek og bráðefnileg-
ur hlaupari úr Ármanni, Rúdolf
Adolfsson þriðji á 53.7 sek. Hljóp
hann ekki í sama riðli og Trausti
og Sigurður og er ekki að efa,
að með keppni hefði hann náð
betri tíma.
í 1500 metra hlaupinu sigraði
Þórður Guðmundsson, UBK, á
4:14.5 mín., annar varð sigurveg
arinn í víðavangshlaupi ÍR, Örn
Agnarsson, UÍA, á 4:23.8 mín.
Hélt hann lengi vel í við Þórð,
en varð að gefa sig á síðasta
hringnum og munaði þá litlu að
kornungur Borgfirðingur, Rún-
ar Ragnarsson, hlypi hann uppi.
Tími Rúnars var 4:24.7 mín.
Keppni í stangarstökki, lang-
stökki og hástökki var fremur
tilþrifalítil. Valbjörn sigraði í
tveimur fyrrnefndu greinunum,
stökk 3.80 metra í stangarstökki
og 6.60 metra í langstökki. Ann-
ar í stangarstökkinu varð Páll
Eiríksson, KR, stökk 3.65 m., og
sömu hæð stökk einnig Hreiðar
Júlíusson, ÍR. Fjórði í keppninni
varð Guðmundur Jóhánnsson,
HSH, og stökk hann 3.50 metra.
Á hann vafalaust eftir að bæta
sig að mun í greininni, þar sem
hann hefur nokkuð góðan stíl
yfir ránni.
í langstökkinu varð annar
Karl Stefánsson, UBK, með 6.60
m. Hann er mjög kraftmikiil
stökkvari, en þarf að ná meiri
hraða í atrennunni og bæta nið-
urkomu sína úr stökkinu. Takist
það, kemur 7 metra stökk áður
en varir.
Bjarni Stefánsson, KR, sigraði
í 100 m. hlaupi drengja á 11.4
sek. og varð annar í 100 m.
hlaupi fullorðinna á 11.5 á eftir
Valbirni sem hljóp á 11.3 sek.
Er Bjarni efni í góðan sprett-
hlaupara og er vonandi að hann
ástundi áfram æfingar.
Jón Þ. var óheppinn í hástökk
inu, fór aðeins 1.95 m. Annar
varð Elías Sveinsson, ÍR, stökk
1.80 m. og jafnaði þar með
sveinametið í greininni sem
hann setti á dögunum.
í sleggjukasti sigraði Jón H.
Magnússon, ÍR, með 51.07 m., en
Þórður B. varð annar, kastaði
48.43 m.
Keppt var í tveimur kvenna-
greinum. í 100 m. hlaupinu
hljóp Kristín Jónsdóttir, UBK,
nærri íslandsmetinu, hljóp hún
á 12.9 sek. f hástökkinu sigraði
Anna Gunnarsdóttir, Á, stökk
1.40 m.
Framkvæmd mótsins var ekki
áfellulaus, og virðist svo sem
seint ætli að takast að skipu-
Guðmundur varpar
leggja frjálsíþróttamót þannig,
að áhorfendur geti haft gaman
að þeim. Mikils er t.d. um vert
að þulurinn standi vel fyrir
sínu, kynni árangur keppenda
jafnóðum og rifji upp fyrri af-
rek þeirra. Þannig fengu hinir
fáu áhorfendur t.d. ekki að vita
um árangur í kringlukasti fyrr
en keppni var búin og ennfrem-
ur fórst fyrir að tilkynna úrslit
í einni grein. Þess er hins vegar
skylt að geta, að sá er var þulur
á mótinu tók það starf að sér á
nokkrum íþróttamótum í fyrra
og leysti þá verkefni sitt af
hendi svo til fyrirmyndar mátti
teljast. Vonandi er að stjórnend-
ur frjálsíþróttamóta taki nú á
sig rögg, þannig, að áhorfendur
laðist að mótunum
Þýzka atvinnuiiðið vann
lið Keflavíkur 4-1
STERKT OG SKEMMTILEGT LIÐ
Þýzka atvinnumannaliðið,
Schwarzweiss frá Essen, sem
hér er í boði Keflvíkinga, lék
Kaufmann framherji
varnarmaður
Vestmannaeyingar
móti Þjóðverjunum
f KVÖLD kl. 8:30 er annar
Ieikur þýzka atvinnumanna-
liðsins Schwarzweiss. Leik-
urinn fer fram í Keflavík og
mótherjar Þjóðverja nú verða
nýliðarnir í 1. deild, lið Vest-
mannaeyja.
