Morgunblaðið - 12.07.1968, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
Ofsaveður í Evrópu
I»essi fallega og táknræna íslenzka mynd var meðal mynda á ljósmyndasýningu, sem haldin var
í Mílanó á Ítalíu í apríl si. — Sjá grein á bls. 21.
Drög að nýrri stjórnar-
skrá birt í Grikklandi
Dregið úr völdum konungsins og þingsins
París og Lundúnum, 11. júlí.
AP-NTB.
FÁRVIÐRI með gífurlegri íir-
komu geisaði á Bretlandseyjum
og meginlandi Evrópu í gær og i
dag og olli feikna tjóni á mönn-
um, skepnum og eignum. Talið
er að tugir manna hafi drukknað
í Bretlandi og Þýzkalandi, en
ekki liggur enn ljóst fyrir hve
sú tala er há, þar eð viða eru
mörg þorp og bæir algerlega ein-
angruð frá umheiminum.
Herlið hefur verið kvatt út í
Bretlandi og í V-Þýzkalandi til
að aðstoða við björgunaraðgerðir
en einu farartækin sem hægt er
að koma við, eru þyrlur og vatna
Bættur vöru-
skiptujöfnuð-
ur Bretu
London, 11. júlí. AP-NTB.
ÓHAGSTÆÐUR vöruskiptajöfn-
uður Bretlands lækkaði um 86.4
milljónir dollara í síðasta mán-
uði, að því er brezka verzlúnar-
ráðið sagði í dag, og er þetta
talin fyrsta bendingin um að
áhrifa gengisfellingarinnar í
nóvember sé farið að gæta til
hins betra. Það sem af er ársins
er vöruskiptajöfnuðurinn þó enn
óhagstæður um 120 milljónir
doilara, en þróunin í síðasta mán
uði er talin mjög jákvæð.
bifreiðar. Ár og fljót flæddu víða
yfir bakka sína og ollu mikiu
tjóni á ökrum og beitarlöndum.
Gömul rúmliggjandi kona drukkn
aði í rúmi sínu, er flóð flæddi
inn í hús hennar. Víða hefur
neyðarástandi verið lýst yfir í
byggðalögum beggja vegna Erm-
arsunds.
Hundruðir manna hafa orðið
að leita læknishjálpar og sjúkra-
hús víða í Þýzkalandi höfðu vart
undan. Veður þetta skall á svo
til fyrirvaralaust og víða Komst
vindhraðinn upp í 11 vindstig á
örskömmum tíma. Margir segja
að óveður þetta sé eitt hið
versta sem nokkurn tímann hefur
gengið yfir meginland Evrópu
Talið er að nokkrir dagar muni
líða áður en hægt er að gera sér
fulla grein fyrir tjóninu sem af
veðrinu hefir hlotizt.
Kosygin í opin-
berri heimsókn
í Svíþjóð
Stokkhólmi, 11. júlí, AP-NTB-
ALEXEI Kosygin, -forsætisráð
herra Sovétríkjanna, kom í opin-
bera heimsókn til Svíþjóðar í
dag og tók Tage Erlander, for-
sætisráðherra, á móti honum
ásamt öðrum háttsettum sænsk-
Framhald á bls. 3
Aþenu, 11. júlí. AP-NTB.
Gríska stjórnin birti í dag
drög að nýrri stjórnarskrá,
þar sem gert er ráð fyrir að
dregið verði til muna úr völd
um konungsins og þingsins
og að dagblöð verði háð
ströngu eftirliti. Stjórnar-
skráruppkastið verður borið
undir þjóðaratkvæði 29. sept-
ember, en ekki 1. september
eins og áður hafði verið á-
kveðið.
Samkvæmt stjórnarskrárupp-
kastinu verður konungi bannað
að skipa forsætisrá'ðherra eða
víkja forsætisráðherra frá völd-
um. Sá stjórnmálaflokkur, sem
fær hreinan meirihluta á þingi,
skipar forsætisráðherrann, og
ráðherrar mega ekki jafnframt
eiga sæti á þingi. Þingið verður
með nær öllu valdalaust og fær
aðeins að fjalla um lagafrum-
vörp, sem litlu máli skipta. Þing-
mönnum verður fækkað úr 300
í 150.