Auk þess sem marga mun
fýsa að sjá hið þýzka lið, sem
er létt leikandi og skipað
mörgum snjöllum köppum,
eru margir forvitnir á að sjá
hvað í Vestmannaeyingum
býr. Vestmannaeyjaliðið kom
mjög á óvart með 3—1 sigri
sínum yfir íslandsmeisturum
Vals í 1. leik liðsins í 1. deild.
Nú er spurningin hvort í
Eyjamönnum býr sá fersk-
leiki og kraftur sem skipi
þeim framar í röð en öðrum
íslenzkum liðum. Svarið fæst
í kvöld í Keflavík — og verða
án efa margir til að líta á
Vestmannaeyingana í „alvöru
Ieik“, því í Reykjavík leikur
liðið ekki fyrr en 14. júlí sam
kvæmt leikjabókinni.
fyrsta leik sinn — gegn gest-
gjöfunum — á 2. í hvítasunnu
í Kefiavík. Þjóðverjamir fóru
með stóran sigur af hólmi, 4
mörk gegn 1, og náðu er á leið
yfirburðum á vellinum, enda í
liði þeirra margur snjall knatt-
spyrnumaðurinn að vonum. Hefði
Iítið verið hægt við því að segja
þó sigur Þjóðverjanna hefði orð-
ið 1—2 mörkum stærri. Þrátt fyr
ir það börðust Keflvíkingar mjög
vel einkum framan af og Kjart-
an markvörður stóð sig með
stakri prýði í markinu — þrátt
fyrir mörkin fjögur.
Aðeins eitt mark var skorað í
fyrri hálfleik. Var þar Wolfmar
útherii að verki. Hljóp hann af
sér Ástráð bakvörð og skoraði
örugglega eftir þau snöggu til-
þrif.
í síðari hálfleik skoruðu Þjóð-
verjar þrjú mörk til viðbótar
Bahnenkampfer skoraði af víta-
teigi með glæsilegu skoti í efra
horn marksins — óverjandi Skot
og litu síðar var aftur skotið
af mikilli hörku á mark ÍBK
og breytti knötturinn stefnu á
varnarmanni svo Kjartan fékk
engum varnartilraunum við kom
ið .
V. útherjinn Wiershing átti
svo allan þátt að 4. markinu.
Sendi hann utan af kanti svo
laglega og hnitmiðað að Bahnen-
kampfer gat vart mistekist að
senda knöttinn í netið.
Grétar Magnússon skoraði ruark
ÍBK rétt fyrir leikslok eftir að
markvörður hafði hálfvarið og
slegið knöttinn til Grétars.
Ahorfendur voru nálægt 1500
talsins og voru allir á einu máli
um að hér væri sterkt lið á
ferðinni þar sem „Svart-hvítt“
er. Leikmenn eru samanreknir
og stæltir og margir mjög
skemmtilega leikandi. Fremstur
þar í flokki er úth. Wiershihg.
Kjartan átti sem fyrr segir
góðan leik í markinu og einnig
átti Sigurður Albertsson góðan
dag en ÍBK liðið í heild barðist
betur en það hefur gert að und-
anförnu.