Harðasta árásin á frjálslyndu öflin í Tékkóslóvakíu:
Pravda líkir þróuninni í Prag við
ástandið 1956 í Ungverjalandi
— Uggur vegna áframhaldandi návistar sovézkra hersveita,
en tilkynnt að brottflutningur hetjist á morgun
Prag, 11. júlí. AP-NTB.
STJÓRNIN í Tékkóslóvakíu tilkynnti í dag, að samkvæmt
upplýsingum frá yfirherstjórn Varsjárbandalagsins hæfist
á laugardaginn brottflutningur sovézkra hersveita, sem tekið
hafa þátt í heræfingum á vegum bandalagsins í landinu.
Undanfarinn sólarhring hefur gætt mikils uggs í Tékkó-
slóvakíu út af drætti þeim, sem hefur orðið á brottflutningi
sovézkra hersveitanna. 1 gær var haft eftir flokksforingjum
í Prag, að hersveitirnar yrðu um kyrrt í Tékkóslóvakíu og
að liðsauki yrði sendur til viðbótar.
Samtímis þessu gerði málgagn sovézka kommúnistaflokks-
ins, Pravda, í dag, harkalegustu árásina á leiðtoga frjáls-
ræðisþróunarinnar í Tékkóslóvakíu er gerð hefur verið til
þessa. Blaðið líkti ástandinu í Tékkóslóvakíu við ástandið í
Ungverjalandi 1956, varaði við „gagnbyltingarsinnum“ og
hét tékkneskum kommúnistum „fullum stuðningi“. Greinin,
sem ber fyrirsögnina „Árás á sósíalistískar (kommúnistísk-
ar) undirstöður Tékkóslóvakíu“, túlkar sjónarmið æðstu
leiðtoga Sovétríkjanna.
Greinin hefur orSiB til þess
að auka onm ugg mamma í Tékkó-
slóviakíu þrátt fyrir tilkyminiing-
una umn væmtamlegam hrottflutn-
ing Bovézku hermamnamma, sem
virðast hafa neitað að halda heim
eftir heræfimgarmar. Aðalritari
sovézka kommúmistaflokksims,
Leonid Brezhnev, sagði i síðustu
viiku, að sovétstjónnim gæti ekki
látið sér þróum mála i ausitam-
tjaldslöndumum í léttu rúmi
liggja og að kommúnistaflokkar
yrðu að halda völdum sínum ó-
skertum í löndunum.
Orðsending frá Moskvu?
Fréttaritarar segja, að með
Alexander Dubcek
greininni í Pravda hafði sovézk-
ir leiðtogar búið sér hugmyndá-
Framhald á bls. 31
Stjórninni verður heimilt að
stjóma að miklu leyti með til-
skipunum og setur sjálf öll lög,
Framhald á bls. 3
Bretar geia út hvíta
bók um hernaðarmúl
London, 11. júlí — AP—NTB
BREZKA stjórnin skýrði frá því
i dag í hvítri bók, að hún myndi
á næstu árum auka mjög hernað
arlegan stuðning sinn við Atlants
hafsbandalagið. Þá segir einnig
í bókinni, að Bretar hyggist
styrkja mjög sjó, land og flugher
sinn í brezku nýlendunni Hong
Kong.
í bókinni er skýrt frá fram-
kvæmidaáætlun Breta um að
draga miestallan herafla sinn aust
an Súezskurðar burt fyrir árið
1971. Þeir hyggjast afhenda yf-
irvöMum í Singapore án greiðslu
alla flotastöð Breta þar með öll
um tilheyrandi tækjium og út-
búnaði og verður framkvæmd
þessa máls hraðað eftir msætti.
f bókinni er listi yfir stuðn-
ingsáættun Breta við NATO á
næstu 4 árum og segir þar, að
á næsta ári muni flugsveit lang-
drægra könnunarflugvéla sett
undir yfirstjórn NATOS. Árið
1970 tundurispiilUr búinn elidflaug
uim svo og brezkt eftirlitsskip.
Sa.ma ár verður Rapier fLugsveit
úr konunglega brezka flughern-
um afhent NATO og 1971 sveit
bandarískbyggðra Panthom árás-
arþota. Loks verða á árunum
1971—72 NATO fengnar til yfir-
stjórnar a'llar Buccaneer og Pant
hom þotur Breta, sem nú eru í
smiíðum. Siðastnefndu þoturnar
geta flutt vetnissprengjur lang-
ar vegalengdir.
T
*