Englending-
hættu?
ar i
I DAG fara fr,am iedlkirnir í
undanúrslitum um Evrópuibikar
landsliða. f Flórenz miætast lið
Englands óg Júgósiiaivíu og í
NapoLi, ítailár móti Sovét.
FLestiir telja þetta erfiðustu
raun enska liðsins siðan þan vann
HM tiil'tiilinn. Júgóslaivar hafa
m.a. „slegáð út“ V-Þjóðverja á
leið sinni í unidanúrslitin. Eiiga
Júgóslavar unga og mjög stenka
framlherja og hitinn sem nú er á
Ítalíu er talinn há Eng'leniding-
um mun meir.
Sovézka liðið er veikara en oft
áður vagna meiðsla margra Leiik-
manna.
Þjðöverjar
unnu Breta
V-Þjóðverjar sigruðu Engilend-
inga í landslleilk í knattisipyrnu á
laugardag 1-0. Þetta er fyrsti
siigur V-Þjóðverja yfiir Englend-
ingum eftir stríðið.
Sir ALf Ramsey teflidi þarna
fram aðeimis 4 úr hieimsmei»tara>-
liðinu, en hvíldi hina fyrir leilk-
inn gegn Júgóslavíu í kvöld
(miðv.dag).
Markið var skorað í siðari hálif
leik við gífurliegan fögnuð slgur-
þyrstra Þjóðlverja.
í. leik un:g 1 i ngala n>dslið a ummu
Englendingar 1-0.
Fram og
KR 2-2
í GÆR léku Fram og KR í 1.
deild íslandsmótsins. Jafntefli
varð 2—2. Með þessum leik lauk
1. umferð af 9 í mótinu og stað-
an er þessi:
Vestm.eyjar 1 1 0 0 3—1
Akureyri 1 10 0 1—0
Fram 1 0 10 2—2
KR 10 10 2—2
Keflavík 1 0 0 1 0—1
Valur 1 0 0 1 1—3
Þjálfarar til
Danmerkur
Borizt hefur boð frá Danska
Handknattleikssambandinu um
að senda 2 þjálfara á námskeið
I. stigs, sem fram fara í Vejle á
tímabilinu 3.-7. júlí eða 23.-27.
júlí. Geta þátttakendur valið um
hvort tímabilið þeir kjósa frem-
ur.
Þeir þjálfarar, sem hug hafa á
að sækja námskeið þessi til-
kynni það stjórn H.S.Í. fyrir
II. júní n.k.
Ellen Ingvadóttir
Tvö fslandsmet í sundi
— í tveim fyrstu greinunum eftir vígsluna
Við vígslu Laugardalslaugar-
innar nýju fór fram keppni í
fjórum sundgreinum. Voru sett
íslandsmet í tveimur fyrstu
sundgreinunum er í var keppt
og má því segja að vel sé af
stað farið eftir vígslu laugar-
innar. Ellen Ingvadóttir Á og
Guðmundur Gíslason settu met-
Ellen sigraði með yfirburðum
í 100 m bringusundi á 1:24.0 sem
er 2-10 úr sek betra en met
Hrafnhildar Guðmundsdóttur. 2.
var Ingibjörg Haraldsd. Æ
1:30.8 og 3. Helga Gunnarsd. Æ
1:31.7
Guðmundur Gíslason bætti
eigið met um 1,10 úr sek, synti
100 m skriðsund á 58.2 sek. 2.
Gunnar Kristjánsson 1:01.3 og
3. Kári Geirlaugsson 1:04.4
f 100 m skriðsundi kvenna
sigraði Hrafnhildur Guð-
mundsd. ÍR á 1:06.4, 2. Hrafnh.
Kristjánsd. A 1:07.0 3. Sigrún
Siggeirsd. Á 1:11.5.
í 100 m bringusundi sigraði
Leiknir Jónsson Á 1:15.1 2. Árni
Kristjánsson 1:19.2 3. Erlingur
Jóhannsson KR 1:21.6.